Vísir - 08.03.1975, Page 1
VÍSIR
65. árg. Laugardagur 8. marz 1975 — 57. tbl.
Stefnir í verkföll
„upp úr púskum"?
Spurningunni „Verða verkföll
og þá hvenær?” gátu'menn ekki
svarað i gærkyöldi. A samninga-
fundinum i gær gekk ekki nægi-
lega saman til þess að menn væru
vongóðir. Sáttasemjari, Torfi
Hjartarson, var óræður, þegar
blaðið hafði samband við hann, en
ekki vildi hann þvertaka fyrir, að
eitthvað hefði gengið saman.
Sumir hafa spáð verkföllum
eftir páska og sagt sem svo, að
verkföll þurfi að boða með viku
fyrirvara og varla muni þau boð-
uð i páskavikunni.
„Það er ekkert að frétta — i
bili” sagði Torfi i gærkvöldi við
spurningunni, hvort formleg til-
boð hefðu komið fram þá á fund-
inum.
— HH
Vörubílstjórar
heimsóttir:
Ástandið ekki
svona slœmt
í 40 ór
- bls. 3
STÓÐU HRYÐJUVERK FYRIR DYRUM í BYGGINGU
ÍSLENZKA SENDIRÁÐSINS í STOKKHÓLMI?
Grunsamlegir Japanir
★
Lesendur
hofo orðið
— sjó bls. 2
★
Ætlarðu í
kirkju á
morgun?
Margir prestar telja sig
verða vara við vaxandi
kirkjusókn um þessar
mundir. Kannski ætlar þú i
kirkju i fyrramálið, gang-
andi I góða (vonandi) veðr-
inu. A bls. 3 er aö finna tvær
fréttir af kirkjustarfi i Kópa-
vogi og frétt um aldarfjórð-
ungs starf óháða safnaðar-
ins. í dagbók er svo að finna
lista yfir messur i kirkjum
höfuðborgarinnar,—
★
Úr klössun
eftirstrand,
í annað
strand
— Baksíða um
Hvassafellið
★
FORDINN FÆR
NÝn LÍF
— baksíða
handteknir við húsið
//Japanarnir höfðu verið
um tvo daga fyrir utan
bygginguna og fylgzt með og tekið mikið af Ijós-
því, hverjir komu og fóru myndum af fólki, sem
íkveikja í gœrkvöldi í nýbyggingu
rannsóknarstofu Háskólans?
Mikill eldur stór-
skemmdi nýja byggingu
rannsóknarstofu Háskóla
islands á Landspítalalóð-
inni. Húsið er stál-
grindarhús, og er bygging
langt komin. Búið var að
einangra húsið, en ekki
enn búið að glerja það eða
loka því.
Virðist einhver hafa farið inn i
húsið og lagt eld i einangrunina,
sem er mjög eldfim. Þegar
slökkviliðið kom á staðinn á 9.
timanum i gærkvöldi skiðlogaði
byggingin og var mikill reykur
frá eldinum. Tókst þó að
slökkva eldinn á hálftima, en
lengi á eftir var unnið við að
slökkva i glæðum, sem fundust.
Hús þetta er reyndar lang-
þráður draumur rannsóknar-
fólksins, enda hefur það búið við
miklar þrengingar. Hafa rann-
sóknir ýmissa sýna tekið lengri
tima fyrir bragðið. Virðist sá
hugsunarháttur að leggja eld að
húsi óheilbrigður i hæsta máta,
— en að leggja eld að húsum á
spitalalóð virðist ganga vit-
firringu næst.
—JBP—
Newsweek um endurlífgun Vestmonnoeyja
— sjú Að utan bls. 6
þarna átti leið um. Eins
höfðu þeir farið inn í ganga
hússinsog gert uppdrætti."
Þessar upplýsingar fékk Visir
hjá sendiherra Islands i Sviþjóð,
Guðmundi I. Guðmundssyni. Við
byggingu þá i Stokkhólmi, er is-
lenzka sendiráðið er i ásamt
fimm öðrum sendiráðum, höfðu
menn tekið eftir bil, sem stóð á
bilastæði hússins með tveim
mönnum i.
Er menn höfðu veitt þessum bil
eftirtekt i tvo daga tilkynnti eitt
sendiráðanna lögreglunni um
hann, og á miðvikudagskvöldið
voru mennirnir tveir handteknir.
„Það varð ekki séð að athygli
Japananna hefði beinzt að neinu
ákveðnu sendiráði i húsinu,”
sagði Guðmundur 1. Guðmunds-
son.
„Lögreglan fann i bil Japan-
anna myndavélar og fjölda filma,
með samtals um 300 myndum á.
Eins var þarna að finna teikning-
ar af göngum hússins. Þarna eru
ásamt okkar sendiráði sendiráð
Austurrikis, Uruguay, Sómaliu,
Libanon og Bangladesh. Á neðstu
hæðinni er sendiráð Uruguay og
sendiráð okkar og Bangladesh á
hæðinni þar fyrir ofan,” sagði
Guðmundur I Guðmundsson.
„Það er alla daga mikil örtröð
manna á göngum byggingarinn-
ar, manna af öllum þjóðernum og
þvi var ekki von að við veittum
Japönunum eftirtekt strax. Þaö
kom i ljós, að mennirnir tveir
höfðu komið á bilaleigubil frá
Osló með fölsuð vegabréf, en
ekkert hefur komið fram um
tilgang þeirra né það hvort áhugi
þeirra hafi veriö bundinn okkur
frekar en öðrum,” sagði Guð-
mundur.
Lögreglan hefur ekki viljað
gefa frekari upplýsingar um
mennina, sem hún handtók.
Kvaðst hún vilja geyma það til
mánudags, að þvi er fréttir frá
Sviþjóð herma.
Félagarnir tveir kölluðu sig
Kazoo Watanalo og Ryoji Yone-
jama á gistihúsinu, sem þeir gistu
á og sögðust fæddir 1951. Þessar
upplýsingar reyndust rangar og
hafa mennirnir tveir harðneitað
að segja á sér nánari deili.
Lögreglan segir, að vel megi
vera, að Japanirnir tilheyri
samtökum hryðjuverkamanna.
Japanska sendiráðið varaði
Svia við þvi fyrir mánuði, að
félagar i japanska hermdar-
verkamannaflokknum „rauði
herinn” störfuðu i Sviþjóð. Þessir
tveir eru ekki á lista japanska
sendiráðsins yfir þessa félaga
„rauða hersins”. Lög i Sviþjóð
veita lögreglu heimild til að hand-
taka útlendinga, sem eru
grunaðir um að vera hermdar-
verkamenn. Halda má þeim i
fangelsi um nokkurt skeið, meðan
rannsókn stendur, og siðan má
gera þá landræka.
—HH/JB