Vísir - 16.10.1975, Side 4
TILBOD
VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR)
RADIAL Kr.
145 SR 12 OR 7 5.95
DIAGONAL
520 ’ 12/4 OS 14 4.72
550 12/4 OS 14 5.52
TEKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44 46 KÓPAVOGI SIMI 42606
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
Yfir vetrarmánuðina er opið frá kl
Upplýsingar í síma kl. 9-10
fyrir hádegi og 1-6 eftir hádegi
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9 — 7 alla virka daga og 9—5
iaugardaga
FÓLKSBÍLADEKK - VÖRUBÍLADEKK —
TRAKT0RSDEKK
Fyrirliggjandi flestar stærðir af japönskum TOYO
hjólbörðum.
Einnig mikið úrval af hinum vinsæiu HOLLENSKU
HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæðu verði.
Sendum i póstkröfu.
HJÓLBARÐASALAN
B0RGARTÚNI 24
Sími 14925. - - . .
VÍSIR. Fimmtudagur 16. október 1975.
RFUTER;
A P NTB i
UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN I
Eftir 16 mánaða sársaukafullan
skilnað eru Elizabeth Taylor og
Richard Burton á nýjan leik orðin að
„Burton hjónunum”.
Nú eru sex dagar siðan giftingin fór
fram i afskekktu þorpi i Norður-Bot-
swana og allt útlit fyrir að hjóna-
bandið haldist að bessu sinni.
Hr. Ambrose Masalila, fylkisstjóri, sem fram-
kvæmdi vigsluna s.l. föstudag, hefur skýrt frá þvl
að þau hafi verið mjög áhugasöm um að ganga i það
heilaga á ný.
En að þessu sinni þurftu Burtons hjónin að biða
þangað til að þeim kæmi.
Hr. Masalila sagöi i viðtali við fréttamann Reut-
Elizabeth og Richard eru sameinuð á ný eftir
16 mánaða aðskilnað. Þau viröast mjög
hamingjusöm eft ir hjónavigsluna.
„Viflausasti skiln-
aður sögunnar
ers i gærkvöldi: „Mánudaginn 6. okt. var fyrst haft
samband við mig vegna giftingarinnar. En ég út-
skýröi fyrir þeim að ég væri svo upptekinn að hún
yröi að biða þangaö til föstudaginn 11. október.
Þau uröu heilluð af umhverfinu ákváðu að giftast
hér”, sagði hr. Masalila.
Fylkisstjórinn sagði að hin einfalda vigsluathöfn
hefði byrjaö á þvl að hann hefði spurt þau hvort þau
geröu sér grein fyrir mikilvægi hjónabandsins og
kváðust þau gera það. Slðan fór vigslan fram.
Þau skiptust á hringum og voru orðin „maður og
kona” enn á ný.
Eftir athöfnina buðu Burtons hjónin hr. Masalila
til fagnaðar á árbakka Chobe árinnar, þar sem
skálað var i kampavini og voru tveir flóðhestar
meðal áhorfenda!
Vlgsluvottar voru framkvæmdastjóri Chobe
veiði-hússins, þar sem Burton hjónin hafa dvalið
slðan þaukomu til Botswana 29. sept. s.l. og óþekkt-
ur starfsmaður flugfélags.
Blaðafulltrúi Burtons hjónanna, frk. Chan Sam,
sagði I gærkvöldi að henni væri ekki kunnugt um
framtiöaráform Burtons hjónanna.
„Það er möguleiki á aö þau komi til Jóhannes-
borgar á morgun, (fimmtudag), en sem stendur eru
þau I brúðkaupsferð”, sagði blaðafulltrúinn.
Þau nýgiftu hafa ekki gefið út neinar yfirlýsingar
til fréttamanna eftir aö fréttin um hjónavigsluna
barst út og voru ekki til reiðu fyrir fréttamenn i
gærkvöldi.
Burtons hjónin komu til Afrfku i sept s.l., undir
þvi yfirskyni að fylgjast meö tenniskeppni I
Jðhannesborg. Nú velta menn þvi fyrir sér hvort
u hafi ekki verið i leit að kyrrlátum stað, þar sem
u gætu gengiö I hjónaband fjarri heimsins
glaumi.
lOára hjónaband þeirra var mjög stormasamt en
svo virðist sem hvorugt þeirra hafi I raun og veru
viljað fá skilnað. Haft er eftir Burton að þetta hafi
verið „vitlausasti hjónaskilnaöur i mannkynssög-
unni”.
fíýja Beirút
með kompaní-
in til Aþenu
Öeirðirnar i Libanon hafa leitt
til þess að erlend fyrirtæki, sem
hafa haft skrifstofur I Beirút hafa
flúið til Aþenu og sett á stofn aðal-
skrifstofur fyrir Mið-Austurlönd
og Afriku, segir i Reutersfrétt I
morgun.
Grikkland hefur lengi reynt að
vekja athygli á Aþenu, sem
heppilegum stað fyrir skrifstofur
stórfyrirtækja, þar sem þær væru
vel staðsettar og nálægt iðnvædd-
um vesturlöndum og oliulindum
Arabalanda.
í dag er þetta orðin staðreynd
undir stjórn Constantin
Karamanlis, og Grikkir bjóða
upp á skattfriðindi til þeirra
fyrirtækja sem hafa skrifstofur I
Aþenu, en stunda verslunar-
viðskipti við erlendar þjóðir.
Mörg hinna nýkomnu fyrir-
tækja hyggjast samt sem áður
ekki notfæra sér skattfriðindin,
þar sem þau hyggja á viðskipti i
Grikklandi sjálfu
Stjórnin vill forðast að veita
meiru erlendu fjármagni inn I
landið en almenningur gerir sér
að góðu.
Tafsmaður fyrirtækis sem sér
erlendum fyrirtækjum fyrir
skrifstofufólki og annarri skrif-
stofuaöstöðu sagði i gærkvöldi aö
um 50 erlend frirtæki hefðu þegar
flúið frá Beirut til Aþenu með að-
stöðu sina.
Þar á meðal væru nokkrir
bankar, m.a. First NationalCity
Bank og Chase Manhattan.
Þar er einnig að finna flug-
félögin United Aircraft, Lockheed
Macdonnel Douglas, Boeing og
International Harvester.
Nokkur þessara nýkomnu fyrr-
tækja höfðu áður skrifstofur i
Aþenu.
Hermenn standa vörð við rústir lög-
reglustöðvarinnar i Castlereagh, þar
sem eru aðalstöðvar úrvalssveita her-
lögreglu Breta á Norður-irlandi.
Sprengjan eyðilagði meiri hluta
stöðvarhússins og nærliggjandi bygg-
ingar. Skömmu eftir sprenginguna
viðurkenndu öfgasamtökin að þau
bæru ábyrgð á henni. — Engan sakaði i
sprengingunni.
Símamynd
iP í morgun