Tíminn - 21.08.1966, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
SUNNUDAGUR 21. ágúsi 1966
ÍSLANDSMÓTIÐ
Akranesvöllur:
f dag, sunnudag 21. ágúst kl. 4 e. h. leika
K.R.
Akranes —
Uómari: Hannes Þ. Sigurðsson.
'erð með Akraborginni kl. 1,30 og til baka að
lokum.
Njarðvíkurvöllur:
í dag, sunnudag 21. ágúst kl. 4 e. h. leika á Njarð
víkurvelli.
Keflavík — Þróttur
Dómari: Guðmundur Guðmundsson.
II. DEIL
Melavöllur:
í kvöld kl. 7.30 (sunudag) leika
Fram — Víkingur
Dómari: Karl Jóhannsson.
4. flokkur
Melavöllur:
Úrslit
Á morgun mánudag 22. ágúst kl. 6 leika til úrslita
í landsmóti 4. flokks.
Valur — Breiðablik
Dómari: Steinn Guðmundsson.
Mótanefnd.
Innilegt þakklæti sendum viö öllum þeim, sem þátt tóku i leitinni
aS
Sigurði Theódórssyni
sem hvarf aSfaranótt 24. júlí s. I. á BarSaströnd og konum þeim,
sem veittu leitarmönnum beina i Birkimel.
ASstandendur.
FaSir okkar og tengdafaSir,
Björn M. Hansson
fyrrverandi skipstjóri
verSur jarSsunginn frá Fossvogskirkju þriSjudaginn 23. ágúst kl. 3
e. h.
RagnheiSur Björnsdóttir, Þorkell GuSbjartsson,
Sólveig Björnsdóttir, Þorgeir Sigurgeirsson,
Unnur Björnsdóttir, GuSI. Kristófersson,
Halldór Björnsson, Þórey Kristjánsdóttir,
ASalbjörh Björnsson, Lovísa NorSfjörS,
Svavar Björnsson,
Jón Björnsson.
MaSurinn minn,
Eiríkur Þ. Stefánsson,
fyrrverandi sóknarprestur,
verSur jarSsunginn frá TorfastaSakirkju miSvikudaginn 24. ágúst
n. k. kl 2 e. h.
Sigurlaug Erlendsdóttlr.
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Kirkjudagur
Tuttugasta öldin með öllum
sínum ófriði efnishyggju og
tæknidýrkun, hefur orðið
lóvenju frjó um ýmiss konar
nýmæli og nýjungar um kirkju-
lega starfsháttu.
Eitt af því er hinn svonefndi
kirkjudagur, sem í sinni stærstu
og fjölþættustu mynd á upp-
runa sinn í Þýzkalandi eftir
síðari heimsstyrjöld, er þar
haldinn annaðhvort eða fjórða
hvert ár, með miklum undir-
búriingi, samkomum, hljóm-
leikum og sýningum. Þar er
hann orðinn kirkjusögulegt
átak, sem markar tímamót i
trúarlegum efnum.
En jafnvel hér úti á íslandi
var farið að halda kirkjudaga
eða helga vissan dag árlega
kirkju safnaðarins. En samt er
þetta ekki orðið algengt hjá
nærri öllum söfnuðum, þótt
fyllsta ástæða væri til þess af
ýmsum ástæðum, ekki sízt þar
sem nýjir söfnuðir vinna að
kirkjubyggingum ár eftir ár.
Kirkjudagur er valinn í hverj
um söfnuði á þeim tíma árs,
sem heppilegast þykir til að
safna fólki saman.
Flestum þykir heppilegast að
hafa hann seint í ágúst eða
snemma í september. Þá eru
sumarleyfi fólks yfirleitt á
enda en hins vegar ekki kom-
in haust eða vetrarveður og veg
ir teknir að spillast.
Ennfremur er betra að hafa
kirkjudag á hátíðalausa misser-
inu, og er þá vart heppilegra
en mitt á milli jóla og hvíta-
sunnu, nokkurs konar haust eða
uppskeruhátíð.
Gildi kirkjudagsins er tví-
þætt. Annars vegar menningar-
legt gildi til uppbyggingar
fræðslu, skemmtunar og kynn-
ingar, sem er ákaflega nauð-
synlegt í nýjum og stórum
söfnuðum til eflingar safnaðar
vitunda, samstarfs og sameigin-
legra átaka.
Hins vegar er söfnunargildi,
fjársöfnun til kirkjubyggingar,
þar sem engin kirkja er eða
kirkjan í smíðum eins og víð-
ast er í hinum nýju söfnuð-
um hér í Reykjavík. En það
er eitt hið erfiðasta í starfs-
aðstöðu kirkjunnar, að söfriuð-
ir skuli þurfa að byggja kirkj-
ur sínar sjálfir svo að segja
án stuðnings frá ríki og borg
eða án lána úr almennum bönk
um og sjóðum.
M—WBe«atíBWK.«i
Raunverulega ætti að lána til
kirkjubygginga fé til margra
áratuga úr sérstökum kirkju-
byggingasjóði ríkisins, þar eð
engin sanngirni mælir með því,
að ein kynslóð byggi á nokkr-
um árum hús til afnota fyrir
aldir fram. En það er annað
og þýðingarmikið atriði, sem
þarf að ræða alveg sérstaklega
og bæta úr því skilningsleysi
og fjarstæðum sem nú ríkja og
ráða í þessu efni.
Hátíðahöld kirkjudags hefj-
ast venjulega með hátíða-
messu þar sem söngur og hljóm
list hefur verið vel undirbúin
og sjálfsagt að fá aðkomuprest
prófessor eða biskup til að
stíga í stólinn til tilbreyting-
ar, þótt ekki sé það nauðsyn-
legt þar sem prestsþjónusta
er sæmileg á sunnudögum. En
eitthvað nýtt hefur mikið að
segja til að vekja athygli og
áhuga fólks til að koma. En
á kirkjudegi verða söfnuðir að
setja metnað sinn í að fjöl-
menna til kirkju og helgihalds.
