Vísir - 12.09.1975, Side 20

Vísir - 12.09.1975, Side 20
 WHagaag ## FLYTJUM HEIM TIL ÍSLANDS AÐ LOKUM — Rœtt við Mick Magnússon, íslendinginn, sem er fréttastjóri hjó BBC 1 ## ,,Viö stefnum aö þvi aö flytja aftur til tslands þegar við höfum verið i Bretlandi i 10 ár. Þá hef ég áhuga á að skrifa fréttaskýr- ingar fyrir fjöimiðla og fara út i k vikmyndagerð hérlendis.” Þetta sagði útvarpsmaðurinn göðkunni, Mick Magnússon, i stuttu samtali við Visi, þegar hann var hér á fcrð i fylgd með Hattersley aðstoðarutanrikis- ráðherra Breta og sendi fréttir af viðræðum hér til BBC í Bret- landi. Mick Magnússon er nú frétta- stjóri hjá BBC útvarpsfrétta- stofunni, en rúm tvö ár eru liðin frá þvi hann og kona hans, Hanna Mallý Jóhannsdóttir frá Vestmannaeyjum fluttu héðan með dætrum sinum tveim. Mick annaðist i þrjú sumur fréttir á ensku i islenzka útvarpinu, eins og margir muna eflaust eftir, enda mæltistsú þjónusta Rikis- útvarpsins mjög vel fyrir. Hann hætti hjá útvarpinu i árslok 1972, vegna ósamkomulags um kjör sin og aðbúnað hjá stofnun- inni, og ákvað þá að taka vinnu- tilboði frá BBC. Hann hafði þá um skeið verið fréttaritari þeirra hérlendis og einnig sent fréttir til fréttastofnana i Kan- ada, Astraliu, Nýja-Sjálandi og Bandarikjunum. Mick er lærður i leiklist og áð- ur en hann hóf störf hjá Rikisút- varpinu árið 1970 setti hann upp nokkur leikrit hérlendis. Einnig vann hann við sjómennsku eftir að hann og kona hans settust hér að 1962. „Við vinnum 12—16 tima á dag hjá BBC þrjá daga i röð, en eigum svo fri i þrjá daga. Þegar ég er á vakt ræð ég sem frétta- stjóri þvi hvaða fréttir eru send- ar út og hverjar ekki. Við erum þrjá mánuði til skiptis i innlend- um, þ.e. brezkum fréttum, þrjá mánuði i erlendum fréttum og þrjá mánuði i þvi að fást við inn- byrðis dreifingu frétta milli hinna fjölmörgu smáfréttastofa innan BBC kerfisins. Þetta er mjög liflegt og skemmtilegt starf og ég uni hag minum ágæt- lega. Við hjónin erum þó ákveð- Mick Magnússon sendir fréttir símleiðis til BBC in i að flytjast aftur til Islands og reynum nú að leggja til hlið- ar svo við getum keypt okkur þak yfir höfuðið þegar við kom- um aftur hingað,” sagði Mick Magnússon að lokum. Þagnarskylda Hafrannsóknarstofnunarinnar Okkur er gert að þegja — en ráðuneytið má segja „Ég tek þetta ekki allt of alvarlega/' sagði Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur, en sjávarút- vegsráðuneytið hefur farið þess á leit, að fiski- fræðingar og aðrir starfsmenn Hafrann- sóknarstofnunarinnar takmarki upplýsingar sínar mjög til fjölmiðla. Jakob sagðist hafa haft gott samstarf við bæði ráðuneytið og fjölmiðla þau 20 ár, sem hann hefur starfað sem fiskifræðing- ur. „En ef við erum bundnir þagnarskyldu, er það sam- bærilegt við það, að stjórnvöld taki sér það val-að hneppa menn i fangelsi og halda þeim þar án dóms. Ef þau kæra sig ekki um umræður um málið á opinber- um vettvangi, geta þau dregið úrskurð þess. Með þessu er ég þó alls ekki að segja, að þetta sé bað. sem ráðuneytið hafi i hyggju,” sagði Jakob. Dæmi um þagnarskylduna. Gerðar eru tillögur um bann við smáfiskadrápi. Þær liggja hjá ráðuneytinu i nokkrar vikur. A meðan heldur smáfiskadrápið áfram. Starfsmenn Hafrann- sóknarstofnunarinnar mega ekkert segja um málið, en það er hins vegar skýrt tekið fram, að sömu reglur gilda ekki um starfsmenn ráðuneytisins, þvi að þeir mega tala eins og hefur lika komið fram á siðustu vik- um. „Annars vil ég bæta þvi við,” sagði Jakob, „að ég held, að þetta mál sé allt misskilningur frá upphafi til enda.” —EVI— FEKK TOGVIR I ANDLITIÐ — sjúkraflugið gagnslaust, því að sjúkrakarfan komst ekki fyrir í flugvélinni vísir Föstudagur 12. septcmber 1975. Bjargað úr höfninni Lögreglan bjargaði siðastliðna nótt manni, sem féll i sjóinn af Grandagaröi. Hann var að fara um borð i bátinn sinn, þegar hann missti fótanna. Sem betur fór, voru lögreglumenn nærstaddir og gátu þeir fiskað hann upp. Þeir fóru svo með hann á stöðina og hlúöu þar aö honum. Þegar hon- um var orðið hlýtt aftur, var hann keyröur um borð. —OT ÓK Á LAMB — 7600 krónur samkvœmt gjaldskrú Svart lamb varð fyrir