Vísir - 10.05.1975, Síða 6
6
Vlsir. Laugardagur 10. mai 1975.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
yAuglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611
Ritstjórn: Síðumúla 14. Slmi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 40 kr.eintakið. Blaöaprent hf.
Þrjú mögur ár
Dökk er sú mynd, sem dr. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri dró i gær um horfurnar i efna-
hagsmálum næstu árin. Á ársfundi Seðlabankans
sagði hann, að það yrði ekki fyrr en árið 1978, sem
skynsamlegt væri að vænta þess, að ráðstöfunar-
tekjur á mann yrðu svipaðar og þær voru árið
1973.
Seðlabankastjóri gefur sér það markmið, að
viðskiptahalli íslands gagnvart útlöndum verði
minnkaður i áföngum, svo að hann verði horfinn
með öllu á árinu 1978. Ef þjóðartekjur minnka i ár
um sex af hundraði, eins og siðustu spár gera ráð
fyrir, en byrji með næsta ári að vaxa að nýju um
nálægt fimm af hundraði á ári, eins og verið hefur
að meðaltali siðustu tvo áratugi, verða lands-
menn að fórna þetta miklu af ráðstöfunartekjum
sinum til að jafna viðskiptahallann. Bankastjór-
inn sagði, að hann teldi þessa mynd ekki dregna
dekkri litum en ástæða væri til. Sáralitið svigrúm
mundi verða til að auka raunverulega neyzlu og
fjárfestingu næstu árin. ,,Þessi kaleikur verður
ekki frá okkur tekinn með frekari rýrnun gjald-
eyrisstöðunnar eða aukinni skuldasöfnun er-
lendis, þvi að i þeim efnum hefur þegar verið teflt
á tæpasta vað,” sagði hann.
Siðustu fréttir af gjaldeyrisstöðu og vöru-
skiptajöfnuði eru vissulega ekki til að örva bjart-
sýni um framvindu mála. Að visu ber þess að
gæta, að enn eru ekki fram komnar allar þær
ráðstafanir sem rikisstjórnin hyggst gera i efna-
hagsmálum. Meðal annars má minna á fyrir-
ætlanir um niðurskurð rikisútgjalda, sem ástæða
er til að undirstrika, að staðið verði við fullum
fetum. Þessi sparnaðaráform rikisins eiga að
draga úr þenslunni miðað við það, sem ella hefði
orðið, en jafnframt er með skattalækkunum
stefnt að þvi að jafna byrðum sem réttlátast á
landsmenn. Rikisstjórnin hefur i aðgerðum sin-
um kappkostað að hafa þær ekki bitrari en
brýnasta nauðsyn var til. Það sést lika á gjald-
eyrisstöðunni og vöruskiptajöfnuðinum, að sizt
hefur verið rist of djúpt. Sem betur fer hefur
einnig i aðalatriðum tekizt að halda fullri at-
vinnu, ef undan er skilið atvinnuleysi af völdum
togar a verkf allsins.
Gjaldeyrissjóður þjóðarinnar er enn minus-
tala. Hann var um það bil tveimur milljörðum
undir núlli i febrúarlok, versnaði enn i marz og
batnaði ekki i april. Vöruskiptajöfnuðurinn, hlut-
fallið milli inn- og útflutnings, varð i marz ein-
hver hinn óhagstæðasti, sem orðið hefur. Þetta
hvort tveggja hefur vakið þá spurningu, hvort
gengi krónunnar sé enn ekki of hátt skráð og
hvort ný gengisfelling verði ekki nauðsynleg,
áður en langt um liður.
Rökum seðlabankastjóra verður ekki mótmælt
á þessu stigi. Ekki er unnt að treysta á, að við
hljótum uppörvun með stökkbreytingum á er-
lendum mörkuðum á næstunni. Ekki verður með
viti safnað meiri skuldum erlendis i þeim mæli,
að það bjargi okkur úr þessari klemmu.
é _
Við getum aðeins sótt bjartsýni i spána um
fimm prósenta aukningu þjóðartekna þegar á
næsta ári. En miðað við þau lifskjör, sem við höf-
um tamið okkur, áður en harðna tók i fyrra,
munu okkur sennilega þykja árin 1975, 1976 og
1977 nokkuð mögur.
-HH
[R FRANCO
MÆTTA ?
Franco hershöföingi og Juan Carlos prins. Franco leiöir Sophiu prin-
sessu sér viö hliö.
Menn spyrja hver annan
í Madrid þeirrar spurning-
ar þessa dagana, hvort
ekki líði að því bráðum, að
Franco hershöfðingi, sem.
verið hefur einráður á
Spáni um 36 ára bil, fari að
draga sig í hlé.
Þeir hafa veitt því eftir-
tekt, að Juan Carlos prins
og arftaki Francos hefur
látið mikið á sér bera opin-
berlega að undanförnu, og
það vekur menn til um-
hugsunar um, hvort hann
sé ekki að búa sig undir að
taka við af gamla mannin-
um alveg á næstunni.
Svo er að sjá sem fjölskylda
Francos hershöfðingja hafi ekk-
ert á móti þvi, að hann setjist i
helgan stein, en enginn vill leggja
neitt að honum i þvi efni. —
Nema upp komi alvarleg veik-
indi.
