Vísir - 02.06.1975, Page 1
VISIR
65. árg. —Mánudagur 2. júni 1975 — 121. tbl.
DOMI FRESTAÐ í MAROKKÓ
Utanrikisráöuneytinu barst á
laugardaginn skeyti um þaö frá
danska sendiráöinu I Marokkó,
að dómsúrskuröur i máli islend-
inganna tveggja, sem þar eru I
haldi, lægi ekki enn fyrir.
Aftur á móti yrði skýrt frá
honum i skeyti strax og hann
væri kunnur. Ekki var gefin á
þvi skýring i skeytinu, hvers
vegna dómnum haföi veriö
frestaö en aftur á móti var þaö
tekið fram, aö föngunum tveim
liöi vel.
Piltarnir tveir, sem hand-
teknir voru fyrir rúmri viku,
voru á eigin vegum i Marokkó.
Þeir höfðu hafið utanferö sina i
Kaupmannahöfn og feröazt meö
lest suður Evrópu og siöan til
Marokkó. 1 nágrannarikinu
Alsir liggur dauðarefsing viö
eiturlyfjabrotum. t Marokkó
mun ekki eins stranglega tekiö á
brotum af þessu tagi.
— BLS. 5.
Engar vísi-
tölubœtúr
um þessi
mánaða-
mót
— allsherjar-
verkfall nálgast
— Bls. 3
•
Rétt einu sinni enn!
Búvörur
hœkka
— Baksíða
f«88Si
Bilalestin, sem beiö eftir að taka áburö
Skammgóður vermir
Dularfullt
neyðarkall
— Baksíða
Hún er útlœrð
sem vélstjóri
— baksiða
— það sem til er af
„Sementið verður
búíð frá afgreiðslunni
fljótlega eftir hádegi,”
sögðu þeir i afgreiðslu
Sementsverksmiðjunn-
ar, þegar Visir hafði tal
af þeim i morgun. Og i
Áburðarverksmiðjunni
var sömu sögu að segja.
Þar var búizt við, að
það, sem til væri af
sekkjuðum áburði, færi
allt í dag.
Þegar blm. og ljósmyndari Vis-
is komu aðAburðarverksmiðjunni
I morgun, biðu þar 54 flutninga-
bilar, stórir og smáir, eftir að
taka áburð. Þeir fyrstu höfðu
komiö i gærkvöldi, en hinir voru
að tinast á staöinn i nótt og
snemma I morgun.
„Þegar ég kom hingað i
gærkvöldi, voru sjö á undan
mér,” sagði einn bilstjórinn á
staðnum, Sigursveinn Guðjóns-
son. Hann sagðist vera úr
Skaftafellssýslu og vera að sækja
áburð fyrir sig og nokkra ná-
granna sina.
„Við vorum búnir að fá megnið
af þvi, sem við þurftum, og flestir
• búnir að dreifa þeim áburði, sem
fékkst fyrir lokun,” sagði Sigur-
sveinn. „Þetta er bara litilræði,
sem upp á vantar.”
Sementið á þrotum
„Þaö hafa verið hér inni eitt-
hvað um 100 tonn af sekkjuðu se-
menti. Það eru ekki eftir af þvi
nema um 56 tonn, sem verður allt
sekkjuðum áburði og sementi gengur til þurrðar í dag
farið eftir hádegi,” sagði einn
starfsmanna afgreiðslu Sements-
verksmiðjunnar, þegar blm. VIsis
kom þangað i morgun.
„Þeir voru byrjaðir að biöa hér
strax I gærkvöldi, og í nótt stóðu
hér fyrir utan þrir bilar frá Aðal-
braut hf. Þeir áttu pantað megnið
af þvi, sem hér var inni, eða um
40 tonn, Hitt var allt saman frá-
tekið lika,” sagði þessi af-
greiðslumaður ennfremur.
