Vísir - 12.09.1975, Page 13

Vísir - 12.09.1975, Page 13
Visir. Föstudagur 12. september 1975. 13 U'i l.'l! >■ ■ :M'|| ■ ■ ÍHTTFff KENNSLA HREINCERNINGAR OKUKENNSLA BARNACÆZLA ÓSKAST KEYPT Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrum forseti Skáksambands íslands Peningamál Heims- meistaraeinvígisins Skákeinvigið enn höfuðverkur t dagblaðinu Visi birtist hinn 10. sept. sl. frétt með viðtali við forseta Skáksambands tslands um erfiðleika Skáksambandsins vegna h e i m s m e i s t a r a - einvigisins i skák, sem hér var haldið sumarið 1972. Vegna þessarar fréttar tel ég nauðsynlegt, að koma eftirfar- andi á framfæri. Krafa um endur- greiðslu á 5000 $ í fréttinni segir, að S.t. fái annaö slagið kröfur frá aðila i Bandarikjunum um endur- greiðslu á 5000$ sem hann greiddi fyrir einkarétt á fréttum af einviginu. — Aðilinn hafi aldrei nýtt sér einkaréttinn og hengdi hatt sinn á að einvigið hefði ekki byrjað á réttum tima. Skáksambandið lítur hins vegar svo á, að einvigið hafi ekki átt að teljast hafið fyrr en við setningu þess. Hið rétta i þessu máli er að á sinum tima voru uppi i Skák- sambandinu miklar umræður um hvernig mætti afla fjár til hins dýra einvigishalds og virkja i þvi skyni ýmsar nýstárlegar hugmyndir. Ein afleiðing þessa var að gerður var samningur við hug- vitsmann i Bandarikjunum um einkarétt á notkun ýmissa slikra hugmynda og stofnaði hann i þvi sambandi fyrirtækið World Chess Network Inc. Við undirskrift samnings greiddi Bandarikjamaðurinn Skáksam- bandi Islands 5000 $ en arður af framkvæmdum hans skyldi skiptast til helminga milli S.l. og hans. Yrði hins vegar halli skyldi WCN bera hann. Á meðan á þessum samning- um stóð var framkvæmd einvigisins i mikilli hættu og töldu margir að ekkert yrði hr þvi. Þetta olli Bandarikjamannin- um áhyggjum og setti hann þvi þann fyrirvara i samninginn, að hæfist einvigið ekki 2. jtili, fengi hann féð endurgreitt. Svo sem menn muna, frestaði forseti FIDE fyrstu skákinni og hengdi bandaríkjamaðurinn hatt sinn á það og krafðist endurgreiðslu. Þá vaknaði su spurning hvenær einvigi raunverulega hefst. Hefst einvígi með setningarathöfn, þegar lýst er yfir að hér með sé einvigið hafið, hefst það þegar dregið er um liti, eða hefst það ekki fyrr en klukkan er sett i gang við fyrstu skák. Skáksamband íslands hélt þvi fram, að einvigið hefði hafizt með setningu þess i Þjóð- leikhiisinu og Skáksambandið hefði þvi staðið við sinn hluta samningsins. Skáksambandið gæti hins vegar ekki gert að þvi, þótt forseti FIDE frestaði fyrstu skákinni. Hér er þvi um flókna lagalega deilu að ræða. World Chess Network nýtti hins vegar einkarétt sinn á þann hátt að Utvarpa leikjum skákanna leik fyrir leik. Hugmynd Bandaríkja- mannsins var, að senda jafn- óðum hvern leik, sem leikinn var frá Utvarpsstöð. Fólk mundi biða við tækið Ut um heim og fylgjast með. A milli leikja Utvarpaði hann hljómlist og auglýsingum og áttu auglýsendur að greiða kostnaðinn. Þetta var gert. Hins vegar taldi World Chess Network sig hafa tapað um 20000$ á fyrir- tækinu. Endurkrafa Skáksam- bands íslands Rétt er auðvitað að fram komi að Skáksamband tslands hefur krafið World Chess Network um greiðslu vegna vinnu, sem það varðað leggja fram hér á landi, vegna þessa samnings. — Krafa þessi nemur 6.800$ og er að minu viti réttmæt og óhrekjanleg. Þessi krafa gerir þvi meira en að greiða þá fyrri, ef svo ólik- lega færi, að Skáksamband ís- lands yrði talið eiga að greiða hana. Hins vegar bendir margt til, að W.C.N. telji kröfu sina um 5000$, óinnheimtanlega. Hagnaður af einviginu sex milljbnir í frétt Visis er upplýst að hagnaður af einviginu hafi numið um 6 milljónum króna. Réttilega er þess getið, að þar EÖJ Við setningu skákeinvigisins. Hér er Guðmundur G. Þórarinsson en i baksýn ræða saraan Spassky og þáverandi menntamálaráðherra, Magnús Torfi. með er talin krafa, sem S.í. á i Bandarikjunum upp á 1.3 millj. kr. Margt bendir til, að þetta fé náist ekki og þvi réttara að meta ágóðann af einviginu sem 4.7 millj. kr. Að sjálfsögðu er starfsemi S.