Vísir - 22.05.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Fimmtudagur 22. mal 1975 — 112.tbl.
Útboð:
MUNURINN
NAM 19.3
MILLJÓNUM
— baksíða
Launþegarnir vilja
frjálsa verzlun,
leiðtogar þeirra
ekki
— baksíða
Atvinnuleysis
skriða þegar
prófunum
lýkur
— baksíða
Slagur vegna
hitaveitufram-
kvœmda við
Akranes:
Lokaði veginum þrátt
fyrir lögbann sýslumanns
Bóndinn I Vestri-Leirárgöröum
og lögfræðingur hans lokuðu veg-
inum um landareignina á þriðju-
dagskvöldið. 1 gær kom sýslu-
maðurinn I Borgarnesi, Asgeir
Pétursson, og setti lögbann á lok-
unina, og fól bóndanum að opna
veginn fyrir umferð á ný. Lög-
fræðingur bóndans, Jón Oddsson,
ók þá úr Reykjavfk og lokaði veg-
inum aftur I gærkvöldi og tók Iyk-
ilinn með sér I bæinn.
Deilur þessar eru sprottnar af
hitaveituborunum Akranesbæjar
I landi Leirár. Þungavinnutæki á
leið á borstaðinn hafa hingað til
ekið um land Leirárgarða og
valdið bóndanum þar óþægindum
og nokkrum spjöllum á landi og
eignum.
Bóndinn setti þá fram kröfur
um lirbætur og skaðabætur, er
námu 812 þúsundum eins og skýrt
var frá í Visi i siðustu viku.
Samningafundir milli lögfræðings
bóndans og Akranesbæjar fóru út
um þúfur á þriðjudaginn, og þvl
greip bóndinn til þess ráðs að loka
veginum fyrir allri umferð.
Aður en til lokunarinnar kom,
hafði Akranesbæ tekizt að koma
nokkru magni af oliu og öðrum
föngum á borstaðinn. Sýslumað-
urinn kom svo i gærdag á staðinn
og lét opna veginn fyrir umferð.
Setti hann lögbann á lokun vegar-
ins, þar eð hann væri sýsluvegur.
Lögfræðingur bóndans hélt þá á
staðinn og læsti hliðinu á veginum
á ný.
„Við erum þar með að brjóta
lögbannið, sem sett var á lokun
vegarins, en við tökum afleiðing-
um þess og munum greiða sektir,
ef til þeirra kemur”, sagði Jón
Oddsson lögfræðingur i morgun.
Deilurnar standa um það, hvort
umræddur vegur um land Leirár-
garða sé sýsluvegur. Vegurinn
var upphaflega byggður af bænd-
um, en með tilkomu sundlaugar á
Leirá jókst umferð um hann, og
var hann fyrir nokkru gerður að
sýsluveg. Lögfræðingur bóndans
telur, að bóndanum hafi aldrei
verið tilkynnt um þessa breyt-
ingu.
Asgeir Pétursson sýslumaður
sagði, að rétt væri að hann hefði
sett lögbann á lokun vegarins i
gær. Hins vegar væri honum ekki
kunnugt um, að það lögbann hafi
verið brotið.
„Vegur þessi er sýsluvegur og
þvi óheimilt að loka hohum. Og
jafnvel þótt um einkaveg hafi
verið að ræða, væri slík lokun
óheimil samkvæmt orkulögum,
sem kveða áum,aðóheimiltsé að
hindra framkvæmdir við jarðbor-
anir með aðgerðum sem þess-
um”, sagði Ásgeir.
„í mlnum augum er hér ekkert
stórmál á ferðinni. Það er ljóst,
að óheimilt er að hefta umferð um
veginn, og Akranesbær hefur lýst
þvl yfir, að hann muni bæta bónd-
anum tjón, sem yrði vegna um-
ferðar að borsvæðinu”, sagði As-
geir.
Er Visir hafði samband við
bæjarstjórann á Akranesi, vildi
hann taka fram, að rætt hefði ver-
ið við bóndann, áður en fram-
kvæmdir hófust og hann sam-
þykkt endurbætur og afnot af
veginum svo og malartöku i landi
sínu.
„Við höfum alltaf verið reiðu-
búnir til að greiða það tjón, sem
bóndinn kynni að verða 'fyrir að
mati óvilhallra matsmanna, svo
ég tel, að hér sé verið að gera úlf-
alda úr mýflugu”, sagði bæjar-
stjórinn.
Að sögn Njáls Markússonar
bónda var vegurinn enn lokaður
nú klukkan 11, er blaðið hafði
samband við hann, og hefðu yfir-
völd enn ekki haft við hann sam-
band út af þeirri lokun. -JB
4 1 | mmfMjjr;jg®m
n ! .Uj y ft. ! Tgfl 1 íirjfó
Verðum bara að taka á honum stóra okkar ...
„Mr. Pokerface"
— heimsmeistarinn
í póker
— bls. 5
Hitinn I gær og eins og hann
ætiar að verða I dag aftur, gefur
sannariega tilefni til þess að
fólkið þarna á myndinni sé Iétt-
klæddara en það er. En það eru
ekki allir jafnsnöggir og
veðráttan okkar.
Annars er mönnum óhætt að
vera léttklæddir i dag. Veður-
stofan spáir hlýju, björtu veðri
alls staðar á iandinu, en svalt
verður hins vegar I nótt. Þeir,
sem enn eru ekki komnir i
sumarfrl, verða þvi ábyggilega
að taka á honum stóra sinum til
þess að geta setið kyrrir inni
við.
—EA/ljósm. Bj.Bj.
54 ára kona í Rallýl
— meðal keppenda verða Ómar Ragnarsson og Alli Rúts
0
Ein kvenökumaður verður
með i Rallý-keppninni sem fram
fer á laugardaginn. Heitir hún
Guðrún Runólfsson og er 54 ára
eftir þvl sem við komumst næst.
Hún hefur kvenmann sér til að-
stoðar, Ingibjörgu Jónsdóttur.
Guðrún kemur til með að aka
Toyota ’73, og verður önnur af
stað.
Dregið var um röðina hjá
borgarfógeta I gær, og verður
það Citroen GS ’74 sem „start-
ar”.
Meðal keppcnda eru vel
þekktir tslendingar, þar sem
eru ómar Ragnarsson frétta-
maður með meiru og Alli Rúts
skemmtikraftur. ómar er nr. 29
i röðinni, en Alli Rúts númer 30.
—EA
Dregið var um röðina i Rallýið i
gær, en keppnin fer fram á lang-
ardaginn. Dregið var hjá borg-
arfógeta og sjáum við hann hér
með Sveini Oddgeirssyni fram-
kvæmdastjóra FÍB. Ljósm:
Jim.