Tíminn - 15.10.1966, Blaðsíða 13
LAiUGARDAGUR 15. októ^er 1960
MlBilÍÆil TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
Landsliðsnefndin
ófús að velja lið
- en mun velja SV-úrval til að firra vandræðum
Jakob — línumaður hjá Ármanni — í skotfæri á móti ÍR. Tekst Ármenn
ingum að skora mörg mörk af línu í kvöld?
o
Fýrsti leikur Arhus
luugurdulshöllinni í
Alf-Reykjavík. — Danska hand-1 sem styrkja lið sitt með lands- j
knattleiksliðið Árhús KFUM var liðsmanninum úr KR, Karli Jó-1
væntanlegt til landsins í gær- liannssyni.
bvöldi, og í kvöld á liðið að leika Hefst leikurinn strax að lokn
sinn fyrsta Ieik. Mætir það gest- um forleik á milli Hauka og ungl-
gjöfum • sínum, Armenningum, | ingalandsliðsins, en sá leikur hefst
Alf—Reykjavík.
Er íþróttasíSan hafði tal af
Sigurði Jónssyni, formanni
landsliðsnefndar Handknatt-
leikssambands íslands í gær
i
ag spurði hann, hvort nefndin
væri búin að velja tilraunalið-
ið, sem á að mæta Árhus KF-
UM á mánudagskvöld, sagði
hann, að svo væri ekki, og að
KFUM
kvöU
klukkan 20.15. Á morgun leika
Danimir svo gegn íslandsmeistur-
um FH, en þriðji og síðasti leik-
urinn verður gegn tilraunalands
liði á mánudagskvöld.
Framhald á bls. 12
landsliðsnefnd væri ófús að
velja liðið.
„Við höfum verið beðnir að
velja landslið, en það er ekki beint
'gimilegt, þar sem keppni hand-
knattleiksmanna er enn ekki haf
in, og vitum við þar af leiðandi
ekki, hvaða leikmenn eru sterkast
ir í dag. Til að firra vandræðum
hefur nefndin þó ákveðið að velja
liðið að loknum leik FH og Árhus
KFUM á sunnudagskvöld. En ég
vil endurtaka, að við emm ófúsir
að gera þetta, enda rennum við
blint í sjóinn með valið“, sagði Sig'
urður.
Já, landsliðsnefnd er ekki beint
öfundsverð af hlutverki sínu í
þetta skipti. Aðstæðurnar eru
mjög óvenjulegar, því fátítt er,
að erlend handknattleikslið komi í
heimsókn rétt áður en keppnis-
Aðalfundur
Aðalfundur Körfuknattleiksráðs
Reykjavíkur verður haldinn í
fþróttamiðstöðinni í Laugardal
laugardaginn 22. október og hefst
klukkan 14. Venjuleg aðalfundar-
stöif.^^Stjórnin.---------
tímabilið byrjar. Vegna Armanns,
Framhald á bls. 12
Tveir úr-
sliialeikir
Um helgina verða háðir,
tveir úrslitaleikir í 2. ald
ursflokki í knattspyrnu. I
dag, kíukkan 16,30 mætast
Fram og KR í aukaúrslita
Ieik í Reykj avíkurmóti. Fer
leikurinn fram á Háskóla
velli. Fram var búinn að,
sigra í þessu móti, en síðar
kom fram kæra frá KR á
hendur Víking fyrir að nota*
of unga leikmenn í leik á
móti KR — Víkingur vaun
leikinn — en KR kæruna,
og eru því Fram og KR með
jafnmörg stig.
Þá fer fram á morgun,
sunnudag, leikur á mil’i
Fram og Vals í haustmóti
2. fl. a. Nægir Fram jafn
tefli til að sigra í mótinu.
Leikurinn fer fram á Vals
velli og hefst kl, 10 f.h.
Hvaða tvö 115 mætastí úrslitum?
Undanúrslit Bikarkeppni KSÍ um helgina. - Valur og Þróttur leika í dag
Alf—Reykjavík.
