Tíminn - 15.10.1966, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.10.1966, Blaðsíða 8
8 TÍMINN LAUGARDAGUR 15. október 1966 MINNING HANNES JÓNSSON Staðarhóli Þann 6. júlí s.l. andaðist á sjukrahúsi Húsavíkur Hanr.es Jónsson bóndi á Staðarhóli í Aðal- dal 66 ára að aldri. Hannes var Mývetningur, frá Reykjahlíð, son- ui Jóns Einarssonar og Hólmfrið- ar Jóhannesdóttur konu hans. Hannes Jónsson var vaskur mað ur, skautamaður ágætur í æsku og iðkaði knattspyrnu og ileiri íþróttir, afburða verkmaður að hverju sem hann gekk og logaði jafnan af áhuga seint og snemma. Alls staðar blöstu við honum verk- efni, sem tóku hug hans fang- irm. Hann var umbótamaður, sem aldrei lá á liði sínu. En upp úr miðjum aldri kenndi hann van- heilsu og gekk þá undir skurðar- aðgerð, sem virtist bera árangur i bili. Þó ágerðist vanheilsa hans smátt og smátt, svo segja má að aldrei gengi hann heill að verki eftir það. Samt lét hann engan bilbug á sér finna við athafnir meðan hann mátti á fótum standa og lengur þó. Hann dvaldi lang- dvölum á sjúkrahúsum hin seinni ár, bæði í Húsavík og í Reykja- vík. En hugurinn var jafnan heima á Staðarhóli viðbundinn þau störf, sem þar kölluðu að, vini og vandamenn. Um tvítugt gekk Hannes í Eiðaskóla til Ásmúndar Guð- mundssonar, síðar biskups og' Benedikts Blöndal og Sigrúnar konu hans. Bar hann æ síðan þakklætishug til þess fólks, er þá réði ríkjum á Eiðum. Þar gat hann sér einnig góðan orðstír og var ráðinn bryti skólans um sinn, er skólagöngu lauk. Fastast var hugur Hannesar jafnan bundinn við búskap, bygg- ingar og ræktun. Um sinn stund- aði hann þó daglaunavinnu í Reykjavík og víðar, því rúm reyndist ekki fyrir hann heima í Reykjahlíð, þó sú jörð sé svo stór, að talin er stærsta jörð á j íslandi. Þar var þá f jölbýli og |enn fleiri býli eru þar nú, tvö I gistihús o.fl. o.fl. Um 1930 réð- ist það, að prestssetrinu, höfuðból inu Grenjaðarstað í Aðaldal var skift í 5 býli, 5 bújarðir. Sú saga verður ekki rakin hér. Og eng- an þátt átti Hannes í þeirri ákvörð un að skifta Grenjaðarstað. En forráðamenn hennar vissu af Hannesi, er þá var verkamaður í Reykjavík, og hversu efnilegur hann var til framkvæmda, þar sexn mikið þurfti að gera á stuttum tíma. Þeir buðu honum eitt hinna nýju býla. Það er að segja: að byggja upp eitt býli af 4 nýjum á Grenjaðarstaðartorfunni. Hann tók boðinu og mun hafa fundizt að þarna væri vettvangur fyrir sig, að reisa nýbýli við aðstæður, sem þarna voru fyrir hendi á margan hátt ákjósanlegar. Þá var hann kvæntur dugpiikilli og. mikilhæfri konu úr Borgarfirði syðra, Halldóru Magnúsdóttur. Það eru engar ýkjur að vel var höndum til tekið við uppbygg- ingu á Staðarhóli á árum eftir 1930. Fór þar saman ráðdeild og atorka ungu hjónanna. Aðaldælir sáu strax að engir amlóðar voru, er inn höfðu flutt í dalinn og vissu það þó raunar áður, því komu þeirra var almennt fagn- að, án (tiljit^tit. þess,. hTett skift- ing Staðárins " \'ár riíöritíiUm að skapi eða ekki. Forráðamenn Grenjaðarstaðarmálsins, sem var umdeild í héraði, höfðu sótzt eft- ir að fá Hannes. Þeir urðu fyrir engum vonbrigðum. Heimamenn fögnuðu nýjum bónda og dugmikl- um. Síðan þetta var er umliðinn liðlega aldarþriðjungur. Býlið Staðarhóll sýnir sig, húsin og tún- in. Hagsýni, bjartsýni og atorka einkenndu Hannes hvar sem hann fór. Hann var drengur góður, hjálpfús og fyrirgreiðslusamur, og Halldór Magmlsson vélvirki Akranesi í dag verður jarðsunginn frá Akraneskirkju Halldór Magnús- son, vélvirki, er andaðist í Sjúkra- húsi Akraness aðfaranótt 6. þ. m. eftir langvarandi og erfiðar sjúk- dómsþrautir, er hann bar með einstöku þolgæði og karlmennsku, þar til yfir lauk. Halldór var fæddur að Gerðum á Skarðströnd í Dalasýslu 4. júlí 1898, sonur hjónanna Halldóru Halldórsdóttur og Magnúsar Mar- teinssonar er þar bjuggu þá og síðar á fleiri bæjum þar í sýslu, unz þau fluttust að Búðardal, þar sem faðir Halldórs lézt. Kom þá í hlut