Tíminn - 05.08.1966, Side 16
SHGA HITIIBOR-
NESJA VÖLLUM
175.
Saf^es^JastólííÆftnatteaaa. |<tíJNNesJavelK í Þingv.sv. raældist
Í72(la»‘d3fiitíT>mlrola.austnr,í morgun mesti hiti, sem mælzt
Sigurboginn, hliðið að hátíðasvæðinu er 8 m. á hæð. I tjörninni má sjá drekann, sem spýr eldi oqeimyrju.
ÞJÓDHÁTÍD VESTMANNA-
EYINCA HEFSTÍDAG
(Tímamyndir HE)'
FB-Reykjavík, fimmtudag.
ÞjóShátíðin í Vestmannaeyj-
um hefst kl. 14 á morgun. Mik-
ill fjöldi aðkomufólks mun
verða í Eyjum um helgina, og
samkvæmt upplýsingum Flug-
félagsins munu vélar félagsins
flytja rúmlcga cllefu hundruð
manns til Vestmannaeyja fram
á laugardag og Flugsýn mun
flytja um tvö hundruð. Auk
þess má gera ráð fyrir að nokk-
ur fjöldi fari sjóleiðis til þess
að taka þátt í þjóðhátíðinni,
sem íþróttafélagið Þór sér um
að þessu sinni.
Þjóðhátíðargestirnir voru
byrjaðir að reisa tjöld sín inni
i Herjólfsdal í dag, en í kvöld
og nótt verður gengið frá bví
sem eftir er í sambandi við
skreytingu hátíðasvæðisins, veif
ur hengdar upp, söluskálar og
mnað tréverk málað og sitt-
hvað fleira. Hliðið inn á há-
tíðasvæðið er sigurbogi einn
mikill, átta metra hár. A hæfj-
inni neðan við Fjósaklett verð-
ur uppljómuð vindmilla í hol-
lenzkum stíl. Milluvængirnir
sjálfir verða upplýstir og mill-
an síðan flóðlýst, og búast
menn við, að hún geti orðið
skemmtileg á að líta í kvöld
rökkrinu næstu dagana. Upp á
Fjósakletti sjálfum verður reist
ur bláköstur og mun verða
kveikt í honum á miðnætti á
morgun, föstudag. Dreki, st.ór
og mikill, verður í tjörninni,
og spýr hann eldi og eimyrju.
Skátar munu annast sjúkra-
hjálp, ef þörf krefur, og hafa
þeir opið sjúkratjald á pjóð-
hátíðarsvæðinu allan tímann,
og einnig annast þeir muna-
gæzlu fyrir gesti. Lögreglan
hefur eftirlit í dalnum, og hef-
ur hún gert bílastæði og skipu-
lagt akstur bæði þar og í bæn-
um sjálfum.
Hátíðin verður sett kl. 14 á
morgun, og gerir það Jóhann
Friðfinnsson kaupmaður. Þá
fer fram guðsþjónusta og pre-
dikar séra Þorsteinn L. Jóns-
son. Á eftir guðsþjónustunni
leikur lúðrasveit Vestmanna-
eyja og barnatími verður með
ýmsu til skemmtunar fyrir
börnin. Sigmaður mun sýna
bjargsig, 1. fl. íþróttafélaganna
Þórs og Týs keppa í knatt-
spyrnu og hljómsveitin Logar
leikur fyrir dansi á barnaballi,
sem hefst kl. 17:30. Kvölddag-
skrá hefst kl. 20, og verður
þar gamanvísnasöngur, eftir-
hermur, lúðrablástur, skemmti-
þáttur, óperusöngur og fleira og
fleira. Dansað verður á tveim-
ur pöllum til kl. 4 um nóttina,
en kl. 24 verður kveikt í bál-
kestinum, eins og áður segir,
og veríjur Sigurður Reimars-
son brennukóngur.
Um þjóöhátiðina verða tarnar
ferðir út að Surtsey og eldstöðv
arnar þar skoðaðar. Þessi mynd
va rtekin við Svartey um siðustu
helgi.
ÖKUTÆKI ALDREI VERIÐ í
JAFNGÓÐU ÁSTANDI OG NÚ
SEGJA STARFSMENN FÍB EFTIR VERZLUNARMANNAHELGINA
SJ-Reykjavík, fimmtudag.
í fréttatilkynningu frá
I segir að um verzlunarmannahelg-
FÍRlina hafi 17 vegaþjónustubílar að-
Sumarhátfð FUF í Árnessýslu
verður haldin laugardaginn 0.
