Vísir - 18.06.1975, Blaðsíða 11
Visir.Miðvikudagur 18.júni 1975.
17. iúní-mótið í frjálsum:
Hreinn var með eitt
kast yfir 19 metrana
— En því miður var það ógilt
— vantaði tvo sentimetra á nýtt
íslandsmet í kúluvarpinu
Hreinn Haildórsson var núiægt
þvi að setja nýtt tslandsmet i
kúluvarpi á 17. júni-mótinu á
Laugardalsvellinum i gær. Hann
kastaði kúlunni 18,91 metra —
sem er aðeins tveim sentimetrum
frá nýju islandsmeti. Metið hans
er 18,92 m.
Hreinn átti mikið kast, sem fór
yfir 19 metra linuna, en þvi miður
var það ógilt. Það sýndi þó, að
hann getur kastað svo langt, og er
þvi áreiðanlega ekki langt að biöa
þess, að sá draumur hans rætist.
Annars var frjálsiþróttakeppn-
in i gær I heldur daufara lagi —
fyrir utan afrek Hreins, var það
helzt árangurinn i langstökki
kvenna og 400 metra hlaupi pilta,
sem er umtalsverður.
Annars var árangurinn i ein-
staka greinum þessi:
Kúluvarp karla:
Hreinn Halldórsson HSS 18,91
Guðni Halldórsson 15,78
Stefán Hallgrimsson KR 14,47
800 metra hlaup karla:
EinarP.GuðmundssonFH 2:02,9
Stefán Hallgrimsson KR 2:03,6
Gunnar Þ. Sigurðsson FH 2:03,8
400 metra hlaup pilta:
Óskar Hlynsson Armanni 62,8
Ingvi ó. Guðmundsson FH 63,6
IngólfurGuðmundssonFH 64,3
100 metra hlaup telpna:
Asta B. Gunnlaugsd., IR 13,4
Þórdis Glsladóttir ÍR 13,7
Eyrún Magnúsdóttir ÍR 14,4
Langstökk kvenna:
Hafdis Ingimarsd. UBK 5,52
Lára Sveinsdóttir Ármanni 5,50
Erna Guðmundsdóttir KR 5,34
Þá var keppt i 5x60 metra boð-
hlaupi pilta 12 ára og yngri og
voru keppendur frá fimm félög-
um. Röðin varð þessi:
Ármann
Þróttur
Vikingur
Fram
IR
Ýmislegt annað var til
skemmtunar á Laugardalsvellin-
um. Mesta athygli vakti fimleika-
flokkur pilta frá Sviþjóð, en þeir
voru með ýmislegt skemmtilegt á
boðstólum. Þá vakti knattspyrnu-
leikur á milli Old boys liðs Fram
og „Stjörnuliðs”, þar sem meðal
leikmanna voru Ellert B.
Schram, Albert Guðmundsson,
Tony Knapp, Joe Gilroy og fleiri.
Þeim leik lauk með sigri Fram
2:1.
Þaö eina, sem var að þeim leik,
var að hann var of langur — bæði
fyrir leikmenn og áhorfendur.
Fr jálsiþróttakeppni 17.
júnf-mótsins verður haldið áfram
á Laugardalsvellinum i kvöld og
þá keppt i mörgum greinum.
—klp—
Sænsku fimleikapiltarnir vöktu mikla athygli og skemmtun áhorfenda
á 17. júni mótinu á Laugardalsvellinum i gær. Ljósmynd Bj.Bj.
íþróttafréttamenn skeggrœða!
Um þrjátiu iþróttafréttamenn
frá Noregi, Danmörku, Sviþjóö,
Finnlandi og Færeyjum komu til
landsins i fyrrakvöld til
að sitja þing norrænna iþrótta-
fréttamanna, sem mun standa út
þessa viku.
1 hópnum eru margir af þekkt-
ustu iþróttafréttamönnum hinna
Norðurlandanna — bæði blaða-
menn og einnig útvarps- og sjón-
varpsmenn. Þing af þessu tagi
eru haldin annað hvert ár á
Norðurlöndunum til skiptis — en
siðasta var þing hér árið 1962.
t gæt sátu menn boð Mennta-
málaráðuneytisins og siðan tSt
og nokkurra sérsambanda ÍSt,
þar sem haldnir voru fyrirlestrar
og formenn sérsambandanna
sátu fyrir svörum. t dag fer hóp-
urinn til Vestmannaeyja I boði
ÍBV og bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja.
Einnig er fyrirhuguö ferð aust-
ur fyrir fjall og gestunum sýnt
þaö markverðasta þar eins og
gert var i gær, en þá skoðuöu þeir
m.a. iþróttamannvirkin i Laugar-
dal og heimsóttu ýmsa aðra staði
i borginni.
—klp—
rlendu Iþróttafréttamennirnir ásamt Islenzkum starfsbræðrum sinum, er þeir skoðuðu iþróttamannvirkin i Laugardalnum I gær.
Ljósmynd Bj. Bj.
Loftur ólafsson slær upp úr „bönker” i
Pierre Robert golfkeppninni um helg-
ina. Fyrir aftan hann stendur Ágúst
Svavarsson, hinn kunni handknatt-
leiksmaður úr 1R, en hann er nú kom-
inn I meistaraflokk i golfinu. Þeir
verða báðir með I Replogle keppninni i
kvöid —I þetta sinn hvor á sinum velli.
Ljósmynd Bj.Bj.
Eitt golfmót
á tveim
golfvöllum
i kvöld hefst á tveim golfvöllum
samtimis forkeppni fyrir keppni um
Replogle bikarinn, en þetta er I fjórða
sinn sem keppt er um þennan bikar.
I.eikiö verður á Nesvellinum á Sel-
tjarnarnesi og Hvaleyrarvellinum I
Hafnarfirði, og hefst keppnin á báðum
stöðum um kl. 17,00.
Leiknar verða 18 holur án forgjafar,
og komast 16 fyrstu frá hvorum velli
áfram i keppninni, sem öll fer fram á
Nesvellinum og mun standa fram eftir
sumri.
Verður þá leikin holukeppni — einn á
inóti einum — án forgjafar. Keppnin á
báðum völlunum I kvöld er öllum opin,
og þar er takmarkið eitt að komast i
eitt af sextán fyrstu sætunum.
—klp—
Hópferð með
londsliðinu?
Knattspyrnusamband islands hefur
hug á að efna til hópferðar á landsleik-
ina við Belgiu, Frakkland og Sovétrik-
in i byrjun september.
Er fyrirhugað að fara héðan til
Frakklands og sjá leikinn þar i
Evrópukeppninni þann 3. september,
en hann veröur i Paris.Þaðan verður
haldiö til Belgiu og horft á
leikinn viö Belgiumenn 6.septem-
ber.
Leikurinn við Sovétmenn á að fara
fram lO.septeinber — liklega i Moskvu
— og verður lialdið þaðan frá Belgiu.
Öruggt má telja. að inargir hafi áhuga
á að fara i þessa ferð og fylgjast með
okkar umtalaða landsliði, en undir-
búningur ferðarinnar er nú rétt að
hefjast.
—klp—