Vísir - 06.05.1975, Blaðsíða 5
Vlsir, ÞriOjudagur 6. mal 1975.
fLÖND I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGÚN UTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Mario Soares, Ieiötogi jafnaðarmanna, (t.v.) reðir við blaðamenn.
Þeir fengu Pulitzer
Blaöamaöur og Ijós-
myndari/ sem skrifuðu
greinaflokka í Chicago
Tribune um hungurharð-
indin í Afríku og Asíu,
unnu til Pulitzerverð-
launanna 1975 fyrir
blaðamennsku á sviði al-
þjóðamála.
William Mullen, þritugur
blaðamaður, og Ovie Carter, 29
ára ljósmyndari, deila þvi með
sér 1000 dollara verðlaununum.
En meiri akkur þykir þó i
þeirri viðurkenningu, sem verð-
launin fela i sér og frægðinni
þeim samfara. Þessi verðlaun
eru veitt árlega fyrir blaða-
mennsku, leikritagerð, bók-
menntir og tónlist.
Michael Shaara hlaut bók-
menntaverðlaunin að þessu
sinni fyrir skáldsögu sina „The
Killer Angels,” en hún er byggð
á atburðum i þrælastriðinu, eða
nánar tiltekið orrustunni um
. Gettysburg.
Þeir Mullen og Carter ferðuð-
ust 16.000 km um Afriku og Ind-
land á þrem mánuðum sumarið
og haustið 1974 til efnisöflunar i
fimm greina-flokk, sem þeir
skrifuðu um sveltandi ibúa jarð-
ar.
Deiluaðilar í Portú-
gal jafna ágreining
sinn innbyrðis
Sósialistar og kommú-
nistar í Portúgal virðast
komnir langleiðina með að
leysa ágreining sinn, sem á
undanförnum dögum hafði
hlaðiðuppófriðarskýjum á
st jórnmálahimninum í
Portúgal.
Leiðtogar flokkanna beggja
héldu i gærkvöldi, öllum að óvör-
um, þriggja stunda fund, og að
honum loknum sagði Alvaro Cun-
hal, formaður kommúnista-
flokksins: „Við höfum stigið stórt
skref fram á við.”
Mario Soares, leiðtogi
sósialista, kinkaði kolli því til
samþykkis um leið og hann yfir-
gaf aðalskrifstofur kommúnista-
flokksins, þar sem fundurinn
hafði verið haldinn. — En Soares
og jafnaðarmenn hafa haldið þvi
fram, að kommúnistar beittu
bolabrögðum til að sniðganga
vilja kjósenda, sem birtist i
kosningunum á dögunum. Þá
hlutu jafnaðarmenn mest fylgi
allra flokka, en kommúnistar
voru ekki hálfdrættingar.
í sameiginlegri yfirlýsingu,
sem flokksleiðtogarnir gáfu út
eftir fund þeirra i gærkvöldi, var
komizt svo að orði, að báðir vildu
vinna saman að þvi að viðhalda
þvi frelsi, sem áunnizt hefði, þeg-
ar herinn gerði stjórnarbylting-
una i fyrra.
Menn höfðu hálft um hálft búizt
við þvi, að til stórtiðinda mundi
draga i deilum flokkanna, eftir að
kommúnistar sniögengu jafnað-
armenn á hátiðafundi, sem efnt
var til 1. mai i Lissabon. Um
30.000 jafnaðarmenn fylktu liði til
stjórnarráðsins á föstudag til að
mótmæla þvi, að sá flokkurinn,
sem flest atkvæöin fékk i kosning-
unum nýafstöðnu (38%) skyldi
ekki fá einn ræðumann á 1. mai
fundinum.
Þessi mótmæli og greinileg
andúð almennings á gerræði
kommúnista hefur greinilega haft
áhrif til þess, að kommúnistar
(sem fengu 12,5% — þriðja mesta
fylgið — ikosningunum) treystust
ekki til annars en friða sósialista.
Toka upp nýja stefnu
gagnvart Austurlöndum
Henry Kissinger, utan-
ríkisráðherra, mun leggja
drög að nýrri stefnu
Bandaríkjamanna í mál-
efnum Austurlanda nær að
afloknum fundi Fords for-
seta við Sadat Egypta-
landsforseta og Rabin for-
sætisráðherra ísraels, en
þær viðræður eru ráðgerð-
ar í næsta mánuði.
Kissinger sagði, að Banda-
rikjastjórn framfylgdi engri
fastri áætlun i málefnum Austur-
landa nær um þessar mundir.
