Tíminn - 05.08.1966, Qupperneq 12

Tíminn - 05.08.1966, Qupperneq 12
FÖSTUDAGUR 5. ágúst 1966 Sfaukin sala ./ BRIDGESTONE sannar gæSin. Veitir aukið öryggi i akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirligg|andi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og víSgerSlr. Sími 17-9-84 Gúmmíbarðinn h.f, Brautarholti 8. Vélafireingerninq Vanir menn. Þrifaleg, fljétleg, vönduS vinna. Þ R I F — símar 41957 og 33049. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiSsla. Sendum gegn póstkrofu. Guðm. Þorsteinsson, gullsmiSur. Bankastræti 12. i i HtíSBY GG JENDUR Smíðum svefnherbergis- og eldhúsinnréttingar. SÍMI 32-2-52. ________________________J MINNING Framhald af bls. 7. skálds á Arnarvatni „Sveitin mín“: Fagra dýra móðir mín! minnar vöggu griðastaður. þegar lífsins dagur dvín, dýra, kæra fóstra mín! búðu um mig við brjóstin þín, bý ég þar um eilífð glaður. Fagra. dýra móðir mín, minnar vöggu griðastaður. Ástvinum Sigfúsar og vanda- mönnum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Jóh. Eiríksson. MINNING Framhald af bls. 7. Systur Jóns, sem náðu fullorðins aldrei voru: Kristrún, Kristjana og Sigríður allar dánar. Kristrún, dó á ísafirði á áttræðisaldir, en Kristjana var um langt skeið forstöðukona við sjúkrahúsið á Þingeyri í Dýrafirði og dó þar. Sigríður bjó að Eiði, sem áður er sagt. Einnig átti hann Jónu er varð 11 ára og Jónas, er dó á barns- aldri. Hinn aldni vinur og sveitungi er kvaddur með þökk og hjartan- legri samúðarkveðju til eftirlifandi ekkju, barna og annarra ástvina, með ósk um að Dýrafirði auðnist ætíð sú gæfa að leggja fram trúa og farsæla þjóðfélagsþegna, er feta í fótspor hins fallna vinar, að: „þroskast á guðsríkisbraut". Bjarni ívarsson. SKÁKÞÁTTUR T.R. Framhald af bls. 8 utan Rússlands innan næstu 12 ára. Burtséð frá Spassky og Tal virðumst við ekki eiga neina stórmeistara sem gefi nægileg fyrirheit.“ „Og hver mun • nýi heims- meistarinn verða? „Fischer hefur mesta mögu- leikana, utan Rússlands. Eg vona að Larsen, Ivkov og Port- isch móðgist ekki þótt ég hcldi því fram að Fischer sé sterk- asti skákmaður utan Sovét.ríkj- anna. Við ræddum um næsta 01- ympíumótið í Havana. í rúss- neska liðinu verða þessir: Petroshan, Spassky, Tal,- Kort’ snoj, Stein og Polugaevsky. „Af hverju ert þú ekki í lið- inu“? „í fyrsta lagi varð ég ekki valinn og í öðru lagi hefði ég kosið að losna við að tefla þótt ég hefði verið valinn. Hitinn mun verða gífurlegur á Cubu og yngri skákmennirnir hafa meira líkamlegt úthald.“ „Spáir þú Júgóslavíu (Gligor- ic, Ivkov, Parma, Matanovíc, Matulovisc) öðru sæti?“ „Þeir gætu orðið í 1. sæti því okkar lið $r ekki það bezta.“ „Hver af þeim hundruðum skáka, sem þú hefur teflt var þér erfiðust? „Líklega 23. skák mín í ein- víginu við Bronstein, en þá skák varð ég að vinna til að j halda titlinum.“ „Hvern af þeim níu heims-j meiturum, sem þú hefur hittj finnst þér mest til um?