Vísir - 14.03.1975, Page 5

Vísir - 14.03.1975, Page 5
Visir. Föstudagur 14. marz 1975. 5 apUntEbR útlönd í morgun útlöndí morgun útlönd í MORGUN Umsjón: GP Herinn kastar grím unni í Portúgal Portúgalsher hefur verið kvaddur til vopna vegna orðróms um, að yfir vofi erlend ihlutun i innanrikismál Portú- gala, eftir að bæld var niður uppreisnartil- raun hægri afla hers- ins. Eftir uppreisnina réöust vinstrisinnar á skrifstofur kristilegra demókrata I Lissabon og brenndu öll skjöl flokksins. Enginn veit, hvaða „erlendu öfl” það eru, sem núverandi yfirvöld Portugals hafa svona illan bifur á, en herinn er hafður til taks til vonar og vara. — f þessu samhengi er ekkert á það minnzt, að hann er auðvitað jafn reiðubúinn til að snúast gegn hverjum þeim aðila innan- lands, sem sýnir sig líklegan til Hermenn uröu að gæta vestur-þýzka sendiráðsins f fyrradag, þegar æstur skrill sótti að þvi, vitandi um fjóra uppreisnarmenn, sem leit- að höfðu þar hælis. Mennirnir voru siðar framseidir. þess að risa upp gegn stjórn- völdum. Með einni tilskipan voru allir bankar landsins þjóðnýttir i gær, og nýmyndað byltingar- ráð hersins hefur tekið alla stjórn landsins i sinar hendur. Það hefur tekið sér umboð rikis- ráðsins og leyst af hólmi sjö manna herforingjaráðið, sem komið var á, þegar fyrri stjórn landsins var bylt. Bráðabirgðastjórn borgara- legra stjórnmálamanna hefur sagt af sér, og grimulaust stjórnar herinn nú öllu. Vopnahlé við Kúrda Stjórn íraks hefur samþykkt vopnahlé um tima i striði sinu gegn skæruliðum Kúrda i norðurhluta íraks. Málgagn Baaths- ílokksins i írak, Al-Tha- wra, kunngerði þetta í morgun. Bóg kjör Vopnahléð á að gilda til mánaða- móta, en blaðið segir, að stjórnin sé eftir sem áður staðráðin i að uppræta „óaldarlýðinn i fjöllun- um norðanlands”. Tilkynningin um vopnahlé kemur aðeins viku eftir að Irans- keisari og varaforseti íraks áttu með sér fund i Alsir, þar sem reynt var að bæta sambúð þess- ara rikja. Gerðu þeir með sér samkomulag um, að stöðvaðar yrðu ferðir skæruliða Kúrda yfir landamæri fraks og írans. En Kúrdar hafa lengi átt vist hæli i íranog stuðning stjórnvalda þar i baráttunni gegn fraksstjórn. Viðbúnaður á landa- mœrum Sýrlands Mordekhai Gur, yfir maður herafla ísraels, hefur varað við því, að möguleiki sé á þvi, að til bardaga komi á norður- landamærum ísraels. — Segir hann, að það mundu verða skriðdrekaátök sögunn- ar. Gur hershöfðingi sagði i útvarpi i gær, að ísraelsmenn hefðu orðið varir við mikla liðsflutninga Araba við landamæri Sýrlands. Sagði hann, að þar væru á ferð- inni Palestinuarabar og skærulið- ar að meirihluta til, sem senni- lega yrðu hafðir i framvarðar- sveitum, ef til átaka kæmi. Þessu var útvarpað samtimis þvi, að Henry Kissinger utan- rikisráðherra Bandarikjanna kom til Tel Aviv frá Kairó með siðustu tillögur Sadats Egypta- landsforseta i friðarumleitúnum milli ísraela og Egypta. brezkra þingmanna Brezkir þingmenn bera sig illa útaf launum sínum og kvarta undan því, að þeir verði að hirast i léleg- um hótelum og gera sér að góðu snarl í ódýrum kaffi- húsum til þessaðtreina sér 4.500 sterlingspunda (1,7 milljón kr.) árslaun. — Þingfararkaupið var „fryst" í janúar 1972 sem fordæmi fyrir aðra lands- menn Neil Kinnock, einn þingmanna