Tíminn - 15.10.1966, Side 14

Tíminn - 15.10.1966, Side 14
14 TÍMINN LAUGARDAGUR 15. október 1966 SAMÞYKKTIR A ÞINGI SJðMANNASAMBANDSINS 5. Í»ing Sjómannasambands ís- lands var haldiS í Reykjavík dag ana 1. — 2. okt. og mættu til þings 28 fulltrúar frá 6 aSildar- félögum, auk áheyrnarfulltrúa. Jón: SigurSsson var einróma end urkjörinn formaSur til næstu 2ja ára og meðstjórnendur Magnús Guðmundsson, Felli, Garðahreppi Guðlaugur Þórðarson, Keflavík, Hilmar Jónsson, Reykjavík, Sig- ríkur Sigríksson, Akranesi, Krist ján Jónsson, Hafnarfirði og Pétur Sigurðsson, Reykjavík. Þingið gerði ýmsar samþykktir, þ.á.m. tilmæli til ríkisstjórnarinn ar, að ekkj verði leyft að byggja fleiri sildarverksmiðjur, nema í samráði við samtök sjómanna. Þá vill þingið láta endurskoða gildandi bátakjarasamninga, og þá sérstaklega eftirtalin atriði: 1. Að hlutaskiptin verði athuguð og*þá sérstaklega á bátum af stærð inni 30—50 smálestir. 2. að krafan um frítt fæði skip- verja á bátum verði borin fram og henni fylgt fast eftir. 3. að kauptrygging hækki. 4. að slysatrygging verði hækK uð að mun og verði jafnhá trygg- ing fvrir alla sjómenn, burtséð frá því, hvaða þátt sjómennsku þeir stunda. 5. að ákvæði um sumarleyfi síld arsjómanna verði komið inn í síld veiðisamninga í svipuðu formi og um gat í orðsendingu Sjómanna- sambandsins frá 19. maí 1965. 6. að hlutaskipti verði hækkuð til áhafnar á þeim síldveiðibátum, er ekki hafa aflað sér hinna nýju kraftblakka og nýjustu síldarleita tækja. Utn aukinn skatta- og útsvarsfrá- drátt fyrir fiskimenn: Þingið felur væntanlegri stjórn sambandsins enn á ný að vinna að því, að fiskimenn fái aukinn frá drátt við álagningu skatts og út- svars og bendir á, í því sambandi, að eðlilegast sé, að skattar verði teknir jafnóðum af tekjum. Um netafjölda í sjó. Þingið telur að nauðsynlegt sé að reynt sé með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir, að bát ar séu með fleiri net í sjó en heim ilt er skv. gildandi reglugerð. Felur þingið því væntanlegri sambandsstjórn að beita sér fyrir því að reglugerðin sé endurbætt og gerð skýrari og ákveðnari en hún er varðandi heimilaðan netafjölda og ákvæði sett í reglugerðina um stór viðurlög og sektir ef útaf er brugðið. Um férskfisksmat. 5. þing S.S.Í. ítrekar samþykktjr síðasta þings sambandsins um kröfu um að matið sé framkvæmt um leið og fiski er landað og gerir kröfu til að matið sé framkvæmt í affermiijgarhöfn en sé það ekki gert, telur þingið að sjómenn eigi að gera kröfu til að allur aflinn sé reiknaður á verði 1. flokks. Þá telur þingið nauðsynlegt að sami matsmaður sé ekki lengi í sömu verstöð heldur sé þeim skipt frá einni verstöð til annarrar eflir vissan tíma eftir því sem unnt er. Um viðgerðarmenn síldarleitar- tækia. Þingið felur væntanlegri sam- bandsstjórn að vinna að því við sjávarútvegsmálaráðuneytið og aðra aðila, að á síldarleitarskipun um svo og síldarflutningaskipun um verði staðsettir menn er geti annast viðgerðir á síldarleitartækj um svo og öðrum nákvæmum tækj um veiðiskipanna svo þau þurfi ekki að sigla til hafnar, oft lang ar leiðir til að leita viðgerða og það jafnvel þótt um smábilanir sé að ræða. Ályktun samtaka sveitarfélaga í Austfjarðarkjördæmi: Hugmynd um sameiningu sveitarfélaga er tímabær Á stofnfundi Samtaka sveitarfé- laga í Austfjarðakjördæmi sem haldinn var í Neskaupstað 8. og 9. október s. I. var rætt um samein- ingu sveitarfélaga. Var einkum- fjallað um möguleika á breyting- um hreppamarka og sýslumarka á Austurlandi og framtíðarskipan sveitarstjórnarumdæma í fjórð- ungum. Erindi héldu um