“ „Það er erfitt að segja hver þeirra var bezti skákmaðurinn. en persónulega held ég ,að Capablanca hafi haft mesta með j fædda hæfileika. Það er slæmt ■ að hann skildi ekki gefa skák;: inni meira af tíma sínum. í því að samtalinu var að ljúka, rakst Tal inn. Ég notaði því tækifærið til að leggja nokkr ar spurningar fyrir Tal. „Ert þú á sömu skoðun og Botvinnik, Spassky og Petros- han, að Fischer sé sterkasti TÍMINN skákmaður heims, utan Sovét- ríkjanna?" „Hvorki Botvinnik, Spassky né Petroshan hafa þurft að tefla einvígi við Larsen", svar aði Tal hvatskeytlega. „Hvernig stendur á því að blaðamenn eru alltaf að spyrja þig frétta af gangi málanna í einvíginu, en ekki Spassky eða Petroshan?“ „Lifandi hundur betri en dautt ljón,“ svaraði Tal „Spassky og Petroshan eru ,,dauðir“ fyrir blaðamennina, meðan á einvíginu stendur". „Hvernig stendur á því að þú spáir Spassky sigri?“ „Það er aðeins sjálfsálit mitt. Ég tapaði fyrir honum og fram að þessu hef ég aðeins tapað einvígjum gegn heimsmeistur- um“ Jóhann Sigurjónsson. BÚDDATRÚARMENN Framhald af bls. 5. um þjóðernissinnum, sem tókst að verja tvö strandhéruð í Norður-Vietnam bæði fyíir Frökkum og Viet Minh allt frá lokum síðari heimsstyrjaldar- innar og fram til ársins 1954, Faðir Quynh segist vera leið togi bandalags allra trúar- flokka í sunnanverðu Suður- Vietnam. sunnlenzkra búddatrú armanna, Hoa Hoa, Cao Dai og mótmælenda. En kaþólskir menp einir skiptast í sex mis- munandi reglur og því verður naumast lagður trúnaður á til veru þessa bandalags fyrri en hún kemur í dagsins ljós. Og kaþólskum leikmönnum hefur ekkert orðið ágengt enn. EINS OG málin standa nú í Saigon skiptir ekki máli. hve margt fólk styður öfgafulla búddatrúarmenn gegn Ky mar skálki. Þegar andstæðingurinn er ríkistjórn. sem aldrei hefur sannað hylli sína meðal almenn ings og á auk þess í miklum erf iðleikum vegna metings inn- byrðis, getur hvað sem er orðið henni að falli. f Vietnam hlýt ur það að veikja aðstöðuna að vera stöðugt að forðast alla lýðræðislega framvindu. Bandaríkjamenn viðurkenna þetta, en þeir hefðu heldur kos ið, að lengri timi hefði gefizt til undirbúnings kosninganna en nú getur orðið Þá hefðu stjórnmálahreyfingar ef til vill getað þróazt lítið eitt og her- inn ef til vill getað komið því til leiðar, að unnt yrði að ná til fleiri kjósenda en auðið verður nú. Bandaríkjamenn vona, að kosningar geti ekki einungis farið fram í borgunum þar sem 5 milljónir manna búa heldur einnig í þeim landshlut um, sem teljast nokkurn veg inn öruggir að deginum til, en þar búa þrjár milljónir manna i viðbót. Ef þetta mætti takast, gætu allt að 60% allra kjósenda í Suður-Vietnam tekið þátt í kosningunum. Áhættan er augljós. Hver þyrði að bjóða sig fram? Hvers konar fólk hlyti kosningu? Hve marga fylgjendur gæti Viet cong átt meðal þess? Landsdaie hershöfðingi er svo bjartsýnn að álíta. að í kosningunum geti komið fram „ótrúlega þjóðholl ir menn“. Bandaríkjamenn telja litla sem enga hættu á, að kos ið verði þing. sem biðji þá að fara á burt úr landinu eða heimti frið í flýti. En einn Bandaríkjamannana sagði við mig, að ef hið kjörna þing ylii erfiðleikum pg i ljós kæmi, að kúgun hefði verið