Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 17.04.1975, Blaðsíða 4
4 Vísir. Fimmtudagur 17. april 1975. Laust embœtti, er forseti íslands veitir Prófessorsembætti I byggingarverkfræöi i verkfræðiskor verkfræði- og raunvisindadeildar Háskóla Islands er laust til umsóknar. Fyrirhugaö er að rannsóknir og aöalkennslugreinar verði á sviði fræöilegrar burðarþolsfræði og aflfræði fastra efna. Umsóknarfrestur er til 15. mai n.k. Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur um prófessorsembætti þetta skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmiöar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Émbætti þetta var áöur auglýst I Lögbirtingablaði nr. 19/1975 með umsóknarfresti til 1. þ.m. en umsóknarfrestur er hér með framlengdur til framangreinds tima. Menntamálaráðuneytið, 14. april 1975. Lausar stöður Eftirtaldar þrjár lektorsstöður I heimspekideild Háskóla ís- lands eru lausar til umsóknar: Lektorsstaöa I bókasafnsfræði, lektorsstaða I uppeldisfræðum og lektorsstaða I frönsku. Að þvi er varðar stöðuna I uppeldisfræðum skal tekið fram, að endurskoðun á skipan kennslu og rannsókna I uppeldisfræðum, m.a. aö þvi er varðar samstarf og verksskiptingu stofnana á þessu sviði, kann að hafa áhrif á framtiðarvettvang þessarar lektorsstöðu. Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir um framangreindar lektorsstööur, ásamt itar- legum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. mai n.k. Stöður þessar voru áður auglýstar I Lögbirtingablaði nr. 19/1975 með umsóknarfresti til 1. þ.m. en umsóknarfrestur er hér með framlengdur til framangreinds tima. Menntamálaráðuneytið, 14. april 1975. PASSAMYNDIR teknar i litum filbútaar strax I bartia s, f lölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 A Fró barnaskólum Kópavogs Innritun sex ára barna, fæddra á árinu 1969, sem eiga að vera i forskóladeildum barnaskólanna i Kópavogi næsta vetur, fer fram I skólunum föstudaginn 18. april kl. 3-5 siðdegis. Innritun aðfluttra barna, 7-12 ára, sem flytjast eiga i skólana i haust, fer fram á sama tima. Til glöggvunar skal þess getiö, að skólahverfismörk milli Kópavogsskóla og Digranesskóla eru Brattabrekka, og skólahverfi Snælandsskóla er byggðin norðan Nýbýlaveg- ar inn á móts viö Þverbrekku, og göturnar Hjaliabrekka, Lyngbrekka og Túnbrekka sunnan Nýbýlavegar. t Snæ- landsskóla verða þó aðeins 6-9 ára börn úr skólahverfi hans næsta vetur, en eldri börn úr hverfinu I Kópavogs- eða Digranesskóla eins og s.l. vetur. Fræðsluskrifstofa Kópavogs, simi 41863, veitir nánari upplýsingar um innritunina. Fræðslustjórinn í Kópavogi. Arður til hluthafa Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Samvinnubanka íslands h.f. þann 12. apríl s.l., greiðir bankinn 12% arð p.a. af innborguðu hlutafé fyrir árið 1974. Arðurinn er greiddur í aðalbankan- um og útibúum hans gegn framvís- un arðmiða ársins 1973. Athygli skal vakin á því að réttur til arðs fellur niður, sé hans ekki vitjað innan þriggja ára frá gjalddaga. Reykjavík 14. apríl 1975 Samvinnubanki íslands h.f. Með Norður-tshaf i pússinu til Ameriku Hún Matthildur Guðmundsdótt- ir er hreint ekki óvö’n vatni