Vísir - 10.05.1975, Síða 9
Visir. Laugardagur 10. mai 1975.
9
Glœsileg frammistaða
Bridgefélags Reykja-
víkur gegn landsliði
Sviss
Besse og Trad hrifsuðu fyrsta
sœtið fró Símoni og Stefóni
Heimsókn svissnesku bridge-
meistaranna lauk s.l. fimmtu-
dagskvöld með stórri Baromet-
erkeppni og þegar upp var stað-
ið höfðu Tony Trad og Jean
Besse flest stig. Keppnin var
geysilega spennandi i siðustu
umferðunum og stóð baráttan
milli Trad og Besse og Sfmonar
Simonarsonar og Stefáns Guð-
johnsen, sem höfðu verið i efsta
sætinu mest alla keppnina.
Tvö stig skildu á milli i lokin,
en röð og stig efstu paranna var
þessi:
1. Jean Besse —
Tony Trad.............2180
2. Simon Simonarson —
Stefán Guðjohnsen.....2178
3. Jakob R. Möller —
Jón Baldursson........2142
4. Einar Guðjohnsen —
Valur Sigurðsson......2080
5. Einar borfinnsson —
Páll Bergsson.........2038
6. Pietro Bernasconi —
Halit Bigat...........2032
7. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson... 2007
8. Benedikt Jóhannsson —
Vilhjálmur Sigurðsson .1931
9. Hallur Simonarson —
.v?>.
ÞórirSigurðsson........1881
10. Óli Már Guðmundsson —
Sigtryggur Sigurðsson.. 1877
Aður höfðu svissnesku bridge-
meistararnir spilað fimm
sveitakeppnisleiki, tapað fjór-
um og unnið einn. Alls tók . 21
spilari þátt i þessum leikjum og
sýnir það augljóslega að
Bridgefélag Reykjavikur getur
stillt upp meira en einu landsliði
ef þvi er að skipta. Svissneska
sveitin er eitt af fimm-sex beztu
landsliðum Evrópu og gerir það
frammistöðu okkar manna
mjög glæsilega.
A A v « flf
■=i ^ 4 i m c 4 E
▼ * * V . V Umsjón : Stefán Guó.johnsen
A A ♦ ♦ 10. -10 láHFT'l J ♦ $♦ ♦ $
♦ I 'v ♦ ♦♦ ♦*♦
1, ‘ ♦
♦ ♦ V V o”- ▼oi ♦ f ♦ ▲ ▲♦ 8^ ▼g i* ♦? . —J
Eins og áður hefur verið getið
i fréttum, spilaði sveit Hjalta
Eliassonar, félagsmeistarar
BR, fyrsta leikinn og vann hann
13-7. Siðan komu Islandsmeist-
ararnir, sveit bóris Sigurðsson-
ar, og vann hún 20-0. Siðan kom
leikur Norðurlandalandsliðsins,
sem við viljum helzt gleyma, en
svissnesku meistararnir unnu
stórsigur 20 gegn -í-5. Þá spil-
aði landslið: Asmundur-Halti-
Stefán-Simon og unnu þeir
nauman sigur eða 11-9. Siðasti
leikurinn var siðan viö úrvalslið
BR og vann það góðan sigur eða
20-0.
En snúum okkur aftur að tvi-
menningskeppninni. Hér er spil,
sem sýnir glöggt hve hart Sviss-
lendingarnir sóttu toppana.
Staðan var a-v á hættu og
vestur gaf.
4 G-9-7-5-3
V A-D
♦ D-7-5
▲ A-8-7
* D-10-3
V 4
♦ 10-8-6-2
+ K-D-6-5-4
* A-4
V K-G-8-7-3
+ A-G-9-3
4> G-2
Sigurvegarar i tvimenningskeppninni: Talið frá vinstri: Tony Trad, Guðmundur Kr. Sigurðsson, keppnisstjóri, Jean Besse, Jakob R.
Möller, Stefán Guðjohnsen, Jón Baldursson, Simon Simonarson, Páll Bergsson, Einar Þorfinnsson, Valur Sigurösson og Einar Guöjohnsen.
* K-8-2
V 10-9-6-5-2
* K-4
* 10-9-3
Þar sem Toriy Trad og Jean
Besse sátu n-s, gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
Besse Trad
P 1* D 2 A
3 4» P P P
Besse spilaði út spaðafimmi
sagnhafi lét litið úr blindum og
Trad fékk slaginn á kónginn. Og
hverju spilaði hann til baka?
Tigulkóng og það er eina útspil-
ið sem hnekkir spilinu. Þegar
norður fór inn á trompás, spilaði
hann tiguldrottningu og meiri
tigli, sem Trad trompaði og
hjartaásinn var siðan fimmti
slagur varnarinnar.
Það er talsvert áhætta, sem
fylgir þvi að spila tigulkóngn-
um, þvi n-s gætu misst dýrmæt-
an slag, en e< til vill er þetta spil
táknrænt fyrir hinn djarfa,
stil, sem Besse og þó einkanlega
Trad spiluðu i tvimennings-
keppninni og dugði þeim til sig-
urs.
