Tíminn - 09.10.1966, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.10.1966, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 9. október 1966 TIMINN Rafmagnshitakútar Höfum venjulega fyrirliggjandi rafmagnshitakúta 50—200 lítra, með eða án elementa. Blikksmiðjan Grettir BRAUTARHOLTI 24. KAFFISALA Kvenfélags Grensássóknar er í Lídó í dag kl. 15 — 18. Verið velkomin í veizlukaffi í Lídó. Stjórn Kvenfélags Grensássóknar. FISKRÆKT FTamhald aí öls. I. hér í Tímanum, hafa við þann ár- angur, sem fengizt hefur í Kolla- fjarðarstöðinni, opnast nýir og miklir möguleikar á fiskrækt í lækjum og vötnum, svo og laxeldi, þar sgm hentugar aðstæður eru fyrir hendi. Það þarf þó ýmsa kunnáttu til, svo fiskrækt fari vel úr hendi, en sú vitneskja, sem aflað er í tilraunastöðinni í Kolla- firði kemst að sjálfsögðu bezt áleiðis með námskeiðum tyrir þá, sem vilja stunda fiskrækt og eiga land þar sem aðstæður eru fyrir hendi. \ Þór tjáði Tímanum að hann vonaði að tilraunastöðinni tækist að fá sérfræðing í fiskeldi hingað, jafnvel á næsta ári. Jafnframt eru alltaf að koma fram nýjungar varðandi fiskeldi, sem þarf að ' fylgjast með og nýta ef nýtilegt reynist. Fyrst um sinn mun verða lögð áherzla á ræktun dýrasta fisksins, laxins, og er þá reiknað með að hafa vissa þjónustu við aðr ar stöðvar, en síðan er meining- in að snúa sér að silungsrækt- inni á sama hátt, en hún er til- tölulega mikið auðveldari við- fangs. Þá sagði Þór veiðimálastjóri að eldisstöðvar færu ‘ekki alveg var- hluta af sjúkdómum í fiskinum, eh enn þá væri ekki aðstaða fyrir hendi að rannsaka þá sem skyldi. Sveppagróður sækir á fiskinn, svo gráar skellur koma á hann, einn- ig á hrognin, sem þeir hafa bjarg- að með því að skola þau. Þá hef- ur orðið vart svokallaðrar ugga- veiki sem enn er ekki fullrann- sökuð, en helzt ber á henni ef mótstöðuafl fisksins minnkar. Nú er þó mikið minna um þessi til- felli en í fyrstunni — en þessara sjúkdóma gætir i öllum eldisstöðv- um. í Svíþjóð og Danmörku hef- ur verið komið á fót sérstöku hpil- brigðiseftirliti við fiskeldisstöðv- arnar, pg geta þær, ef þær óska notð góðs af því. Þá sagði Þór að gæta yrðu fyllstu varúðar við innflutning á fiski. T.d. væri kýla- veiki mikið vandamál í eldisstölv- um í Svíþjóð, en þangað mun hún hafa borizt frá Danmörku. Þá er kýlaveiki landlæg í öllum ám í Bretlandi, en Bretar telja að veikin hafi borizt til þeirra um aldamót frá meginlandinu. Þessi dæmi sýna að aldrei mun of var- lego farið. FRAMLEIÐSLUGETAN Framhald ai bls a aðarins í heildartekjum hvers þjóðfélags rýrnar. Þetta má sja af hagskýrslum ýmisssa landa Um 1770 er hlutur landbúnað arins í heildartekjum Eng- lendinga um 45%, um 1870 er er prósentutalan 15% og um 1950 um 4%. Það ber að athuga, að England er iðn- væddara land en flest önnur lönd um 1870. í Frakklandi er hlutur landbúnaðar um 1870 um 45%, en um 1950 um 16%. í Svíþjóð eru tölurnar: 1870 43% og 1950, 14%. I Rúss- landi var hlutur landbúnaðar í þjóðartekjunum 55%, en 22 % 1950. Af þessu má sjá, að landbúnaðurinn hefur tekið miklum framförum, því að þrátt fyrir það að færri og færri stunda þessa atvinnu- grein, eykst afurðageta land búnaðarins stöðugt, og koma þar til uppfyndingar os marg- vísleg taekni og tækni iðn- byltingarskeiðsins. Það ber að athuga, að langt er frá því, að allir jarðbúar njóti þeirra gæða, sem iðnvæð ingin orsakar. Um þriðjung ur jarðbúa byggja iönd, sem eru að nokkru og sum að mestu leyti iðnvædd, en tveir þriðju íbúa búa ennþá við frumstæða iiðfnaðarhætti og byggja af- komu sína eingöngu á frum- stæðum landbúnaði. Eina von þessara þjóða er iðnvæðing, erf iðleikar þessara þjóða eru marg víslegir og eitt mesta vanda- málið er fólksfjölgunin, sem er meiri en framleiðslugetunni nemur. S.B. Væntanlegar 2 fræSibækur eftir konur - aSra 93 ára GB-Reykjavík, laugardag. Konur halda áfram að leggja sinn skerf til bókamarkaðsins fyr- ir jólin. Á meðal þeirra tuga eða jafnvel hundraða bóka, sem koma á markaðinn liver af annarri næstu vikurnar, eru tvær, sem þykja munu all eftirtektarverðar, báðar samdar af konum. Og það sem telja má sjaldgæft eða einstætt er, að annar höfundurinn verður 93 ára um það leyti, sem bókin kemur út og enn full áhuga. Það er hin landskunna atorkukona Halldóra Bjarnadóttir ritstjóri Hlínar. Báðar eru bækur þessar menninfiarsögulegs efnis og út- gefandi beggja er Menningarsjóð- ur. Bók Halldóru heitir „Vefnaður á íslenzkum heimilum á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar“. Gils Guð mundsson framkvæmdastjóri