Vísir - 09.06.1975, Síða 20
VÍSIR
Visir. Mánudagur 9. júni 1975
FÓÐUR-
EITRUN
GERIR
VART
VIÐ SIG
Fóðureitrun gerði vart við sig á
bæ einum i Biskupstungum.
Nokkrar ær létu lömbum, ein kýr
veiktist mjög alvarlega og nytin i
þeim 20-30 kúm, sem þarna eru,
lækkaði verulega.
Er haft var samband við
Gunnar Bjarnason hjá Fóður-
eftirlitinu sagði hann rannsókn
vera að hefjast. Við frumathugun
hefði ekkert fundizt að fóðrinu
sjálfu. Þetta er heimagert fóður,
þ.e. blandað hér innanlands. Ein
af mögulegum skýringum væri,
að fóðrið hefði verið blandað með
snefilefnum og vitaminum, sem
átt hefðu að fara i alifuglafóður.
Slíkt væri allt saman eiturefni, ef
of mikið væri notað. BA
TÆTTI í
SUNDUR
RUSLA-
FÖTUNA
— með haglabyssu
l.ögreglan brá sér á skemmti-
stað i borginni á iaugardags-
kvöldið og handtók þar tnann,
sem fyrr um kvöidið hafði gripið
tii haglabyssu i liúsi við Lauga-
veginn og skotið af henni tveim
skotum innanhúss.
Maðurinn kom eftir nokkurra
daga drykkju heim til fyrrver-
andi konu sinnar á laugardags-
kvöldið og greip i ölæði til hagla-
byssu, sem hann átti þar. Hann
hlóð hana tveim skotum og lét
þau riða af i ruslafötu inni i eld-
húsi. Fatan tættist i sundur og
högl var að finna i veggnum á bak
við hana.
Konan sem þarna býr var fjarri
en vinur mannsins skammt frá.
Honum mun þó ekki hafa verið
hætta búin. Skotmaðurinn fékk að
sitja af sér ölvimuna hjá lögregl-
unni um helgina.
—JB
þarf eitthvað
að gerast..."
Dauft hljóð í vinnuveitendum í morgun
„Það
mikið
Djúpur ágreiningur um öll aðalatriði
Eitthvað cru menn bjarsýnni,
en ekki svo, að dugi. Hljóðið var
dauft i morgun i talsmönnum
vinnuveitenda. Ekkert hafði
gengið um kaupið eða
visitöluna, en samningamenn,
með aðstoð sáttancfndar, voru
einhverju nær um ,,ytri
umgjörð” samninganna.
Hvað er ytri umgjörð? Það er
til dæmis, að á hreinu sé, við
hvaöa kjör í dag skuli miðað við
samninga, þegar að þeim kem-
ur. „Flestallt er enn laust i
böndum. Það þarf eitthvað
mikið að gefast, ef á að afstýra
verkfalli. Þá þyrfti að koma til
mjög góður vilji á elleftu
stundu,” sagði einn samninga-
mannanna i morgun.
Alþýðusambandsmenn eru
eitthvað bjartsýnni en vinnu-
veitendur, en i rauninni hefur
mjög litið miðað i samkomu-
lagsátt, þótt sú litla hreyfing,
sem varð um helgina um
formsatriði sé hagstæð breyting
frá tómahljóðinu, sem verið
hefur i mönnum vikum saman.
Samningafundur stóð i um
fimm klukkustundir i gær, og
heldur lengur i fyrradag. Eftir
hádegi i dag mun baknefnd
Alþýðusambandsins ræða
stööuna i samningunum og kl. 17
i dag verður félagsfundur
Vinnuveitendasambandsins,
þar sem á dagskrá eru
samningarnir og möguleikar á
verkbanni.
Sam ningafundur verður
klukkan niu i kvöld.
Verkfallsboðun Verzlunar-
mannafélags Reykjavikur
reyndist ólögmæt, þegar til
kom, svo að verkfall verður ekki
hjá félagsmönnum hinn 11.
Sennilega verður verkfall
boðað hinn 18. og verður
ákvöröun um það efni tekin eftir
hádegi i dag.
-HH.
Þegar flugiö fer úr skorðum, veröa farþegar oft fyrir leiöindum, og hér sofa t.d. tveir farþegar og biöa eftir véi, sem hefur seinkaö.
(Ljósm. R. Th. Sig.)
„TREYSTI ORÐUM STARFSBRÆÐRA MINNA"
— segir formaður samninganefndar
flugmanna um stoppið, sem var af
völdum vélarbilunarinnar,
sem flugvirkjar gátu ekki fundið
„Ég treysti oröum starfs-
bræöra minna og trúi ekki ööru en
aö um vélarbilun hafi veriö að
ræöa i DC-8 vélunum, ef þeir hafa
haldiö þvi fram. — Já, hvað svo
sem blööin hafa haft eftir flug-
virkjum,” sagöi Björn Guð-
mundsson flugmaöur, þegar Visir
haföi tal af honum I morgun.