Þá er gott að hafa útisam-
komur, ef veður heppnast vel
og miða hana mest við börn
og æskulýð með léttu en þó
virðulegu efni dagskrár. Má þar
nefna sitt af hverju eins og
skemmtiþátt, þjóðdansa, úti-
leiki, íþróttakeppni og jafnvel
helgisýriingar, að ógleymdum
söng og hljóðfæraslætti.
Þá kæmi að síðustu kvöld-
samkoma í kirkju eða safnað-
arheimili eða á samkomustað.
Þar yrði aðalræða dagsins flutt
af einhverjum þekktum og
snjöllum ræðumanni, einsöngur,
kórsöngur, myndasýningar og
helgisýningar eftir aðstæðum á
hverjum stað.
Gott og raunar sjálfsagt væri
að ljúka dagskránni alveg síð-
ast með hljóðri helgi og bænar-
stund, þar sem starfsfólk og
þátttakendur hátíðahaldanna
mættust á helgum stað undir
leiðsögn prests síns eða safn-
aðarstjóra.
Að sjálfsögðu væru kaffiveit-
ingar og önnur risna veitt eftir
ástæðum allan daginn á vegum
kvenfélags eða safnaðar-
kvenna. Þetta ætti þennan dag
að vera veizlukaffi, en hins veg
ar gjört ráð fyrir góðri eða
rausnarlegri greiðslu veizlu-
gesta. Þarna eru allir í veizlu
hjá kirkju sinni eða óbeinlínis
hjá sjálfum sér. Og efling safn-
aðarstarfs og kirkjulegra fram-
fara er auðvitað takmarkið hjá
öllum um leið og notið er þess
sem fram er boðið andlega og
efnislega.
Rausn og höfðingsskapur hef-
ur jafnan þótt einkenna íslend-
inga og um leið verið sérkenni
sannkristinna einstaklinga um
heim allan á öllum öldum.
Hvergi þarf það að sýna sig
betur en á kirkjudögum. Þá
skal tjaldað því sem til er af
andlegum skartflíkum safnað-
arfólksins.
Dansleikur að kvöldi kirkju-
dags kæmi auðvitað til greina.
En slík skemmtan þarf að hafa
svo virðulegan blæ að vandi er
um skipulag og þátttöku og
hætt við að það fólk komi ekki,
sem helzt hefur áhuga. Og nú
eru hljómsveitir svo dýrar að
ókleift er til greiðslu án geysi-
legrar þátttöku. Áfengis- og
tóbaksnautn, sem nú þykir í
ómennsku aldarfarsins sjálf-
sagðir þættir í skemmtanalífi,
kæmu auðvitað ekki til greina s
á skemmtisamkomu kirkjunn- ►
ar. Því mun heppilegast að
sleppa dansleiknum, meðan sú
tízka helzt um aðstöðu og gleði
mót, sem nú ríkir. En von-
andi verður fólki kennt að
skemmta sér betur en nú er
raunin á. Og þá ætti að endur-
skoða málið. Fátt sæmir kirkj-
unni betur, en fögur gleðimót.
„Dansið eins og börn, þá dansa
ég með ykkur“, sagði Lúther
forðum.
Fjársöfnun kirkjudaga er að-
allega á þrennan hátt: 1. Seid
merki kirkjudagsins. En þau
veita svo aðgang að öllum at-
riðum dagskrár.
2. Seldar veitingar kaffi og
fleira eftir föngum.
3. Gjafir til kirkjunnar, sem
gjarnan skulu færðar sem af-
mælisgjafir. Og bezt er að líta
á kirkjudaginn sem afmælisdag
kirkju sinnar, þótt ekki sé um
sama mánaðardag að ræða, sem
hún var vígð upphaflega. En
að sjálfsögðu mætti velja þann
dag, ef hann er ekki á mjög
óheppilegum árstíma. En af-
mæli kemur náttúrlega elcki til
greina þar sem enn hefur ekki
verið byggð kirkja.
Ég vil ljúka þessari kirkju-
dagsgrein með þeirri ósk og
áskorun, að allir söfnuðir ís-
lands reyni að eignast sinn
kirkjudag árlega í einhverri
mynd og með einhverjum hætti
Það vekur og hvetur til átaks
og alltaf verður nægilegt til-
efni til söfnunar og eflingar
andlegra verðmæta jafnvel í
gömlum og ríkum söfnuðum
virðulegustu kirkna, hvað á
hinum, sem eru að fæðast.
Árelíus Níelsson.
FRÍMERKI
Fyrir hvert tslenzkt frl-
merki. sem pér senílið
mér. t'áið þér 3 erlend
Sendið minnst 30 stk
JÓN AGNARS,
P.O. Box 965,
Reykjavík.
Látið okkur stilla oq herða
upp nýju bifreiSina Fylg-
izt vel meS bifre'ðinni.
BÍLASKODUN
Skúlagötu 32, sími 13100.
Bifvélavirkjar
eða menn vanir bifreiðaviðgerðum.
Viljum ráða nokkra starfsmenn á hið nýja verk-
stæði okkar. Meðal annars vantar okkur sérhæfða
menn við rafkerfi og mótorstillingar.
Góð vinnuskilyrði, mötuneyti á staðnum.
Getum tekið nokkra nema í bifvélavirkjun í októ-
ber n. k. æskilegt að þeir séu ekki yngri en 18
ára.
Upplýsingar gefur yfirverkstjórinn Bent
Jörgensen,
/
FordumboðiS Sveinn Egilsson h. f.