Verkamannaflokksins, segir, að fjöldi þingmanna sé kominn i 2000 punda yfirdrátt i bönkum. Segir hann, að þeir séu algerlega háðir örlyndi bankastjóra. Ofan á þrengingar brezkra þingmanna bætist svo það, að framleiðslumenn i London eru i verkfalli, svo að þessa dagana er ekkert að hafa i svanginn nema kalt salat — og alls engan bjór. Er kominn kurr i þingliðið. Ekki nóg með, að kaupið þyki lágt, heldur eru fundir flesta daga vikunnar langt fram á kvöld, svo að vinnan er mikil. — Einn þing- manna lét hafa eftir sér, að ástar- lif sitt væri i molum vegna allrar þessarar næturvinnu. 140 þingmenn hafa undirritað bréf, þar sem farið er fram á leið- réttingu þessara mála, en ekki er búizt við neinni hreyfingu i þá átt fyrr en i fyrsta lagi i júni. Þetta kemur harðast niður á þingmönnum utan af landsbyggð- inni, meðan þeir, sem i London búa, þurfa ekki að leigja sér hótelherbergi eða kaupa máltiðir (þegar þær eru fáanlegar) i mat- söluhúsum. Sovézka skóksambandið sendir FIDE tóninn Skáksamband Sovétríkj- anna gaf til kynna i gær- kvöldi, að Anatoli Karpov mundi ekki tefla einvígið við heimsmeistarann Bobby Fischer, ef FIDE breytir reglunum að kröfu Fischers. TASS-fréttastofan birti i gær- kvöldi yfirlýsingu sovézka skák- sambandsins, en 5 dagar eru þangað til alþjóðaskáksambandið kemur saman til aukafundar i Hollandi til að ræða kröfur Fisch- ers um einvigisreglurnar. t yfirlýsingunni segir, að „sérhver tilraun til að breyta ákvörðun þings FIDE i Nice (júni siðastl.) skapar hættu á þvi, að einvigið verði ekki haldið.” — Þvi var lýst yfir, að brygði stjórn FIDE út frá ákvörðun þingsins, sem sótt var af fulltrúum 77 þjóða, „þjónar engum tilgangi fyrir skákmenn að sækja skákmót á vegum FIDE i fram- tiðinni.” Fischer krefst þess, að fjöldi skáka verði ótakmarkaður, að áskorandinn verði að vinna 10-8 að minnsta kosti til að hreppa titilinn. — Hótaði hann að afsala sér titlinum og mæta ekki til ein- vigisins, ef FIDE yrði ekki að kröfum hans. Sovézka skáksambandið segir i yfirlýsingu sinni, að þessar kröfur séu fáránlegar, og ennfremur, að boðun auka- fundarins i Hollandi sé i trássi við siðgæði og réttar reglur. Sakar það FIDE um að skapa Fischer óskaskilyrði og að setja um leið Karpov i svo ójafna aðstöðu, að slikt sé óheyrt áður i sögu heims- meistarakeppninnar. Bent er á. að Max Euwe, forseti FIDE, hafi gengið að tillögu'Fischers um að einvigið verði háð i Manila, þar sem 5 milljón dollara verðlaun eru i boði. — Karpov hafði stungií upp á Milanó, þar sem boðin eru aðeins 440 þúsund dollara verðlaun. Enn jafn- teflí hjú Guðmundi Þrir eru nú jafnir i efsta sætinu I minningarmóti Capablanca á Kúbu. Eru þeir Viasukov, And- ersson og Balashov allir með 5 1/2 vinning. Guðmundur Sigurjónsson gerði í gær jafntefii við Andersson og er með 3 1/2 vinning. — Flestar skákir hans hafa orðið jafntefli, en hann hefur heldur ekki tapað skák enn sem komið er. — Hann er búinn að tefla við Viasukov og varð sú skák jafntefli I 19 leikjum. 38 eldflaugar hæfðu flugvöllinn I Phnom Penh i gær og hæfðu 40 smálesta skotfærabirgðir, sem sprungu i loft upp. Mvndin hér við hliðina var tekin af spreng- ingunni. Hefur oröið að gera hlé á loftflutningum i bili vegna skemmdanna.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.