Vísir - 17.04.1975, Qupperneq 13
Visir. Fimmtudagur 17. april 1975.
13
KVENNAFAR VREESWIJK
ENDAÐI MEÐ ÓSKÖPUM:
Rak gestina út
með eldhúshníf
„Hvað gerir einmana
karl, sem hefur lagt
hart að sér við vinnu og
hefur ekki haft tima til
að sinna kvenfólki i að
minnsta kosti viku? Ég
fékk mér að minnsta
kosti leigubil til borg-
arinnar til þess að ná
mér i kvenmanns-
belg”, sagði Cornelis
Vreeswijk, sá frægi
hollenzk-sænski visna-
söngvari, sem á dögun-
um lenti i heldur ó-
venjulegu ævintýri.
Cornelis Vreeswijk er íslend-
ingum mörgum að góðu kunnur
fyrir skemmtilegan visnasöng,
sem við höfum kynnzt af plöt-
um, og sumir voru svo heppnir
að fá miða að tónleikum, sem
hann kom fram á hér i Reykja-
vik i vetur.
Sumir voru raunar svo
óheppnir að fá miða að tónleik-
um, sem hann kom ekki fram á,
en það er önnur saga.
En hann lenti heldur illa i þvi,
þegarhann ætlaði á kvennafar á
dögunum, en hann býr einn sið-
an hann skildi við leikkonuna
Bim Warne. Eftir nokkra góða
bjóra fór hann að svipast um og
fann tvær þokkalegar hnátur i
Regeringsgötunni i Stokkhólmi.
Onnur var ljóshærð, hin dökk-
hærð, báðar pelsklæddar og
hreyfðu sig einkar kvenlega.
Hann gaf sig á tal við þær og fór
vel á með þeim og þar kom, að
þær fóru báðar heim með hon-
um.
í fyrstu létu þau fyrirberast I
eldhúsinu um hrið, þar sem þau
fengu sér ögn i staupinu, en
Cornelis dró fram gitarinn sinn
og söng dálitið fyrir konurnar.
Honum leizt orðið dável á þær
og sá fram á giftusamlegan endi
næturinnar. Um klukkan fjögur
vildi hann fara að snúa sér að
efninu og ræða við þær fjármál-
in, en þær voru ekki fúsar að
ræða um þau, heldur hurfu inn i
svefnherbergið.
Cornelis fór skömmu siðar á
eftir þeim, en brá i brún, þegar
inn kom. Dömurnar lágu fá-
klæddar i tvibreiða rúminu
hans, og þá leyndi sér ekki, að
,,þær” voru báðar karlkyns.
,,Ég sá rautt”, sagði Cornelis
á eftir. Hann öskraði á þær að
hypja sig út i logandi grænum
hvelli, en umskiptingarnir
hreyfðu sig hvergi. Þá rauk
Cornelis fram i eldhúsið og sótti
stóra eldhússaxið sitt, sem hann
Cornelis Vreeswijk er þekktur fyrir aðgeta sýnt á sér ýmsar hliðar
„veifaði” svo inni i svefnher-
berginu, svo notuð séu hans orð.
Þá stökk annar þeirra fram
úr, en fékk skrámur á hökuna,
handlegg og á bakið, um leið og
hann brunaði út úr ibúðinni.
Hinn flúði lika, en með blóðugar
skrámur að aftan eftir kuta
Cornelis.
Skömmu siðar komu þeir
aftur, enda voru flest þeirra föt
enn hjá söngvaranum. Nú höfðu
þeir fengið með sér tvö lög-
reglumenn, en lögreglumenn-
imir voru prúðir við söngvar-
annnema hvað þeir tóku af hon-
um saxið.
Cornelis telur, að hann hafi
aöeins verið að verja sig gegn
óvelkomnum gestum, sem ekki
virtu húsfrið hans, er hann vis-
aði þeim burtu, og kveðst vera
reiðubúinn að taka út straff, ef
hann hafi verið of harðleikinn.
En lái honum hver sem vill,
þótt honum rynni i skap.
—SHH
,en „gestirnir” fengu þó aö kynnast enn nýrri hliö á kappanum.
Sjálfstœðisfélaganna í Reykjavík verður í kvöld
fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.30 að Hótel Sögu, Súlnasal.
Albert Guðmundsson
alþingismaður.
Félagsvist 7 glœsileg spilaverðlaun.
Albert Guðmundsson, alþingismaður,
flytur ávarp. Ómar Ragnarsson
skemmtir. Dansað til kl. 1 e.m.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur.
Húsið opnað kl. 20. — Miðar afhentir á skrifstofu Landsmálafélagsins Varðar,
Galtafelli, Laufásvegi 46, á venjulegum skrifstofutíma, sími 17100.
Happdrœtti: Vinningur utanlandsferð.