Tíminn - 18.10.1966, Side 2
I
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 18. október 1966
f
Ásgrímssýning í
Kaupmannahöfn
Aðils-Kaupmannahöfn, mánud.
Sýningin á vcrkum Ásgríms
Jónssonar í húsi Kunstforen-
ingen við Gammelstrand var
opnuð á laugardaginn í viður-
vist ambassadors íslands og
margra boðsgesta, sem fjöi-
menntu.
Sýningarhúsið er í einu feg
'ursta hveirfi Kaupmannahafn
ar, rétt á móti Thorvaldssens-
safninu. Er sýningarsalurinn
vel lýstur og rúmgóður, og
verk Ásgríms eru vel uppsett.
Aðal heiður af uppsetning-
unni eiga Hjörleifur Sigurðs-
son, sem er í sýningarnefnd-
inni, Jón Engilberts og frú
Bjarnveig Bjarnadóttir.
Hafa
þau öll unnið mikið verk í
sambandi við myndaval og ann
an uncjirbúning. Sigurður Nor
dal, prófessor, hefur ritað inn-
gang um íslenzka ’ málaralist í
sýningarskrána, og lýsir ítar-
lega lífi Ásgríms og starfi.
Við opnun sýningarinnar.
bauð formaður Kunstforening-
en aUa velkomna og sagði frá
öðrum íslenzkum listamönnum
sem áður hefðu sýnt verk sín
í húsakynnum þessum. Nú væri
röðin komin að Ásgrími.
Því næst tók til máls Bjarn-
veig Bjarnadóttir og skýrði frá
tilgangi sýningarinnar, sem
væri m. a. að sýna
fjölhæfni málarans og einkum
að sýna ríkulegt úrval af vatns
litamyndum hans. Að lokum
þakkaði frú Bjarnveig Lista-
safni ríkisins, sem hefði bjarg-
að svo mörgum af myndum
Ásgríms með frábærri viðgerð
og geymslu.
Að lokum hélt Gunnar Thor
oddsen, ambassador, ræðu og
sagði hann, að Ásgrímur hafi
verið fyrstur þeirra miklu mál-
ara, sem setja munu varanleg
spor í íslenzka listasögu. Fór
hann mörgum fögrum orðum
um list Ásgríms, og lauk ræðu
sinni með því að lýsa sýning-
una opna.
Um kvöldið héldu ambassa-
dorshjónin boð á heimili sínu
í Hellerup í tilefni af sýning-
unni.
HERFERÐ GEGN UTI-
VIST BARNA EFTIR 8
FB-Reykjavík, mánudag.
Nú er að hefjast hér í Reýkja-
vík mikil herferð gegn útivist
barna til 12 ára aldurs eftir
klukkan átta á kvöldin. Það er
barnaverndapnefnd Reykjavíkur,
sem hefur í hyggju að beita sér
fyrir hérferðinni í samvinnu við
lögregluna, en samkvæmt lögreglu
samþykkt Reykjavíkur mega böm
yngri en 12 ára ekki vera á al-
mannafæri seinna en kl. 20 og frá
12—14 ára ekki seinna en kl. 22.
Sérstaklega verður lögð áherzla
á að koma í veg fyrir útivist
barna inn 12 ára aldurs, og hef-
BÖRN muniö regluna
heima klukkan 8
TO f ?
9 ?
ur verið leitað aðstoðar lögregl-
unnar og hún hefur heitið því
að taka að sér framkvæmd eftir-
litsins í vetur. Einnig hafa skóla-
stjórar heitið samvinnu í mábnu.
Eftirlitinu verður þannig hátt-
að, að borginni verður skipt í
hverfi jafnmörg barnaskólunum.
Eftirlitsmenn munu hafa bækistöð
í skóla viðkomandi hverfis. Prent
aðir hafa verið bæklingar, sem
innihalda bréf til foreldra þar sem
óskað er eftir samvinnu við þá.
Mun þeim verða dreift í skólana
og er ætlazt til þess, að börnin
færi þá foreldrum sínum. Um leið
og bæklingnum verður dreift
munu kennarar ræða útivistarregl
urnar og benda þeim á hættuleg-
ar afleiðingar hennar. Auglýsinga
Há skólaf y rirlestu r
Prófessor Áke Andrén frá Upp
sölum flytur fyrirlestur á vegum
guðfræðideildar Háskólans í dag
kl. 10,15 f.h. í 5. kennslustofu.
