Vísir - 02.06.1975, Side 5
V!*ir. Mánudagur 2. júni 1975
KtUTER
AP NTB
UTLONDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND
Umsjón: Óli Tynes
Brezkir
móla-
liðqr gegn
Ródesíu?
Liðssöfnun stendur
yfir í London
Brezka blaöiö Daily Mail skýröi
frá þvl i dag, að veriö væri aö
safna sainan flokki máiaiiöa til aö
vinna skemmdarverk og halda
uppi skæruliöastarf semi i
Kódesiu. Liöiö á aö vera tilbúiö til
aðgeröa I ágúst næstkomandi.
Þaö er fyrrverandi fallhlifa-
sveitahermaður, John Banks,
sem er að safna liöinu saman.
Hann hefur auglýst eftir mönnum
I nokkrum stærstu blöðum Bret-
lands og sækist einkum eftir
þeim, sem hafa veriö i vikinga-
sveitum flotans, failhlifaliðinu
eöa SAS sem er sveit sérþjálfaðra
skæruliða i brezka hernum.
Málaliðunum er ætlað að vinna
gegn stjórn hvitra manna i
Ródesiu. Banks, sem er fyrir
stofnun, sem hann kallar „Inter-
national Security Organisastion"
kallaði menn sina saman til fund-
ar á Regent Centre hótelinu i
London nýlega.
Þeim, sem þangað komu, var
sagt að ef þeir hefðu eitthvað á
móti þvi að berjast með svörtum
mönnum gegn hvitum, skyldu
þeir ganga strax út. Þó nokkuð
margir hurfu þá þegar á braut.
Stórt landakort var sýnt á fundin-
um og þótt þar væru engin nöfn
skráð, var augljóst, að landið var
Ródesia.
Banks hefur ekkert látið uppi
um hvaða samtök innan Ródésiu
hann er i sambandi við né heldur
hver borgi brúsann, en málaliðar
eru dýrir i rékstri. Ekki hafa
brezk stjórnvöld aðhafzt neitt i
þessu máli, en þótt þau eigi i úti-
stöðum við stjórn Ródesiu, eru
iitlar likur til, að þau verði hrifin
af þvi að málaliðum verði safnað
til höfuðs henni i Bretlandi.
Her Ródesiu er fremur litill en
yfirmenn hans eru flestir þjálfað-
ir i Bretlandi og hafa gengið i
Sandhurst herskólann.
Af-
tökur
í Víet-
nam
Tuttugu og eins ár gamall
fyrrverandi hermaöur i Suð-
ur-Vietnam var tekinn af lifi
i dag fyrir andspyrnu við
hersveitir kommúnista.
Iiann var fjórði maöurinn
sem var liflátinn á fjórum
dögum fyrir svipaöar sakir.
Iiermaöurinn, Nguyen Tu
Sang, var sagöur hafa viöur-
kennt fyrir rétti að hann
heföi haft I fórum sinum
nokkrar bandariskar hand-
sprengjur sem hann heföi
ætlaö aö nota til skemmdar-
verka. Þúsundir voru við af-
tökuna sem var auglýst
fyrirfram.
Alexander Solshenitzyn:
Vesturlönd hofa tapað
3ju heimsstyrjöldinni
Rússneski rithöfundur-
inn Alexander Solshenit-
syn sagöi í gær F grein,
sem hann ritaöi i franska
blaðið Le Monde, að
þriðja heimsstyrjöldin
væri þegar yfirstaðin og
að Vesturlönd hefðu tap-
að henni. Þetta er talin
harðorðasta grein, sem
Solshenitsyn hefur skrif-
að siðan hann var neydd-
ur í útlegð frá heimalandi
sinu.
I henni segir nóbelsskáldið, að
þriðja heimsstyrjöldin hafi haf-
izt um leið og þeirri annarri
lauk og að henni hafi lokiö á
þessu ári meö sigri kommúnista
i Indókina.
„Það þarf ekki nema tvo til
þrjá áratugi i viöbót af hinni
dýrlegu friðsamlegu sambúö
siöustu áratuga til þess aö hug-
takið „Vesturlönd” veröi úr-
elt,” segir Solshenitsyn.
Skáldið segir, að siöustu þrjá
áratugi hafi Vesturlönd verið á
stöðugri niðurleiö. Eftir sigur i
tveim heimsstyrjöldum hafi
þeim farið stöðugt hrakandi,
misst bandamenn og virðingu
og látiö lönd og lýði lenda i
höndum óseðjandi andstæöings.
Solshenitsyn nefnir Kina,
Norður-Kóreu, Kúbu, Norður-
Vietnam, Suöur-Vietnam og
Kambódiu, máli sinu til stuön-
ings. „Laos er að falla, Thai-
land, Suður-Kórea og ísrael eru
i hættu, Portúgal stefnir lika i
hyldýpið. Finnland og Austur-
riki biða örlaga sinna án mögu-
leika til að verjast og án vonar
um utanaðkomandi hjálp,” seg-
ir rithöfundurinn.
