Vísir - 17.04.1975, Page 5

Vísir - 17.04.1975, Page 5
Vísir. Fimmtudagur 17. april 1975. 5 REUTER AP/NTB ÚTLÖND í MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Mannfallið œgilegt í lokaáhlaupinu Það var rétt farið að grána af degi í morgun ki. 6/ þegar fremstu herflokk- ar Khmer Rouge hviidu sig við súlur Wat Phnom- musterisins uppi á hæð einni í miðri Phnom Penh. Þaðan horfðu þeir niður yfir borgina, sem beið þeirra, varnir hennar i molum. Þjóðsögur herma, að á þessari hæð hafi öldruð kona, amman Penh, lagt grundvöllinn að borginni. Klukkustundu siöar voru þessir Rauðliðar að berjast gegnum sið- ustu götuvigi stjórnarhermanna, sem reyndu að verja þeim húsa- kynni hermálaráðuneytisins. Smátt og smátt var siðasta mót- spyrnan brotin á bak aftur og Rauðliðar höfðu borgina alla á valdi sinu. Fram á siðustu stundu voru þó harðir bardagar um Pochentong- flugvöllinn, þar sem varnir höfðu verið hvað rammgerðastar vegna mikilvægis þessa siðasta sam- bands höfuðborgarinnar við um- heiminn. Eftir að öllum öðrum aðflutningsleiðum hafði verið lok- að af Kmer Rouge, fengu borgar- búar lifsnauðsynjar sinar loft- leiðis. 1 gær kom i ljós, að Kmer Rouge hafði dregið allar fallbyss- ur sinar i skotfærivið borgina og drepandi stórskotahrið var hafin. Þeir, sem flúðu borgina með sið- ustu flugvélunum i gærkvöldi, gáfu ófagra lýsingu á neyð borgarbúa. Dauðir og særðir lágu á við og dreif og blóðið flaut um gólf sjúkrahúsanna. Vein barn- anna skáru i eyrun. t kjölfar stórskotahriöarinnar þustu fótgönguliðar Khmer Rouge inn i borgina i gegnum skörðin, sem höggvin höfðu verið i varnarlinuna. Herflokkar stjórnarinnar voru ýmist strá- felldir eða gáfust upp i hópum, 300 króaðir af hér, 500 annars staðar. Ahlaupið var gert úr vestri og sóknarherinn kom eftir þjóðvegi nr. 4. Þegar inn i borgina var komið, var barizt i návigi á götunum. Frá hermálaráðuneytisskrif- stofunum lá leiðin að forsetahöll- inni. Skammt þar frá stóð sendi- ráð Bandarikjanna, autt og yfir- gefið. Siðustu starfsmennirnir fóru i fyrradag. Siðustu fréttir hermdu, að húsið stæði i ljósum logum. Sendiherra Kambodiu i Bang- kok i Thailandi stóð lengst af i sambandi við stjórnarherinn. Hann frétti, að mannfall stjórnar- hersins hefði verið ægilegt. Eink- um við flugvöllin Pochentong, þar sem úrvalssveitir voru fyrir til varnar. Strax i gær fundu menn liggja i loftinu, að fall borgarinnar væri skammt undan. Franskir borgar- ar búsettir i Phnom Penh voru þá byrjaðir aö hengja upp franska fánann á húsum sinum i von um, að Khmer Rouge mundi hlifa þeim. — Franska stjórnin hefur ávallt viðurkennt útlagastjórn Sihanouks prins. Öttinn breiddist út. En fólkið hafði ekkert að flýja. Meginþorri borgarbúa er flóttafólk utan af landsbyggðinni. Þarna i Phnom Penh var það dagað uppi og fokið i Öll skjól. Útvarpsútsendingar Khmer Rouge i morgun hermdu, að fólk- ið hefði snúizt á sveif með inn- rásarmönnunum. Leiðtogi Khmer Rouge, Khieu Samphan, heyrðist skora á borgarbúa að sýna stillingu og alla vopnfæra menn að gefast upp og afhenda vopn sin. Frá útvarpi stjórnarinnar hefur ekkert heyrzt siðan i gær. Þar rikti alger þögn. Kortið sýnir Phnom Penh, legu hennar og flugvallarins Pochentong. örvarnar elga að sýna, hvernig Khmer Rouge réöust að henni og flugveliinum úr tveim áttum. Fimm ára stríði Kambodíu lokið Með falli Phom Penh er endi bundinn á fimm ára hatursstrið, sem breytti Kambódiu úr friðsömu frjósemdar- landi i rústir og sprengjugiga. Með henni féll hægri stjórn, sem tók völdin fyrir fimm árum til þess að hrekja út fyrir landamærin norður- vietnamska herflokka, sem ekki höfðu virt hlutleysi landsins. Þeirri baráttu lauk ekki fyrr en nú, þvi að upp úr henni blossaði borgarstyrjöldin, sem kommúnistar hafa nú sigrað i. Þetta fimm ára strið flæmdi fleiri upp af heimilum sinum en t.d. I Vietnam — öll þau ár sem striöið hefur geisað þar. Var hvergi i Indókina jafn margt flóttafólk og i Kambodiu. I dag eru fáir Norður-Viet- namar i Kambódiu, en kommúnistarhafa svogottsem tekið yfir stjórn landsins. Umsátrið um Phnom Penh frá þvi 1. janúar var lokastig neyðar gömlu Kambódíu. Næsta skrefið verður að öllum likindum það, að Norodom Sihanouk prins