Tíminn - 07.08.1966, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
177 iLI C__
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Niðurstaða
krufningar
HZ—Reykjavík, laugardag-
Er Tíminn átti tal við
rannsóknarlögregluna í
Reykjavík í dag, hafði henni
borizt niðurstaða kruíning-
unnar á Jóni Guðna Ingólfs
syni frá Danmörku. í hréf-
inu segir að dánarorsökin
sé blæðing á heila undir
heilahimnuna. í öðru lagi
segir í bréfinu, að ekki sé
unnt að segja af hverju
blæðingin stafi. Á líkinu
Framhald á bls. 15
Hnífur smaug hjá höfðí
Martin Luther King
NTB—Chicago, laugardag.
Hníf var kastað að blökkumanna
leiðtoganum Dr. Martin Luther
King í Chicago í gærkvöldi, en
þar urðu miklar kynþáttaóeirðir
enn einu sinni. Þetta gerðist í einu
„livítu“ hverfi borgarinnar, og eít
ir að blökkumenn höfðu gengið út
úr hverfinu, réðist múgur hvítra
manna á lögregluna. 1200 lög-
reglumenn voru á staðnum til þess
að koma á röð og reglu, og 'höíðu
unglingar einn þeirra harkalega,
svo að liann missti meðvitund.
Æptu hvítu mennimir af miklum
fögnuð, þegar lögreglumennirr.ir
hjálpuðu hinum slasaða inn í
sjúkrabifreið.
Hnífurinn, sem kastað var að
King, hitti hann ekki. Straukst
hnífurinn rétt við höfuð hans og
lenti síðan í hvítum ungling, sem
stóð nokkuð fyrir aftan hann. Fékk
drengurinn svöðus^r á hnakkann
og blæddi mikið úr sárinu. Lög
reglan flutti hann á sjúkrahús.
Nobkru fyrr um kvöldið hafði
King, sem stjórnaði mótmæla-
göngu gegn misrétti á sviði hús-
TTVamVi nlrí 6 hlc
Vinna viö inn-
réttingar í Sýn
ingarhöflinni
f fréttatilkynningu frá Iðnsýn-
ingarnefnd segir, að undirbúning-
ur að Iðnsýningunni sé nú vel á
veg kominn, en ráðgert er að sýn
ingin, sem jafnframt verður kaup
stefna, verði opnuð þann 30. ágúst
n.k. í Sýninga- og íþróttahöllinni
í Laugardal.
Vinna er hafin við lagningu
hlífðargólfs á hið viðkvæma „park
ett“ gólf sýningarhallarinnar og
næstu daga verður byrjað að reisa
milliveggi og skilrúm sýningar
stúkanna. Málun þilfleka hófst fyr
ir nokkru, en sýnendum var gef
inn kostur á að velja um þrjá
mismunandi liti.
Strax og sýningarstúlkur hafa
verið reistar og gengið frá raf-
og símalögnum, munu sýnendur
hefjast handa um að koma sýning
armunum fyrir og skreyta stúkur
sínar. Verður það væntanlega upp
úr miðjum ágústmánuði.
Upphaflega var ákveðið, að sýn
ingarsvæði yrði einnig utan húss,
en nú hefur verið frá því horfið
vegna dræmrar þátttöku.
Iðnsýninganefnd gefur út
myndarlega og nýtízkulega sýn
ingarskrá (18x18 cm), sem verður
um 160 blaðsíður. í henni verða
umsagnir um öll fyrirtæki og stofn
anir sem þátt taka í sýningunni,
svo og fyrirtækjaskrá og grunn-
myndir af sýningarsvæðinu. í sýn
ingarskránni verður m.a. ágip af
sögu íslenzks iðnaðar, getið um
fyrri iðnsýningar og birt ávörp
forystumanna íslenzks iðnaðar.
