Vísir - 09.06.1975, Side 1
65. árg. —Mánudagur 9. júni 1975 —127. tbl.
TAYLOR ENN BALDINN?
Brezki togarinn Forester
viöheldur samvizkusamlega
óvinsældum sinum hérlendis. t
hádeginu siðastliöinn föstudag
sigldi hann utan I Gylfa, 250
lesta bátfrá Patreksfirði, og olli
þannig töluverðum skemmdum.
Siðan sneri hann til hafs og
gerði ekki svo litið að svara
beiöni um að snúa til lands.
Asiglingin varð 23 milur
norður af Horni og voru margir
bátar að veiðum á svæðinu,
þeirra á meðal Dagstjarnan frá
Keflavik.
Var verið að hifa inn trollið
um borð i Gylfa, þegar Forester
sigldi á bátinn. Veður var bjart
og þvi álitið, að ásiglingin hafi
annaðhvort orðið vegna geysi-
legs kæruleysis eða hreinlega af
ásetningi.
Viö ásiglinguna bognaði
lunning bátsins og gálgarnir eru
taldir þvi sem næst ónýtir.
Það þarf tæpast að minna á
það, að þaö var á Forester, sem
Taylor var tekinn i landhelgi um
siöustu jól. Ekki er vitað, hvort
Taylor stjórnaði ferðum skips-
ins að þessu sinni.
— ÞJM
„Bylting" í
lánomálum?
Lán f járfestingarlána-
skuli vera verðtryggð
— nema hvað landbúnaðurinn hafi forréttindi — tillögur Seðlabanka og Framkvœmdastofnunar
Lánin verða annaðhvort
með gengisákvæði eða
vísitölubundin. Þetta á að
verða regla um flest lán
FramkvæmdasjóðS/ sam-
kvæmt tillögum Seðla-
banka og Framkvæmda-
stofnunar. Landbúnaðar-
sjóðirnir eiga að hafa sér-
stöðu og jafnvel fá allt
óverðtryggða féð.
Meðan önnur lán verði verð-
tryggð, telur Seðlabanki og
Framkvæmdastofnun, að land-
búnaðurinn eigi að hafa algera
sérstöðu vegna þess hve litiö eig-
ið ráðstöfunarfé þeir hafi. Verði
þvi trúlega ekki hjá þvi komizt,
að þeir gangi fyrir við skiptingu
óverðtryggðs f jár. Að öörum kosti
þyrftu þeir á að hal da nærri 100
prósent gengis- og vcrðtryggingu,
telja aðstandendur tillagnanna.
A þessu ári skuli aðeins um 450
milljónir króna verða óverð-
tryggt af 3650 milljónum króna,
sem Framkvæmdasjóður ráð-
stafar. 600milljón króna lán verði
með visitöluákvæði en yfirgnæf-
andi meirihluti, 2600 milljónir,
verði með gengisáhættu. útlána-
Kjör sjóðanna verða hin sömu,
sem skylt er við endurlán.
Samkvæmt nýjum lögum á
rikisstjórnin að láta fara fram ár-
lega endurskoðun á lánskjörum
fjárfestingarlánasjóða, og skal
hafa hliðsjón af samsetningu þess
fjármagns, sem sjóðirnir hafa yf-
irað ráða. Fyrsti áfangi þessarar
endurskoðunar er, að Seðlabanki
og Framkvæmdastofnunin gera
nú tillögur til rikisstjórnarinnar
um meginreglur um lánskjör
allra fjárfestingarlánasjóða i
samræmi við það, aö þeir endur-
láni fé það, sem þeir fá til ráð-
stöfunar, með sambærilegum
kjörum og þeir sæta sjálfir.
— HH
Ljósastaurar
óttu slœma
helgi _ bis. 3
•
Dauft hljóð
í vinnu-
veitendum
— baksíða
Járnbrautarslys
í V-Þýzkalandi:
Tugir hafa
týnt lífi
— erlendar
fréttir á bls. 5
LÆKNAÐ MEÐ LIST
TVEIR PILTAR HAND-
TEKNIR FYRIR NAUÐGUN
Tveir piltar um tvitugt
voru í gær teknir höndum
vegna nauðgunar á 25 ára
stúlku aðfaranótt laugar-
dagsins á þriðja tíman-
um.
Stúlkan hafði komið
miður sín til lögreglunnar
á laugardaginn og kært
tvo pilta fyrir nauðgun.
Góð lýsing á þeim leiddi
siðan til handtöku þeirra í
gærkvöldi.
Stúlkan hafði verið á gangi á
Vegamótastig við Laugaveg, er
tveir piltar veittust að henni og
þröngvuöu henni með sér á af-
vikinn stað. Komu þeir þar vilja
sinum fram með valdi.
Höfðu þeir jafnframt i hótun-
um við hana til að hún hrópaði
ekki á hjálp. Eftir að hafa fengið
sinu framgengt, drógu piltarnir
stúlkuna með sér inn i húsagarð
i Þingholtunum og nauðguðu
henni á ný.
Piltarnir hafa viðurkennt að
hafa átt hlut að máli en annar
þeirra heldur þvi aftur á móti
fram, að um gagnkvæman vilja
Stúlkunnar og þeirra hafi verið
að ræða i fyrra skiptið en nauðg-
un i það siðara.
Piltarnir sitja nú inni eftir að
hafa verið vfirheyrðir i nótt.
—JB
List til lækninga er sérstök
meðferö vanheilla. Þessi að-
ferö er fólgin i þvi að myndlist
og önnur skapandi störf, t.d.
leikræn tjáning og dans, eru
notuð til að h jálpa einstakling-
um á ölluin aldri, eigi þeir við
iikamleg, andleg og til-
finningaleg vandamál að
striöa. Þá cr þessi aöferð not-
uð til cndurhæfingar, þjálfun-
ar, lækninga og sjúkdóms-
greiningar, til aö stuðla að
fyrirbyggingu hugsanlegra
skaða á tilf inninga lifí eða
stöönun á þroskaferli, eins og
átt getur sér stað hjá smá-
börnum, er lengi dveljast á
sjúkrahúsum.
Sýningin og ráðstefnan I
Norræna húsinu um helgina
voru vel sóttar, en á myndinni
er ung sænsk dama, Ingrid
Gustafsson, barnfóstra i Nor-
ræna húsinu, ásamt 6 mánaða
syni Maj-Britt Imnander, for-
siöðukonu þar, aö skoða sýn-
inguna. Sá litli heitir Sven
Ivar Gustafsson.
HE/Ljósmynd Bjarnleifur