beitt við kosningarnar vissi hann ekki, hvernig þeir myndu snúast við því. Telja má nokkum vegmn vfst að reynt verði að beita kúgun við kosningamar, og þá getur þessi afstaða gefið ærið svig rúm. Nú virðist mest hætta á, að búddatrúarmenn neiti allri þátttöku, og ef svo fer, verða úr slit kosninganna næsta mark- lítil. Ky marskálkur hefur sagt að hvorki kommúnistum né hlutlausum mönnum verði leyft að kjósa. Mjög óheppilegt væri ef reynt yrði að draga búdda trúarmenn í dilk hlutlausra í þessu sambandi, en þeir stefna vissulega að friði á sínum tíma. ÖRYGGI er fyrir mestu, en öryggi verður ekki tryggt með skothæfninni einni. Leyniskytt ur Vietcong skjóta á flugvélar sem eru að leggja af stað frá stöðvum sínum og á bíla á ferð um svæðin, sem ríkisstjórnin og Bandaríkjamenn ráða yfir. En þær eru ekki hluti af aðal- her Vietcong, og þeim verður því ekki útrýmt með skyndi- árásum eða þyrlum, hvað sem þær væru margar. Þegar þess ar leyniskyttur eru búnar að láta rifflana í plasthylkin og stinga þeim í skurðina á ökrun um, er ómögulegt að þekkja þær frá öðrum bændum. Þessum leyniskyttum er ekki unnt að útrýma fyrri en að ör yggissveitir eru búnar að koma sér vel fyrir á sínu svæði og bændur eru orðnir sannfærðir um. að þær verði þar til fram búðar. Meðan svo er ekki þorir eðlilega enginn að gefa neinar upplýsingar, hversu mikinn við bjóð, sem fólk kann að hafa á ógnvöldunum. Varanlegu ör- yggi í þorpunum verður ekki komið á nema með traustu lög- regluliði. en þess er ekki kost ur í Vietnam og ekkert útlit fyrir að svo verði fyrst um sinn. Myndun traustra lögreglu sveita víðs vegar um landið hef ur ekki verið látin sitja í fyr irrúmi fyrir öðru, eins og nauð synlegt er. Brezkir ráðgjafar í Saigon hafa lagt megináherzlu á þessa nauðsyn undangengin sex ár, og þegar þess er minnzt verður skiljanlegra, hve svart- sýnir þeir eru. Bandaríkjamenn í Vietnam hafa látið sannfærast á papp- írnum. Á prjónunum er áætlun um að efla lögreglusveitirnar furðulega hratt. í þeim voru 22 þúsund menn árið 1964, eiga að verða 70 þúsund á næsta ári og 150 þúsund árið 1970. En lögreglunni er þó bannað að taka í sína þjónustu nokkurn mann á aldrinum 18—33 ára, en það þýðir, að henni er mein að að ná til þess mannafla, sem hún þarf mest á að halda. Skráningin í herinn gengur hart eftir sínu og mannfæðin er svo mikil, að lögreglunni virðist ekki einu sinni mögu- legt að ráða til starfa þá öldr uðu menn, sem henni er heimil að. í lögreglunni eru nú 50 þús. manns og þar við situr. Enginn hefur hugmynd um, hvar eigi að taka þau 20 þús- und, sem á að fjölga um fyrir næsta ár. Allt liðið, að undan- teknum 1500 mönnum. gepnir störfum i Saigon og öðrum borgum. HÓPSAMSTARF LÆKNA Framhald af bls. 9. Símaþjónusta hefst klukkan 8, en klukkan 8.30 eða 9 byrja lækn ar að taka á móti sjúlkingum. Klukkan 10 hittast þeir á skrif- stofunni. bera saman bækur sínar og skiptast á upplýsingum. Að því búnu fara “eir í vitjanir og ljúka þeim fyrir næsta stofutíma, sem gæti verið frá klukkan 14. Símaviðtalstími er alltaf hinn