Ritstjóri sýningarskrárinnar er
Björn Jóhannsson, en Auglýsinga
stofa Gísla B. Björnssonar sér
um útlit hennar og annast auglýs
ingasöfnun. Hún er prentuð í
Prentsmiðjunni Hólum, en bók
hand annast Félagsbókbandið. Ráð
gert er, að sýningarskráin verði
prentuð i 20 þúsund eintökum.
Iðnsýningardeild hefur lát-
ið prenta bréfmerki, sem send
hafa verið þátttakendum til
að skreyta sendibréf og vekja
þannig athygli á sýningunni. Það
er ljósblátt að lit og á það gyllt
merki Iðnsýningarinnar 1966.
Þá er þess að geta, að fjórar
Framhald á fcls. 15
Hætt við útgáfu 28 binda bóka-
fíokks um norrænu aíþýðulist
GÞE-Reykjavík, laugardag.
Á síðasta fundi menningar
málanefndar Norðurlandaráðs
var ákveðið að veita allmynd
arlega fjárupphæð til útgáfu
bókaflokks, cr fjalla átti um
alþýðulist á Norðurlöndum síð-
ustu 1000 árin. Var ætlunin, að
þetta yrði heilsteypt listaverk í
28 bindum, skreytt fjölda ljós-
mvnda ne lesmálið skvldi ritað af
færustu lista og fornleifafræðing-
um. Á óformlegum fundi í Kaup-
mannahöfn í marz sl. var skipuð
ritnefnd þessa verks, og áttu aðild
að henni fulltrúar allra Norður-
laiulanna, af íslands hálfu
dr. Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörður, en dr. phil P . V. Globe
skyldi annast ritstjórn. Nú hafa
þær fregnir borizt frá Kaup-
niannahöfn, að babb sé komið í
bátinn og hefur verið horfið frá
útgáfu þessa mikla verks, að sögn
Berlingske Tidende.
Sá, sem átti hugmyndina að verk
inu, var hinn víðfrægi danski list
málari Asger Jorn; og um þriggja
ára skeið hefur hann unnið að
frumdrögum bókaflokksins svo að
segja upp á einsdæmi, og verið líf
ið og sálin í öllum undirbúmngi
hans. Undanfarin ár hefur hann
ferðazt víða um Norðurlönd ásamt
franska ljísmyndaranum Gerard
Franceschi, sem tekið hefur fjöld
ann allan af ljósmyndum af göml
um safnmunum o.fl. Árið 1965
lét hann gefa út stórt bindi um
höggmyndalist á Skáni, á 12. öld
mjög fallegt verk.sem sumpart
átti að vera prufubindi fvrrgreinds
listaverkabókaflokks Bók þess-
Framhala á 4. jiðu.
Myndirnar eru frá löndun og söltun síldar úr Reykjaborginnl í fyi
/ síldarsoltun
SJ-Reykjavík, laugardag.
Tíminn hafði í dag samband
við Svein Guðmundsson, hjá
söltunarstöðinni Ströndin á
Seyðisfirði, og sagði hann, að
ekki hefði verið saltað uema i
800 tunnur, það sem af er sumr
inu, en á sama tíma í fyrra
hefði verið búið að salta í um
4000 tunnur. Svcinn kvað enn
enga ástæðu til svartsýni, þó
að þessi dráttur á komu söltun
arhæfrar síldar sé vissulega
óþægilegur og dýr fyrir söltun
arstöðvarnar. Karlmenn, sem
eru ráðnir til starfa hjá söltun
arstöðvunum hafa yfirleitt 10
tíma vinnu á dag, en kvenfólk
ið verður að láta sér lynda að
bíða eftir að síldin komi.
í gær kom Reykjaborgin 111
Strandarinnar með um 60 tonn
og var saltað af þeim afla 358
tunnur. Reykjaborgin er eina
skipið í flotanum, sem er búið
sérstökum ísblásara af amer-
ískri gerð, og hefur sá út-
búnaður reynzt mjög vel.
Helmingi betri nýting var á
Framhald á bls. 15.