Vísir - 18.06.1975, Qupperneq 7
Visir.Miövikudagur 18.júní 1975.
7
HVAR ER
UNNT AÐ
VERZLA
HAG-
KVÆMAST?
i þeirri óðaveröbólgu,
sem geisar hérlendis,
hafa mörg heimili orðið
að endurskoða, hver væri
helzti nauðsynjavarning-
urinn. Verðhækkanir eru
svo tiðar, að á sama tima
geta verið í gangi þrjú
mismunandi verð. Þvi
dugar ekki lengur að fara
í búðina og biðja um
vöruna og borga síðan
uppsett verð.
Þar sem bæði kynin
vinna nú allmikið utan
heimilis, hafa störverzlanir rutt
sér mjög til rúms.Þar gefst fólki
kostur á að gera stórinnkaup og
fá vöruna jafnframt með hag-
kvæmari kjörum. Sá böggull
þykir hins vegar fylgja
skammrifi, að vegna örrar sölu
séu þessar verzlanir ætið með
„nýjasta verðið”. Allir’kannast
orðið við auglýsingar, þar sem
talað er um „gamla verðið!’
Þetta kann að vera fáeinum
dögum eftir að verðhækkunar-
alda hefur skollið yfir
Viðskiptavinurinn er alveg
ringlaður og veit ekki, hvort
hann á að trúa auglýsinga-
skruminu. Ekki bætir það úr
skák, að i hraða nútimans gefa
menn sér að sjálfsögðu ekki
tima til að endasendast um
bæinn fyrir fáeinar krónur.
Visir ákvað þvi mönnum til
fróðleiks að kanna, hvernig
verðlagningu væri háttað á
nokkrum algengum neyzluvör-
um.Valdar voru 13 tegundir al-
gerlega af handahófi. Eina
reglan, sem ekki mátti brjóta út
af, var sú, að varan fengist i öll-
um verzlunum.
Valdar voru sjö verzlanir til
að tryggja, að hinar ýmsu
kaupmannastéttir ættu fulltrúa
þarna.
Verzlunin Skúlaskeið
v/Skúlagötu. Hún átti að vera
fyrir „kaupmanninn á
horninu”, sem enn réttir
viðskiptavininum varninginn
yfir búðarborðið.
Hagkaup i Skeifunni, sem
fulltrúi þeirra, sem bjóða upp á
kostakjör, ef nógu mikið er
keypt.
Sláturfélag Suðurlands i
Glæsibæ.Hún skyldi vera fyrir
hinar veglegu kjörbúðir, sem
bjóða viðskiptavininum
bókstaflega allt, sem honum
getur dottið i hug.
Verzlun Silla og Valda við
Laugaveg. Ætli hún sé ekki
fulltrúi hins mikla stórveldis,
sem búðir þeirra voru til
skamms tima.
Náttúrulækningafélagsbúðin
fyrir sérverzlanir, þ.e.a.s. þær
sem selja ákveðnar vörur, en
bæta þjónustuna með þvi að
hafa- allar algengar vörur á
boðstólum.
KRON við Skólavörðustig var
fulltrúi kaupfélaganna.
Verzlunin Dalmúli
v/Siðumúla sem fulltrúi kjör-
Hérmá sjá nokkrar af þeim vörutegundum, sem athugaðar voru.
IINJIM
SÍÐAN
Umsjón: Berglind
Ásgeirsdóttir.
búða, sem þjóna ákveðnum
hverfum eingöngu.
Lesendum er bent á, að þetta
verð kann að hafa breytzt frá
þvi að athugunin var gerð, i
samræmi við verðhækkanir.
Hafa ber i huga, að
verðsamanburðurinn á aðeins
að gefa'mönnum smáhugmynd
um hæsta og lægsta verðið.
Það er mikið að gera við kassana og ófáar krónur renna þar I gegn yfir daginn.
a) Stór dós af grænum baunum. Skúlaskeið átti kosta-
boð sem hljóðaði upp á 127/ — sennilega „gamla
verðið". Hámarksverðersennilega 150/— því það var
mjög víða.
b) Blandaðir ávextir 850 gr dósir.
Tegundir voru mjög misdýrar og gat munað upp
undir 100 kr. eftir þeim. I' Hagkaup var hægt að fá þá
fyrir 248/ — og fannst hvergi ódýrara.
c) Blandaðir þurrkaðir ávextir. Þarna var mjög slá-
andi, hversu illa virtist gengið um þennan varning.
Pokarnir lágu opnir með glerhörðu innihaldi. Virtust
sumar af umbúðunum haf a legið þarna svo mánuðum
skipti. Hjá Silla og Valda var hægt að fá sæmilegustu
ávexti fyrir 125/—250 grömm. í Náttúrulækningabúð-
inni voru þeir á 169/— sama magn.
d) Haframjöl lítill pakki var t.d. ódýrast á kr. 136 í
Náttúrulækningabúðinni, en 167/ — hjá Silla og
Valda) Pillsbury hveiti 5 Ibs. Það var ódýrast í Hag-
kaup 219/— en dýrast í KRON 241/—
f) Hrisgrjón 454 gr. Ödýrust voru þau á 86 kr. í Hag-
kaup, en 95/— í Dalmúla og Skúlaskeiði, og var það
hæsta verðið.
g) Nescafé luxus 100 gr. Hagkaup bauð lang-
hagstæðasta verðið eða 479/—, en dýrast var það í
Náttúrulækningabúðinni á 545/—
h) Iva þvottaduft 700 gr. Ódýrast á 153/— hjá Hag-
kaup, en dýrast var það 174/— og kostaði það í 4 af
verzlunum okkar.
i) Dixan þvottaduft 600 gr.220 í Hagkaup, dýríjst 245/-
hjá KRON.
j) Heinz bakaðar baunir ódýrast kr. 145/— í Hagkaup
en dýrast á kr. 187/— hjá Silla og Valda.
k) Corn flakes 500 gr. Hagkaup bauð lægsta verðið,
sem var 212/— KRON seldi sama magn á 273/— Ekki
voru það þó allar verzlanirnar með nákvæmlega þessa
sömu plastpoka með 550 gramma innihaldi.
l) Kavíartúbur 100 grömm. Silli og Valdi áttu lægsta
boð kr. 78/—. Hagkaup bauð sömu tegund fyrir 106.—
m) Appelsinur 1 kg. Ódýrast í Hagkaup kr. 122/— Há-
marksverð á þessarf ákveðnu tegund var 159/ og
höfðu flestar verzlanirnar sett það verð.
Það sem er hvað athyglisverðast við þessa athugun er
það, að engin ein verzlun býður i öllum tilvikum
lægsta verðið. Þaðer heldur ekki sama verzlunin, sem
selur dýrast þessar 13 vörutegundir sem kannaðar
voru. -BÁ-