Tíminn - 18.10.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 18.10.1966, Blaðsíða 12
12 iÞROTTIR ÓVÆNT Ú8SLIT í ENSKD KEPPNINNI: Tottenham tapaði fyrir hotnliðinu TÍMINN ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. október 1966 f enskri knattspyrnu koma fyr- ir úrslit, sem hvergi annars stað- ar gætu átt sér stað í heiminum, eins og «1 dæmis á laugardaginn, þegar efsta liðið í 1. deild, Tott- enham, lék á heimavelE sínum í London gegn neðsta liðinu í deild inni, Blackpool, sem fyrir leildnn hafði ekki unnið leik. Og hvað skeður? Blackpool sigraði með 3— 1 og þau úrslit voru aHs ekki óeðlileg eftir gangi leiksins. En þetta sýnir bezt, hve gífurleg breidd er í enskri knattspymu. Við tapið féll Tottenham niður í 4. sæti, en efst er nú Stoke City það er í fyrsta skipti síðan 194? að Stoke er í efsta sæti í 1. deild. Stoke var frekar heppið að hljóta bæði stiSin gegn Southampton, sem sótti mjög í síðari hálfleik, eftir að Stoke hafði náð tveggja marka forskoti. Úrslit urðu ann- ars þessi á laugardag. 1. deild: Helztu úrslit á Skotlandi: Celtic—Airdrie 3-0 Hearts—Rangers 1-1 Kilmarnock—Hibemian 2-1 Dundee Utd.—Clyde 4-3 St. Mirren—Dunfermline 0-5 Eftir sex umferðir hefur Celtic þegar riáð þriggja stiga forskoti, hefur sigrað í öllum sex leikjun- um. Rangers, Kilmarnock og Air- drie hafa níu stig. Staðan er nú þannig á Englandi. 1- deild Wolves Plymouth Blaekburn Carlisle Coventry Millvall Preston Birmingham Huddersfield Charlton Bury Portsmouth Derby County Rotherham Bristol City Northampton Norwich Cardiff 12 6 3 3 26:13 15 13 6 3 4 24:15 15 13: 6 2 5 19:22 15 13 7 1 5 17:20 15 12 6 2 4 17:12 14 11 6 2 3 14:14 14 12 6 1 5 20:18 13 13 5 3 5 24:23 13 12 5 2 5 17:16 12 13 4 3 6 19:14 11 12 5 1 6 16:18 11 13 5 1 6 19:22 11 13 3 4 6 22:22 10 12 4 2 6 17:21 10 13 2 3 8 12:23 7 12 3 1 8 Í3:26 7 13 2 3 3 9:20 7 12 2 2 8 15:42 6 Klaus Kaae brýzt framhjá FH-vörninni og skorar. (Ljósm. Bjarnleifur) Burnley-Leieester 5-2 Everton—Sheff. Wed. 2-1 Fulham—West Ham 4-2 Leeds—Arsenal 3-1 Manch. Utd.—Chelsea 1-1 Newcastle—Manc. City 2-0 Nottm. For.—Liverpool 1-1 Sheff. Utd.—Súnderland 2-0 Stoke—Southampton 3-2 Tottenham—Blackpool 1-3 W.B.A.—Aston Villa 2-1 2. deild. Birmingham—Bristol C. 4-0 Coventry—Blackburn 2-0 Hull City — Wolves 3-1 Millvall—C. Palace 1-1 Northamton—Huddersf. 0-1 Nonvich—Carlisle 2-0 Plymoutih—Cardiff 7-1 Portsmouth—Ipswich 4-2 Preston—Charlton 2-1 Rotherham—Derby 0-0 Isl. handknattleikur varð sér til skammar í gærkvöldi Alf-Reykjavík. íslcnzkur handknattleikur varð sér til skammar í gærkvöldi. Danskt félagslið, Árhus KFUM, sigraði íslenzka tilraunaland.sliðið með sex marka mun, 26:20, og hefði sá sigur getað orðið stærri, því ísl. tilraunalandsliðismennirn ir voru svo miður sín allan síð ari hálfleikinn, að þeir vissu varla hvar þeir voru staddir. Eft ir ágætlega leikinn fyrri hálfleik, en í honum náði ísl- liðið 3ja marka forskoti, 15:12, var síðari hálfleikurinn hrein háðung. Að- eins 2 fyrstu mínúturnar héldust hlutföllin óbreytt, en síðan skor uðu Danirnir 9 mörk í röð og var þá staðan orðin 22:16 þeim i vil og 18 mínútur liðnar- Þá þegar voru úrslitin ráðin og engu hægt að breyta- Út af fyrir sig er lítið hægt að segja, þegar lið — í þessu tilfelli ísl. tilrajinalandsliðið — tapar fyr ir sér betra liði. Og það er ekki meiningin að skamma ísl. leik- mennnia, því þeir gerðu sitt bczta, en ástæða er til að ávíta handknattleiksforystuna fyrir það að etja lítið æfðum landsliðsmönn um á móti þessum dönsku gest- um, og fóma þar með heiðri ísl. handknattleiks. Sigurður Jónsson, formaður landsliðsnefndar HSÍ, sagði í viðtali við Tímann fyrir helgina, að nefndin væri ófús að velja lið. f fyrsta lagi vegna þess, að nefndin vissi ekki hvaða leik menn væru sterkastir í dag — og í öðru lagi lét hann að því liggja, að það væri hið mesta glapræði að tefla fram óæfðum mönnum. Auðvitað var erfitt — og raunar ekki hægt — að neita Ármenning um um að velja tilraunalandslið, fyrst þeir höfðu fengið Ieyfl fyr ir því að fá liðið upp. En nú, að heimsókninni lokinni, er hægt að spyrja, hvers vegna eru heimsókn ir