Umræðuefni: Nýjustu umræður
um tilgang og eðli guðsþjónust-
unnar.
Allir velkomnir.
Annar fyrirlestur verður á
fimmtudag á sama tíma.
Bókaþjófur tekinn
IJ-Reykjavík, mánudag.
Unglingsstrákur stal í dag, rétt
UANDTEKINN
cFTIR AÐ HAFA
TTOLIÐ 4 BÍLUM
EJ-Reykjavík, mánudag.
Á laugardaginn var lögreglu-
manni á bifhjóli tilkynnt um að
ifreið hefði verið stolið á Hring-
brautinni. Hann tilkynnti þetta í
talstöðina, og eftir fimm mínútur
afði hann fundið bílinn og hand-
:ekið þjófinn.
Kom í ljós, að piltur sá, sem
'’ér um ræðir, hafði stolið 3—4
: ílum undanfarið. Var hann úr-
jkurðaður í gæziuvarðhald.
eftir hádegið, bók hjá bókaverzí-
un Sigfúsar Eymundssonar. Ein
starfsstúlkan í bókabúðinni tók
eftir því, er strákur fór út með
bókina, og hljóp út á eftir hon-
um.
Strákur greip til fótanna, og
stúlkan hljóp á eftir. Er strákur
var kominn á móts við Tjarnar-
götu 20 náði hún honum loksins,
og tókst henni að ná af honum
bókinni.
Maður nokkur kom henni þar
til aðstoðar, en það fór ekki bet-
ur en svo, að strákur slapp og
hljóp allt hvað af tók þar til hann !
kom til móts við Suðurgötu 22,!
að hann hljóp á bifreið. Dældaðist ■
hún aðeins, en strákur slapp með
smá skrámur.
Var hann handtekinn, og af-
hentur rannsóknarlögreglunni.
spjöldum hefur verið dreift um
borgina, í strætisvagna, skóla og
víðar á almannafæri.
Á vegum umferðarlögreglunnar
verður dreift merkjum í mjólkui-
búðir borgarinnar, sem einnig
undirstrika reglurnar varðandi úti
vist barna og unglinga.
Alvariegt slys
í kvöld varð alvarlegt umferð
arslys á Digranesveginum er SAAB
bifreið ók á telpu, Sigrúnu Ög-
mundsdóttur, Hrauntungu 91, með
þeim afleiðingum að hún fótbrotn
aði og handlégSsbrotnaði. Árekst
urinn var það harður að SAAB bif
reiðin var óökufær á eftir þar sem
viftuspaðarnir höfðu gengið inn í
vatnskassann.
Sigrún var flutt á Slysavarðstof
una og síðan á Landsspítalann.
Grunaíurum að hafa
leitað á fleiri telpur
EJ-Reykjavík, mánudag.
Á laugardagskvöldið handtók
rannsóknarlögreglan mann nokk-
urn, sem kærður hafði verið fjór-
um sinnum í sumar fyrir að hafa
leitað á smátelpur. Hefur hann
játað öll fjögur tilfellin.
Kristján Sigurðsson hjá Rann-
sóknarlögreglunni tjáði blaðinu í
kvöld, að stúlkur þær, sem mað-
urinn hefði leitað á, hefðu getað
lýst bifreið mannsins.það vel, að
Rannsóknarlögreglan gat, með
góðri aðstoð umferðadeildar,
handtekið manninn.
Maður þessi vann aldrei líkam-
legt tjón á telpunum. Hann lokk-
aði þær upp í bifreiðina til sín,
og ók með þær út úr borginni,
eða inn í Nauthólsvík, þar sem
hann fékk þær til að þukla á sér.
Maður sá, sem svívirti fimm
ára telpu í Hafnarfirði fyrir réttri
viku síðan — Jón Sigurðsson,
Klöpp í Garði — er grunaður um
að vera viðriðinn fleiri slík mál.
Er það þó ekki enn vitað með
fullri vissu, en nokkrar telpur,
sem sýndir voru nokkrir menn
saman, bentu þegar á hann1 og
kváðu hann hafa leitað á sig. Er
þetta enn í athugun.