ágúst í félagsheímilinu að Flúð
um og hefst kl- 21. Ávörp flytja
Halldór E. Sigurðsson alþingis
maður og Sigurfinnur Sigurðs
son formaður kjördæmasam-
bands Suðurlands. Ómar Ragn
arsson skemmtir og Leikhús-
kvartettinn syngur. Kljóm-
sveit Óskars Guðmundssonar
eikur fyrir dansi. Halldór Sigurfinnur
stoðað 605 bíla, auk þess sem
fjölmargir bílar voru dregnir til
nærliggjandi verkstæða. Vega-
þjónusta FÍB var starfra'kt í öll-
um landsfjórðungum, og var nú
i fyrsta sinn gerður út bill frá
ísafirði er aðstoðaði 35 ökunienn.
Sjúkrabíll FÍB flutti þrjár slas
aðar manneskjur frá Þórsmörk til
Reykjavíkur, og fótbrotna konu,
sem var sótt langleiðina inn í
Landmannalaugar.
Tveir fullkomnir kranabílar í
eigu félagsins lyftu alls 18 bíl-
um, sem flestir voru fluttir til
Reykjavíkur.
Það er einróma álit starfsmanna
FÍB, að aldrei hafi ökutæki lands-
inanna verið í jafngóðu ástandi og
nú í sumar, og er það áberandi,
hve mikið hefur dregið úr öllum
meiri háttar viðgerðum úti á þjóð-
vegum.
Ilins vegar verður það aldrei
nógu brýnt fyrir ökumönnum, að
leggja ekki upp í langferð, án
þess að hafa einföldustu vara-
hluti meðferðis. Þessir varahlutir
kosta ekki mikið fé, en geta aftur
á móti sparað mikinn tíma og
fyrirhöfn. Á þetta jafnt við um
þá, sem eru á nýjum bílum, og þá,
sem leggja upp í langferð á eldri
bílum.
Þá var það fremur áberandi
hvað öll umferð gekk vel og
hvað ökumenn virtu vel allar
umferðarreglur.
hefur í borholu hérlendis — 259
stig við botn. Enn hefur ekki kom-
ið vatn eða gufa upp úr holunni,
en gert er ráð fyrir að senn komi
að því að árangur náist.
Þessi borun er gerð á vegum
Hitaveitu Reykjavíkur, en Reykja-
víkurborg á landið undir Hengl-
inum. Áður hafa verið boraðar
þarna tvær grynnri holur cn nú
er verið að dýpka þá þriðju í von
um árangur. Ekki hefur verið
ákveðið hve langt eða hve lengi
verður haldið áfram að bora.
Nýlega var borað á Selfossi með
góðum árangri, og næst er í ráði
að bora við Námufjall vegna vænt-
anlegrar gufuframleiðslu fyrir Kís
ilgúrverksmiðjuna. Áður hafa ver-
ið boraðar þar tvær holur í sama
tilgangi, og hafa þær boranir gefið
góð fyrirheit. í Reykjavikurlandi
er ekki verið að bora eins og stend
ur.
Sektaðir fyrir
áfengiskaup
fyrir unglinga
HZ-Reykjavík, fimmtudag.
Fyrir verzlunarmannahelgina
stóð lögreglan í Reykjavík nokk
urn hóp fullorðinna manna að
áfengiskaupum fyrir unglinga í
útsölunum hér í borginni. Margir
mannanna gerðu þetta af greiða
semi, en sú greiðasemi var barnar
greiði, því flestir þessara manna
hafa verið dæmdir til að borga
1000 krónur í sekt.
SKÓGARFQSS-
MÁLIÐ TIL
SAKSÓKNARA
HZ-Reykjavík, fimmtudag.
Rannsókn smyglsins í Skóga-
fossi er lokið og verið er að vél-
rita málsskjölin, sem eru um 250
síður auk annarra fylgiskjala,
skýrslum og skjölum. Verður mál
ið sent saksóknara, þegar búið er
að vélrita það. Eins og áður hefur
komið fram hafa þrettán menn við
urkennt að eiga varninginn. 4
þeirra áttu mest en hinir áttu
svipað magn eða um 100 karton.
Sá sem mest átti, var með 437 Vz
karton af vindlingum og 48 flösk
ur af víni.
Skógafoss fór á fimmtudaginn
var upp á Akranes og var mann
aður nýrri áhöfn.
Fölsuðu ávísanir
fyrir 20 000 kr
HZ-Reykjavík, fimmtudag.
Mennirnir tveir, sem settir voru
í gæzlu um helgina, grunaðir um
að hafa gefið út falsaða ávisun á
Skógarhólamótinu, voru yfirhevrð
ir í dag. Játaði annar maðurinn að
hafa gefið út fjórar ávísanir að
upphæð rösklega 20.000 krónur.
Einnig hafði hann falsað fimmtu
ávísunina en ekki selt hana.