Hvaða tvö liS mætast í úr-
slitum Bikarkeppni KSÍ? Svar
Wð þessari spurningu fæst um
tilbúin fyrir æfingar
og enn verða íjiróttamenn að bíða
helgina því þá leika liðin í hefst klukkan 14.30. Síðari
undanúrslitum saman. Fyrri leikurinn er á morgun á Njarð
leikurinn er í dag, leikur Vals víkurvellinum á milli Keflvík-
og Þróttar á Meiavellinum, og inga og KR og hefst klukkan
115-
Telja verður Valsmenn sigur-
stranglegri á móti fallliðinu Þrótti
sem ekki hefur sýnt nægilega mik
inn baráttuvllja í leikjum sumars
ins. Að vísu gekk Val ekki of vel
með Þrótt síðast þegar liðin léku
og vann naumlega 1:0. Og eftir
því, sem íþróttásíðan veit bezt
verða liðin að mestu leyti skipuð
sömu leikmönnum og léku í síð-
ustu leikjum.
Það er svo á sunnudaginn, sem
Íþróttahöllin í Laugardal er
ekki ennþá tilbúin fyrir æfing
ar íþróttamanna, þó svo, að
byrjað verði að leika í henni
nú um helgina. Getur svo far
ið, að íþróttamenn vcrði að
bíða til mánaðamóta, og jafn
vel lengur, áður en höllin
kemst að fullu í gagnið, þ.e.
verði notuð jafnhliðá til keppni
og æfinga.
Búizt hafði verið við, að æf
ingar gætu hafizt í þessari viku
en vinna við höllina hefur geng
ið hægt, enda ekki nema fjór
ir menn, sem unnið hafa við
hana að undanförnu. Er eftir
að Iagfæra ýmislegt við böð
in — og einnig eftir að koma
ýmsum áhöldum við hliðarlín-
ur í salnum fyrir.
Margir íþróttamenn hafa
hringt til blaðsins að undan
förnu, og spurzt fyrir um það,
hvenær höllin verði opnuð fyr
ir æfingar. Eru íþróttamenn
greinilega orðnir langþreyttir
á biðinni. En þótt höílin verði
fljótlega tilbúin fyrir æfing
ar, þá er ýmislegt ógert. Eftir
er t.d. að koma fyrir sætum
handa áhorfendum. Er ekki fyr
irsjáanlegt, að sá „luxus“, verði
fyrir hendi á vetri komanda.
Finnst sumum sem óþarflega,
lík vinnubrögð séu viðhöfð við
íþróttahöllina og aðra stór-
byggingu í Fossvogi, sem fræg
er að endemum.'
Að lokum má svo bæta þvi
við, að æfingar í Hálogalandi
geta hafizt strax eftir helgina.
I — alf.
Bikarkeppni
í körfuholta
um helgina
í sumar hefur farið fram bik
arkeppni í körfuknattleik á veg
um Körfuknattleikssambands ís
lands. Úrslitamót þessarar
keppni fer fram hér í Reykjavík
næstkomandi helgi 15. og 16. okt.
á Hálogalandi og hefst báða dag
ana kl. 5. Liðin sem eru í úr
slitakeppninni eru Snæfell frá
Stykkishólmi, Þór frá Akureyri,
íþróttafélag Keflavíkurflugvallar
og KR sem sigraði Ármann i út
slitaleik Reykjavíkurriðils með 50
stigum gegn 37, en Ármann var
sigurvegari í þessari keppni á sl.
ári. f keppni þessari leika aðeins
B-liðsmenn 1. deildarféiaganna.
Keflavík og KR leika. Svo getur
farið, að nokkur forföll verði í
báðum liðum. Óvíst er, að Guon-
ar Felixson leiki með KR, en hann
er um þessar mundir staddur er-
lendis og ekki væntanlegur fyiT
en eftir helgi. Hjá Keflavík vant
Framhald á bls. 12
Glímumenn Víkverja á landsmótinu að Laugarvatni.
Glímuæfingar Víkverja
Glímuæfingar eru þegar hafnar
á vegum Ungmennaf. Víkverja.
Kennslan fer fram í íþróttahúsi
iJóns Þorsteinssonar við Lindar
götu.
Kennt er á mánudögum og
föstudögum kl. 19—20 og á laug
ardögum frá kl. 17.30—18.30.
Aðalkennari er Kjartan Berg
mann hinn velþekkti kennari og
giímukappi og auk hans Skúli Þor
leifsson fyrrverandi glímukappi
íslands og Sigurður Sigurjónsson
glímukappi.
Félagið hvetur unga menn að
sækja æfingar félagsins, til þess
að læra og þjálfa þessa þjóðar
íþrótt.
Ennfremur skal þess getið, að
ungmennafélögum utan af landi
er velkomið að sækja æfingar hjá
félaginu.