Vísir - 25.09.1975, Qupperneq 1
vism
65. árg. — Fimmtudagur 25. september 1975 — 218. tbl.
Reiðubúinn að felo - „seg!r
■ ,, . r | B,r9W
sakadomi rannsokn isieifur
Borgarstjóri, Birgir ísleifur
Gunnarsson, lýsti yfir þvi á
fundi með fréttamönnum i
gær, að hann væri reiðubiíinn
tilþess að fela sakadómi rann-
sókn Armannsfellsmálsins, ef
ekki næðist samkomulag I
borgarráði um skipun rann-
sóknarnefndar.
Borgarstjóri sagði ennfrem-
ur i þessu sambandi, að hann
teldi þá eðlilegt, að flutnings-
maður tillögunnar um rann-
sóknarnefndina gerði grein
fyrir, hvaða atriði það væru,
sem hann teldi leiða þyrfti
fram i dagsljósið. Flutnings-
maöur tillögunnar var Björg-
vin Guðmundsson. —ÞP.
„Málið verður rannsakað,
þá kemur hið rétta í Ijós"
HANN VAR
OFGÓÐUR
— Áhorfendur köstuðu bjórdósum og
peningum ó eftir íslenzkum íþrótta -
manni í Þýzkcilandi
— sjó íþróttafréttir í opnu
Hjólparsveitir
skóta margborga
ríkinu styrkinn
— sjó frétt bls. 3
Barnsfaðernis-
málin eru
viðkvœmust
— viðtai við Erlu Jónsdóttur fuiltrúa
í Sakadómur Reykjavíkur
Kennslukonur eru frábœrar,
- sjá
bls.
10
en barneignafríin geta valdið
ýmsum erfiðleikum
— sjá bls. 7
ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Atti að myrða
Jack Anderson?
— sjá erlendar fréttir bls. 4-5
— segir Albert Guðmundsson um Ármannsfellsmálið
Byggingafélagið Ármannsfell
lagði eina milljón króna f hús-
byggingarsjóð Sjálfstæðisfiokks-
ins. Albert Guðmundsson,
borgarfulltrúi, formaður hús-
byggingarnefndar Sjálfstæðis-
hússins, kom á framfæri nokkru
seinna, að Ármannsfeli fengi út-
hlutað lóð á svæði, sem skipulagt
var sem „grænt svæði”, þ.e. ekki
átti að byggja á þvf. Ármannsfell
fékk lóðina.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi Birgis ísleifs Gunnarssonar
borgarstjóra i gær.
Vfsir ræddi við Albert Guð-
mundsson i morgun, og spurði
hann, hvort hann teldi, að ein-
hverri sök hefði verið varpað á
hann með framkomnum upplýs-
ingum á fundi borgarstjóra
„Ég visa þessari spurningu til
upphafsmanna þessa máls,
Daviðs Oddssonar, borgarfull-
trúa, sem bar fram spurningar
um málið á flokksfundi borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og
bar fyrir sig Þorstein Pálsson,
ritstjóra Visis, sem heimildar-
mann. Það þarf að koma i ljós
hvaðan upplýsingar komu. Málið
verður rannsakað, og þá kemur
hið rétta i ljós”.
1 Timanum i dag er varpað
fram þeirri spurningu, hvort
Eimskipafélag Islands hafi lagt
fram fé i húsbyggingarsjóðinn.
Hafi Eimskip fengið stórar lóðir
við Sundahöfn, og að lokum eina,
sem rætt hafi verið um að Hafskip
ættiaðfá. Um þetta sagði Albert:
„Eimskip hefur ekki lagt fé i
Sjálfstæðishúsið”.
Albert vildi ekki láta hafa
meira eftir sér. Hann vildi hvorki
svara spurningum um ákveðna
efnisþætti Ármannsfellsmálsins
né útskýra, hvað væri „rétt” i
málinu. Hann sagðist vilja rann-
sókn á málinu, hvort sem hún
væri framkvæmd af Sakadómi
eða nefnd borgarráðs. Hann sagði
að byrja þyrfti að rannsaka upp-
haf málsins, áður en meira yrði
sagt.
Visir bar yfirlýsingu Alberts
undir Þorstein Pálsson ritstjóra.
Hann sagði:
„Vegna þessarar yfirlýsingar
Alberts Guðmundssonar þykir
mér rétt að taka fram, að ég á
ekki hlut i byggingarfélaginu Ár-
mannsfelli, og var þvi á engan
hátt upphafsmaður að milljón
króna gjöf þess 1 byggingarsjóð
Sjálfstæðishússins. Albert vikur
hér að upplýsingum, sem Sveinn
R. Eyjólfsson, einn af aðaleigend-
um Ármannsfells, veitti mér að
fyrrabragði i persónulegu sam-
tali fyrr i sumar.
Þessar upplýsingar voru þess
eðlis, að ég innti Davið Oddsson
borgarfulltrúa eftir þvi, hvort
þær kynnu að hafa við rök að
styðjast. Eftir þvi sem mér skilst,
bar Davið fram fyrirspurnir af
þessu tilefni til Alberts sjálfs á
lokuðum fundi i borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna. Hér var
um að ræða persónuleg samtöl og
trúnaðarfund, að því er ég bezt
veit.”
Leikir barna geta oft ve.rið óhugnanlega raunverulegir. Loftur
Asgeirsson, ijósmyndari Vísis, rakst á nokkra stráka i strfðsleik og
má sjá árangurinn á siðu 9. Hvers konai eftirlikingar striðs- og
drápstækja eru seldar i ieikfangabúðum, og unga fólkið tekur sér til
fyrirmyndar „hetjurnar” úr bió-og sjónvarpsmyndunum. —Leikir
þeirra verða stunduin svo raunverulegir, að erfitt verður að greina
ieikinn. — Hverjum má svo þakka fyrirmyndina^Þeim sem eldri
eru og „þroskaðri”.
Tíminn bendlar Eimskip
og tvö önnur fyrirtœki
við húsbyggingarsjóð
Sjálfstœðishússins
1 feitletraðri frétt i morgun i
Timanum er gefið i skyn, að
Eimskipafélag tsiands, Hús
verzlunarinnar og Trygging
hf. hafi greitt i húsbyggingar-
sjóð Sjdlfstæðisflokksins. Að
visu eru notuð mörg spurn-
ingarmerki. Höfundur fréttar-
innar, Helgi H. Jónsson, telur,
að öll þessi fyrirtæki hafi feng-
ið fyrirgreiðslu, sem undar-
leg; verði að telja.
Vísir hafði i morgun sam-
band við Eimskipafélagið, en
forstjóri þess, Óttarr Möller,
er erlendis og einnig stjórnar-
formaður Halldór A. Jónsson.
— Hjá Tryggingu hf. var sagt,
að þessi frétt væri ekki svara-
varð. —AG—
— ÓH.