Tíminn - 15.10.1966, Side 3

Tíminn - 15.10.1966, Side 3
LAUGARDAGUR 15. október 1966 PÚSSNINGAR- SANDUR VIKURPLÖTUR Einangrunarplast Seljum allar gerSir af pússningasandi, neim- fluttan og blásinn inn- Þurrkaðar vikurplötur og einangrunarplast. Sandsatan við EliiSavog sf. Elliðavogi 115, sími 30120. TIMINN Slcammstafanir „Kæri Landfari! » Mig langar til að koma á fram- íæri í dálki þínum smá fyrirspurn, eða fyrirspurnum varðandi skamm- stafanir á landsþekktum félögum, fyrirtækjum og stofnunum. Það er næstum á hvetjum degi, sem ég sé einhverjar af skammstöfunum þessum í dagblöðunum^og var far- inn að halda að við komandi blaða menn settu þessar skammstafanir á viðkomandi aðila, en nú hef ég sannreynt að svo er ekki — það eru fyrirtækin sjálf, sem setja þess ar sakmmstafanir. Og svo ég teygi nú ekki lopann lengur þá er hér um að ræða skammstafanirnar F. I. og B. I. F. í. er notað a. m. k af þrem aðilum: Ferðafélagi íslands, Flugfélagi íslands og Fisk'félagi íslands og B. í. er notað af Biaða mannafélagi íslands, Búnaðaiíé- lagi íslands og Brunabótafélagi íslands. Vel má vera, að fleiri að- ilar noti framangreindar skamm- stafanir, þótt ég muni nú ekki eftir fleirum í augnablikina, en mér finnst að þessir aðilar þyrfta að koma sér niður á hver þeirra ætti rétt á að nota skammstöfun- ina, því ef margir nota þá sömu getur hæglega orðið um rugiing að ræða, eins og t. d. ef Ferða- félagsmenn væru að ferðast með Flugfélagsvél, og talað væru um F.í. félaga, sem ferðuðust með F.í. vélum. Ég veit, að þú, Landfari góður, ljærð þessum aðilum rúm undir | athugasemdir í dálki þínum, og I kveð þig síðan og þakka fyrir margt gott, sem komið hefur fram í dálkunum. • Áhugi." Gráhári skrifar: Um hljómburðinn í Foss- vogskapellu Það hlýtur að vera nokkurt angur hverjum manni að njóta ekki fullrar heyrnar, ekki sízt þeg ar vitað er að í raun og veru sé heyrnin í fullu lagi. — Það er alkunna að hljómburður í sam komuhúsum er mjög misjafn, en það er stórt atriði að hann sé sem beztur. Eftir að hafa verið nokkrum sinnum við jarðarfarir frá Foss- vogskapellu hefi ég fengið endur- teknar sannanir fyrir því hve hljómburðurinn þar er slæmur og óþægilegur. Það eru víst fæstir sem eru við jarðarfarir að ástæðu- lausu og þá er a. m. k. viðkunnan legra að geta heyrt það sem prest urinn segir svona nokkurn veg- inn óslitið og án mikillar áreynslu. En á þessu vill oft verða nokkur misbrestur í áðurnefndu húsi. Aðeins þeir sem innstir sitja heyra sæmilega það sem sagt er, en þó er alltaf einhver holhljómur eða bergmál bak við orðin sem verkar óþægilega á mann og þv: verr sem presturinn liggur hærra rómur. Menn beri t. d. saman hljómburðinn í Fossvogskapellu og Dómkirkjunni, —þar á e- reg- in munur. — Það gegnir annars nokkurri furðu, að ekki skuli fyrir longu hafa verið ráðin bót á þessum hljómburðargalla því óhugsandi er að það sé ekki mögulegt. — Það getur því varla talist ósanngjarr.t þótt almenn krafa komi fram um fullkomnar úrbætur á þess- um hljómburðargöllum í Fossvogs kapellu, því það hlýtur að vera þess eðlis að vera mögulegt ef nægur vilji væri fyrir hendi. Klukkan 13.30. Allmjög undanfarin á rhefir Út varpið — með nokkurri aðstoð Pósts og Síma — verið að reyna að breyta málvenju okkar um tímagreiningu, en ekki tekist enn sem komið er. Hefir Útvarpinu orðið meira ágegnt um sumt ann- að í „menningarbyltingu“ sinni, t. d. um áhrifin á músik-smekk yngri kynslóðarinnar. í vitund almennings er sólar- hringnum skipt í tvennar tólf stundir, eða „Klukkutíma" eins og það er venjulega orðað. Timaskipt ing þessi er svo skýr og greinileg að það fer yfirleitt ekki milli mála við hvaða tíma sólírhringsins er miðað þegar eitt og annað er tíma sett samkvæmt íslenzkri málvenju — Það vita allir t. d. að „Sinfóniu hljómleikar“ byrja aldrei kl. 9 að morgni og „miðdegisútvarp“ hefst ekki kl. 3 að nóttu, og svona mætti lengi telja. — í daglegu tali er aldrei sagt „klukkan 13.30“ eða „16.45“, heldur „hálf tvö“ og “þrjú kort í fimm,“ eðá 4.45. Með þessu hefðbundna málfari vita allir við hvaða tíma er átt, en það liggur ekki alveg eins ljóst fyrir þegar „símskeytamálið“ er við haft. — Þetta sífelda stagl á óðru málfari en menn hafa átt að venjast lætur alltaf ankanalega í eyrum. Það er gagnstætt málvenju alls