Vísir - 06.09.1975, Side 6
6
Vlsir. Laugardagur 6. september 1975.
vísm
tJtgefandi: Reykjaprent hf.
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson
y Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611
Afgrei&sla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611
Ritstjórn: Slöumúla 14. Slmi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innaniands.
1 lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Varhugaverð
vinnubrögð
Að undanförnu hafa orðið nokkrar umræður um
endurskoðun vinnulöggjafarinnar. Athygli manna
hefur einkum beinzt að þeim hópum sem hafa
lykilaðstöðu á einstökum sviðum atvinnulifsins og
hagnýta sér hana til þess að knýja fram meiri
kjarabætur en hinn almenni launþegi á kost á. Hér
er um mikið alvörumál að ræða og mikilvægt að
menn gefi þvi gaum.
En það er ekki einvörðungu að einstakir hags-
munahópar hagnýti sér sterka aðstöðu til þess að ná
fram meiri kauphækkunum en aðrir heldur skirr-
ast menn nú við að hlita þeim reglum, sem vinnu-
löggjöfin mælir fyrir um. 1 raun réttri er það alvar-
legasta hlið þessa máls þegar forystumenn i laun-
þegasamtökum hafa forgöngu um að virða lög
landsins að vettugi.
1 mai siðastliðnum beittu forystumenn i verka-
lýðshreyfingunni sér fyrir ólöglegum verkfallsað-
gerðum i rikisverksmiðjunum eftir að lög höfðu
verið sett um lausn þeirrar deilu. Þá deilu tókst að
visu að leysa innan ramma laganna en eigi að siður
var hér um alvarlegar aðgerðir að ræða.
Fyrr i sumar hófu flugvirkjar fyrirvaralausa
vinnustöðvun er stóð i átta tima. Sú deila stóð um
túlkun á kjarasamningum. Hér var að sjálfsögðu
um ólögmætar aðgerðir að ræða en samt sem áður
létu Flugleiðir undan. Nú hefur sama sagan endur-
tekið sig i deilu félagsins við flugfreyjur.
Það mál er þó að sinu leyti enn alvarlegra þar
sem ágreiningsefnið var til meðferðar hjá félags-
dómi. Þegar flugfreyjur höfðu hótað ólögmætri
vinnustöðvun gengu Flugleiðir umyrðalaust að
kröfum þeirra. Hér verður ekki lagt mat á hvort
um réttmæta og eðlilega kjarabót er að ræða. Al-
varlega hlið málsins er sú að þessi kauphækkun er
knúin fram með boðun og hótunum um verkfallsað-
gerðir, sem brjóta i bága við vinnulöggjöfina.
Meðan vinnudeila er til meðferðar hjá félagsdómi
er vinnustöðvun vegna sama ágreiningsefnis ó-
heimil. Forvigismenn þess starfshóps, sem hér á
hlut að máli, hafa á hinn bóginn gefið út opinberar
yfirlýsingar um það að ekki sé þörf á og jafnvel ó-
eðlilegt að fara að lögum i þessu efni.
Siendurtekin atvik af þessu tagi hljóta að vekja
menn til umhugsunar um framvindu þessara mála.
Það er lika ámælisvert að atvinnurekendur skuli
láta undan kröfum sem knúðar eru fram með ólög-
mætum aðgerðum eða hótunum um slikar aðgerðir.
Súafstaða leiðir til misréttis. Launþegafélögin hafa
svo misjafna aðstöðu til þess að fylgja kröfum sin-
um eftir. önnur launþegafélög hljóta þvi að lita það
alvarlegum augum þegar farið er með þessum
hætti út fyrir ramma vinnulöggjafarinnar.
Ljóst er, að i mikið óefni er komið, ef það á að við-
gangast, að einstakir starfshópar geti ýtt kröfum
sinum fram með ólögmætum aðgerðum eða hótun-
um þar um. Gegn þessari þróun þarf að mynda
sterkt almenningsálit.
Umsjón: GP
Wl P1 r 1
• ii
i imi r * i i
IRI! i RQIiJ mi i n i
tJr einu nýtlzkulegasta hverfi Lagos: Tinhu-torgiö en byggingin er Seölabanki þeirra’NIgeriumanna
Þar, eins og vlöa I heimi, eru peningamusterin glæpilegustu byggingarnar.-
:
Nígeríumenn
hugsa til nýrrar
höfuðborgar
Hinir nýju herstjórn-
endur Nigeriu hafa sett
á laggirnar sérstakt
ráð til að ákveða, hvort
hin mannmarga og
erilsama hafnarborg,
Lagos, skuli vera á-
fram höfuðborg þessa
stóra lands.