hvers konar, enda fyrrverandi sunddrottning. Á dögunum komst hún i kynni við vatn á nokkuð óvenjulegan hátt. Þá var hún beðin að fara með flösku með slatta af Norður-ls- hafinu til Boston. Þar var verið að opna sædýrasafn við mikla viðhöfn. Þótti við hæfi að fá vatn úr öllum heimshöfunum sjö. „Fjörulalli” Við höfum talsvert skrifað um fjörur að undanförnu, einkum þær, sem margir álita að jarð- ýtur séu að eyðileggja með klóm sinum. Þessi strákur prýðir annars plaggat Jóns Arnarr, en hann heldur ljósmyndasýningu i Stúdentakjallaranum i Gamla- Garði, sina fyrstu sýningu. Þar eru 16 myndir. Ljóðið á plaggat- inu er eftir Einar Braga. Aðgangur að sýningunni er ókeypis, en plaggötin seld árituð og tölusett. Voru Flugleiðir beðnir að út- vega vatnið úr N-íshafinu, sem var gert og Matthildur send á staðinn með vatnið, sem hún sýnir okkur á þessari mynd. Hárgreiðslunemar ekki loðnir um iófana Ungar stúlkur, sem nema hárgreiðsluiðn eru margar hverjar á heldur en ekki lágum launum, — hafa innan við 20 þúsund krónur á mánuði. Fund- ur I félagi nema i rafmagnsiðn bendir á þetta i fréttatilkynn- ingu sinni. Segir i fréttinni að nokkrir hópar séu ekki innan ramma samninganna frá 26. marz s.l., þar á meðal hár- greiðslunemarnir. Er hvatt til þess að samið sé við þennan hóp og aðra sem svona er háttað til um. Stór stjórn i stóru borg- arhverfi Þeir eru ekkert hrifnir af póli- tikusum i Breiðholti. A.m.k. ákvað aðalfundur framfara- félagsins i Breiðholti III á dög- unum að þeir sem eru að vasast Istjómum pólitiskra félaga, séu ekki hlutgengir i aðalstjórn félagsins. Á þessum fundi var ákveðið að stækka aðalstjórnina úr 7 i 15 manns. Það er þvi stór stjórn hjá þessu framfarafélagi stærsta borgarhverfisins. Formaður er Sigurður Bjarna- son, lögreglumaður, Þórufelli 8. Suður á bóginn með Sjö stelpur Þeir þurfa ekki að kvarta undan móttökunum, leikararnir i Stykkishólmi. Þeir frumsýndu um helgina Sjö stelpur og fengu mikið lof fyrir, bæði stelpurnar sjö, og-gæzlumenn þeirra. Nú ætla Hólmarar að mjaka sér nær Reykjavikursvæðinu og sýna þar. I gærkvöldi var önnur sýning á leiknum I litla leikhús- inu i Stykkishólmi, það tekur aðeins 126 manns i sæti, en á frumsýningunni voru gestir vist talsvert fleiri. ,, Fy rsta-a prfl’ ’-bónið heitir Bryngljái Flestir lesenda Visis 1. april s.l. töldu að frétt okkar af bóni á bila, sem endist árum saman væri þvaður eitt. Svo var þó ekki. Menn trúðu öllu á Fischer, skákkappa, en ekki bóninu, takk! En nú er Gljáinn h.f. byrjaður að bóna bila i Ármúla 26, reyndar er ekki hægt að tala um eiginlegt bón, heldur filmu, sem varnar tæringu á lakki og gefur langvarandi sigljáa, Bryngljáa, eins og þeir nefna þetta á islenzku. Efnið er jap- anskt, algjört hernaðarleyndar- mál hvað tekur til samsetning- arinnar. Það eitt er vitað að 7 mismunandi áferðir eru bornar á lakkið og bindast efnin i hverri áferð saman og mynda sterkan, lofttæmdan hjúp. Framkvæmdastjóri Gljáans h.f. er Pálmi Jónsson, einkaum- boðsmaður er Jóhann Jóhanns- son hjá Toyota-umboðinu. Myndin er úr vinnusalnum, starfsmenn og gljáandi bifreið eftir meðferðina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.