Af manninum, sem leitaði á
litla telpu í Laugardalnum sl.
Fundur
lögfræðinga
Lögfræðingafélag íslands held-
ur fund í kvöld kl. 8.30 í Tjarn-
arbúð, neðri sal. Dagskrá: Hjálm-
ar Vilhjálmsson ráðuneytisstjóri
flytur erindi um skiptingu lands-
ins í umdæmi.
Leiðrétting
Sú villa slæddist inn í yfirlýs-
ingu Guðmundar Jóhannssonar
húsasmíðameistara, er birt var í
blaðinu sl. laugardag, .að skemma
Loftleiða á Keflavíkurflugvelli
væri um 30% ódýrari en ef hún
hefði verið byggð úr hinu varan-
lega efni, strengjasteypu og til-
heyrandi. Þar átti að standa um
það bil þriðjungi ódýrari.
fimmtudag, er lítið að frétta, þótí
lögreglan hafi fengið ýmsar til-
kynningar. Er hans enn leitað
ákaft.
ÍÞROTTIR
Framhald af bls. 12
tel ekki ástæðu til að hrósa nein
um sérstökum í ísL liðinu, en
mörkin skoruðu: Birgir 6, Ing-
ólfur 5, Gunnlaugur og Einar M. 3
hvor, Viðar, Hermann og Geir 1
hver. Auk þessara skipuðu efíir
taldir leikmenn liðið: Jón Breið
fjörð, Jón Gestur Viggósson, Þor
steinn Bjömsson og Stefán Sand-
holt.
Danska liðið kunni vel að nöt-
færa sér veilumar í fsi. liðinu í
síðari hálfleik. Beztu menn liðs-
ins vru Vodsgaard og Kaae _____
og markvörðurinn, sem varði mjög
vel.
Reynir Ólafsson daemdi leikinn
vel í fyrri hálfleik, en tókst
ekki eins vel upp í þeim sfðari,
leyfði m. a. of mikinn ruðning
dönsku leibmannanna.
RJÚPNASKYTTAN
Framhald af bls. 16.
Af föðurbræðrum hans er það
að segja,. að þegar Valgeir kom
ekki fram, hófu þeir leit að hon-
um og leituðu fram til kl. 7 í
gærlo'öldi. Þeir héldu þá að hann
hefði gengið til Presthóla, en þeg-
ar þeir komu þangað og Vaígeir
var ekki þar, héldu þeir aftur af
stað til að leita og leituðu alla
nóttina.
Fjöldi manns tók þátt í leit-
inni, milli 50—70 manns, og fóru
margir akandi. Hægt er að aka yf-
ir Sléttuheiði eftír jarðýtutroðn-
ingum, og er farið mikið þar á
jeppum.
Tryggvi Helgason, flugmaður,
flaug yfir leitarsvæðið og flogið
var norður með sporhundinn Týru
sem Jón Kr. Gunnarsson frá Hjálp
arsveit skáta í Hafnarfirði stjóm-
aði.
Guðmundur bað Tímann fyrir
sérstakt þakklæti til allra þeirra
sem þátt tóku í leitinni, og þá
sérstaklega til símstöðvarstjörans
á Kópaskeri, sem gerði allt sem
í hans valdi stóð til aðstoðar.
Hví ekki aö
búa loftnet-
iö til sjálfur?
Mikill skortur er nú á sjón-
varpsloftnetum hér í borginni,
og verða menn því að bjarga
sér eftir beztu getu. Frænd-
urnir Guðmundur G.A. Val-
berg og Haukur Guðmundsson
leystu úr vandanum með þvi
að smíða eigin sjónvarpsluft
net, og sézt það hér á mynd-
inni. Er vír stungið út um
gluggann á heimili Guðmund-
ar, Stórholti 25.
Það tók þá einungis 10—15
mínútur að búa til loftnetið,
og það er ósköp ódýrt. Uppi-
staðan er einfalt kústskaft —
t gamalt útvarpsloftnet er not-
f - § sem Þverstöng, og á hana
T' eru síðan fest nokkur herða-
tré úr járni.
: . :...... Guðmundur sagði blaðinu að
~á8ætIega sæist i sjónvarpinu
með þessu heimatilbúna sjón-
varpsloftneti.