Tíminn - 18.10.1966, Side 13
ÞREDJUAGUR 18. október 1966
13
Úrslitaleikurinn á
Laugardalsvelli?
Alf.—Reykjavík. — Það verða
KR og Valur, sem leika til úrslita
í Bikarkeppni KSÍ 1966. Vals-
menn áttu frekar léttan dag gegn
Þrótti á þnngum Melavelli á laug-
ardaginn og unnu 5:0. Og á Njarð-
víknrvellinum kafsigldu KR-ingar
ósamstillt lið Keflvíkinga og
unnu 3:0. Var það mun stærri
sigur en búast mátti við, því
þarna léku Keflvíkingar á sínum
beimavelli, en löngum hefur þótt
erfitt að sækja þá heim.
Úrslitaleikurinn milli KR og
Vals fer fram um næstu helgi og
er ráðgert, að hann fari fram á
Melavellinum. Vonandi verður völl
urinn í betra ásigkomulagi þá en
hann var um síðustu helgi, því þá
var tæplega leikandi á honum
vegna leðiu. En m.a.o. er alveg
útilokað að nota Laugardalsvöll-
inn? Margir höfðu orð á þvi um
helgina, að það væri undarleSt að
hægt væri að nota grasvöllinn í
Njarðvíkum en ekki Laugardals-
völlinn. Er LaugardalsvöIIurinn
miklu lélegri eða er hér um ein
hverja sparnaðarráðstöfun að
ræða? Það er YÍrtKngarvertj svo
langt sem það nær, að spara okk-
ar ágæta Laugardalsvöll, en ekki
•virðist hugur fylgja máli i því
efni, þar sem íþróttasíðan licfur
frétt á skotspónum, að dráttarvél-
um hafi verið ekið þvers og krus
um vöHinn nýlega með skarna.
Varla fer það ver með völlinn að
lefica knattspyrnu á honum en
aka dráttarvélum um hann — eða
hvað fínnst vallarstjóm?
Mitt í öllu svaSinu er barizt af hörku í leik Vals og Þróttar. Sigurjón, Val, t. v. og Jón Björgvinsson, Þrótti,
kljást. (Tímamynd GE)
ÍH
Enn varði
Sigurður Dags
son vítaspyrnu
Alf-Reykjavík. — Enn einu
sinni sannaði Sigurður Dagsson,
markvörður Vals, ágæti sitt með
þvi að verja vítaspymu í bikar-
leiknum á móti Þrótti sl. laugar-
dag. Það skeði á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks. Haukur Þorvalds-
son framkvæmdi spymuna og
skaut hnitmiðuðu skoti í annað
liornið. En eins og tígrisdýr stökk
Sigurður í hornið og varði. Þar
með forðaði hann því, að Þróttur
næði að jafna 1:0 forskot, sem
Valur náðj fyrr í hálfleiknum.
Eftir ágætan háltfleik gáfust
Þróttarar hreinlega upp í síðari
hálfleik og höfðu ekki úthald til
að leika á þungum Melavellinjjm,
sem var ein 'Jeðja — eða „sósa“
— eins og Óli B. þjálfari Vals
orðaði það. Valur lék án tveggja
sterkra varnarleikmanna, Árna 1
Njálssonar og Bjöms Júl., en það
virtist ekki koma að sök. Mörk
Vals komu eins og af færibandi í
síðari hálfleik. Hermann skoraði
tvö mörk til viðbótar einu í f.h.
og Ingvar og Bergsveinn skoruðu
sitt hvor.
• í heild var leikurinn slakur,
Framhald á bls. 15
Keflvíkingar slegnir út á heimavelli
af samstilltu og sókndjörfu KR-liöi
KR vann Keflavík 3:0 í stytzta bikarleik í bikarkeppni KSÍ frá upphafi
Alf-Reykjavík. — KR sigraði
Keflavík á sunnudaginn í stytzta
bikarleik, sem leikinn hefur verið
í Bikarkeppni KSÍ frá upphafi,
því fyrri hálfleikur var þremur
mínútum of stuttur. Stór hópur
áhorfenda, sem tók tímann ná-
kvæmlega, bar saman um þetta.