Menningarsjóðs sagði fréttamanni Tímans, að þessi bók Halldóru væri árangur af margra áratuga starfi. Bókin er óvenjuleg fyrir það, hve ríkulega hún er skreytt litmyndum. Á annað hundrað lit- mynda er í bókinni, allar prentað- ar i Kaupmannahöfn, en að öðru leyti er bókin unnin hér á landi. Þessi bók kemur sennilega út fyr- ir næstu mánaðamót. Bókin eftir Arnheiði Sigurðar- Aðalfundur FUF í Reykiavík Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna í Reykjavík verður haldinn í Glaumbæ miðviku- daginn 12. þ.m. Hefst hann kl. 8.30. Dagskrá: Venjúleg aðalfund arstörf. Ávörp: Ólafur Jóhannes- son, varaformaður Framsóknar flokksins. FUF félagar eru hvatt- ir til að mæta vel og stundvíslega. Surveyor 1. vaknar til lífsins á ný! FRÍMERKI FvriT övert tslenzkt fn merki sem pér sendlÐ mér táið Dér 3 erlena Sendið mmnsl 30 stk JON AGNARS. P.O 8o> 965. Reykjavlk Ólafur Ólafsson Ifrá Borgum í Hrútaflrðl, verður jarðsunginn frá Fos/rogskapellu I dag. Minnlngargrein um hann bfður næsta blaðs. NTB—Pasadena, laugardag. Bandaríska tunglflaugin Sur- veyor I., sem lenti „mjúkt“ á tungl inu þann 1. júní s.l. byrjaði skyndi lega að senda frá sér merki á nýj an leik í gær, en bandarískir vís- indamenn misstu allt samband við tunglflaugina þann 13. júlí s.l. og höfðu gefið upp alla von um að heyra nokkur merki frá henni framar. Áður hafði tunglflaugin sent um HOOOmynydir frá tunglinu. Vís- indamenn heyra nú veik merki frá flauginni og reyna aiit, sem þeir geta til að ná betra sambandi. Styrkleiki senditækja fiaugar- innar var orðinn mjög lítill, þegar síðustu myndir komu þann 13. júlí s.l. og þykir því nokkrum tíðindum sæta, að flaugin hafi „vaknað til lífsins á nýjan Ieik“. Einn af 46 biargaðist NTB—Key West, Florida, laugard. Brezka flutningaskipið Nicolas Bowater bjargaði í gær tveim skip brotsmönnum af fleka, sem var á reki nokkrar sjómílur suðaustur af Miami á Flórída. Talið er, að skip brotsmenn hafi verið alls 46. Mennirnir tveir eru kúbanskir RANNSAKA FLJÖGANDI DISKANA NTB—Washington, laugardag. Bandaríski flugherinn hefur á- kveðið að verja 300.000 dollurum til nákvæmfar rannsóknar á hin- um svonefndu „fljúgandi diskurn" Leikur loftferðayfirvöldum og flug hernum forvitni á að vita, hvort eitthvað sé hæft i frásögnum um 'eþssi fyrirbrigði, eða hvort ímynd unarafl mannfólksins hefur aðeins hlaupið með það í gönur. Hefur vísindamönnum við Colorado-há- skóla verið falin rannsóknin og er búizt við, að niðurstöður liggi fyr ir á næsta ári. flóttamenn og sennilega þeir einu sem hafa komizt lífs af, eftir að bát þeirra hvolfdi fyrir 4 eða 5 dög um í hvirfilbylnum Incz, sem geis- aði á þessum slóðum. Annar mannanna lézt skömmu eftir að honum var bjargað, en hinn hefur skýrt frá því, að alls hafi 46 flóttamenn, þar af tvær konur og átta börn verið með skip- inu og séu sennilega allir drukkn- aðir. Haft er eftir bandarísku strand- gæzlunni á Miami, að báturinn, sem sökk, hafi farið frá Pinar del Rio á Kúbu fyrir sjö dögum, en ient í ofviðrinu mikla og sokkið um 60 km. frá bandarisku strönd inni. Maðurinn, sem bjargaðist, heitir Enrique Gonales og var hann að- framkominn, er hann bjargaðist. Sagði hann við komuna til Opa Locka á Flórída, að honum og níu öðrum mönnum hafi tekizt að komast á fleka. Hafi þeir reynt í iengstu lög að hjálpa hvqr öðrum en smám saman orðið að láta und an síga fyrir þorsta, matarskorti og sjóveikí, og hafi aliir skolazt fyrir borð nema þeir tveir. Gífurlega umfangsmikil leit fer nú fram, ef vera skyldi, að fleiri hafi komizt lífs af, er skipið sökk. Taka bæði flugvélar og skip þátt í leitinni. dóttur nefnist „Híbýlahættir á miðöldum“ og fjallar um íbúðar- hús og innanstokksmuni fyrr á öldum á íslandi, en íbúðarhús á Norðurlöndum höfð í baksýn. Gils taldi þessa bók fágætlega vel unna frá höfundar hendi, sem fræðirit bæði handa lærðum og öllum almenningi, framsetningin skýr og fastmótuð. Þessi bók kem ur út í næsta mánuði. Báðar bæk- urnar verða í stóru broti vegna myndakostsins. BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Siaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggj i akstrl. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggfandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlur og viSgerSlr. Slmi 17-9-84 Gúmmíbarðinn h.l, Brautarholti 8, Jón Grétar Sigurðsson néraðsdómslögmaður. Austurstræti 6, simi 18783. \/étahreingernlna Þrifaleg, fljótleg, vönduS vinna. Þ R I F — stmar 41957 og 33049. SERVIETTU- PRENTUN SIMI 32-101.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.