Hann segir einnig, að þaö væri
of langt að telja upp öll þau litlu
Afriku- og Arabariki, sem eru
leiksoppar kommúnismans.
Hann minnist á viðbeögð vest-
rænna þjóða i Yom Kippur
striðinu 1963: „Þegar hugrakkt
ísrael baröist til úrslita, eitt en
innra sameinað, þá gafst hvert
Evrópurikiö af ööru upp vegna
ótta við að missa af sunnudags-
biltúrunum.”
Solshenitsyn, sem nú býr i
Sviss, dró i efa gildi Atlants-
hafsbandalagsins og spáði þvi,
aö áður en lagt um liöur yrði háö
striö um öryggi Bandarikjanna
sjálfra.
Selassie
á spítala
Haile Selassie, fyrrum
keisari Eþiópiu, er sagöur,
viö góða liöan eftir skurðað-
gerö viö þvagfærameini.
Keisarinn fyrrverandi hefur
verið veikur siöan i byrjun
þessa mánaöar og tilraunir
til að lækna hann með lyfj-
um, mistókust.
Einkalæknir Selassies
kvaöst vongóður um, að að-
gerðin hefði tekizt vel. Hann
sagði, að hann hefði eindreg-
ið ráðlagt aðgerðina og að
herforingjastjórn Eþiópiu
hefði þegar samþykkt hana.
Haile Selassie hefur nán-
ast verið i stofufangelsi siðan
honum var steypt af stóli i
september siðastliðnum.
Litlar Fréttir hafa fengizt af
honum og um tima var ótt-
azt, að herforingjastjórnin,
sem steypti honum, myndi
dæma hann tii lifláts.
Dauðadómur fyrir
eiturlyfjasmygl
Bandarikjamaöur var uin
heigina dæmdur I 20 ára fang-
elsi i Alsir fyrir eiturlyfja-
smygl. t siöustu viku voru
Breti og Hollendingur dæmdir
til dauöa fyrir svipuð brot og
ekki er útilokaö, að Banda-
rikjamaöurinn verði einnig
dæmdur til dauöa siöar.
Pauðarefsing viö þessum
brotum var tekin upp nýlega,
eftir að lögreglan skýröi
frá þvi, aö hún liandtæki
reglulega mikinn fjölda út-
lendinga, sem væru á leið frá
Marokkó meö eiturlyf.
Kord forseti linýtur á ieiö út úr
vélinni i Austurríki. Kona hans
hefur ekki tekið eftir þvi, en ör-
yggisvöröur þýtur til og gripur i
forsetann.
FORD DETTINN I AUSTURRIKI
Fundir Fords, forseta Banda-
rikjanna og Sadats, forseta
Egyptalands, I Salzburg, hafa
veriö mjög vinsamlegir og gagn-
legir aö sögn taismanna þeirra.
Bandarisku talsmennirnir hafa
lagt mikla áherzlu á, aö engar
stórvægilegar ákvarða'nir veröi
teknar eftir þennan fund og að
Ford muni ekki ákveða neina
nýja stefnu i málefnum Miöaust-
urlanda, fyrr en eftir fund sinn
með Yitshak Rabin, forsætisráö-
herra ísraels, slöar I þessum
mánuöi.
Egyptar hafa hins vegar viljað
leggja meira upp úr þessum fundi
og þótt þeir hafi ekki skýrt opin-
berlega frá efnislegum viðræðum
forsetanna, hafa þeir látið i það
skina, að góður árangur hafi
náðst.
Það er enda talið ekki óliklegt,
að Ford hafi viljaö veita lsraelum
nokkra ráöningu fyrir stifni, er
hann ákvað að eiga fund meö
Sadat, i Evrópuferð sinni. Það
hefur hins vegar vakið mesta at-
hygli fréttamanna i sambandi við
þennan fund, hversu dettinn
bandariski forsetinn hefur veriö.
Þegar Ford var að stiga út úr
flugvélinni við komuna til Austur-
rikis, hnaut hann og féll á fjóra
fætur. öryggisverðir þustu til og
hjálpuðu honum á fætur og var
auðséð, að forsetinn var ergileg-
ur, þótt hann væri ómeiddur.
Aftur svo, þegar hann var aö
ganga niður tröppur með egypzka
forsetanum, hnaut Ford og ef
Sadat heföi ekki brugðið snarlega
við og hlaupið undir hann. hefði
hann farið á höfuðiö niður stig-
ann. Aðstoöarmenn Fords halda
þvi stift fram. aö forsetinn sé viö
góða heilsu og þetta hafi aðeins
veriö smávægileg óhöpp.