Vísir - 09.06.1975, Page 2
2
Visir. Mánudagur 9. júni 1975
TÍSIKSm:
Ef verkfaii skellur á 11. júni held-
ur þú þaö veröi iangvinnt?
Lilja Sigurðardóttir verkakona.
— Ég get engu spáð um það. En
þaö lifir enginn á engu.
Bjarni Ásmundsson vélstjóri. —
Ég held ekki, þvi löng allsherjar-
verkföll eru óvenjuleg hér.
Garbar Lárusson nemi.— Ég get
engu spáð. Ég pæli ekkert I þess-
um málum.
Kristján Þorgeirsson skrifstofu-
maður. — Mér finnst ómögulegt
að sjá það fyrir. En frumskilyrðið
fyrir þvi, að þjóðarbúið dafni er
aö fólkið geti lifað I landinu.
Atli Helgason skipstjóri. — Ég
vona að það veröi ekki langt. Þaö
yröi þjóöarböl. Vélstjórarnir
minir eru I platverkfalli. Ég vona
til guös, að verkfallið fari að leys-
ast.
Guölaugur Bjarnason. — Þaö
verður fram á haust. Þetta verð-
ur eitt allsherjar sumarfrí fyrir
launafólk.
Sumarleyfi á íslandi
undir Mallorcaverði
Siðustu orlofshúsin i
Munaðarnesi verða
tekin i notkun um
næstu helgi. Þar með
eru risin þarna sextiu
og átta hús fyrir félags-
menn BSRB, sem eru
um ellefu þúsund tals-
ins.
Hverfið í landi Munaðarness
og Stóru-Grafar skipulagði
Reynir Vilhjálmsson, og hefur
verið leitazt við að láta lands-
lagið halda sér sem mest.
Fyrstu húsin voru tekin I
notkun 1971. Voru þetta hús,
sem keypt höfðu verið úr
Straumsvik. Þá voru og nokkur
hús, sem smiðuð höfðu verið hér
innanlands.
Á staðnum er bæði verzlun og
veitingahús, sem er opið öllum,
sem leiö eiga um, en ekki bara
dvalargestum I Munaðarnesi.
Þar er hægt að kaupa afsláttar-
kort og má nefna sem dæmi, að
hjón gætu fengið 2 máltiðir á
dag I viku fyrir 10.000.- kr. t
leigu myndu þau þurfa að
greiða kr. 5.000, þannig að or-
lofsdvölin væri mun ódýrari en
utanlandsferð suður á bóginn.
öllum húsunum hefur verið
úthlutað til einstakra félaga.
Þau leigja siðan húsin út til
félagsmanna sinna.
Er aðalorlofstimanum lýkur,
getur hver sem er, hvort heldur
einstaklingar eða félög utan
BSRB, fengið húsin leigð. Og
stefnt er að þvi að bæta þarna
aðstöðu til ráðstefnuhalds.
Hægt er að leiga húsin I 2-4
nætur og myndi hús með 8 gisti-
plássum kosta 3.600.- kr.
— BÁ
Matsalurinn i Munaðarnesi — maturinn ætti ekki aö vera neinn munaöur, og eiginkonan vili vist
gjarnan sieppa viö eldhúsverkin I sumardvölinni.
LESENDUR HAFA ORÐID
TÖKUM HÖNDUM SAMAN
OG STYRKJUM ALDRAÐA
Ein á miöjum aidri hringdi:
„tdálki Visis „Lesendur hafa
orðiö” á fimmtudaginn 5/6 er
rættum neyðarástand aldraðra.
Vissulega vil ég taka undir að
það er fyllilega orðiö timabært
að einhverjir, sem eiga við
vanda að etja vegna gamal-
menna, sem þurfa aö dvelja I
heimahúsum taki höndum
saman. Þaö er bara eins og
þessi mál fái ekki hljómgrunn
hjá nógu mörgum. Þó má ekki
gleyma þvi átaki, sem forstjóri
elliheimilisins Grundar, Gisli
Sigurbjörnsson, hefur gert I
málefnum aldraðra Það er
stórkostlegt, en fáir vita af þvi,
hvaö mikið hann hefur gert fyrir
bágstadda.
Gisli hefur margsinnis i ræöu
og riti vakið máls á þvi, að ef
riki, borgaryfirvöld og
einstaklingar vildu lita
raunhæfum augum á þessi mál,
væri aðstaðan kannski betri hjá
gamla fólkinu i dag.
Þvi spyr ég. Hvers vegna taka
ekki öll þessi góðgerðarfélög
sem eru starfandi, saman við
einstaklinga og efla þá sjóði,
sem elliheimiliö Grund hefur
stofnað til byggingar viðbótar-
húsnæðis fyrir aldraða.
Rekstur Grundar og
heimilanna fyrir aldraða i
Hveragerði eru til fyrirmyndar.
Ég hef kynnzt starfsemi elli-
heimila bæöi hérlendis og er-
lendis t.d. i Þýzkalandi og viöar
og ég hef komizt að þeirri niöur-
stöðu aö við stöndum langtum
framar hér heima.
Ég vil benda þeirri, sem ritaði
fyrrnefnt lesendabréf á að hafa
sambandvið forstjdra Grundar
og fá hann I liö með sér og
hrinda þeirri hugmynd I fram-
kvæmd að stofna „Styrktar-
félag aldraðra”. Svo virðist sem
opinberir aðilar hafi meiri
áhuga á að byggja félagsheimili
til dansskemmtana og drykkju
en elliheimili.”
----------------------- |
DAGSINS STEF
Aldrei skal ég undan slá,
ekki seglum venda,
þótt ég kalinn komi á
kjörinn leiðarenda.
Ranki.