Vísir - 16.10.1975, Side 6
6
VtSIR. Fimmtudagur 16. október 1975.
vísm
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson
Bréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Sföumúla 14. simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasögu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Ágæt byrjun
t fyrsta sinn um nokkurra ára skeið ber fjárlaga-
frumvarpið þess merki að fjármálaráðherra vilji
gera alvarlega tilraun til þess að hafa hemil á rikis-
útgjöldum. Að visu er ekki gert ráð fyrir að útgjöld-
in lækki i hlutfalli við þjóðarframleiðslu. En hækk-
un rikisútgjalda um 21% á sama tima og almennt
verðlag hefur hækkað um 50% er vissulega spor i
rétta átt.
Frumvarpið gerir ráð fyrir sparnaði á ýmsum
liðum. Þannig verður t.d. dregið verulega úr út-
flutningsuppbótum og niðurgreiðslum á landbúnað-
arvörum. Gert er ráð fyrir sparnaði i almanna-
tryggingakerfinuogskólakostnaði. Loks er gert ráð
fyrir almennri lagaheimild til þess að lækka ýmiss
konar lögboðin framlög rikissjóðs um fimm af
hundraði.
Hér er óneitanlega um mikið átak að ræða. En
ekki er sopið kálið þó að i ausuna sé komið. Ef að
likum lætur mun ekki ganga þrautalaust að koma
slikum sparnaðaráformum i gegnum þingið. Til
þess að þau nái fram að ganga þarf að gera veruleg-
ar breytingar á almennri löggjöf áður en fjárlaga-
frumvarpið kemur til endanlegrar afgreiðslu. Það
eru þvi enn ýmsir lausir endar.
Framhjá þeirri staðreynd er hins vegar ekki unnt
að lita að fjárlagafrumvarpið er spor i rétta átt.
Með öllu var útilokað að halda áfram á sömu braut
og gert hefur verið. Fram til þessa hefur allt kapp
verið lagt á auka umsvif rikisins á sama tima og
mjög hefur þrengtað atvinnuvegunum. Sannast
sagna hefur dregist úr hömlu að spyrna við fæti i
þessum efnum.
Nú hefur verið mörkuð ákveðin aðhaldsstefna.
Það hefur óhjákvæmilega i för með sér samdrátt á
ýmsum sviðum opinberrar þjónustu frá þvi sem
verið hefði, ef ekki hefðu komið fram tillögur um að
stemma stigu við hinni sjálfvirku útgjaldaþróun.
Þessi einföldu sannindi virðast þingmenn hins veg-
ar ekki skilja. Þeir telja útgjaldaaukninguna allt of
öra á sama tima og þeir keppast við að hækka fjár-
lögin.
Engum getur þvi blandast hugur um, að fjár-
málaráðherra á eftir að heyja harða baráttu við
stjórnarþingmenn jafnt sem stjórnarandstöðuþing-
menn, ef hann ætlar að halda fast við þá stefnu, sem
hann hefur markað með fjárlagafrumvarpinu. Það
er til þess ætlast, að fjármálaráðherrann hviki
hvergi frá þessari aðhaldsstefnu.
Það verður prófsteinn á styrkleika rikisstjórnar-
innar, hvort hún kemur þessu frumvarpi og nauð-
synlegum lagabreytingum i gegnum þingið án þess
að það fari úr böndunum eins og oft vill verða.
Raunverulega þarf að stefna að enn meiri sam-
drætti i rikisútgjöldum. Þau eru enn of stór hluti af
þjóðarframleiðslu. 1 raun réttri er þetta frumvarp
þvi aðeins áfangi i viðureigninni við verðbólguna og
kröf ugerðarhópana.
öllum má vera ljóst að það er forsenda þess að
draga megi úr verðbólgu og hallanum á viðskiptum
við aðrar þjóðir að takast megi að hafa hemil á út-
þenslunni i rikisbúskapnum. Það væri háskalegt ef
sú tilraun, sem nú hefur verið gerð með fjárlaga-
frumvarpinu, yrði að engu gerð með óábyrgum
vinnubrögðum á þingi. En á þvi er veruleg hætta,
þegar litið er á reynslu undangenginna ára.
Umsjón: GP
Sovéskir útlagar
munu hver á eftir öðr-
um bera vitni i Kaup-
mannahöfn næstu þrjá
dagana um meint brot
á mannréttindum i
Sovétrikjunum. Þar
verður víða komið við.