Halldórs að veita heimilinu forstöðu, þó eigi væri nema 17 ára, og fór svo fram meðan móðir hans lifði. Frá því Halldór var um ferm- ingaraldur, stundaði hann sjo- mennsku, ýmist á seglskútum eða mótorbátum, og komst þá oft i krappan dans við Ægisdætur, þó eigi sé tóm til að greina frá þeim svaðilförum, þar sem oft mátti ekki tæpara standa, að heilum vagni yrði heim ekið. Árið 1922 fluttist Halldór að Bæ í Steingrímsfirði, en þar var þá fjölmennt myndarheimili og mikil umsvif. Fjórum árum síðar kvongaðist Halldór og gekk að eiga Iheimasætuna þar í Bæ, Matt- hildi Guðmundsdóttur, hina ágæt- ustu konu í sjón og raun. Kunni Halldór vel að meta þá miklu ham ingju, er honum þar féll í skaut,! en þó aldrei betur en í hinm' erfiðu sjúkdómsraun, síðustu ævi- árin. Þau ungu hjónin fluttu að Ham- arsbæli í Steingrímsfirði á vordög Framhald á bls. 12. svo áreiðanlegur og orðheldinn að af bar. Ádráttur frá hans hendi jafngilti loforði. Og svo var minni hans jafnan trútt og áreið- anleiki að aldrei vissi ég til að hlutir lentu í handaskolum hjá Hannesi vegna gleymsku, hvorki við símann né á örðum vettvangi. Á Staðarhóli hefur verið póst- hús og símaafgreiðsla fyrir stóran hrepp um langt árabil. Afgreiðsl- an hefur verið og er á vegum Halldóru. En oft unnu þau saman við símann, hjónin, eða til skift- is, þegar Hannes mátti við verk sitja hin seinustu ár. Stundum sat hann við símaborðið svo veikur að undrun sætti að hann skyldi við verk vera. En harkan við sjálf- an sig og áhuginn að verða að liði var frábær. Og á seinasta dægri áttf'hann þá þrá enn heit- asta að komast heim af sjúkrahús inu í Húsavík til að geta létt und ir með konunni við símastörfin þó ekki væri nema stund og stund. Jafnan var mikið að gera við símann á Staðarhóli og fer alltaf vaxandi. Lögákveðinn tími við af- greiðslu hrekkur hvergi nærri. Við Aðaldælir þökkum þeim Halldóru og Hannesi fyrir auka- störfin, yfirvinnuna og minnumst 30 ára samstarfs og samferðar með þakklæti. Börn Hannesar og Halldóru: Svandís starfsstúlka í Kristnesi, Sigríður húsfr. á Ólafsfirði, Hólm- fríður húsfr. í Húsavík, María hús- fr. á Staðarhóli. ' Bjartmar Guðmundsson. Dagur hver með skini og skúr- um skýjarofi, vöku og dúrum. Hverfur að tímans tjaldabaki með tapi, gróða og stímabraki. Hver einn bær á sína sögu, sólarljóð og raunabögu, glaða daga og daprar nætur draumagull og harmabætur. Maður er til moldar genginn miskunn kær við þrautum feng in kölluðu á þig kröfur nógar þó kæmir ekki heill til skógor Alla daga Ötull varstu æðrulaus til grafar barstu andstreymið og orkutapið, ekki settist það á skapið. Þri hefur lokið þínum störfum með þrautseigju og huga djörf- um. heimili með ráðdeild reistir, risastarf af höndum leystir. Á kveðjustund við þökkum þetta þér ég vildi hendi rétta. Minning þín í munar inni markar spor í framtíðinni. Þegar snemma á sumarkveldi sínum dreifir geisla eldi raðar hún að rekkju þinni rósabaug af mildi sinni. Þórólfur Jónasson. ÁRNI JÓNSSON bóndi Alviðru Fæddur 7. október 1880. Dáinn 6. október 1966. Þegar öðlingar hverfa af alfara-1 leið, , verður ömurleg byggðin og köld, því til vinar í nauðum er gatan svo greið, þar sem glaðværðin situr við | vöid. Dragi ský fyrir sól fara skuggar um ból. Nú er skarð eftir trygglyndan höid. Árni var fæddur að Torfastöð um í Grafningi, en fluttist á fyrsta aldursári að Alviðru. Hann var elztur ellefu systkina. Tveir dreng- ir dóu í bemsku. Þrjú systkin Árna eru enn á lífi: Auðbjörg, Halldóra og Þórður, bóndi í Vatns nesi. Vorið 1900 dó faðirinn, og á Þorra 1901 dó móðirin frá þessum stóra barnahópi. Tók þá Sigrún, dóttir Sigurðar bónda að Tanna- stöðum, að sér heimilið og gegndi þar húsmóðurstörfum alla sma tið með mikilli prýði, en hún andað- ist 10. maí s. 1. Ámi hóf búskap að foreidrum sínum látnum. Honum var jafnan gott til hjúa, því að han i var ágætur húsbóndi, glaður og skemmtilegur, ráðagóður og þó ráðþæginn. Þau Sigrún