Vísir - 21.04.1975, Síða 11
Júdómótið:
Vel gert
vel unnið
„Þetta mót var i alla staði
mjög gottog til mikils sóma fyr-
ir island, og ég held, að það
verði erfitt fyrir hinar Noröur-
landaþjóðirnar að slá þvi við,”
sagöi yfirdómari mótsins, Eng-
lendingurinn, Ray IVIitchell, er
við spjölluðum við hann eftir
Noröurlandamótið i gær.
„Það hafa orðið miklar fram-
farir hér frá þvi að Júdósam-
bandið var stofnað, og viða er-
lendis hefur verið til þess tekið,
þvi tsland var óþekkt nafn i
júdóheiminum fyrir 4til 5 árum.
tslenzkir júdómenn eru mjög
sterkir, úthaldsgóðir og með
keppnisskapið i lagi. Þá vantar
aðeins meiri tækni, en hún kem-
ur, þegar þeir fá tækifæri til að
keppa oftar á alþjóðavett-
vangi.”
Bæði keppendum og forráða-
mönnum þjóðanna á mótinu,
bar saman um, að þetta mót
hefði verið sérlega gott og vei
skipuiagt. Var ekki laust við, að
öfundar gætti, þegar þeir töluðu
um það.
t öllum flokkum voru veitt
fern verðlaun, en auk þess fengu
sigurvegararnir i öllum flokk-
um fagran áletraðan keramik-
vasa, og vöktu þeir mikla hrifn-
ingu.
Eysteinn Þorvaldsson, for-
maður Júdósambandsins, var
mjög ánægður með mótið og allt
i kringum það, þegar við töluð-
um við hann i gærkvöldi.
Hann bjóst þá við, að Júdó-
sambandið myndi sleppa fjár-
hagslega skaðlaust út úr þessu,
og væri það m.a. að þakka betri
aðsókn en búizt hafði verið við.
Einnig fórnfúsu starfi fjölda
fólks á öllum aldri, sem hefði
unnið endurgjaldslaust á mót-
inu. Yrði það starf aldrei full-
þakkað né metið.
—klp—
Þœr keflvísku
>«sáé aBBaaw—metiBMi'i' i» n ■ ’•
Okkar þekktasta júdómanni — Svavari Carlsen til vinstri — gekk ekki
vel á NM-mótinu að þessu sinni, en áður hafði hann unnið silfur og
brons á Norðurlandamóti. Hér er hann I glimu við Norðmanninn Erik
Haugen, en þeirri glimu tapaði Svavar. Þetta var hans siðasta opin-
bera júdómót, sagði hann eftir keppnina. Ljósmynd: Bj.Bj...
höfðu það....
Það var ekki mikið skorað i úr-
slitaleiknum i 2. flokki kvenna i
islandsmótinu i handknattleik,
sem leikinn var i „Græna saln-
um” i Garðahreppi i gær, en þar
léku til úrslita Þróttur og Kefla-
vik.
Þessi lið urðu jöfn i 4ra liða úr-
slitunum um fyrri helgi og þurfti
þvi aukaleik um lslandsmeist-
aratitilinn. Eftir rúmlega niu
minútna leik — eða rétt fyrir hálf-
leik — kom fyrsta markið, og var
það Þróttur, sem það gerði úr
vitakasti.
i hálfleik var staðan 1:0 fyrir
Þrótt. í þeim siðari tókst liðinu
ekki að skora, en aftur á móti
skoruðu Keflavikurstúlkurnar þá
tvö mörk, sem nægðu til til að
sigra i leiknum — 2:1 — og hljóta
þar með tslandsmeistaratitilinn i
2. flokki kvenna 1975.
Á fimmtudaginn kemur — sum-
ardaginn fyrsta — verða sumar af
þessum nýbökuðu íslandsmeist-
urum aftur i sviðsljósinu, en þá
fer fram i Njarðvikum úrslita-
leikurinn i 2. deild kvenna. Mót-
herjarnir i þeim leik eru ná-
grannarnir úr Njarðvik.
—klp—
Umdeilt atvik úr leik Fram og Vals I Reykjavikurmótinu I gær. Mikil þvaga myndaðist við mark Vals
og töldu sumir, að boltinn hefði farið yfir linuna. En það sá dómarinn ekki, enda margir, sem skyggðu á
hann. Ljósmynd: Bj.Bj...
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
KR og Volur
bezt að vígi
standa
1 siðari hálfleik fengu Framar-
ar gullið tækifæri til að taka for-
ustu, er Marteinn tók vitaspyrnu.