snýr aftur frá Peking, en flestir spá þvi, að hans biði annað hlutverk heldur en hann lék, áður en honum var bylt úr stóli. Sjálfur telur hann, að kommúnistar geri hann að þjóðhöfðingja, eins - konar þjóðartákni á borð við konunga lýðræðisrikja. öll raunveruleg völd verða I höndum Khmer Rouge (rauðliða) Ýmsir kviða þvi, að i kjölfar falls höfuðborgarinnar eigi eftir að fylgja blóðbað og hefndarað- gerðir kommúnista á hendur fyrri valdhöfum og herforingj- um. — ,,Ég ráðlegg þeim að flýja, áður en borgin fellur, þvi að þeirra og annarra föður- landssvikara biður ekkert nema gálginn,” sagði Sihanouk prins I gær, þegar hann hafnaöi tilboöi Lon Nol-stjórnarinnar um uppgjöf og samninga. Konungsrikið Kambodia hlaut sjálfstæði 1949, en var áður ný- lenda Frakka. Fulla sjálfstjórn fékk þjóðin 1953. Sihanouk prins lýsti yfir hlutleysi landsins i Indókinastriðinu og reyndi að halda þvi utan Vietnam- styrjaldarinnar. En land hans lá of vel fyrir Norður-Vietnam og Vietcong, sem sáu sér leik á borði og gerðu árásir þaðan á stöövar Siagonhersins, en skutust siðan i skjól yfir landa- mærin aftur. Gagnrýnendum Sihanouks þótti hlutleysi hans of vinstrisinnað. Ho Chi Minh-stigurinn, sem Þessi mynd var tekin af leiðtogum Khmer Rouge, þar sem þeir voru staddir I Hanoi I fyrra. T.v. er Ieng Sary, sem þykir öllu leiðtamari kommúnistum i Hanoi og Peking en Khieu Samphan (t.h.) En minna hefur borið á Sary hingað til. M) tFIFMÍ Umsjón: G.P. margir Bandarikjamenn þeirr- ar skoðunar, að þessi ákvörðun hafi verið röng. Þeir halda þvi fram, að allt til þess hafi verið tiltölulega friösamt I Kambódiu, en með þessu hafi landið dregizt inn I Vietnamstyrjöldina. Með aðstoð Bandarikja- stjórnar var her Kambódíu efldur og tók nú sjálfur til við að hrekja úr landinu Norður-Viet- nama og Vietconga. Lon Nol forsætisráðherra fékk meira og minna einræðisvald. Opinber andstaða var sundruð. Þar bar mest á Khmer Rouge, sem þegar hér var komiö sögu var að mestu leyti sundurleitur ræningjalýður, vinstrisinna en litt skipulagður. Kjami hans voru þó landflótta Kambódiumenn, sem um tima höfðu leitað hælis i Hanoi. Með aðstoð Norður-VIetnama og Klna tóku þeir til við að byggja 7 úr Khmer Rouge skæruliða- \ hreyfingu, sem fór að láta æ \ meira að sér kveöa. í Með dyggilegri aðstoð I Norður-Vietnema urðu Khmer L Rogue með árunum öflugur / byltingarher, sem stöðugt \ þrengdi að stjórnarhernum, unz ( hann var nær allur innikróaður i / Phnom Penh og nánasta um- 1 hverfi, —Aðgerðir kommúnista siðasta árið hafa allar beinzt að þvi að skera á aöflutningsleiðir til borgarinnar, þangaö sem safnazt höfðu milljónir flótta- fólks. Siðustu mánuðina hefur æ meir verið hert aö snörunni. Borgarbúar sveltu og varaar- liðið varð smám saman uppskroppa með hergögn. Þegar séð varð fyrir, að hverju stefndi meö varnir / borgarinnar, þar sem ekki var 1 lengúr til að dreifa hernaðaraö- stoð Bandarikjamanna, fór Lon Nol utan ,,I opinbera heimsókn til nokkurra landa,” eins og þaö var oröað. Með honum fóru ýmsir helztu / ráðgjafar hans, sem efstir voru \ á svörtum lista kommúnista. Duldist þá engum, að öll von hafði verið gefin upp um að hefta landvinninga Khmer Rouge. Sihanouk prins: Snýr senn heim. hefur verið aðalflutningsleið hergagna frá N-Vietnam til kommúnista i S-Vietnam og Kambódiu, liggur i gegnum Kambódiu. Meðfram honum komu Vietcong-skæruliðar sér upp birgðastöðvum og jafnvel æfingabúðum fyrir nýliða sina. Með leynd lét Bandarikja- stjórn flugher sinn varpa sprengjum á þessar stöðvar Vietcongí Kambodiu. Þar kom að fyrrverandi stuðingsmönn- um Sihanouks, eins og Lon Nol og öðrum, blöskraði undanláts- seti hans við hina útlendu kommúnista og byltu stjórn hans 1970, meðan hann var sjálfur á ferðalagi erlendis. — Sihanouk leitaði hælis i Peking. 1 april 1970 réðst bandariskt herlið inn iKambodiu til þess að eyöileggja stöðvar Viet Cong og birgðir Vietnama. Þessi hemaðaraðgerð var gagnrýnd harðlega af mörgum i Banda- rikjunum á þeim tima, þótt stjóm Nixons þáverandi forseta fullyrti, að meö þvi hefðu spar- ast lif fjölda bandariskra her- manna og varnir Suður-VIet- nams styrkzt. Enn I dag eru

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.