Vísir - 10.05.1975, Page 17

Vísir - 10.05.1975, Page 17
Vísir. Laugardagur 10. mai 1975. í DAG | Lí KVÖLD | □ □AG | Hedda Gabler í sjónvarpinu annað kvöld Eitt vinsœlasta Henriks Ibsen Leikritiö Hedda Gabler, eitt vinsælasta verk Henriks Ibsen, veröur á dagskrá hjá sjónvarp- inu á sunnudag. Hér er um aö ræöa upptöku norska sjónvarps- ins á uppfærslu Norska þjóö- leikhússins f ósló. Leikritiö Hedda Gabler kom út áriö 1890 og aö fáum árum liðnum haföi verkiö veriö gefiö út i bókarformi I Englandi, Þýzkalandi, Rússlandi, • Hol- landi, Frakklandi, Spáni, Portúgal, Italiu og Ungverja- landi. Þetta verk markaöi há- tindinn á listaferli Ibsens. Verkiö hefur veriö sett á svið viöa um lönd siöan. Á tslandi verk hefur það veriö sýnt óftar en einu sinni og eins kvikmyndað fyrir sjónvarp. Strax eftir útkomu verksins voru leikhúsmenn ákafir i aö setja þaö á sviö. Frumsýningin átt sér þó ekki staö i Noregi heldur i Múnchen þann 31. janú- ar 1891. 1 aöalhlutverki var Marie Conrad Ramlo. Fyrsta sviösetningin i Noregi var á fjöl- um Christiania leikhússins sama ár, og þar var Constance Bruun i aöalhlutverki, hlutverki Heddu. Henrik Ibsen kom heim til Noregs á þvi ári einnig, og var þá efnt til heiðurssýningar til aö fagna komu hans. Þá voru sjö ár liðin frá þvi hann sá siðast leik- rit eftir sig á norskum fjölum. Mikilhæfar leikkonur heilluð- ust sem áöur af Heddu Gabler þótt leikritið væri ekki lengur nýtt. Hin mesta af öllum mikl- um leikkonum, Elenora Duse, lék hlutverk Heddu Gabler i fyrsta sinn i Lissabon 1898 og fór siðan I leikför um heiminn með verkiö. Fögnuðurinn yfir uppfærsl- unni i Noregi varö þó ekki mik- ill. Flestir gagnrýnendurnir kunnu ekki aö meta þá siðferð- islegu afstööu er höfundurinn setti fram i verkinu — þeir hneyksluöust og skildu ekki þá ákvörðun Ibsens að gera hina skemmandi persónu Heddu aö hetju verksins. En aftur á móti fékk Ibsen góöan stuöning frá Strindberg, sem var kátur yfir þvi aö Ibsen skyldi I þetta sinn feta I fótspor hans þegarlýsa átti konunni sem kvendýri. Mona Tandberg fer meö hlut- verk Heddu i myndinni, er viö fáum aö sjá annaö kvöld. Aðrir leikendur eru Tor Stokke, Ada Kramm, Henny Moan, Knut Wigert, Per Sunderland og Evy Engelsborg. —JB Glenda Jackson, leikkonan enska, leikur um þessar mundir I Heddu Gabler, sem sett hefur veriö á sviö I Þjóöleikhúsi Washington I Bandarikjunum. Þar fer hún meö hlutverk Heddu Gabler og hefur Glenda hlotiö mikiö umtal og haröa gagnrýni fyrir túlkun sina á Heddu. Þykir gagnrýnendunum sem uppsetning verksins minni frekar á timbur- menn og „kokkteilparti” en dramatiskt niöurrif mannlegs lifs. Vigdís spjallar við leiklistarnema Vigdis veröur gestgjafi i þættinum „Þaö eru komnir gestir”, sem sjónvarpiö sendir út klukkan 20.30 á morgun. Þar munu mæta sem gestir hennar fjórir nemendur úr leiklistar- skólanum SÁL og leiklistar- skóla leikhúsanna. Á myndinni meö Vigdisi eru Guörún Snæ- fríöur Gisladóttir, Evert K. Ingólfsson, Ándrés Sigurvinsson og Helga Thorberg, — JB Aumingja Örn! hvað gerist nœst? örn Petersen, umsjónarmaö- ur „Tiu á toppnum”, þakkar væntanlega sinum sæla fyrir aö vera útvarpsstarfsmaöur en ekki s jón varpsstarfsmaður þessa dagana. Þaö er nefnilega ekki sjón aö sjá strákinn um þessar mundir. Þetta hófst með þvi að örn fór i reisu til sólarlanda um pásk- ana og kom að sjálfsögðu brúnn og alsæll úr þeirri ferö. Helgina eftir páska brá hann sér með félögum slnum á skiöi til Akur- eyrar og þá sneri hamingjan viö honum baki. Hann var á leið niður eina af brekkum Hliöar- fjallsins þegar skiöakunnáttan brást, örn steyptist á hausinn og braut aðra löppina. Hann staulaðist um meö staurfót allt þar til á miðviku- daginn i siðustu viku að hann losnaði við gifsið og brá sér auð- vitað á einn skemmtistaðinn til að fagna þessum merku tima- mótum. Allt gekk vel framan af, eða þar til ballinu var að verða lok- ið. 1 fatahenginu hitti hann af- brýöisaman ungan mann, sem átti eitthvað vantalað við örn. Það skipti engum togum, pilturinn tók örn kverkataki, sem örn gat með erfiðismunum losað sig úr, en ekki tók betra við. Pilturinn einfaldlega lyfti hægri hendinni og klappaði Erni það hrottalega á grillið, að