En þá brást honum bogalistin —
skaut hátt yfir — og þar með fór
annað stigið til Vals.
Það er allt útlit fyrir að úrslita-
leikur Reykja vikurm ótsins i
knattspyrnu verði á milli Vals og
KR. Bæði liðin hafa tapað einu
stigi I mótinu til þessa. — KR tap-
aði stigi á móti Fram fyrir
nokkru, og Valur sömuleiðis nú
um heigina. Fram er aftur á móti
búið að tapa tveimur stigum, en
önnur félög fleiri, svo þau hafa
ekki lengúr möguleika.
Tveir leikir fóru fram um sið-
ustu helgi, og sá þriðji Þrótt-
ur—Ármann, verður á Melavell-
inum i kvöld. Leikirnir voru á
milli Fram og Vals og KR og Vik-
ings.
Fátt var um fina drætti i leik
KR og Vikings, nema ef vera
skyldi eina mark leiksins, sem
KR-ingar gerðu. Það kom á 20.
min. fyrri hálfleiks, og var
skemmtilega unnið.
Knettinum var spyrnt langt
fram völlinn, þar sem Jóhann
Torfason lék með hann upp að
endamörkum. Þar lyfti hann hon-
um upp og skallaði fyrir markið,
þar sem Atli Þór Héðinsson kom á
fullri ferð og skallaði hann áfram
i netið.
Þetta var það eina markverða
sem gerðist i leiknum, sem var
eins konar spegilmynd af fyrri
leikjum i Reykjavikurmótinu.
Leikur Fram og Vals var öllu
betri, og liklega sá skásti i mótinu
til þessa. Honum lauk með jafn-
tefli 1:1. Valsmenn voru fyrri til
að skora — Albert Guðmundsson
— eftir mikla pressu Vals.
Skömmu fyrir hálfleik jöfnuðu
Framarar — Marteinn Geirsson
— eftir óbeina aukaspyrnu inn i
vitateig Vals. Skömmu áður var
mikil pressa á mark Vals, og þá
bjargað a.m.k. tvivegis á og
fyrir innan linuna.
UL lagði Ausf-
fjarðaúrvalið
í körfubolta
Unglingalandsliðið I körfu-
knattleik lagði leið sina austur á
firði um helgina. Þar var leikið
gegn úrvali UtA á laugardag og
sunnudag. Kom á óvart, hvað
Austfirðingar tefldu fram efni-
legum liðum.
Fyrri leikurinn fór svo, að hið
efnilega unglingalandslið sigr-
aði með 89:58. t hálfleik var
staðan nokkuð jöfn 38:32. t gær-
dag var enn leikið, þá sigraði
UL með 95:58.
Báðir fóru leikirnir fram á
Eskifirði. — HJ
Gordons Banks
markmannspeysur
markmannshúfur
markmanns hanzkar
Einnig hnéhlifar
og olnbogahlifar.
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun
Ingólfa Öskarssonar
Kiapparatig «4 — SLaai 11783 — Reytjavtk
Tvö jafntefli
í þeirri litlu!
Hafnarfjörður - Keflavík 1:1 og
Kópavogur - Akranes 0:0
Tveir leikir voru leiknir I Litlu
bikarkeppninni I knattspyrnu á
laugardaginn. FH — sem keppti
fyrir hönd Hafnarfjarðar — og
Keflavik skildu jöfn, og einnig
Breiðablik — sem keppir fyrir
Kópavog — og íslandsmeistar-
arnir frá Akranesi.
Leikurinn I Kópavogi á milli
Breiðabliks og Akraness var
markalaus. Þó var mikið um
góð tækifæri á báða bóga —
stangarskot og bjargað á linu —
en yfir linuna komu leikmenn-
irnir aldrei boltanum.
Breiðablik tefldi fram sinu
sterkasta liði, en Akurnesingar
ekki. Þá vantaöi m.a. Matthias
Hallgrimsson, Karl Þórðarson
og Daviö markvörð ásamt fleir-
um. Höfðu sumir þeirra verið
settir út úr liðinu fyrir slaka
leiki að undanförnu.
Tvö mörk voru skoruð i leik
FH og ÍBK. Þórir Jónsson, fyrr-
um Valsmaöur, skoraði fyrir
FH i fyrri hálfleik, en Grétar
Magnússon jafnaði fyrir ÍBK i
þeim siðari. Mörg tækifæri gáf-
ust i leiknum, en aðeins þessi
tvö nýttust.