Vísir


Vísir - 21.04.1975, Qupperneq 11

Vísir - 21.04.1975, Qupperneq 11
Júdómótið: Vel gert vel unnið „Þetta mót var i alla staði mjög gottog til mikils sóma fyr- ir island, og ég held, að það verði erfitt fyrir hinar Noröur- landaþjóðirnar að slá þvi við,” sagöi yfirdómari mótsins, Eng- lendingurinn, Ray IVIitchell, er við spjölluðum við hann eftir Noröurlandamótið i gær. „Það hafa orðið miklar fram- farir hér frá þvi að Júdósam- bandið var stofnað, og viða er- lendis hefur verið til þess tekið, þvi tsland var óþekkt nafn i júdóheiminum fyrir 4til 5 árum. tslenzkir júdómenn eru mjög sterkir, úthaldsgóðir og með keppnisskapið i lagi. Þá vantar aðeins meiri tækni, en hún kem- ur, þegar þeir fá tækifæri til að keppa oftar á alþjóðavett- vangi.” Bæði keppendum og forráða- mönnum þjóðanna á mótinu, bar saman um, að þetta mót hefði verið sérlega gott og vei skipuiagt. Var ekki laust við, að öfundar gætti, þegar þeir töluðu um það. t öllum flokkum voru veitt fern verðlaun, en auk þess fengu sigurvegararnir i öllum flokk- um fagran áletraðan keramik- vasa, og vöktu þeir mikla hrifn- ingu. Eysteinn Þorvaldsson, for- maður Júdósambandsins, var mjög ánægður með mótið og allt i kringum það, þegar við töluð- um við hann i gærkvöldi. Hann bjóst þá við, að Júdó- sambandið myndi sleppa fjár- hagslega skaðlaust út úr þessu, og væri það m.a. að þakka betri aðsókn en búizt hafði verið við. Einnig fórnfúsu starfi fjölda fólks á öllum aldri, sem hefði unnið endurgjaldslaust á mót- inu. Yrði það starf aldrei full- þakkað né metið. —klp— Þœr keflvísku >«sáé aBBaaw—metiBMi'i' i» n ■ ’• Okkar þekktasta júdómanni — Svavari Carlsen til vinstri — gekk ekki vel á NM-mótinu að þessu sinni, en áður hafði hann unnið silfur og brons á Norðurlandamóti. Hér er hann I glimu við Norðmanninn Erik Haugen, en þeirri glimu tapaði Svavar. Þetta var hans siðasta opin- bera júdómót, sagði hann eftir keppnina. Ljósmynd: Bj.Bj... höfðu það.... Það var ekki mikið skorað i úr- slitaleiknum i 2. flokki kvenna i islandsmótinu i handknattleik, sem leikinn var i „Græna saln- um” i Garðahreppi i gær, en þar léku til úrslita Þróttur og Kefla- vik. Þessi lið urðu jöfn i 4ra liða úr- slitunum um fyrri helgi og þurfti þvi aukaleik um lslandsmeist- aratitilinn. Eftir rúmlega niu minútna leik — eða rétt fyrir hálf- leik — kom fyrsta markið, og var það Þróttur, sem það gerði úr vitakasti. i hálfleik var staðan 1:0 fyrir Þrótt. í þeim siðari tókst liðinu ekki að skora, en aftur á móti skoruðu Keflavikurstúlkurnar þá tvö mörk, sem nægðu til til að sigra i leiknum — 2:1 — og hljóta þar með tslandsmeistaratitilinn i 2. flokki kvenna 1975. Á fimmtudaginn kemur — sum- ardaginn fyrsta — verða sumar af þessum nýbökuðu íslandsmeist- urum aftur i sviðsljósinu, en þá fer fram i Njarðvikum úrslita- leikurinn i 2. deild kvenna. Mót- herjarnir i þeim leik eru ná- grannarnir úr Njarðvik. —klp— Umdeilt atvik úr leik Fram og Vals I Reykjavikurmótinu I gær. Mikil þvaga myndaðist við mark Vals og töldu sumir, að boltinn hefði farið yfir linuna. En það sá dómarinn ekki, enda margir, sem skyggðu á hann. Ljósmynd: Bj.Bj... Reykjavíkurmótið í knattspyrnu: KR og Volur bezt að vígi standa 1 siðari hálfleik fengu Framar- ar gullið tækifæri til að