sami hjá hverjum lækni. Endra- nær er læknirinn aðeins ónáðað ur í aðkallandi nauðsyn og síma stúlkan tekur öll skilaboð, t.d. beiðnir um endurnýjunarlyfseðla, fyrir lyf, sem sjuklingur á að nota að staðaldri, beiðnir um vitjanir og viðtöl á stofu. Þriðji stofutíminn gæti verið milli klukkan 6 og 7 á kvöldin og gætu læknar skipzt á um að vera við á þeim tíma, enda skipta þeir með sér kvöld- og nætur- vöktum. Tímapantanakerfi. Til þess að losna við alla þá sóun á tíma sjúklinga, sem nú tíðkast, verður viðhöfð tímapönt- un. Er þá hægt að panta tíma dag inn áður eða sama dag. Sé upp pantað hjá þeim lækni, sem sjúkl ingurinn kýs helzt að tala við, og viðkomandi læknir getur ekki skot ið honum inn á milli, á sjúkling urinn þess völ að bíða, þar til læknirinn getur sinnt honum, t.d. næsta dag eða annar læknir úr hópnum tekur að sér að leysa vanda hans. Komi í ljós, að sjúklingur þarf á ýtarlegri rannsókn að halda, en tíminn leyfir, er hann látinn koma aftur sama dag eða næsta dag og þá ætlaður riflegri tími. Vel uppbyggt tímapantanakerfi, tryggir það, að sjúklingur kemst að á réttum tíma, læknirinn hefur næði til þesss að tala við hann, skoða og skrá athugasemdir á spjald hans, enda er hann laus við allt óþarft kvabb. Spjaldskrá. Allar upplýsingar um sjúklinga eru skráðar á sérstök spjöld og þeim fylgja bréf frá sjúkrahús um, álit sérfræðinga, vottorð og skýrslur. Eru þannig á einum stað að finna allar upplýsingar um sjúklinginn. Flytji sjúklingur burt, eru öll plöggin send til viðkomandi heilsu gæzlustöðvar. Sérfræðiþjónusta. Þar sem ekki eru starfandi sér fræðingar, þarf að gera ráð fyrir að þeir komi öðru hvoru, til að rannsaka sjúklinga, að tilvísun heimilislæknanna. Er að þvi augljóst hagræði fyr ir alla aðila. f fyrsta lagi hittir sérfræðing- urinn sjúklinginn við beztu skil- yrði. Hann fær aðgang að öllum upplýsingum um fyrri rannsóknir og meðferð og hann nýtur aðstoð ar heímilislæknisins, sem að jafn aði þekkir sjúklinginn betur en nokkur annar. í öðru lagi væri hægt að komast hjá að senda nema mjög fáa sjúkl inga til Reykjavíkur, miðað við það sem nú er og má þannig spara sjúklingnum óþarfa útgjöld og vinnutap. í þriðja lagi myndu þannig fást starfsskilyrði fyrir marga af þeim sérfræðingum, sem erlendis dvelja. Því að ef gert er ráð fyrir, að allir þeir, sem erlendis eru, og ekki hafa tekið sér fasta búsetu þar, kæmu heim á næsta áratug, má búast við, að þröngt yrði um þá 1 þéttbýlinu. Vitað er, að lang flestir þeirra, sem erlendis eru við sérfræðmám hyggjast koma heim, séu starfsskilyrði fyrir hendi. Og það er okkur, sem heima störfum að búa þeim viðunandi skilyrði. Lokaorð. Það sem hér hefur verið rakið, eru aðeins fá atriði í lausn mik- ils vandamáls. Miklu varðar, að þjóðin skilji, hvað það er, sem yngri læknar vilja gera og munu gera, ef þeim er veitt tækifæri til þess, því að þær breytingar, sem hér hefur verið lýst, munu brátt komast á og verður það aðeins háð áhuga almennings, hversu fljótt og víða það verður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.