Tíminn - 20.10.1966, Síða 2

Tíminn - 20.10.1966, Síða 2
TÍMINN FIMMTUDAGUR 20. október 1966 FLOTTA- MANNA- SÖFNUN Eins og kunnugt er af fréttum blaCa og útvarps er mánudagurinn 24. október n.k., dagur Sameinuðu þjóð anna, helgaður vandamálum flóttamanna um heim all- an. Hérlendis mun Félag Sameinuðu þjóðanna að venju standa fyrir fræðslu- erindum um störf S.þ. Með al þeirra, sem erindi flytja ír skólum borgarinnar verða Ármann Snævarr, háskóla- rektor, form. félags S.þ., ív- ar Guðmundsson, forstöðu- maður fréttadeildar S.þ. í Kaupmannahöfn, Helgi Þor láksson ,skólastjóri, Hannes Þ .Sigurðsson, fulltrúi, og Ólafur Stephensen fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands. Sunnudaginn 23. október verður í Ríkisútvarpinu þáttur um Flóttamanna- stofnun S.þ. og vandamál Tíbezka flóttafólksins í Ind- landi. í þættinum flytja stutt ávörp Prins Sadrudd in Aga Khan, forseti Flótta mannastofnunar S.þ., og ívar Guðmundsson. Þá verð ur viðtal við Sigvalda Hjálm arsson, um kynni hans af Framhald á bls. 14. Meistarasaband byggingamanna ræðir viðkvæm mál: SERA ÞARF SKRIFLE6A SAMN- INSA OS SINNA STÖRFUM AF ALÚÐ Kvöldvaka Stúdentafélags Reykjavlkur Sem kunnugt er efnir Stú- dentafélag Reykjavíkur til kvöldvöku á morgun (föstu- dag 21. þ.m.) — síðasta dag sumars. Verður þar margt gam an haft í frammi. M.a. mun Tízkuverzlunin Guðrún Rauð- arárstíg 1, og Hattabúð Soffíu Pálma sýna vetrartízkuna 1966—67 (kápur, dragtir, sam kvæmiskjólar, hattar og skart- aripir) Þá mun hinn sívin- sæli Ómar Ragnarsson sjá til þess, að húmor verður á hæsta stigi. Á tízkusýningunni, sem hefst stundvíslega kl. 21.30 munu koma fram eigi færri en sex hinar fegurstu sýning- arstúlkur. Á meðfylgjandi mynd sést Pálína Jónmunds- dóttir sýna samkvæmiskjól. Auk hennar munu sýna: Theodóra Þórðardóttir, Rann- veig Ólafsdóttir, María Ragn- arsdóttir, Bergljót Halldórs- dóttir og Edda Ólafsdóttir. Frú Ragna Ragnars mun annast kynningu. Kvöldvökur Stúdentafélags- ins hefur ætíð borið hátt í skemmtanalífi borgarinnar — enda verið fjölsóttar og skemmtilegar. Hafa menn jafnt iðkað söng og dans — og mun svo einnig verða nú. Segja forráðamenn Stúdenta- félagsins, að sungið verði og dansað fram á vetur. Kvöldvaka þessi verður í Súlnasal Hótel Sögu. AFLI SIÐUSTU VIKU FOR MESTALLUR í BRÆÐSLU Reykjavík, miðvikudag. Áðalveiðisvæði vikunnar voru í Norðfjarðar og Reyðarfjarðardýpi 30 til 50 sjómiiur frá landi: Fékkst þar dágóður afli, eða frá rúmum 4.000 lestum á sólarhring upp und ir 7.000 lestix fram að miðiíætti á fimmtudagskvöld. Aðfaranótt föstudags tók að hvessa og var síðan NNA kaldi og stinnings- kaldi á miðunum til vikuloka og allflest skip í höfn. Aflinn sem barst á land í vik- unni nam 36.662 lestum. Saltað var í 1.096 tunnur og 36.130 lest- ir fóru í bræðslu. í frystingu fóru 372 lestir. Heildaraflinn frá vertíðarbyrj- un er orðinn 519.747 lestir og skiptist þannig eftir verkunarað- ferðum: í salt 55.767 lestir (382.032 upps. tn.) í frystingu 2.439 lestir, í bræðslu 41.531 lestir. Auk þess hafa erlend skip land- að 1.030 tunnum í salt og 4.307 lestum í bræðslu. Á sama tíma í fyrra var heild- araflinn 388.046 lestir og hafði verið hagnýttur þannig: f salt 393.103 upps.tn. (57.393 1.) í frystingu 23.409 uppm. tn. (2528 1) í bræðslu 2430554 mal (328. 125 1.) Helztu löndunarstaðir eru þess rr: Lestir: Reykjavik 34.270 Bolungavík 6.634 Siglufjörður 23.889 Ólafsfjörður 6.443 Hjalteyri 8.628 (þar af 3.919 frá erl. skipum) Dalvík 489 Hrísey 205 Krossanes 16.241 Húsavík 3.694 Raufarhöfn 53.235 Þórshöfn 2.177 Vestmannaeyjar 413 Vopnafjörður 31.246 Borgarfjörður eystri 6.360 Seyðisfjörður 122.823 (þar af 83 frá erl. skipum) Mjóifjörður 1.107 Neskaupstaður 73.868 Eskifjörður 50.429 (þar af 455 frá erl. skipum) Reyðarfjörður 27.811 Fáskrúðsfjörður 29.265 Stöðvarfjörður 7.594 Breiðdalsvjk 6.896 Djúpivogur 9.037 Sá þyngsti 25.5 kg. TF-Flateyri, þriðjudag. Sauðfjárslátrun er nýlokið hér og var