Og þá heyrðist óánægjurödd
skammt frá:
„Það var leikið laglega á okk-
ur, sem ekki áttum pantað se-
ment,” sagði maður sem gaf
sig á tal við blm. Visis. „Þegar
auglýst var i útvarpinu, að af-
greiðsla yrði hér með eðlilegum
hætti i dag, komum við nokkuð
margir i þeirri góðu trú, að það
væri hægt að fá sement afgreitt.
Sumir komu langt að, eins og t.d.
tveir með aftanivagna frá Vik.
Þegar að er gætt, kemur svo i
ljós, að það er sáralitið til af se-
menti og það alltsaman frátekið
og okkur visað i burtu.”
Það, sem til var af lausase-
menti, var keyrt til steypustöðv-
anna i Reykjavik, og var búizt
við, að tankarnir yrðu tæmdir nú
slðdegis.
„Við höfum fengið 23 tonn i
morgun, og erum búnir að senda
það frá okkur nú þegar. Við erum
farnir að biða eftir næsta
skammti,” sagði starfsmaður hjá
B.M. Vallá, þegar.blm. Visis leit
þar við um klukkan tiu i morgun.
„Steypan frá okkur fer i mörg
smáverk,” sagði starfsmaðurinn.
„Það þora engir að byrja á stór-
um verkum, ef allt verður stoon
strax aftur og ekki meiri steypu
aö fá til að halda áfram.” —ÞJM
Þeir fáu sementspokar, sem voru til I skemmum Sementsverksmiðj-
unnar viö Sæviðarhöföa, voru allir fráteknir fyrir ákveöna aöila, sem
voru fljótir að sækja þá, þegar afgreiöslan var opnuöi morgun.
VERÐUR AÐ STÖÐVA ORKUFRAMLEIÐSLU UM SINN
„Það er galli frá upphafi i
hinu svokailaöa gangráöskerfi,
sem stýrir gangi vélarinnar.
Þetta er vökvaþrýstivalkerfi og
vökvinn (olian) brotnar niður af
einhverjum ástæðum”, sagði
Erling Garðar Jónasson, raf-
veitustjóri Austurlands, er við
ræddum viö hann i morgun um
bilun i Lagarfossvirkjun.
Hann sagði, að neitað hefði
verið að taka við vélunum af
Tékkum, sem eru framleiðend-
ur vélanna, þvi að þeir hefðu
ekki getað leiðrétt gallana. Þeir
hafa komið með ýmsar skýring-
ar, sem ekki hafa reynzt réttar.
Þeirra meginskýring hefur ver-
ið sú, að það séu bakteriur i oli-
unni. Vatn kemur inn á oliukerf-
ið. Það inniheldur bakteriur og
olian inniheldur köfnunarefni,
sem þær nærast á. Þessi skýring
hefur ekki reynzt fullnægjandi
og hefur sýni verið rannsakað i
Prag, Bretlandi og i Reykjavik.
Það er eins og olian brenni og
það myndast mikil kolefnisúr-
felling, sem sezt i alla fint verk-
andi ventla. Verður þvi að vera
vakt allan sólarhringinn og
handstýra vélinni.
Þetta hefur ekki valdið mikl-
um truflunum á rekstri, en þetta
hefur i för með sér „fint verk-
andi truflanir”.
Erling sagði, að virkjunin yrði
stoppuð núna i vikunni til þess
aö kanna, hvar bilunin væri i
kerfinu. I þetta sinn koma Tékk-
ar ekki nálægt, en þeir kref jast
að Rafmagnsveitur rikisins
yfirtaki vélarnar.
Það er mitt persónulega mat,
aö ekki sé hægt að eiga viðskipti
við framleiðendur, sem ekki
viljaskila af sér sómasamlegri
vöru, sem þeir geti verið stoltir
af”, sagði Erling.
Vélarnar hafa nú verið i gangi
siðan 5. marz og skilað af sér
orkuverömætum sem spara 60-
65 milljónir króna. Hver sólar-
hringur, sem vélarnar eru
stopp. kostar um 600 þús. —EVI