Vísir


Vísir - 10.05.1975, Qupperneq 8

Vísir - 10.05.1975, Qupperneq 8
8 Visir. Laugardagur 10. mai 1975. Umsjón: ðrn Petersen HANN HENGDI SIG PETER HAM einn meölima hljómsveitarinnar BADFINGER fannst látinn á •heimili sinu nýlega. Hann hafði hengt sig. Hann var aðaldriffjöður Badfingers og samdi flestöll laga þeirra. Fyrir utan þau lög er Bad- finger náðu vinsældum með, má nefna lag Nilsson’s „Without you” en það lag samdi Ham á sinum tima ásamt Nilsson. Peter Ham var 27 ára að aldri. örn. Ljósm. BG. Eins og alþjóð er kunnugt kunngerðu Tónhyrningar það i siðustu viku, að þeim væri kunnugt um að STUÐMENN væru væntanlegir í bæinn hvað úr hverju. Umboðsmaður Stuðmanna hafði sosum ekkert litið fyrir þessu, pantaði gamla bióhúsið, heilan bilfarm af þorramat, (ásamt viðeigandi vökvum) og fékk bilstjórann sinn til að Utbúa boðsmiða, og sendi siðan skrif- stofustúlkuna sina út um allan bæ með blessuð boðskortin, á reiðhjólinu sinu? „Mér er það sönn ánægja, að bj....bla...bla...bla”, stóð á kortinu, og við Tónhyrningar gerðum okkur það þegar ljóst að hér væri um glæsilegt samsæti aö ræða, svo rykið var dustað af fermingarfötunum, þvi finn átti maður jú að vera. Klukkan niu vorum við svo mættir I „Gamla bióhúsið”, og eftir að hafa skilið skóhlifarnar eftirvið fatahengið. marseruð- um við inn i salinn. Það fyrsta sem við okkur blasti var heljarborð, hlaðið þorramat og ávöxtum (svo eitt- hvað sé nefnt), þetta var nú ekki beint okkar uppáhaldsfæði, enda skipti það ekki máli, þvi við fengum okkur nefnilega pylsu á leiðinni. Á miðju gólfinu stóð hópur fólks, mátti þar m.a. sjá gagn- rýnendur, meðmælendur, hljómplötuútgefendur og aðra -endur Skrifstofudama umboðs- mannsins var komin i júniform og gekk um beina með glös á bakka, og naut hún bersýnilega vinsælda sinna. Við reyndum svona smátt og smátt að blanda okkur i aðal- klikuna, og skyggndumst eftir Stuðmönnunum sjálfum. Þá stekkur umboðsmaðurinn skyndilega upp á stól, og hefur upp raust sina. „Sko, málið er það, að þar eð Stuðmenn eru ekki komnir ennþá, þá ætla ég aðútskýra afhendingu þessarar gullplötu fyrir ykkur.” Og á meðan umboðsmaðurinn malar stanzlaust um einhverja gullplötu og væntanlegar heimsstjörnur, verður okkur starsýnt á hinn vinrauða smóking hans, og bölvum þvi að hafa eKki haft litfilmu i apparatinu. Það mátti sjá að fleiri voru annars hugar en við, þvi útgef- andinn með húfuna þarna við hliðina á okkur, talaði i sifellu við sjálfan sig, „Birgir átta, Nikulás fjórir! segir enginn bingó? ansans”. Skyndilega heyrast mikil læti að utan, og engu likara en að Lúðrasveit Hafnarfjarðar sé að koma i heimsókn. Umboðs- maðurinn snarhættir ræðu sinni (sem reyndar enginn hlustaði á, nema bflstjórinn og skrifstofu- daman) og öskrar, „þeir eru komnir, þeir eru kom...” (Æ, bjáninn gleymdi að hann stóð á stól.) Hurðinni er hrundið upp, og Stuðmenn birtast umkringdir kvenpeningi þeim er jafnan er til staðar hér i höfuðborginni, þegar að frægir tónlistarmenn eru annars vegar. Þeir virðast i fyrstu allhissa á þessum mann- söfnuði, en þegar að umboðs- maðurinn loksins kemur undir sig fótunum, léttist heldur á þeim brúnin. „Hæ gamli, er þetta einhver framboðsfundur eða svoleiðis?” Umboðsmanninum tekst með snilld að koma þeim Stuðmönn- um i skilning um að við séum hættulausir með öllu, og viljum bara spyrja nokkurra spuminga. „Nú jæja, það er ókei, en hvað varstu að rövla um plötu úr gulli”? Umboðsmaðurinn brosir vandræðalega til okkar, og reynir siðan að útskýra fyrir Stuðmönnum, hvaða svona hljómplata úr gulli tákni I veröld hljómplötuútgefenda. „Tja, eigðu hana bara sjálfur góurinn, við eigum hvurt eð er öngvan svona grammófón” (svarar Himmelberg eftir langa umhugsun) „Ha, ha, BINGO,” (hrópar litli útgefandinn með húfuna og hlær). Umboðsmaðurinn lætur þessa blammeringu sig litlu skipta, og býður fólki hressingu. Eftir tæplega klukkustundar hressingu, þykir okkur Tón- hyrningum timi til kominn, og ráðumst að Stuðmönnum, þar sem þeir sitja að snæðingi umkringdir áðurnefndum kven- peningi. T. „Hvenær kemur stóra platan ykkar út?” spyrjum við þann er næst situr, Lars Himmelberg. L.H. „Hún, já (smjattar á harðfiskinum), já hún kemur