Þrjú lið
jofn i
2. flokki
Um helgina fóru fram
tveir úrslitaleikir í 3. aldurs
flokki í knattspyrnu. Á laug
ardag léku Fram og KR í
2. flokki b til úrslita í
Reykjavíkurmóti og sigraði
Fram með 2:0. Hefur Fram
unnið öll mót sumarsins í
þessum flokki.
Á sunnudaginn léku í 2.
flokka Fram og Valur j
haustmóti 2. flokks a. Nægði
Fram jafntefli til sigurs.
Leikar fóru svo, að Valur
sigraði með 1:0, og eru því
þrjú lið jöfn að stigum, þ.e.
Valur, KI! og Fram, og
þau að leika auka-
líáSS tíl að úrslit fáist.
En þetta er smáatriði, sem skipt-
ir ekki miklu máli, því leikurinn
bauð í staðinn upp á meiri spennu
og skemmtileSri augnablik en
títt er um bikarleiki. Og KR-ing-
ar voru sterkari aðilinn, á því
lék enginn vafi. Liðið var sam-
stillt og sókndjarft og uppskar
þrjú mörk.
Hörður „litli“ Markan var skæð-
asti sóknarmaður KR ásamt Bald-
vin Baldvinssyni. Oft lék Hörður
sundurlausa Keflavíkur-vöm grátt
og undirbjó tvö marka KR. Á 28.
mín. fyrri hálfleiks sendi hann
knöttinn frá hægra kanti til Jóns
Sigurðssonar, sem skallaði lag-
lega inn. Þetta var eina markið
í fyrri hálfleik, en fljótlega í síð-
ari hálfleik — á 3. mínútu — ein-
lék Hörður skemmtlega nálægt
Keflavíkur-markinu og sendi síð-
an á Einar ísfeld, sem stóð óvaid
aður við markið, og gat ekki kom-
izt hjá því að skora. Þriðja og
síðasta mark leiksins skoraði Bald-
vin á 32. mínútu. Hann geystist
eins og foli fram miðjuna fram-
hjá varnarmönnum Keflavíkur,
sem í samanburði líktust mein-
leysislegum kúm á beit, ótruflað-
ar af því, sem gerast var í kring-
um þær. Slíkur var hraði Baldvins
að ekkert virtist geta stöðvað
hann, og skot hans var gullfallegt
og óverjandi fyrir Kjartan í mark-
inu .
jn tvö þúsund manns.sáu leik-
inn, sem fram fór í ágætu veðri.
Til að byrja með var sókn Kefl-
víkinga þyngri og á fyrstu mínút-
unum var KB-markið j töluverðri
hættu. Góð markvarzla Guðmundar
Péturssonar og ágæt tilþrif KR-
varnarinnar komu í veg fyrir það,
að Keflvíkingar næðu að skora. Á
þessum fyrstu mínútum Véði Kefla
vík lögum og lofum á miðjunni,
enda var Ellert eini tengiliður KR
að því er virtist. Léku Eyleifur og
Jón Sigurðsson of framarisga. En
þetta lagaðist eftir því sem lengra
leið á leikinn.
Keflavíkur-liðið var ósamstillt í
þessum leik og vörnin óörugg. Lið
ið lék án Karls Hermannssonar
|óg varð Magnús Torfason að
leika í framiínunni af þeim sök-
um. Guðni Kjartansson færðist
fram sem tengiliður — og skilaði
þeirri stöðu mjög vel — en Ólaf-
ur Marteinsson kom inn sem bak-
vörður. Þótt Keflavík ætti ekki
færri sóknartilraunir en KR, voru
þær veikarí og vantaði nánari sam
vinnu á milli sóknarleikmann-
Framhald á bls. 15.
Hætta við Keflavíkur-markið. Magnús bakvörður spyrnir knettinum frá. (Ljósm. Bjarnleifur)