málið Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri, Nes kaupstað og Unnar Stefánsson, viðskiptafræðingur, sem báðir eiga sæti í Sameiningarnefnd sveitarfé- laga. Kosnir voru fimm menn í nefnd til að ræða málið milli funda, og varð nefndin sammála um að gera tillögu að svofelldri ályktun, seni hlaut einróma samþykki fundar- ins: „Stofnfundur Samtaka sveitarfé- laga á Austurlandi, haldinn í Nes- kaupstað 8. og 9. október 1966, lýsir stuðningi við hugmyndina um stækkun sveitaríélaga og tel- ur tímabæra þá athugun, sem nú fer fram í „Sameiningarnefnd sveitarf élaga“, stj ómskipaðri. Fundurinn telur þó fráleitt að sameina núverandi sveitarfélög með valdboði, heldur verði það að gerast með fullu samþykki við- komandi aðila. Fundurinn telur eðlilegt, , vegna gerbreyttra sam- gangna og þjóðfélagshátta, að taka til endurskoðunar núgildandi laga ákvæði um héraðsstjórn, með það fyrir augum, að núverandi kjör- dæmi verði gerð að héraðsstjórn- arumdæmum með meira sjálfsfor- ræði og fjárráðum en sýslufélög- in hafa nú“. (Frá Samtökum sveitarfélaga í Austf j arðakjördæmi). AÐALFUNDUR DANS- KENNA RA SA MBA NDSINS Aðalfundur Danskennarasam- bands íslands var haldinn fyrir | nokkru. Félagið starfar í eftirtöld- j um deildum: Ballett, Samkvæmis-! og barnadönsum. Þeir einir geta; orðið meðlimir félagsins, sem lok- ið hafa viðurkenndu innlendu eða erlendu kennaraprófi í einhverj- um af framantöldum greinum. Tilgangur félagsins er: a. Að efla og samræma dansmenntun í landinú. b. Að gæta. hagsmuna fé- lagsmanna út á við ög inn á við. c. Að efla stéttvísi meðal dans- kennara. d. Að koma í veg fyrir að rétþir félagsmanna sé fyrir borð borinn í atvinnumálum. e. Að auka dansmenntun félags- manna. Eftirtaldir skólar starfa undir merki . Danskennarasambands ís- lands: Ballettskóli Eddu Scheving, Ballettskóli Katrínar Guðjpnsdótt- jur, Ballettskóli Sigríðar Ármann, j Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar, i Dansskóli Hermanns Ragnars, ; Danssk'óli Sigvalda og Listdans- skóli Guðnýjar Pétursdóttur. Fundurinn lýsti ánægju sinni yfir því, hve skólastjórar barna- skólanna hefðu tekið vel í þá ný- breytni, sem D.S.Í. kom á fram- færi, en það er danskennsla 12 ára barna í skólum. Kennarar D. S.í. hafa s. 1. vetur kennt í þeim skólum, sem um slíka kennslu hafa beðið, og eru mjög ánægðir með árangurinn. Hins vegar væri æskilegt, að forráðamenn skólanna sæju sér fært að útvega fullkom- ið húsnæði fyrir slíka starfsemi. Þrjár umsóknir bárust um upp- töku í félagið. Tveir umsækjenda, þau Jónína Karlsdóttir og Sigvaldi Þorgilsson, uppfylltu skilyrði um inntöku í D.S.Í., og voru þau því tekin inn í félagið. Samþykkt var að bjóða fyrrver- andi danskennurum inngöngu í félagið sem áhugafélagsmönnum. Fundurinn iýsir óánægju sinni yfir því, að fluttir hafa verið inn erlendir kennarar, án þess að þeir legðu fram vottorð um raunveru- lega getu í dansi. Jafnframt vill fundurinn þakka þann skilning, sem félagsmálaráðherra hefur sýnt málefnum félagsins. Fundurinn lýsir óánægju sinni yfir því, hve lítið heyrist og sést frá Listdansskóla Þjóðleikhússins. Stjórn félagsins skipa: Edda Scheving, Heíðar Ástvaldsson, Hermann Ragnar Stefánsson, Ingi- björg Björnsdóttir, Sigríður Ár- mann. Þingið minnir á fyrri samþykkt ir sínar um áskorun þess efnis að 1 samráði við sjómannasamtökin verði ráðnir í það minnsta tveir menn til skipaeftirlitsins er Itafi það verkefni að framkvæma skyndiskoðanir í skipum, sérstak lega með það í huga að hafa eftir lit með því að öll öryggistæki séu í því lagi er lög og reglur mæla fyrir um. Hleðsla síldarskipa. 