Tíminn - 18.10.1966, Blaðsíða 16
/
mm
f
237. tbU---Þriðjudagur 18. október 1966 — 50. árg.
B-Hstinn sigraii í
stúdentakosningum
EJ-Reykjavik, mánudag.
Stjórnarkosningin í Stúdentafé-
lagi Háskóla íslands fór á þá leið,
að B-Iistinn, borinn fram af 15
stúdentum, einkum vinstri mönn
um, en einnig öðrum, sem óánægð
ir eru með stefnu Vöku í ýmsum
ARNI FRIÐRIKS-
SON, FISKIFRÆÐ-
INGUR, LÁTINN
FB-Reykjavík, mánudag.
Á sunnudaginn lézt í Kaup-
mannahöfn Árni Friðriksson fram
kvæmdastjóri Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins, 67 ára að aldri.
Árni hafði legið lengi veikur.
Hann vat fæddur að Króki í Ket-
ildalahreppi í V. Barðastranda-
sýslu, 22. desember 1898, sonur
hjónanna Friðriks Sveinssonar og
Sigríðar Árnadóttur. Árni lauk
stúdentsprófi frá M.R. 1923 og
magisterpröfi í dýrafræði frá
Kaupmanna'hafnarháskóla árið
1929.
Árið 1931 var hann skipaður
ráðunautur Fiskifélags fslands og
stjómandi fiskideildar Atvinnu-
deildar Háskólans árið 1937.
Gegndi hann því starfi til ársins
1953 að hann var skipaður fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahafrann-
sóknarráðsins í Kaupmannahöfn
eftir að hafa verið fulltrúi ís-
lands í ráðinu frá 1938.
Framlhald á bls. 15
þjóðfrelsis- og menningarmálum,
einkum sjónvarpsmálinu — fékk
meirihluta. Fékk B-listinn 364 at-
kvæði og fjóra menn kjörna, en
A-listi Vöku fékk 345 atkvæði og
3 menn kjöma.
Vaka lagði fram með lista sín-
um stefnuskrá, þar sem var að
finna ýmsar tillögur um starfsemi
félagsins. B-listinn lagði einnig
fram starfsskrá fyrir félagið, en
einnig ítarlega stefnuskrá í menn-
ingarmálum, stjórnmálum og ut
anríkismálum.
í stefnuskrá B-listans var m. a.
lagt til að stúdentar stuðli að
heilbrigðum og hlutlægum umræð
um um þjóðmálin, stuðli að varð-
veizlu íslenzkrar tungu og menn-
ingu. Krafizt er, að fjármálaspill-
ingin, sem nú ríkir í íslenzku þjóð
félagi, verði upprætt. Einnig, að
ítarlegar umræður fari fram um
utanríkismál, og að afstaða ís-
lands til NATO verði endurskoð-
uð.
Þess er vænst í stefnuskránni,
að stúdentar gæti vel þeirrar
skyldu sinnar að vera samvizka
þjóðarinnar.
B-listinn, og stefna hans, bar
sigur úr býtum, og má því bú-
ast við að stúdentar láti meira til
sín taka í þjóðmálum í fram-
tíðinni en hingað til.
Kjörsókn var um 50%.
AÐALFUNDUR
FUF Á SNÆFELLS-
NESI
verður haldinn sunnudaginn 23.
október n.k. að Vegamótum í
Mikla'holtshreppi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fuiltrúa á 11. Sam-
bandsþing SUF.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Framherja, félags
launþega, verður haldinn 23. októ-
ber kl. 2 að Tjarnargötu 26. Fund-
arefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Óðinn Rögnvaldsson ræðir um
kjaramálin. 3. Önnur mál. Mætið
vel og stundvíslega. Stjórnin.
Góð rjúpnaveiði sunnan-
lands, treg norðanlands
SJ-Reykjavík, mánudag.
Um helgina öxluðu rjúpna
skyttur hólka sína og liéldu til sunnanlands voru skyttumar
veiða um fjöll og firnindi. Hér fengsælar, en norðanlands og
anstan var veiðin yfirleitt treg.
Hilmar Svavarsson hjá kjöt-
verzlun Tómasar leitaði fanga
á SkarðSheiði um helgina og
lagði að velli 20 rjúpur. Hann
sagðist hafa frétt um góða veiði
á Hellisheiði, þar sem skytt-
urnar fengu allt upp í 40 rjúp-
ur yfir daginn, og sömu sögu
er að segja af þeim sem fóru
inn á Kaldadal. Hann sagði að
mönnum bæri saman um að
rjúpan væri ekki dreifð heldur
héldi hún sig í allstórum flokk-
um, og hefði hann t.d. gengið
um alla Skarðsheiði og fann
aðeins einn rjúpnahóp. Á
Kaldadal höfðu sézt nokkrir
stórir hópar.
Þá hafði Hilmar frétt af
Framhald á bls. 14
Hilmar með rjúpurnar sínar.
Tímamynd GE
18 ára rjúpnaskytta í hrakningum á Sléttuheiði
ÁT HRÁA RJÚPU
SJ-Reykjavík, mánudag.
18 ára piltur, Valgeir Guðmunds
son frá Húsavík, villtist í gær, er
hann var á rjúpnaveiðum með
tveim föðurbræðrum sínum í ná-
grenni Presthóla, sem eru skammt
frá Kópaskeri. Hann var á ferð-
inni alla nóttina og fannst ekki
fyrr en um hádegi í dag í svo-
ncfndum Blikalónsdal á miðri
Sléttuheiði. Hann var matarlaus
allan tímann, en lagði sér til
munns hráar rjúpur til að seðja
sárasta hungrið.