Láttu ganga
A
Íjóéaskrá
EINU SINNI ATTI EG HEST
Væri ekki tilvalið að framleiða
dagblöðin úr marsipani. Þá gætu ekki
einúngis lesendur þeirra gætt sér á þeim
með morgunkaffinu, heldur gætu rit-
stjórar og blaðamenn ásamt alls konar
þáttahöfundum étið með góðri lyst ofan i
sig, það sem þeir kunna að hafa sagt af
litilli skynsemi i það og það skiptið.
Þótt ýmislegt Glfar Þormóðs þyldi
af þvi sem firinn sjálfur brasar,
ætli Kjartan Ólafs vildi
eta skrifin Matthiasar.
Þetta yrði þess valdandi að blöðin
myndu lækka í verði, þvi að eftir þvf sem
mér hefur verið sagt, hefur sykur stór-
lækkað i heiminum. Það er raunar margt
fleira sem lækkar við það að sykurinn
gerði það. Má t.d. nefna gosdrykki, brauð
alls konar, sultutau og fleira og fleira.
AHt þótt hækki enn um sinn,
annað finnst mér lakara,
ef hugsar sér aðal heildsalinn
að hengja mig fyrir bakara.
Að sjálfsögðu er ekki öruggt að þessar
vörutegundir lækki, enda ekki alveg víst
að ísland tilheyri heiminum. En ef svo er,
geta menn keypt sér ýmislegt fyrir það
sem sparastá sykurkaupunum, t.d. hest.
Það er svoholltað eiga hest, sérstaklega
fyrir hestinn.
Ég kæri mig ekki hætis hót um,
þótt hafi margir Ijótan grun um,
að báðir heim á fjórum fótum
við förum að loknum útreiðunum.
Margt fleira er hægt að gera sér til
hollustu. Eitt af þvi er að fara i sund og
sakar þá ekki að synda tvö hundruð
metrana i leiðinni, eða bara á eftir ef fólk
vill það heldur. Þetta er samnorræn
keppni. Kannski er þarna lifandi komið
það norræna samstarf sem allir eru að
tala um, en enginn veit i hverju er fólgið.
Það næða svalir vindar um friða fjalla-
tinda,
á fegurð Esjunnar nú traðkar hrund og
sveinn.
Hérna eru búnir sjö þúsund að synda
I samnorrænu keppninni og þó drukknaði
ekki neinn.
Svona hefur nú sumarið góð áhrif á
okkur. Og þegar græna byltingin er komin
i framkvæmd ætla ég að taka mig til einn
góðan veðurdag og fara að ganga.
Eins og er finnst mér allar gönguferðir
slæmar fyrir skóna mina og buxurnar
minar upp að hnjám.
Að fá sér göngu, er gaman, um vor,
þótt grasið komi brúnt undan snjónum.
Maður sekkur i ökkla i aur og for,
og eiginlega er best að fara úr skónum.
Það skiptir mig engu þótt gatan sé grýtt,
en galvaskur áfram ég lóna.
Ég elska sko landið fagurt og frftt
og fer bara aftur I skóna.
Það er sem sagt ýmislegt hægt að gera
þegar vorhugurinn er að drepa menn.
Kannski er ekki rétt að taka svona til
orða, en þá skal það haft i huga, að eftir
þættinum um mælt mál aðdæma, virðist
heitasta ósk þeirra sem skrifa i blöð að
komast i hann. Þar sem samkeppnin
virðist hörð i þessu efni verð ég ef til vill
að biða enn um sinn.
Ég riti einu hafði hælt,
hélt þar ekkert of né van
en þegar skáldsins mál varð mælt,
metri reyndist ambagan.
Vegna þess að ég var að tala um hesta
áðan, get ég upplýst það að sjálfur kann
ég eina hestavisu. Hún er svona.
Einu sinni átti ég hest
ofurlitið skjóttan.
Það var sem mér þótti verst
þegar dauðinn sótti hann.
Mér finnst hrossakjöt gott og vildi þvi
alltaf breyta orðinu verst i best. Siðan
vildi ég halda áfram þannig.
Einu sinni átti ég hest
ofurlitið rauðan.
Það var sem mér þótti best
þegar amma sauð hann.
Með nútima eldavélum er enn hægt að
gera betur.
Einu sinni átti ég hest
ofurlitið lillaðan.
Það var sem mér þótti best
þegar amma grillaði hann.
Svona getur sykur sem sagt tekið á sig
margs konar myndir.
Sný ég mér þá að þvi efni sem þættinum
hefur borizt.
p.br. sendi næstu visu fyrir þó nokkru.
Nefnir hann hana A gönguferð við
höfnina.
Þarna liggja þær bundnar á bás,
bjargræði landsins fleytur.
Hengt hefur á þær hespu og lás
heimskunnar skollaleikur.
Þá er efnið frá lesendum þrotið og ekki
annað eftir en að kveðja og þakka þá
ræktarsemi sem þættinum hefur verið
sýnd fyrr og siðar.
Ben. Ax.