í. þess eðlis, að þar myndast ekki digrir sjóðir. Fé þetta hefur eyðst að mestu i aðra starfsemi sambandsins. Enn mun sambandið þó eiga skuldabréf frá timum einvígisins, sem níi er að upphæð um 1,8 millj. kr. og greitt er árlega af. Einhvern tima hefði það verið talið nokkurt fé. Skáksambandið er hins vetar i erfiðleikum með fé til starf- seminnar og þannig verður vafalaust ætið meðan öflugri starfsemi er haldið uppi. Ekki er óeðlilegt að menn hafi i huga að einvigishald þetta var með eindæmum glæfralegt. í boði sem verðlaun voru raun- verulega tuttugu ára ráðstöfunarfé St og fjölmargt olli þvi, að einvigið varð dýrara en gert var ráð fyrir og mun heildarkostnaður um 60 millj. kr. Það hefur ef til vill ekki komið nægilega skýrt fram, að S.í. naut engra styrkja til ein- vigishaldsins. Kvikmynd Iðntækni. Menn hlýtur að reka minni til þeirra miklu deilna, sem kvik- myndum einvigisins olli. Það var hugmynd S.t. að auðga skákheiminn með þvi að einvigið varðveittist á kvikmynd en jafnframt átti að reyna að afla aðstandendum mótsins og keppendum fjár með þessu móti. Þetta fór hins vegar nær alveg tit um þíifur. Fox hóf þá málaferli gegn Fischer vegna þess að hann hindraði kvikmyndunina og vann að þvi að leggja löghald á verðlaunaféð hér á landi. — Okkur þótti að vonum stirt i broti að láta rifa tir höndum okkur þannig þá hátiðlegu stund, er nýr heimsmeistari var krýndur og tslendingar afhentu honum verðlaunin, sem voru tifalt hærri en áður hafði þekkzt. Til þess að hindra þetta, af- salaði S.t. sér sinum hluta af hagnaði við kvikmyndatökuna i hendur Fox, en hann aftur undirritaði að hann mundi ekki hefja nein málaferli gegn keppendum á tslandi. Þannig tókst að ljtika þessu einvigi með glæsibrag en Bandarikja- mennirnir áttu að rifast um sinn hluta kökunnar i sinu heima- landi. Ég var hins vegar lengst af þeirrar skoðunar, að Fox hefði ekkert tit tir þessum málaferl- um. Ákvæðisamkomulagsins og samninga um bnæði fyrir keppendur vegna kvikmyndun- ar eru svo óljós, að ég taldi vist, að Fox hefði af þessu ekkert nema leiðindin. Siðar varð mér hins vegar ljóst.hvarhundurinn lá grafinn. Oti i Bandarikjunum höfðu lögfræðingar Fischers gert bak- samning við Fox um að hann greiddi Fischer 15% af brhttótekjum við kvik- myndunina auk umsamins ágóðahluta. Þetta gerði hlut Fox að engu en skýrði þá gífur- legu áherzlu sem lögfræðingar Fischers lögðu á að samið yrði við Fox og lýstu reyndar hvað eftir annað yfir, að engin kvik- myndum færi fram nema þeir samþykktu framleiðandann. Samkvæmt þessum bak- samningi sem okkur var ókunnugt um, hafði Fox tak á Fischer. Þótt kvikmyndavélar væru teknar teknar Ut tir Laugardals- höllinni samþykktu lög- fræðingar Fischers að vélar Iðntækni væru áfram enda voru þær eingöngu hugsaðar til þess að flytja leiki upp i stíidió og auðvelda sýningu skákanna fyrir almenning. Fox gerði hins vegar samkomulag við Iðntækni um að þessar vélar yrðu látnar taka upp á myndsegulband. Þessar filmur eru þvi til og voru teknar án vitundar keppenda. Það er misskilningur að ekki sé þorandi að sýna þær vegna þess aðFox standi i málaferlum við Fischer. Sannleikurinn er sá að tilvist þessara filma gæti hjálpað Fischer i málaferlunum þvi þær sýna að Fox lét, þrátt fyrir allt taka myndir. Fox greiddi ekki fyrir þessar filmur og hefur þvi ekki fengið þær i hendur. Hins vegar er ef til vill óljóst, hvort Iðntækni og S.t. eiga sýningarrétt á þessum filmum, þótt Fox hafi ekki greitt fram- lagða reikninga. — Þar er um flókið lagalegt mál að ræða. Rétt er og að fram komi, að i þessum ógreidda reikningi á S.t. kröfu upp á u.þ.b. 400 þhs. kr. Hvorki sti krafa eða 6.800$ krafan á World Chess Network eru bókaðar S.t. til tekna eða eigna og því ekki taldar með til ágöða af einviginu. Skáksambandið á einnig annað taflborðið,sem teflt var á i þessu sögufræga einvigi. Það hefur ekki verið metið til eigna og þannig mætti lengi telja. Viðburði eins og Skák- einviginu milli Fischers og Spasský lýkur ekki um leið og klukkan er stöðvuð. Fram- kvæmdin er flóknari en svo. Vinna þyrfti að þvi að ljúka þessum málum. Forsjálir lesa þjónustuauglýsingar Vísis. Þeir klippa þær jafnvel út og varðveita. Þannig geta þeir valið milli margra aðila þegar á þjónustu þarf að halda. Forsjálir...

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.