bif- yeið fyrir ofan Arbæ i gær og drapst. Bifreiðin mun hafa verið á töluverðri ferð þvi lambið hentist eina 40 metra. Þetta óhapp mun að öllum llk- indum kosta ökumanninn 7600 krónur. Arlega verður töluvert af sauðfé fyrir bifreiðum og drepst. Vegna þess hafa bænd- ur birt gjaldskrá sem farið er eftir i slikum tilfellum. Hæstar skapabætur greiða menn fyrir að aka á verðlaunahrúta, það eru 26 þúsund krónur. Fyrir veturgamalt skal gjalda 10.900 krónur og 350 króna aukagjald kemur ofan á ef ekiö er á grá lömb. —óT Rœtt við Belga eftir helgina Næsti viöræðufundur við aðrar þjóðir um fiskveiðilögsögumál verður I Reykjavik I byrjun næstu viku. Verður þá rætt við Belga, en samningur um veiöar þeirra inn- an 50 milna, sem gerður var 1972, rennur út á næstunni. Veiðar Belga innan 50 mllna markanna hafa veriö mjög takmarkaðar enda úthafsveiöafloti þeirra ekki ýkja stór. Hvort samiö verður um áframhaldandi veiðar þeirra inn- an 50 milna eöa stækkaðrar lög- sögu liggur ekki fyrir enn. Við- ræðurnar munu standa 1 einn dag og fyrir nefnd Belganna verður Hartford sendiherra Belgiu á Is- landi, en hann hefur aðsetur i Osló. Ekki mun fullráðiö hverjir skipi islenzku sendinefndina. „VETRARHERFERÐ" AKUREYRAR- LÖGREGLUNNAR" Lögreglan á Akureyri er nú að búa sig og ökumenn i bænum und- ir veturinn og fer allskonar her- ferðir i þvi skyni. 1 fyrradag voru þeir enn við radarmælingar og tóku þá 22 fyrir of hraðan akstur. Deginum áður höfðu þeir verið 28. Þá voru númer tekin af 26 bifreið- um og þær sendar til skoðunar. Vegir á og i kringum Akureyri eru oft hættulegir á vetrum. Þar er mikið af bröttum brekkum sem mönnum getur orðið hált á, þegar frost er komið. Lögreglan vill byrja á aö búa menn undir að bæta ökulag sitt áður en á hólm- inn kemur. Brezkur sjómaður, sem slasaðist á miðunum i gær, og var fluttur i Borgarsjúkrahúsið, var við allgóða líðan i morg- un. Hann var úr allri hættu. Sjómaðurinn var um borð I tog- aranum Falstaff, u.þ.b. 40 milur út af Hornafirði. Togvir slitnaði og slóst i höfuð mannsins. Hann hlaut mikla höfuðáverka, aðal- lega I andliti. Læknir fór frá brezka eftirlitsskipinu Othello yf- ir I togarann. Beöiö var um hjálp viö að koma manninum á sjúkra- hús. Þyrla Landhelgisgæzlunnar var stödd á Hornafirði og flaug strax á miðin. Að sögn Bjarna Helgasonar, skipherra á þyrlunni, kom lækn- irinn af Othello með sjúklingnum um borð I þyrluna. Hann bað um aö sjúkraflugvél færi með sjúkl- inginn frá Hornafirði til Reykja- vfkur. Var þá beðið strax um flugvél frá Reykjavik. Sú vél kom til Hornafjarðar u.þ.b. tveim klukkutimum eftir að þyrlan lenti þar. I millitlðinni var sjúklingur- inn haföur á hjúkrunarheimilinu á Hornafirði. Þegar flugvélin frá Reykjavik kom, uppgötvaöist að sjúkrakarf- an.sem Bretinn lá I, var of stór til að komast fyrir I vélinni. Brezki læknirinn og læknirinn á Horna- firöi töldu ekki ráðlegt að færa sjúklinginn yfir I aðra körfu. Var hann fluttur yfir I vél frá Flug- félaginu, sem var á Hornafirði og lagði af stað nokkru siðar. —ÓH Kennslu í Armúlaskóla seinkar HEFILBEKKIR í ÓLAGI — lóð ófrágengin „Hefilbekkir skólans eru væg- ast sagt i mjög slæmu ásigkomu- lagi,” sagði Arnfinnur Jónsson, yfirkennari Armúlaskóla, og bætti við, að þetta væri þeim mun alvarlegra, þar sem skólinn væri vcrknámsskóli og bekkirnir þvi i stööugri notkun. Kennarafundur var haldinn i skólanum 3. september. Var komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki væri hægt að hefja kennslu i skólanum, fyrr en hefilbekkirnir hefðu verið lagfærðir og gengið hefði verið frá skólalóðinni sóma- samlega, en þvi hefur nú verið lofað i 3 ár. Unnið hefur verið i lóðinni und- anfarið og verður þvi verki senni- lega lokið eftir helgi. Hins vegar hefur ekkert verið gert við hefil- bekkina. Þó var fræðsluráði ritað bréf vegna beggja málanna og borgarráði og borgarverkfræð- ingi sent afrit. „Ef notazt verður við hefil- bekkina eins og þeir eru, kostar það miklu meira að gera við þá, þvi að þá þarf jafnvel að endur- nýja algjörlega hluta þeirra,” sagði Arnfinnur. —EVI— —ÓT

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.