Tíminn hafði í kvöld samband
við Guðmund Þorgrímsson, föður
Valgeirs, og bað hann að segja í
stórum dráttum frá þessum at
burði, og fer frásögn hans hér á
eftir:
Þeir fóru þrír saman frá Prest-
hólum í gærmorgun, og héldu til
veiða austur í heiðina. Um tvö-
leytið gerði dimmt hríðarél og
yilltist Valgeir þá, og varð hon-
um ekki Ijóst fyrr en um kvöld-
ið, að hann var orðinn villtur.
Þeir félagar höfðu rætt um það
skömmu áður en élið skall yfir,
að þeir skyldu halda að bílnum.
en í honum voru matföng þeirra.
Þeir voru ekki nema um 500
metra frá bílnum þegar þeir hitt-
ust síðast.
Valgeir var á rölti alla nóttina,
og var allan tímann rólegur.
Hann sagðist hafa gætt að því að
reyna ekki of mikið á sig og
svitna ekki. Annað slagið vac
slydduél, og var Valgeir orðinn
nokkuð þjakaður og blautur er
hann fannst. Hann blundaði tvisv
ar í morgun, en vaknaði upp við
hroll, og hljóp þá um til að fá 1
sig hita. 1
Um hádegisbilið heyrði hann
bílhljóð og voru þar á ferðinni
leitarmennirnir Gunnlaugur Ind-
riðason og Björn Jónsson frá
Kópaskeri, og tóku þeir hann
upp í bílinn og óku með hann að
Presthólum, þar sem hann hvild-
ist í kvöld, en á Presthólum býr
afi hans Þorgrímur.
Framhald á 2. síðu.
LIK SIGURÐAR THEO-
DÓRSSONAR FUNDIÐ
FB-Reykjavík, mánudag.
Fyrir hádegi í dag fannst lík
Sigurðar Theódórssonar, sem
týndist eftir dansleik að Birki-
mel á , Barðaströnd. Líkið fannst
við Geitá, sem er um eins
og hálfs tíma til tveggja tíma gang
frá félagsheimilinu. Það var mað-
Sýna ber
ar keypt
nafnsksrteini þeg-
er sjónvarpstæki
EJ-Reykjavík, mánudag.
Um helgina auglýsti ríkisút-
varpið, að menn yrðu að sýna
nafnskírteini sín um leið og
þeir kaupa sjónvarpstæki. Rr
þetta gert til þess að auðvelda
rétta skrásetningu tækjanna,
nokkur misbrestur hefur verið
á því, — að því er Vilhjálmur
Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, tjáði
blaðinu í dag.
Vilhjálmur sagði, að þær
verzlanir, sem seldu sjónvarps-
tæki, ættu að gefa upp nöfn
þeirra, sem tækin kaupa. Nokk-
ur misbrestur hefði orðið á
þessu um tíma, og hið sama
væri raunar að segja um út-
varpstæki, þegar mikið tók að
seljast af litlum Transistortækj
um. Væri skyldan um að sýna
nafnskírteini gerð í þvi skyni
að auðvelda slíka skrásetningu.
Vilhjálmur sagði, að unnið
væri að því að skrásetja öll
sjónvarpstæki í landinu, en a!
mennt væri talið, að um 13.000
sjónvarpstæki væru nú í notk
un. ,
Enn hefur ekki verið ákveð
ið hvert verður afnotagjald fyr
ir sjónvarpið — er það mál
hjá ráðuneytinu.
ur frá Haga á Barðaströnd, sem
fann lík Sigurðar er hann var í
smalamennsku í dag. Svo virðist,
sem Sigurður hafi farið frá Birki-
mel eftir troðningi, sem liggur
upþ Leikvöll yfir Fossheiði og var
áður fyrr notaður til ferða milli
byggðarlaga þarna fyrir vestap.
Síðan mun Sigurður hafa haldið
inn í Arnarbýlisdal, eins og hann
hafi hugsað sér að ganga
til Tálknafjarðar, en þaðan hafði
hann komið á skemmtunina, ende
dvaldist hann hjá skyldfólki sínu
á Tálknafirði um þær mundir er
hann hvarf.
Skagfirðingar.
Haustmót Framsóknarmanna í
Skagafirði verður haldið 29. októ-
ber að Bifröst, Sauðárkróki. Nán
ar auglýst síðar.
40 nemendur í
tónlistarskóla
á Hvolsvelli
PE-Hvolsvelli, mánudag.
Barna- og unglingaskólinn
á Hvolsvelli var settur sl. föstu
dag í félagsheimili staðarins.
Að unglingaskólanum standa
fjórír hreppar, Hvolhreppur,
Fljótshliðarhreppur, Austur-
Landeyjarhreppur og Vestur-
Landeyjarhreppur. f vetur verð
ur aðeins 1. bekkur, en annar
bætist við næsta vetur.
Nemendur í unglingaskólan-
um eru 28 talsins. Skólastjóri
er Truman Kristiansen, og
auk hans kenna þrír kennarar
við skólann.
í skólum staðarins eru 130
nemendur, 62 í barnaskóla, 28
í unglingaskóla og 40 í tón-
listarskóla, en skólastjóri hans
er Steingrímur Sigfússon frá
Patreksfirði.
KJORDÆMISÞING A AUSTURLANDI
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið dag-
ana 29- og 30. okfc næstkomandi í félagsheimilinu að Iðavöllum, og
hefst það kl. 14. Dagskrá: Veniuleg aðalfundarstörf.