almenn ings og algerlega óþarft nema í einstaka tilvikum — og við slíku er ekki ástæða til að amast. — Ástæða er til að ætla að þessi „útvarpsmenning" sé að mestu leyti af útlendum toga spunnin, en hefir ekki eftiröpun okkar af erlgndum fyrirmyndum haslað sér mjög „landrými“ í þjóðlífi okkar, þótt daglegt mál nyti enn um sinn nokkurra sérréttinda? — T rúlofunarhringar afgreiddir samdægurs. Sendum um allt land. Athyglisverð sýn- Skólavörðustíg 2. S ÖKUMENN ! j Látið athuga rafkerfið í ; bílnum. ] Ný mælitæki. j RAFSTILLING, j Suðurlandsbraut 64, sími 32385 (bak viS Verzlunina Álfabrekku). Vélahreingerning Vanir menn. Þrifaleg, fljótleg, vönduS vinna. Þ R I F — símar 41957 og 33049 HUSBYGGJENDUR TRÉSMIÐJAN, HOLTSGÖTU 37, ! framleiSir eldhúss- og LAUGAVEGI 90-92 ing í Mokkakaffi Um þessar mundir er í Mokka | Auk olíumálverka og vatns- kaffi sýning á listaverkum eftir litamynda eru á sýningunm sex Sigurð Steinsson og stendur hún járnskúlptúr og hafa þau ekki yfir í hálfan mánuð. | sízt vakið eftirtekt. Alls eru lisla svefnherergisinnréttingar. Auglýsið í fiiVIANUM Stærsta úrval bifreiSa á einum staS. — Salan er örugg hjá okkur. Ilefur sýningin vakið athygii og er því allt eins líklegt, að húr, verði franrlengd. Þegar hafa selzt tvö málverk og verkin sextán og eru þau öll tii sölu. Þetta er önnur sýning Sig urðar. Myndin sýnir listamanninn hjá þeim tveim listaverkum, sem margir hafa spurt um myndir með. einna mesta athygli hafa vakið. kaup í huga. (Tímamynd-G.E.). 3 Á VÍÐAVANGI Ekki hlédrægur úr hófi | fram Bjarni Bendeiktsson hefur | ekki látið ónotuð þau tækifæri er honum hafa sem forsætis- ráðherra boðizt til þes að á- varpa þjóð sína. Hann kvaddi sér t.d. hljóðs bæði á gamlárs kvöld og nýársdag, og hinn 17. júní barst rödd hans enn á öldum ljósvakans um lands byggðina. Þessar ræður ráðherr ans eru jafnan endurteknar í fréttaauka kl. 20 og síðan ítar- lega greint frá efni þeirra í seinni fréttum kl. 22. Þurfa hlustendur þannig -að kingja málflutningi ráðherrans þrisvar sinnum sama daginn. Næsta dag birtist ræðan ásamt mynd ræðumanns í Morgunblaðinu, svo að enginn þyrfti að fara á mis við hið vísdómslega orð. Hver var þá hátíðaboðskapur ráðherrans, er svo mjög þurfti að brýna fyrir landsins börn- um? Um áramótin var ráðherran- um mikið niðri fyrir, enda mun nýja árið hafa lagzt í hann sem slæmur fyrirboði. Hann tók sér fyrir hendur að telja í þjóðina kjark og sannfæra hana um það að hún þyrfti ekki að skammast sín fyrir viðreisnina. Við get- um borið höfuðið hátt, sagði hann, og því til sönnunar leiddi hann tvö vitni. Var það þunga miðjan í áramótaræðu ráðherr ans. Vitnin voru ekki nafn- greind, en hið fyrra var „mikils virtur sendiherra“ okkar hjá erlendu ríki, er kvað landið njóta „virðingar og trausts”, hið seinna „harðskeyttur stjórn arandstæðingur“, er taldi „okk ur efnahagslega séð betur til þess fær en nokkru sinni að ráðast í ný verkefni”. Átti sendiherrann að lastmæla þjóð sinni? Nú veit hvert mannsbam í landinu, sem komið er til vits og ára, að eitt meginhlutverk sendiherra er að tala máli þjóð ar sinnar út á við og gæta heið urs hennar í hvívetna, Sendi- herra, er lastmælti stjórn sinni jafnvel þó að ástæða væri til, myndi þar með bregðast emb- ættisskyldu sinni. Af þessu leið ir, að sendiherra getur ekki sagt annað en gott eitt um land sitt og stjóm, jafnvel undir „viðreisn”. Hin hlið málsins er sú, hvað útlendingar skrifa um okkur eft ir upplýsingum héðan og eigin hugmyndum. Auðvitað forðast i sendiherrar og aðrir opinberir aðilar að draga upp eins dökka | mynd fjárhagsins og hún raun 1 verulega er. En þessu gegndi | öðru, þegar Bjarni Benedikts- son var í stjórnarandstöðu i tíð vinstri stjórnarinnar. Þá rituðu blaðamenn hans og erindrekar rógsgreinar um íslenzk málefni í crlend löð og endurprentuðu síðan ósómann i eigin blaða- kosti hér heima — eitt sýnis- horn þess, sem Bjami nefndi hina „hörðu“ stjórnarandstöðu. Seinna vitnið, sem ráðherr- ann tilfærði reyndist vera Magn ús Kjartanson. Má með sanni segja, að þar hafi Bjarai farið úr öskunni í eldinn, þvi að rit- stjóra Þjóðviljans hefur í Morg unblaðinu verið lýst sem af- skræmi jslenzkrar blaða- mennsku. Aðeins nokkrum dög um eftir áramótin var hann Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.