5. þing S. S. í. skorar á sKipa eftirlit ríkisins að fylgja fast eftir reglum um hleðslu síldarskipa og krefst þess að mál sem rísa vegna ofhleðslu verði tafarlaust tekin til dóms af þar til skipuðum dómstóli og vítir harðlega þann drátt, sem orðið hefir á rekstri þeirra mála. Þá vill þingið benda á, að mjög tímabært er orðið að eftirlit sé haft með sjóbúnaði þeirra skipa, sem láta úr íslenzkum höfnum, það er að frá lestaropum sé geng ið tryggilega svo og þilfarsfarmi. / Sjómannastofur. 5. þing S. S. í. beinir þeim til mælum til borgaryfirvaldanna í Rvík, að þau beiti sér fyrir bygg ingu sjómannastofu og verka mannaskýlis á athafnasvæði liinn ar nýju Sundahafnar í Reykjavík, og framkvæmdir hefjist það fljótt, að hún geti tekið til starfa notkun. Þá skorar fundurinn á um leið og höfnin verði tekin 1 Sjómannasamband íslands og Far manna og fiskimannasamband ísl. að stuðla að því sameiginlega að komið verði upp Sjómannastofu í stærstu síldarmóttökustöðvunum á Austurlandi svo og Vestrnanna eyjum og víðar, þar sem mörg skip og eða hafa viðlegu. Þá vill þingið þakka hafnarstjórn Reykjavíkur fyrir framkvæmdir um landganga við togarabi-yggjurn ar en bendir á að eins þarf að gera við þær bryiggjur sem báta flotinn liggur við í höfn. RÚSSAR Framhald af bls. 1. sínar fyrr en geimfarið er komið öugglega á braut umhverfis jörðu. En ef fréttirnar í dag reynast réttar, er svo mikið víst, að So- vétríkin taka þá aftur frumkvæð- ið í geimvísindunum. Nítján mánuðir eru nú liðnir frá síðustu geimferð sovézkra geimfara, en þá var fyrsta „geim- ganga“ sögunnar framkvæmd. Frá þeim tíma hafa afrekin verið Bandaríkjanna megin. Geimför þeirra hafa farið lengra út én nokkru sinni áður, „stefnumót" hafa átt sér stað úti í geimnum o.s.frv. Samkvæmt fréttunum frá Moskvu virðist sem svo, að Sovét- ríkjunum þyki Bandaríkjamenn nú nóg hafa gjört og hyggist taka af þeim frumkvæðið. Er talið, að geimstöðin verði fyiárrennari lendingarpalls úti í -geimnum, sem geimför á leið til tunglsins gæti notað til millilend- ingar. Allar tilraunir Sovétríkj- anna I seinni tíð, virðast benda til þess, að þeir stefni næst að tungl- ferð. Að því er fregnina frá Madrid varðar, vakti frásögn dr. Oleg Gaz enko, um að læknir yrði sendur með næsta geimfari, mesta at- hygli. Sagði Gazenko, sem er sér fræðingur á þeim sviðum læknis- fræðinnar, sem sérstaklega revn- ir á í geimfcrðum, að sending sérmenntaðs læknis með geimfari gæti haft gífurlega þýðingu vavð- andi upplýsingar um ýmis líf- fræðileg atriði í sambandi við geimferðir. Björn Sveinbjörnsson, hæstaréttarlögmaður LögfræSiskrifsrofa Sölvhólsgötu 4, Samhandshúsmu. 3. hæ3, Símar 12343 og 23338. HÚSB Y GGJENDUR Smíðum svefnherergis- og eldhúsinnréttingar. SÍMI 32-2-52. Jón Eysteinsson, lögfræðingur. Lögfræðiskrifstofa Laugavegi 11, sími 21916. jSo'FiXl'L Saffr. Skagfirðingar. Haustmót Framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið 29. októ- ber að Bifröst, Sauðárkróki. Nán- ar auglýst síðar. Tilkynning frá SUF vegna 11. sambandsbings SUF Eins og áður hefur verið auglýst verður 11. þing Sambands ungra Framsóknarmanna haldið í Tjarnarbúð í Reykjavík dag- ana 28. til 30. okt. n. k. Samkvæmt 14. gr. laga SUF kýs hvert sambandsfélag einn fulltrúa á þingið, og síðan einn fyrir hverja 20 félagsmenn- Fulltriíatala miðast við síðustu félagsmanna- skýrslu til sambandsstjórnar. Sanibandsráðsmcnn eru sjálf- kjörnir á þingið. Stjórn SUF vill hérmeð beina því til stiórna sambandsfélaganna um allt land að senda félagsmannatal til stjórnar SUF og tilkynna kjör fulltrúa á sambandsþingið hið fyrsta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.