taka for- ustu, er Marteinn tók vitaspyrnu. En þá brást honum bogalistin — skaut hátt yfir — og þar með fór annað stigið til Vals. Það er allt útlit fyrir að úrslita- leikur Reykja vikurm ótsins i knattspyrnu verði á milli Vals og KR. Bæði liðin hafa tapað einu stigi I mótinu til þessa. — KR tap- aði stigi á móti Fram fyrir nokkru, og Valur sömuleiðis nú um heigina. Fram er aftur á móti búið að tapa tveimur stigum, en önnur félög fleiri, svo þau hafa ekki lengúr möguleika. Tveir leikir fóru fram um sið- ustu helgi, og sá þriðji Þrótt- ur—Ármann, verður á Melavell- inum i kvöld. Leikirnir voru á milli Fram og Vals og KR og Vik- ings. Fátt var um fina drætti i leik KR og Vikings, nema ef vera skyldi eina mark leiksins, sem KR-ingar gerðu. Það kom á 20. min. fyrri hálfleiks, og var skemmtilega unnið. Knettinum var spyrnt langt fram völlinn, þar sem Jóhann Torfason lék með hann upp að endamörkum. Þar lyfti hann hon- um upp og skallaði fyrir markið, þar sem Atli Þór Héðinsson kom á fullri ferð og skallaði hann áfram i netið. Þetta var það eina markverða sem gerðist i leiknum, sem var eins konar spegilmynd af fyrri leikjum i Reykjavikurmótinu. Leikur Fram og Vals var öllu betri, og liklega sá skásti i mótinu til þessa. Honum lauk með jafn- tefli 1:1. Valsmenn voru fyrri til að skora — Albert Guðmundsson — eftir mikla pressu Vals. Skömmu fyrir hálfleik jöfnuðu Framarar — Marteinn Geirsson — eftir óbeina aukaspyrnu inn i vitateig Vals. Skömmu áður var mikil pressa á mark Vals, og þá bjargað a.m.k. tvivegis á og fyrir innan linuna. UL lagði Ausf- fjarðaúrvalið í körfubolta Unglingalandsliðið I körfu- knattleik lagði leið sina austur á firði um helgina. Þar var leikið gegn úrvali UtA á laugardag og sunnudag. Kom á óvart, hvað Austfirðingar tefldu fram efni- legum liðum. Fyrri leikurinn fór svo, að hið efnilega unglingalandslið sigr- aði með 89:58. t hálfleik var staðan nokkuð jöfn 38:32. t gær- dag var enn leikið, þá sigraði UL með 95:58. Báðir fóru leikirnir fram á Eskifirði. — HJ Gordons Banks markmannspeysur markmannshúfur markmanns hanzkar Einnig hnéhlifar og olnbogahlifar. PÓSTSENDUM Sportvöruverzlun Ingólfa Öskarssonar Kiapparatig «4 — SLaai 11783 — Reytjavtk Tvö jafntefli í þeirri litlu! Hafnarfjörður - Keflavík 1:1 og Kópavogur - Akranes 0:0 Tveir leikir voru leiknir I Litlu bikarkeppninni I knattspyrnu á laugardaginn. FH — sem keppti fyrir hönd Hafnarfjarðar — og Keflavik skildu jöfn, og einnig Breiðablik — sem keppir fyrir Kópavog — og íslandsmeistar- arnir frá Akranesi. Leikurinn I Kópavogi á milli Breiðabliks og Akraness var markalaus. Þó var mikið um góð tækifæri á báða bóga — stangarskot og bjargað á linu — en yfir linuna komu leikmenn- irnir aldrei boltanum. Breiðablik tefldi fram sinu sterkasta liði, en Akurnesingar ekki. Þá vantaöi m.a. Matthias Hallgrimsson, Karl Þórðarson og Daviö markvörð ásamt fleir- um. Höfðu sumir þeirra verið settir út úr liðinu fyrir slaka leiki að undanförnu. Tvö mörk voru skoruð i leik FH og ÍBK. Þórir Jónsson, fyrr- um Valsmaöur, skoraði fyrir FH i fyrri hálfleik, en Grétar Magnússon jafnaði fyrir ÍBK i þeim siðari. Mörg tækifæri gáf- ust i leiknum, en aðeins þessi tvö nýttust.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.