En meðal stjórnarandstöðunn-
ar á hinn bóginn, sem lengst af
hefur orðið að láta fara litið fyrir
sér i gegnum árin, gerast þær
raddir þó háværari, sem telja, að
þessi 82 ára gamli leiðtogi ætti að
stiga niður úr valdastólnum. Þró-
un mála i Portúgal hefur aukið
andstöðunni á Spáni þor, svo að
hún lætur meira af sér vita en fyr-
ir nokkrum árum, þegar enginn
lét i sér æmta gegn gamla mann-
inum.
Það hefur kvisazt, að dirfskan
gangi svo langt orðið, að nokkrir
embættismenn, sem standa nærri
Carlos Arais Navarro forsætis-
ráðherra, hafi á laun róið að þvi,
að prinsinum verði afhent völdin.
Með þvi vona þeir, að hraðað
verði stjórnmálaþróun Spánar.
Eins og flestir ætla þeir, að hinn
37 ára gamli prins reynist frjáls-
lyndari en Franco.
Navarro er raunar þegar
byrjaður að slaka til undnan kröf-
um frjálslyndra á sumum sviðum
og hefur þar með bakað sér
nokkra óánægju meðal róttækari
hægri manna. — Hinir siðar-
nefndu gruná vini Navarros um
að breiða út þann orðróm, að
Franco sé i þann veginn að draga
sig i hlé. I þeirra augum væri slikt
lúmskt bragð til þess að kveikja
hjá alþýðunni umhugsunina um
Spán án Francos og jafnvel eftir-
væntingu eftir þvi, að sú stund sé
ekki langt undan. Þeir telja, að
það gæti svo áfram þrýst að ,,E1
Navarro forsætisráöherra hefur
reynzt írjálslyndur.
Illlllllllll
Umsjón: G.P.
Caudillo” (leiðtoganum) og fjöl-
skyidu hans sömuleiðis að fara
að draga sig i hlé.
Ef næðist að magna nógu mikla
spennu, gæti þetta leitt af sér, að
Franco drægi sig i hlé, meðan
honum væri enn fært að gera það
með fullum heiðri, áður en hann
bakaði sér óþokka. En menn
telja, að það mundi um leið verða
til þess að Arais Navarro yrði
vikið til hliðar.
Að fjölda til hefur róttækum
hægrisinnum heldur fækkað á
Spáni, en leiðtogar þeirra hafa
samt mikil áhrif á Franco hers-
höfðingja, sem enn tekur allar
þýðingarmiklar ákvarðanir, sem
teknar eru á Spáni, — hvað sem
liður öllu tali um að hann sé að
hugsa um að láta völdin af hendi.
Eitt af þessu, sem Navarro hef-
ur gert til aukins frjálslyndis, er
aukið prentfrelsi, sem gætir nú
meira, þrátt fyrir að lögreglan
hafi verið látin stöðva útgáfu á
nokkrum fréttablöðum, sem þóttu
ganga of langt. — Svo er komið,
að það er meira að segja skrifað'
opinskátt um það i blöðum, hvort
Franco sé I þann veginn að hætta
stjórnsýslu. Slíkt var þó algert
bannorð fyrir bara tveim árum
eða svo.
Einn fréttaskýrandinn skrifaði
á dögunum, að æ meira væri nú
um það talað, að þjóðhöfðingi
þeirra væri i þann veginn að
hætta stjórnarstörfum. Hann hélt
þvi fram, að Francos biði þá eitt
af þrennu: Að hann hyrfi að bú-
skap á býli sinu, sem er i Galicia,
fæðingarhéraði hans. Að hann
settist að i gamalli höll á Mall-
orca eða þá annarri höll i San
Lucar de Barremeda, sem er
skammt frá Cadiz.
Allt þetta tal hefur orðið til
þess, að menn vaka nú yfir hverri
hreyfingu og hverju orði frá Juan
Carlos prins. Menn sjá i hverju
hans athæfi aukna þýðingu.
Franco afsalaði sér völdum i
hendur Carlos prins um nokkurra
vikna skeið i fyrrasumar, meðan
hann lá sjálfur veikur. En hann
tók þau aftur, þegar hann hafði
náð sér af veikindunum.
Juan Carlos hvarf þá aftur i
skuggann, en á undanförnum vik-
um hefur hann verið töluvert i
sviðsljósinu. Hann hefur verið
aðalgestur við hersýningar og oft
á opinberum ferðalögum hér og
hvar á Spáni.
Ekki alls fyrir löngu fór hann i
heimsókn til Irans og komst þá á
forsiður blaðanna, þegar hann
flutti ræðu, þar sem hann komst
m.a. svo að orði: ,,Ég er ekki
hingað kominn aðeins i skemmti-
heimsókn, heldur er tilgangur
minn sem tilvonandi Spánarkon-
ungs að koma á langri samvinnu
landanna.”
Svo öruggur hefur prinsinn ekki
áður verið um sig, að hann hafi
talað svo ótvirætt.
Þessi mynd var tekin, þegar Franco útskrifaöist af sjúkrahúsi eftir
veikindi sln I fyrra, þegar hann fól Carlos prins völdin um hrlö.