erlendra liða leyfðar, áðar en keppnistímabilið er hafið? Qprir handknattleiksforystan sér grein fyrir að með þessu háttarlagi tek ur hún þá áhættu að stugga mörg um trúum handknattleiksunnend- um frá handknattleiknum? En nóg um það, og snúum okk ur að gangi leiksins. fsl. liðið hélt forystu allan fyrri hálfleik og hafði tryggt sér 3ja marka forskot í hálfleik, 15—12. Hinn snialli danski landsliðsmaður, Klaus Kaae, skoraði 13. mark Árhus strax í síðari hálfleik, en Gunn laugur svaraði fyrir fsl. liðið og var staðan þá 16:13 fyrir okkur. Og síðan kam kaflinn, sem gott væri að geta gleymt. Klaus Kaae skorar 7 mörk í röð — sum úr vítaköstum — en ísl. liðið nær aldrei að svará. Og enn bættu Danir 2 mörikuim við. Á þessu tímabili var ísl. liðið úti að aka. Vömin í molum og skotin fóru utangarðs og neðan. Línuspil var aldrei reynt — og þegar eitthvað mistókst í sókninni, voru menn lengi að koma til baka. Af þeím sökum tókst Dönum að skora oft úr skyndiupphlaupum. Lokatölur urðu 26:20, eins og fyrr segir. Ég Framhald á 2. síðu. Stoke City 12 8 2 2 21:9 18 Chelséa 12 6 5 1 25:13 17 Burnley 12 6 5 1 24:14 17 Tottenham 12 8 1 3 23:18 17 Leicester 12 6 4 2 32:21 16 Manch. Utd- 12 7 1 4 24:21 15 Liverpool 12 5 5 2 22:20 15 Everton 12 5 4 3 18:17 15 Nottm. Forest 12 5 3 4 13:15 13 Leeds Utd. 12 4 5 3 17:18 13 Arsenal 12 4 4 4 13:20 12 Sheff. Utd. 12 5 2 5 15:19 12 Southampton 12 4 3 5 20:22 11 Sheff. Wed. 12 3 5 4 15:16 11 West Ham 12 3 4 5 26:25 10 Néwcastle 12 4 1 7 11:17 10 W. B. A. 12 4 1 7 27:26 9 Fulharn 12 2 4 6 16:24 8 Manch. City 12 3 2 7 11:22 8 Sunderland 12 2 3 7 18:23 7 Aston Villa 12 3 1 8 14:22 7 Blackpool 12 1 2 9 9:24 4 .2. deild Hull City 13 9 0 4 30:14 18 Bolton 12 7 3 2 25:14 17 C. Palace 12 7 3 2 23:13 17 Ipswich 12 7 3 3 27:20 17 FH LANGT FRA SINU BEZTA OG TAP- ADI FYRIR ARHIIS KFUM Alf — Reykjavík. — FH-liðið var langt frá sínu bezta í leikn- um á móti Árhus KFUM á sunnu- dagskvöld, og olli hátt á annað Fyrsti leik- urinn daufur Fyrsti leikur danska liðsinns Ár hus KFUM var á lauSard. gegn gestgjöfunum, Ármanni sem styrktu lið sitt með Karli Jó- hannssyni. Leikurinn var daufur, þrátt fyrir mörg skot, en honum lyktaði með 29-25 sigri Dananna. Aðeins 250 áhorfendur, voru að leiknum. þúsund áhorfendum, sem sáu leik inn, vonbrigðum. Leikur liðsins var mjög laus í reipum bæði í sókn og vörn. Og ekki bætti úr skák, að báðir markverðirnir, Kristófer Magnússon og Hjalti Einarsson, voru ekki í essinu sínu. í þetta sinn féllu FH-ingar í þá gömlu gryfju að skjóta í tíma og ótíma í stað þess að leika yfirvegað og bíða eftir því að glufur opnuðust i vörn mótherj- anna. Sá sem þessar línur ritar, hélt, að FH-ingar væru vaxnir upp úr því að leika með þessum hætti, en segja má. að lengi lifi 1 gömlum glæðum. Skotæði FH-inga var vatn á myllu dönsku leikmannanna, sem fengu knöttinn oftar í hendur — og fleiri marktækifæri — fyrir bragðið. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn, fyrir utan fyrstu mínúturnar, en þá náði Árhus KFUM þriggja marka forskoti. í hálfleik var staðan jöfn, 13-13. Fyrstu mínútumar í síðari hálf leik voru vel leiknar af hálfu FH, sem náði fljótlega tveggja marka forskoti, 15-13 og 16-14. En Dan- irnir jöfnuðu stöðuna fljótlega og komust brátt yfir. Héldu þeir forystu það sem eftir var, og sigr uðu með þriggja marka mun, 27- 24, eins og fyrr segir. Þrátt fyrir, að hið danska lið lék ekki sérlega vel, var það þó betri aðilinn, enda hafði það meira skipulag á hlutunum. Tveir leikmenn liðsins, þeir Klaus Kaae og Jörgen Vodsgaarde, eru mjög góðir og voru beztu menn vall- ins. Ivan Christiansen er einnig mjög athyglsiverður leikmaður. FH-liðið hefur sér til afsökun- ar, að þetta var fysrti leikur liðs ins á keppnistímabilinu. Sóknar- leikurinn var mjög einhæfur — og riú gleymdu FH-ingar að nota línuna, sem þeir voru komnir upp á lag með að nota á síðasta keppn istímabili. Vörnin var ekki nógu þétt og markvarzlan fyrir neðan meðallag. Skástu menn liðsins voru Geif Hallsteinsson — Örn og Jón Gestur. Leikinn dæmdi Karl Jóhanns- son vel.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.