Hann kvað það þó vera skoðun
stjórnarinnar, að héldist áfram-
haldandi þrátefli milli Araba og
Israela, mundi reka að þvi, að
styrjöld brytist út að nýju með
jafnvel nýju oliusölubanni og ef til
vill þátttöku Sovétmanna.
Utanrikisráðherrann lét þessi
orð falla i sjónvarpsviðtali i gær.
— Hann kvað alla aðila skylduga
til að skýra, hvað þeir gætu gert,
til þess að friður næðist.
„Af hálfu Israela er það spurn-
ing um, hve miklu landi þeir vilja
skila aftur. Varðandi Araba er
það spurning um, hverjar skuld-
bindingar þeir vilja takast á
hendur til að tryggja þann frið,
sem þeir segjast reiðubúnir til að
semja um,” sagði Kissinger.
Bandarikjastjórn tók til endur-
skoðunar fyrri stefnu sina i mál-
efnum Araba og Israela, eftir að
friðarerindrekstur Kissingers fór
út um þúfur i marz.
Kissinger lagði á það áherzlu i
sjónvarpsviðtalinu, að Banda-
rikjastjórn mundi standa við öll
fyrri loforð sin við Israelsmenn.
Ford gagnrýndurfyrir að
láta fíotann aðstoða
fíóttafólkið
Embættismenn Was-
hingtonstjórnarinnar reru
að þvi í gær að fá þing-
menn til fylgis við tillögur
stjórnarinnar um 507 mill-
jón dollara f járveitingu til
að aðstoða flóttafólk frá
Vietnam við að koma undir
sig fótunum í Banda-
ríkjunum.
Þeir töldu sig finna hugarfars-
breytingu hjá almenningi, þar
sem vaknað hefði meiri samúð i
garð flóttafólksins.
Jafnhliða þessu hefur Ford for-
seti þurft að verja fyrir stjórnar-
andstöðunni þá ákvörðun sina að
ráöstafa stórfé til þess að aðstoða
Vietnama til aö flýja land.
— Er búizt við þvi, að hann
komi sérstaklega inn á það mál-
efni á blaðamannafundi, sem
hann hefur boðað til i kvöld.
Ford forseti hefur lýst þvi yfir,
að hætta hefði verið á þvi, að
þessu fólki yrði mein gert, ef það
hefði verið um kyrrt eftir valda-
töku ráðamanna kommúnista.
Hann hefði notað það vald, sem
stjórnskráin færir forsetanum i
hendur, til þess að nota flotann
við að koma þessu fólki undan.
Þeyttist burt í
sprengingunni
Það slys varð I kappakstri, sem
háður var I Aiabama I gær, að
Bandy Owens, mágur kappakst-
ursgarpsins Richard Petty, þeytt-
ist yfir næstu áhorfendur, þegar
sprenging varð I vatnsþrýstigeymi.
Flaug hann átta metra.
Owens ætiaði að kæla hjólbarða
kappakstursblls mágs slns, þegar
geymirinn sprakk með þessum af-
leiðingum. Meiddist Owens nokkuð
og fékk Petty sig ekki til að halda
áfram keppninni.
VILJA EKKI SKILA
AFTUR SVÆÐUNUM
„Það er naumast sá
israeli til, sem mundi
gangast inn á að skila aftur
öllum vesturbakka árinnar
Jórdan, sem tekinn var i
stríðinu I967,"sagði Simon
Peres, varnarmálaráð-
herra israels, i ræðu i gær-
kvöldi.
Þessi yfirlýsing israelska varn-
armálaráðherrans kemur i kjöl-
far frétta um, að Hussein
Jórdaniukonungur segir, að
Arabarikin bjóðist til að viður-
kenna tsraelsriki, ef það skili aft-
ur öllum hernumdu svæðunum.
„tsrael getur ekki snúið aftur
til þess, þegar það hafði einungis
örmjóa strandlengju, sem stöðugt
lá undir opnum byssukjöftum og
eldflaugum, þannig að sérhver
flugvél, sem tæki sig á loft i tsra-
el, væri komin upp á náð og misk-
unn þeirra, sem stýrðu þessum
vopnum,” sagði Peres ráðherra.
Þegar Hussein konungur frétti
þessi ummæli, visaði hann á bug
hugmyndinnium, að ísrael þyrfti
landamæri, sem tryggðu þeim ör-
yggi. Kvað hann slika hugmynd
úrelta nú á timum kjarnorku-
vopna og langdrægra eldflauga.
Flóttaaögeröir Bandarfkjamanna til aðstoöar fólki I S-Vietnam hafa
kostað óhemjufé. Þessi mynd var tekin af einni herþyrlunni, sem
fleygja varö fyrir borð til að rýma fyrir öðrum, þegar fólkinu var flogiö
frá Saigon út á herskip USA.