Björn er formaður samninga-
nefndar flugmanna, og á meðan
allt var i „háalofti” út af Atlants-
hafsflugi Flugleiða, eins og frá
hefur veriö skýrt i fréttum, sat
Bjöm á fundi hjá sáttasemjara.
Fundurinn, sem hófst klukkan
tvö eftir hádegi á föstudag, stóð
til klukkan fimm i gærmorgun.
Eftir þann 39 tima fund fóru
samningamenn heim að sofa, en
voru mættir á fundarstað að nýju
strax i eftirmiðdaginn. Viðdvölin
varö ekki löng i það skiptið. Stóð
aðeins i um þrjá tlma.
Aðspurður um árangur hins
langa samningafundar um helg-
ina svaraði Björn aðeins: „Við
erum ekki búnir að semja.”
Nýr fundur flugmanna og Flug-
leiða með sáttasemjara hefur
ekki verið boðaður. Sagðist Björn
ekki búast við að það yrði i dag.
Til gamans má geta þess, að
lengsti samningafundur flug-
manna hérlendis stóð i nákvæm-
lega 85 klukkutima og 10 minútur
— en að loknum þeim fundi var
lika samið....
—þjm
Fannst á Skeiðarársandi
Ellefu ára piltur
a gangi i
Ellefu ára strákur, Sveinn
Nikulásson, sem týndist inni viö
Svartafoss við Skaftafell um
hádegi á laugardag, fannst á
gangi vestur undir Sandgigju-
kvisl á Skeiðarársandi 12 timum
siðar.
Pilturinn hafði verið með
ferðahópi úr Reykjavik, en
oröið viðskila við hann. Fýrst
leitubu ferðafélagarnir að
piltinum, en er það bar ekki
árangur, voru hjálparsveitir
12 tima
kallaðar út frá Kirkjubæjar-
klaustri, Fagurhólsmýri og Vik.
Þyrla landhelgisgæzlunnar var
teppt norður i landi, en gerðar
voru ráðstafanir til að senda
þyrlu frá varnarliðinu austur i
birtingu á sunnudag.
Um klukkan eitt um nóttina
fundu vegfarendur á Skeiðarár-
sandi svo piltinn. Var hann þá
að mestu genginn niður úr skóm
og sokkum enda landið þarna
erfitt yfirferðar. -JB.
Flugið stöðvast ef til verkfalls kemur:
INNANLANDS ANNAÐ KVÖLD -
UTANLANDSFLUG Á FÖSTUDAG
„Innanlandsflug stöövast á
miðnætti 11. júni, en utaniands-
flug tveim sólarhringum siöar, ef
verkalýösfélögin á Suðurnesjum
fara i verkfall,” sagði Sveinn Sæ-
mundsson, blaöafulltrúi Flug-
leiöa í viötali við Visi f morgun.
„Þetta mundi gcta bjargazt, ef
hlaðmenn einir færu i verkfall.
Það hcfur skeð i verkföllum er-
lendis, aö farþegar fái að bera
farangur sinn sjálfir út i vélarn-
ar. En nú fara þeir lika I vcrkfall,
sem dæla eidsneyti á vélarnar —
og án eldsneytis fara vélarnar
ekki langt”.
„Það er mjög áberandi, að þeir,
sem þurfa að komast utan, hafi
flýtt ferðum sinum og þeir eru fá-
ir, sem hafa þorað að panta flug-
feröir, eftir að verkfall kynni að
verða skollið á,” sagði Sveinn.
„Núna, þegar bókanir eru
svona miídar, koma tafir, eins og
I Atlantshafsfluginu nú um helg-
ina, sér afar illa,” sagði Sveinn
ennfremur. Hann kvað þó allt flug
hafa verið komið i eðlilegt horf á
nýjan leik i morgun.
Hvort Flugleiðir óttuðust
skaðabótakröfur frá þeim, sem
urðu fyrir töfum vegna vandræð-
anna um helgina?
„Það er ekki gott að segja,”
svaraði Sveinn. „Menn nota oft
stór orð I stundarhasar, en það er
erfitt að segja til um, hvort nokk-
ur muni standa við hótanir um
bótakröfur.”
Að lokum lét Sveinn þess getið,
að yfirvofandi verkfall hafi valdið
þvi, að ýmsir erlendir aðilar, sem
hugðust þinga hér á næstunni,
væru nú farnir að aflýsa þeim
samkomum. Þar á meðal væru
t.d. einar þrjár norrænar ráð-
stefnur.
— ÞJM