Atta manna ráöið hefur frest
til ársloka til aö ákveöa, hvort
sambandsstjórnin og fylkis-
stjórn Lagos ættu að flytja meö
starfsvettvang sinn úr Lagos,
sem eins og stendur er bæði höf-
uðborg fylkisins og sambands-
rlkisins.
Ef ráöiö, sem er undir forsæti
T.A. Aguda, dómara i hæsta-
rétti Ibadan-fylkis, kemst að
þeirri niöurstöðu, aö sambands-
rikið ætti að flytja aöalaðsetur
sitt, veröur þaö um leiö aö
leggja fram tillögur um aöra
kosti, sem væru jafn aðgengi-
legir öllum tólf fylkjum Nigeriu.
í öllu uppnáminu, sem fylgdi
stjórnarskiptunum i Nigeriu,
hefur samt gefist tóm til að
halda áfram i dægurþrasinu
umræöunum um, hvort nauö-
syn sé til aö flytja höfuðborgina
úr hinni rykugu, heitu og eril-
sömu Lagos út i dreifbýlið. En
þaö hefur lengi veriö deilumál.
Eitt af þvi, sem I þessum um-
ræöum hefur verið tint til sem
galli á Lagos, lýtur aö staösetn-
ingu borgarinnar viö strönd At-
lantshafsins. Sú lega borgarinn-
ar gerirhana berskjaldaða fyrir
árás. Aðrir benda á, að stækk-
unarmöguleikar hennar séu of
takmarkaöir til aö hún henti
sem höfuöborg mannmesta
rikis Afriku.
Lagos er eyja inni i miðju lóni.
Hún er tengd tveim ibúðar-
hverfum, dreifbýlum þó, á eyj-
um Ikoyi og Viktóriu meö
nokkrum brúm. Einnig þétt-
býliskjörnum á fastalandinu.
Samgöngur milli þessara
hverfa eru slæmar. Umferða-
tafir valda þarna oft meirihátt-
ar vandræðum. Miklir erfiðleik-
ar eru viö þjónustu að borð viö
rafveitu og vatnsveitu, sem oft
vilja bila. Nútima skolpræsa-
kerfi er þarna ekkert, og verða
Ibúarnir að búa við fnykinn,
sem leggur frá opnum holræs-
um um allar götur. Almenn-
ingsvagnakerfi er i molum og
hús ófáanleg á fasteignamark-
aönum, en þau sárafáu, sem
eigendaskipti verða á, seljast á
okurverði.
En þrátt fyrir þrengslin og
önnur óþægindi þá er Lagos
einskonar „Mecca” Nigeriu-
manna. Þangað streyma þeir I
atvinnuleit og viðleitni til for- \
frömunar.
íbúatalan er áætluð um þrjár
milljónir, en var aðeins ein
milljón fyrir fimm árum. Lagos
er þvi álitin vera meðal þeirra
borga heims, sem vaxa hvað ör-
ast. Uppbygging opinberrar
þjónustu hefur lent langt á eftir.
Þetta kýs þó fólk heldur en
heimili sin, sem það yfirgefur i
þorpunum úti á landsbyggðinni
vegna atvinnumöguleikanna.
Fjölmiðlar i Nigeriu skiptast
alveg I tvö horn um þetta mál.
Það er ekki einvörðungu(hrika-
legur kostnaður, sem hlýtur að
vera samfara þvi að reisa nýja
höfuðborg. Ofan á það bætist
hreppapólitikin, sem kemst i al-
gleyming, þegar talið snýst að
þvi, hvar hin nýja höfuðborg
ætti aö risa.
Flestir búast við þvi aö ráöið
komist aö þeirri niðurstöðu að
Lagos sé óhæf til þess aö vera
höfuðborg framtiöarinnar.
En hvort nokkurn tima næst
samkomulag um, hvar hið nýja
höfuðsetur skuli risa, er svo allt
annað mál.
Eitt þorpanna I Nigeriu sést hér til samanburðar viö höfuöborgina.
Þetta er Kano. Takiö eftir leirkofunum og þrengum strætunum en
yfir öllu liggja sima-og rafllnur strengdar milli staura.
CeBSBHRaaiiitiiBaBVBHaaaaaaaaBsaflBaBBaBaBaaBaBBBaaBBBaBaaaaBaBaaBBBaaaaaBBaaMRaaaaaaaaaaassaaaaaiiaMaBaaaB jbi
BflflflflflaaHSIflBBBBBBfleBflBBflaBeaaBflaflflBflBflBBBflflBBBflflflflaBflflflflflflBBflflaflBBBflflflBBflflliaflBBBBaíaflflBBflBflaBBMaiiaflBBfl. «aai
laaaBBBBb