stærðar skurður opnaðist undir vinstra auganu. Blóðið flæddi um allt og aka varð útvarps- manninum á slysavarðstofuna, þar sem andlitinu var aftur rað- aö saman með aðstoð sauma- vélar. Otlitið var ekki félegt daginn eftir. Bæði augun sokkin og blá og miklar bróderingar undir öðru auganu. örn hefur ekki náð sér enn eftir ófarirnar og er ekki laust við að hann velti fyrir sér hvað komi fyrir næst, þvi allt er þegar þrennt er. — JB Smurbrauðstofan Njólsgötu 49 — Sími 15105 17 -K->f+-x->c-k-*(-*(->(->t-K-K-k-*(-k-k-K-K-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k* ★ ★ ★ ★ ★ í i ★ I ★ I ★ ★ ★ ★ * k k I * i i $ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ! ¥ ¥ ¥ ¥ Spáin gildir fyrir sunnudaginn 11. mal. *2* 5P * spa m w m Hrúturinn,21. marz-20. april. Fjárhagur þinn fer heldur batnandi frá og með deginum i dag. Hvers konar viðskipti ganga mjög vel. Farðu I stutt ferðalag. Nautið,21. april-21. mai. Gerðu aðeins það sem þér finnst rétt vera. Hugleiddu hvort þú átt ekki möguleika á að bæta stöðu þina I lifinu. Taktu þvi rólega i kvöld. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Þér gengur vel að sigrast á öllum takmörkunum i dag. Leitaðu ráöa hjá vinum þinum viðvikjandi þinum per- sónulegu vandamálum. Krabbinn,22. júni-23. júli. Þessi dagur er góður fyrir iðkun hvers konar Iþrótta og þá helzt úti við. Lærðu á mistökum annarra. Skemmtu þér I kvöld. Ljónið, 24. júli-23. ágúst. öll ferðalög ganga mjög vel I dag og þú munt skemmta þér vel. Heppnin eltir þig. Neyddu skoðunum þínum ekki upp á aðra. Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Nú er rétti tíminn til að gera nýjar áætlanir um framtiðina. Dagurinn er heppilegur til að framkvæma nýjar hug- myndir. Vogin, 24. sept.-23. okt. Þér gefast mörg góð tækifæri I dag. Þó þér mistakist I fyrsta, þá reyndu aftur, þvi enginn verður óbarinn biskup. Þú hefur mikið af hæfileikafólki I kringum þig. Drekinn,24. okt.-22. nóv. Þú þarft að finna upp einhver ný ráð til að koma fram ásetningi þin- um. Þú getur komizt að mjög hagstæðum samningum ef þú kærir þig um. Bogmaöurinn, 23. nóv.-21. des. Þetta verður mjög skemmtilegur dagur, ef þú ferð i smá- ferðalag eða stundar útiiþróttir. Þú hefur ein- hverjar áhyggjur. Steingeitin,22. des.-20. jan. Þú færð tækifæri til að láta á þér bera I dag. Rómantikin blómstrar I kringum þig. En það borgar sig ekkert að vera með neitt daður. Vatnsberinn, 21. jan.-19. feb. Athygli þin verður vakin á ýmislegu varðandi fjölskyldu þina. Hafðu jákvæðari skoðanir gagnvart lifinu I kringum þig. Fiskarnir, 20. feb.-20. marz. Þú getur haft mikil áhrif á aðra og skoðanir þinar eru þær réttu i flestum málum. Eitthvað mun morgunninn verða þér erfiður. ! ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ V ¥ ¥ ■¥ ¥• ¥• ¥ ¥■ ¥ ¥ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ t I ■¥ 3 i -Kk-k-k-k-k-k-k-k-K-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k Vaka, laugardagskvöld: Nú hillir loks undir Lénharð Nú hillir loks undir sýningar á hinu margumtalaða kvik- myndaverki Lénharöi fógeta, sem sjónvarpiö hefur látiö gera. Myndin veröur frumsýnd meö pompi og prakt I Laugarásblói á miðvikudaginn og veröur svo væntanlega sýnd hinum al- menna sjónvarpsáhorfanda um hvltasunnuna. 1 siðustu „Vöku” vetrarins, sem verður á dagskrá sjón- varpsins I kvöld, verður sýndur smákafli úr Lénharði hinum al- fræga. Eins verður litið inn á nokkrar listsýningar i höfuðborginni. Þetta eru sýningar Harðar Agústssonar i Norræna húsinu, kinverska grafiksýningin á Kjarvalsstöðum, sýning Sigur- jóns Ólafssonar myndhöggvara á Skólavörðustig 4, og að lokum veröur Leifur Breiöfjörð heim- sóttur á vinnustofu sina en hann er nú að undirbúa sýningu. 1 þættinum „Vöku” I kvöld koma einnig fram Elisabet Er- lingsdóttirsöngkona og Kristinn Gestsson pianóleikari, sem syngja og leika, og rætt verður við Elisabetu. — JB - Aðalfundur Sólarrannsóknafélags íslands verður haldinn fimmtudaginn 15. mai kl. 20.30 að Hallveigarstöðum. Venjuleg aðalfundarstörf. Ennfremur flytur dr. Erlendur Haralds- son erindi um indverska kraftaverka- manninn Sai Baba. Stjórnin.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.