einhvern tima eftir Sjómanna- daginn”. T. „Hvað inniheldur hún mörg lög?” L.H. „Tja, þau eru heilmörg, en sjáðu til (fær sér mjólkursopa og stangar úr tönnum), sko þetta er eiginlega svona tón- verk, eins og þeir kalla það hjá útvarpinu.” T. „Meinarðu þá klassik”? LH. „Nei ertu galinn, þetta eru bara, bara svona draumar, eða bara einn draumur. Við Tónhyrningar h'tum hver á annan og ákveðum þegjandi aö snúa okkur að annarri spurningu, en Himmelberg heldur bara áfram. „Sko við sáum einu sinni þetta „jóka” i sjónvarpinu, og þannig varð þessi plata eiginlega til.” Og á meðan Lars fær sér annan harðfisksbita, foröum við okkur og náum i Lilla (Leó Löve) þar sem hann virðist eiga I miklum vandræðum með stór- an bita af hákarli. T. „Heyrðu Lilli, eru Lónli Blú Bois að stæla ykkur?” L. „Lónli blú bois, ha, hvað er nú það?” T. „Það er hljómsveit úr Keflavik”. L. „Nú, já”, svarar hann áhugaleysislega kyngir siðasta hákarlsbitanum og ropar. T. „Hver eru helztu áhugamál ykkar?” L. „Kva segirðu, áhugamál, þau e...„ heyrðu Jói, slakaðu einni tvlböku. takk. (Snvrsér aftur að okkur). Kva varstu -að segja?” T. „Gleymdu þvi”. L. „Fáðu þér þá tvfböku”. T. „Nei takk.” Við ákveðum að reyna að hafa upp á einhverjum með fullu viti og snúum okkur að Elmari Eyþórssyni, þar sem hann er i hörkusamræðum við stærri út- gefandann. En um leið og sá stóri sér okkur koma skundar hann á brott, og engu likara en að Elmar kunni vel að meta það. E. „Þetta er nú meiri fálkinn, bað mig að syngja inná ein- hverja „Bangsi og Lisa i útgef- andalandi”. T. „Já, það er i tizku að gefa út bangsa núna”. E. „Nú, já,” (segir Elmarhálf- ruglaður og telur okkur örugg- lega jafnmikla fálka og þann nýfarna). T. „Hvernig stóð á þvi að þið fóruð að gefa út plötur?” E. „Ja, við vorum nú búnir að dúfla við þetta lengi, en það var i fyrrasumar að þetta byrjaði svona fyrir alvöru.” T. „Hvernig stóð á þvi?” E. „Nú þessi ,,umbi”(lausi. þýtt umboðsmaður) kom austur i söluferð, og þaá bar..” T. „Hvað var hann að selja?” E. „Notuð húsgögn og svoleiðis, kemur á hverju vori.” T. „Já,haltu áfram” (hláturinn lengi lifi). E. „Nú, vörubilstjórinn hans stakk af, og við leyfðum honum að sofa á káetunni okkar, á meðan hann beið eftir næsta mjólkurbil. (Fær sér drjúgan sopa af mjólk). Nú (ræskir sig), þá spiluðum við nokkur lög svona að ganni (ropar) og hann vildi ólmur fá okkur i bæinn og gera okkur fræga.” T. „Þið hafið tekið þvi boði strax?” E. ,.Ja, þetta var nú bezti drengur, og þar eð vertfðin var eiginlega búin, þá slógum við til.” Lengra náði það viðtal ekki, þvi Elmar var kallaður upp á svið, nú áttu Stuðmenn að taka lagið. Umboðsmaðurinn hóf upp raust sina, „sko, málið er það, að nú ætla Stuðmenn að spila nokkur lög af næstu plötu sinni, sem ég gef út, ha,ha. Þessi brandari umboðs- mannsins var nokkuð góður, þvi hann hló i tæplega sjötiu og átta sekúndur. Lilli tilkynnti að fyrsta lag þeirra félaga héti „út á stoppistöð”. Siðan spiluðu Stuðmenn fieiri lög af nýju plötunni, öll þrælgóð og vönduð. Fólk fór nú að dansa, og stemningin virtist vera að kippast í liðinn. Gæinn frá Rúbin h/f fékk sér i pipu, „fálkinn” fór að dansa við „Bæó Bangsa”, og litli útgef- andinn hrópaði þrefalt BINGÓ. Það var svo ekki fyrr en að Stuðmenn fóru að spila „Give me á ticket for an airplane” i nýrri útsetningu „Giv mig en billet for en flyvemaskine”, að við Tónhyrningar sáum okkur hag i þvi að nálgast skóhlifarnar og skunda á brott, annars yrði vart mikið skrifað um þessa hátið f „Gamla bióhúsinu.” ÖRP. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 71., 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1974 á hluta I Gilhaga v/Blesugróf, þingl. eign Lúðviks Hraundal o. fl. fer fram eftir kröfu Benedikts Sigurðssonar hdl. og Guðjóns Steingrimssonar hrl. á eigninni sjálfri miðviku- dag 14. mai 1975 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 1., 3. og 5. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á Bókhlöðustig 6 B, þingl. eign Leikvangs h.f„ fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri mið- vikudag 14. mai 1975 kl. 14.30. Borgarfógetaembættiö I Reykja vik.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.