Vísir - 25.09.1975, Blaðsíða 19
Vísir. Fimmtudagur 25. september 1975
19
Útvarp, kl. 16,25, föstudag:
Ný diskóteklög
fró Bandoríkjunum
— í Popphorni Vignis Sveinssonar
„Þetta er svona hálfgert
framhald af þættinum sem ég
var með siðast. Ég kynnti þar
ný lög frá Bandarikjunum og
held þvi áfram i þessum þætti.”
Þetta sagði Vignir SveinssoiT,
umsjónarmaðurPopphornsims i
útvarpinu á morgun. Vignir
spilar diskótek-lög frá Banda-
rikjunum, sem eru mjög vinsæl
þar en hafa litið og jafnvel ekk-
ert heyrzt hér á landi.
„Ég verð áfram með þáttinn i
vetur,” sagði Vignir aðspurður.
„Mér skilst að poppþættirnir
verði með svipuðu sniði og á
sömu tlmum og þeir hafa verið
hingað til,” bætti hann við.
Popphornið hefst klukkan
Vignir Sveinsson verður áfram umsjónarmaður Popphornsins I vet- fimm minútur I hálf fimm i dag.
ur. — EA.
Útvarp, kl. 20,30:
„Nógrannakvenna-
spjall" í sóíbaði!
„Það er létt yfir þessu leikriti,
og þóég segi sjálf frá held ég, að
það sé nokkuð skemmtilegt að
hlusta á það,” sagði Asa
Sólveig þegar við höfðum sam-
band við hana.
Asa Sölveig er höfundur
leikrits þess sem flutt verður i
útvarpinu I kvöld. Leikritið
heitir „Ef ekki i vöku, þá i
draumi.”
1 þessu leikriti á sér stað ,,ná-
grannakvenaspjall”. Það gerist
að mestu leyti I sólbaði og við
hlustum á þrjár konur rabba
saman, þær Ellu, Ástu og þá
nýfluttu.
Þegar á liður fara ýmsir
hlutir að gerast, sem spilla hinni
ágætu sambúð þessara kvenna.
Auk þeirra kemur „krakki”
fyrir i leikritinu.
„Uppkastið gerði ég fyrir
næstum tveimur árum en
skrifaði leikritið að mestu leyti I
sumar,” sagði Asa Sólveig
okkur.
Þetta er fjórða leikritið sem
flutt er eftir hana. Tvö hafa
verið sýnd i sjónvarpi og þetta
er annað leikritið sem flutt er i
útvarpi. Það fyrra sem flutt var
1973 heitir Gunna.
, ,Ég hef vanizt þessari
vinnuaðstöðu alla tið,” svaraði
Ása Sólveig þegar við spurðum
hana hvort ekki væri erfitt að
skrifa með húsmóðurstarfinu.
Hún gat þess að leikritið „Ef
ekki I vöku, þá f draumi” væri
ekki skrifað I óskaplega raun-
sæjum dúr eins og hennar er
vandi, heldur fengi imyndar-
aflið að ráða meiru.
Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir,enleikendur Guðrún
Asmundsdöttir, Sigriður Þor-
valdsdóttir, Kristbjörg Kjeld og
Þór Eldon Jónsson.
En ef von á fleiri leikritum frá
höfundi?
„Ég er með eitt stórt verk i
smlðum, sem mig langar að
koma á svið, en það verður
kannski eilifðarverk....!”
Útvarp, kl. 21,45:
Hafið þið heyrt Ijóð
eftir Tove Ditlevsen?
Þeir eru áreiðanlega fáir, sem
ekki þekkja nafn skáld-
konunnar dönsku Tove
Ditlevsen. Þó ekki hafi verið
gefnar út hér á landi nema tvær
skáidsögur hennar, Gift og
Gata bernskunnar, hefur það
liklega verið nóg til þess að
vekja athygli okkar á henni.
Tove hefur sjaldan valdið jafn
miklum úlfaþyt og með bók
sinni Gift. Þar segir hún
hreinskilnislega fra ævi sinni
sftir að hún gekk i fyrsta hjóna-
and sitt.
Þauurðu fleiri. 1 þriðja hjóna-
band sitt gekk Tove vegna
einnar Pethidin-sprautu. Eftir
það varð hún forfallinn eitur-
lyfjaneytandi sem rétt tókst að
bjarga.
Með hjálp fjórða eiginmanns
sins náði hún sér aftur á réttan
kjöl en löngunina i eitrið segir
hún aldrei hverfa.
En Tove hefur margt annað
skrifað og látið frá sér fara og
þá ekki sizt ljóð. 1 útvarpinu i
kvöld er þáttur á dagskrá sem
heitir „Ljóðalestur.”
I þessum þætti les Helgi J.
Halldórsson nol^krar þýðingar
sinar á ljóðum eftir Tove. Þátt-
urinn hefst klukkan 21.45 og
stendur i fimmtán minútur. Ef
að likum lætur hafa margir
gaman af ljóðum skáld-
konunnar.
Það má geta þess að fyrsta
bók Tove kom út þegar hún var
liðlega tvitug. Sú bók hét: Þeir
gerðu barni mein. -EA.
[ ÚTVARP •
FIMMTUDAGUR
25. september
13.00 A frivaktinni Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan:
„Dagbók Þcódórakis”
Málfriður Einarsdóttir
þýddi. Nanna ólafsdóttir les
(17). Einnig les Ingibjörg
Stephensen ljóð eftir
Þeódórakis og flutt er tón-
list eftir hann.
15.00 Miðdegistónlcikar.
Lamoureux hljómsveitin
leikur „Stúlkuna frá Arles”,
hljómsveitarsvitu nr. 1 eftir
Bizet, Antal Dorati stjórnar.
Beaux Arts trióið leikur
Pianótrió i e-moll op. 90
„Dumky ”-trióið eftir
Dvorák. Montserrat Caballé
syngur ariur úr óperum eft-
ir Puccini. Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leikur með,
Charles Mckerras stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.40 Litli barnatfminn Soffia
Jakobsdóttir sér um tim-
ann.
17.00 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun.
Sæmundur G. Jóhannesson
ritstjóri rekur endurminn-
ingar sinar frá uppvaxtar-
árum I Miðfirði (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 „íslendingar eru allir af
konungakyni” Inga Huld
Hákonardóttir ræðir við
Birgitte Ólafsson, danska
húsmóður á íslandi.
20.05 Gestur i útvarpssal.
Michael Ponti leikur á pianó
verk eftir Franz Liszt.
20.30 Leikrit: „Ef ekki i vöku
þá i draumi” eftir Ásu Sól-
veigu. Leikstjóri: Brynja
Benediktsdóttir. Persónur
ogleikendur: Ella: Guðrún
Ásmundsdóttir, Ásta:
Sigriður Þorvaldsdóttir, ,Sú
nýflutta: Kristbjörg Kjeld,
Krakki: Þóra Eldon Jóns-
son.
21.20 Þættir úr ballettinum
„Spartacus” eftir Aram
Katsjatúrian Stanley Black
stjórnar hljómsveitinni,
sem leikur.
21.45 Ljóðalestur. Helgi J.
Halldórsson les nokkrar
þýðingar sinar á ljóðum eft-
ir Tove Ditlevsen.
22,00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrúk” eftir Paul
Vad Clfur Hjörvar les þýð-
ingu sina (20).
22.35 Létt músik á siðkvöldi.
Edith Butler og Pat Hervey
syngja. Lou Hooper leikur á
pianó.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
— Ef þetta á að vera einhver
boðskapur, þá er hann a.m.k. i
styttra lagi.