slátrað í allt um fimm þús- und fjár. Meðalvigt var heldur neðan við meðallag eða 14.8 kg. Hæstu meðalvigt hafði Kristinn Guðmundsson Kirkjubóli átti þyngsta dilkinn og vó hann 25.5 kg. Allir eru vel heyjaðir hér um slóðir, og vel undir veturinn bún- ir hvað það snertir. Nú er byrjað að aka nýja veg- inn eftir Breiðadalnum, og er það mikil samgöngubót. Vegurínn liggur alla leið upp að væntan- legum jarðgöngum í gegn um Breiðadalsheiði. Lægri meðalvigt HB-Kópaskeri, þriðjudag. Slátrun er nú lokið hér, og var slátrað 24.166 fjár. Meðalvigt er fjórtán kíló slétt hér, og er það 1.1 kg. minna en í fyrra. Slátrun stóð hér yfir í 23 daga. 25—26 þúsund slátrað SÞ-Búðardal, fimmtudag. Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Hvammsfjarðar 12. september, og mun standa fram til mánaðamóta. Er ráðgert að slátra hér 25—26 þúsund fjár og er það töluverð aukning frá í fyrra, en þá var slátrað hér 18.800 fjár. Aukning- Framhald á bls. 14. Um síðustu helgi héldi Kven félagskonur í Bústaðasókn tvær skemmtanir í fjáröflun- arskyni vegna kirkjubygging- arinnar. Happdrætti var á skemmtununum, og vinning- arnir afhentir á þriðjudaginn. Hér eru kver^félagskonur að afhenda fyrsta vinningin, sem sem var postulín frá Bing og Gröndahl. (Tímamynd GE). SJ-Reykjavík, miðvikudag. Meistarasamband byggingar- manna í Reykjavík hefur sent frá sér athyglisverða ábendingu, sem stíluð er til húsbyggjenda og hús- kaupenda. Húsbyggjendum er bent á nauðsyn þess að meistar- inn hafi umsjón með öllu því er snertir byggingu hússins, og meist urum er bent á að áritunarskyld- unni fylgi mikil ábyrgð! Tilkynningin er 'svohljóðandi, orðrétt: „Að gefnu tilefni skal byggj- endum og kaupendum að húsum í smíðum bent á, að meistarar, sem áritað hafa teikningar af hús- um eða tekið að sér framkvæmd á fagvinnu við byggingar bera ábyrgð hver í sinni faggrein. Er því eigendum óheimilt að fram- kvæma eða láta framkvæma þau störf, nema í samráði við viðkom- andi meistara." Tilefni þessarar ábendingar er að þess eru því miður alltof mörg dæmi, að húsbyggjandi virðist ekki gera sér nægilega ljóst, hve nauðsynlegt er, að meistarar hafi umsjón með öllu því sem snertir byggingu hússins. Þetta hefur haft þær afleiðingar að oft og tíðum koma fram ýmsir verkgallar, sem meistarinn af þessum orsökum get ur ekki ráðið við, en er þó tal- inn bera ábyrgð á, ef út af ber. Þegax meistarí áritar hústeikn- ingar, sem samþykktar hafa verið af viðkomandi byggingaryfirvöld- um, tekur hann á sig þá ábyrgð, að húsið sé byggt eftir þessum teikningum og að hlýtt sé fyrir- mælum byggingasamþykkta í einu og öllu. Hjá málarameisturum og vegg- fóðrarameisturum er þessi áritun- arsjcylda þó ekki fyrir hendi, en engu að síður bera þeir sömu ábyrgð, þegar þeir hafa tekið að sér framkvæmd verks. Að framansögðu er ljóst að ábyrgð meistaranna um fram- kvæmd áritunarverka er mikil og vill Meistarasamband bygginga- manna mjög eindregið brýna fyr ir félögum sínum að sinna af alúð og vandvirkni þeim ábyrgðar- miklu störfum, sem áritunarskyld unni fylgja. Það vill stundum koma fyrir að deila rísi milli. húsbyggjenda og meistara. Það er þvi nauðsynlegt að í upphafi geri þeir skýra skrif Framhald á bls. 15 Skemmtun í Góðtemplara- húsínu Góðtemplarastúkurnar Dröfn, Víkingur og Andvari, gangast í kvöld fyrir sameiginlegri skemmt un í Góðtemplarahúsinu. Verður skemmtun þessi með kvóldvöku sniði. Þarna flytur hinn þjóðkunni aflakóngur Þorsteinn Gíslason skipstjóri erindi og sýnir svip- myndir frá síldveiðum sumarsins. Er engin vafi á því, að hér verð ur vel á efni haldið, bæði í máli og myndum og margur fróðari eft ir um gang og giftu þessa megin atvinuvegar þjóðarinnar. í upphafi kvöldvökunnar verð ur flutt stutt ávarp, og erindi sem nefnist „Frá liðnu sumri“. Þá verður einsöngur. Að kvöldvökunni lokinni verður sameiginleg kaffidrykkja. Allir eru velkomnir meðan hús rými er tiltækt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.