og Árni eígnuðust tvö börn, dreng, sem dó nýfæddur, og dóttur, Margréti, sem nú býr í Alviðru ásamt manni sírium, Magnúsi Jóhannessyni, og, annað- ist hún foreldra sína alla tíð með ástúð og umhyggju. , Þegar um fermingaraldur fór Árni til sjóróðra við Loftsstaða- sand og þótti þar hlutgengur í bezta lagi eins og jafnan síðar í Þorlákshöfn, og margar vetrar- og mrvertíðir var hann á skútum. Árai var meðal fyrstu manna í nágrenni sínu um að nota hesta- sláttuvél. Og síðan hefir Magnús tengdasonur hans, verið mjög fram sækinn um alla notkun véla við jarðyrkju og heyskap. Ámi var fyrstur áhugamanna og úthaldsbeztur um fiskirækt, og nutu fleiri vatnasvæði goðs af, eins og t. d. Svartá. Það var sá ágæti maður Þórður Flóventsson, er leiðbeindi Árna við byggingu fyrsta klakhússins. Alla tíð haiði Ámi brennandi áhuga á veiðimál- um og lagði í þau mikinn tima og fyrirföfn, svo lengi sem heils- an leyfði. Árið 1921 setti Ámi upp sjálf virka vatnsdælu (vatnshrút.i. sem síðan dældi öllu vatni heim í bæ og fjós um margra ára skeið. Var það mikill léttir, því að vatnsveg- ur var erfiður, ekki sízt i snjóa- vetrum. Nú hefir sjálfrennandi vatn verið leitt heim um allungan veg, og hefir sú ágæta vatnsveita leyst „hrútinn" af hólmi. Gestrisinn var Ámi með afbrigð um og tók sér jafnan tíma til að ræða Við gesti sína. Vel kmim hann sögur að segja og ojo yíir miklum forða sagna frá langri ævi. því að minnið var íraust. Eitthvað mun hann hafa fært í letur af við- burðum frá eldri tímum. Örnefni jarðar sinnar hafði hann skráð og kortlagt. Gaman var að heyra hann mæla af munni fram langa kvæðabálka t. d. eftir Grim Thom- sen og Einar Benediktsson. Sjálf- ur gat hann vel ort, þó að ekki léti hann á því bera. Yndi hafði Árni af sönglist, og munaði mikið um, er hann tók undir söng með sinni breiðu og hljómmiklu rödd. Ámi var jafnan ungur í anda, og allt frá æskudögum var hann lífið og sálin í ungmennafélags hreyfingunni og lengi formaður í Ungmennafélaginu Skarphéðinn í Ölfusi. Mikill áhugamaður var hann um íþróttir, ekki sízt glímu og sund. Hann var líka röskur sundmaður og synti oft yfir Sogið Á unglingsárum sínum ferjaði hann margan manninn yfir Sogið. áður en brúin kom. Nú hefir hann sjálfur verið fluttur yfir móðuna miklu að loknu löngu og marg breytilegu dagsverki við fjöll og sæ. Og „Guð í hjarta, Guð í stafni gefur fararheill." S.E.H. JÓN JÓNSSON bóndi á Syðri-Húsabakka Hann lézt að heimili sínu að- faranótt hins 6. sept. s. 1. , tæpra 78 ára að aldri. Gekk til hvílu hress og glaður að kvöldi, var örendur að morgni. Slíkt er iðju- mönnum gott og raunar öilum þeim, sem eigi eru vanbúnir að heiman. Og Jón á Húsabakka var ekkert að vanbúnaði. Hann stóð tygjaður til farar. Svo skjótráðin heimanför er að vísu ávallt harms- efni þeim, sem næstir standa. Og enda þótt mikið þrek væri þorrið og líkamleg heilsa stæði á völtum fæti síðustu árin, bjóst enginn við svo skyndilegu fararkalli. En þá er gott að minnast þess, að það má vera ærin raun hverjum manni, og mikium eljumönnum eigi sízt, að eyða tímanum í það eitt að bíða eftir kallinu, sem koma hlýtur. Við Jón á Syðri-Húsabakka vor- um næstu nágrannar í meir en 40 ár, sinn á hvorum bakka Héraðs vatna, og standast bæirnir á. Og enda þótt Vötnin séu alltaf vatns- mikil og sem hafsjór yfir að líta í vorflóðum og vetrar, þá torvelda þau ekki að ráði samgang og sam- skipti milli þessara heimila: — ís að jafnaði á vetrum, endranær ferja og oft daglegar ferðir á milli. Farið er og á hestum og ekki fengizt um, þótt fljóti yfir á stund um. Er þar skemmst af að segja, að betri nágranna en Jón a S.vðri- Húsabakka og fjölskyldu hans get ég naumast hugsað mér. Gestrisn- in, ljúfmennskan, greiðviknin svo frábær, allt, sem hægt var að gera manni til geðs og þægðar svo eðli- legur og sjálfsagður hlutur, að ná- lega gleymdist, að þetta var ‘ou? Framhaid á bis. 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.