Allt frá trúarofsóknum
til innilokana stjórnar-
andstæðinga á vit-
iausraspitölum. ——
Nokkrir forvlgismenn land-
flótta fólks frá austantjaldsrikj-
um, búandi I Danmörku, hafa
gengist fyrir þessum þriggja
daga réttarhöldum, sem hefjast
i dag. Kenna þeir yfirheyrslurn-
ar við Andrei Sakharov, kjarn-
eðlisfræðinginn, sem risið hefur
gegn sovétstjórninni og barist
fyrir mannréttindum i Sovét-
rikjunum. — Eins og komið hef-
ur fram i fréttum siðustu daga
hefur sú barátta fært honum
friðarverðlaun Nóbels i ár.
Það er viðbúið, að þessi rétt-
arhöld veki heimsathygli, þvi að
þetta er i fyrsta sinn, sem
mannréttindi borgara i Sovét-
rikjunum eru tekin til athugun-
ar, siðan samkomulagið á ör-
yggisráðstefnu Helsinki var
undirritað. — Það samkomulag
fól i sér viljayfirlýsingar um
frjálsara upplýsingastreymi
milli austurs og vesturs og
greiðari mannaferðir yfir
landamærin. Á þvi byggja menn
nýjar vonir um aukið tjáningar-
og athafnafrelsi til handa ibúum
austantjaldslanda.
Dr. Sakharov hefur eindregið
hvatt til þessa ráðstefnuhalds i
Kaupmannahöfn, þótt hann sjái
sér ekki fært að vera þar við-
staddur sjálfur. Loforð Hel-
sinkiráðstefnunnar hafa ekki
ræst á honum, þvi hann hefur
ekki „ferðaleyfi” yfirvalda til
þessa að fara úr landi, eða koma
heim aftur.
„Jafnvel þótt stjórnvöld féll-
ust á að taka slika umsókn til
greina, þá mundi að venju taka
þau átta mánuði að senda mér
neitunarsvar,” sagði Sakharov
við danskan blaðamann nýlega.
,,Ég hef ekki geð i mér til að láta
niðurlægja mig þannig.”
Rúmir tveir tugir sovéskra
útflytjenda hafa þáð boð um að
sækja þetta mannréttindaþing
og bera þar vitni um ofsóknir
sovéskra yfirvalda á hendur
trúarsöfnuðum, stjórnmálaleg-
um andstæðingum, listamönn-
um og þjóðarbrotum. Sem dæmi
um siðasttalda hópinn nægir að
minna á úkraniumenn, þjóð-
verja, gyðinga, eystlendinga,
kettlendinga og tartarana á
Krímskaganum.
Mörgum sem hlýða ætla á
þessar vitnaleiðslur er efst i
huga að fregna, hvað hæft sé i
fullyrðingum stjórnarandstæö-
inga i Sovétrikjunum, sem
halda þvi fram, að i engu hafi
gætt áhrifa Helsinki-loforðanna
i þjóðlifi þar eystra.
Hinir sem færa ætla þessum
orðum stað gera sér vonir um að
vekja umtal og blaðaskrif um
þessi mál til stuðnings bæna-
stöfum Sakharovs um sakar-
uppgjöf til handa pólitiskum
föngum I Sovétrikjunum. En
Sakharov hefur bent á, aö slik
sakaruppgjöf og allsherjarnáð-
anir væri besti vitnisburðurinn
um góðan ásetning sovétstjórn-
arinnar, hvað viðkæmi efndir á
loforðunum i Helsinki.
Julian Kerr, fréttaritari Reut-
ers i Kaupmannahöfn, skrifar,
að nafngift þessa mannréttinda-
þings, „Alþjóðlegu Sakhar-
ov-yfirheyrslurnar”, sé viður-
kenning á þvi forystuhlutverki,
se, visindamaðurinn hefur
gegnt i mannréttindabaráttu i
Sovétrikjjnum. •
Hann ber hæst þeirra, sem
láta þessi mál til sin taka þar
eystra i hiði bjarnarins. Fleiri
hafa þó látið að sér kveða i bar-
áttunni fyrir auknum mannrétt-
indum og hafa mátt þola ofsókn-
ir fyrir sitt framtak. Nefna
mætti liffræðinginn Sergei
Kovaiev, eða eðlisfræðinginn,
Andrei Tverdokhlehov, sem
báðir biða þess að verða
Andrei Sakharov, visindamaðurinn, sem réttarhöldin eru kennd við
verður sjálfur ekki viðstaddur þau....
Sakharov-
yfirheyrsl-
urnar í
Kaupmannahöfn
dregnir fyrir rétt. Þótt
ekki hafi þeir náð slik-
um frama og Sakharov gerði,'
áður en hann bakaði sér óþökk
yfirvalda, þá eru þeir engu að
siður virtir menn I Sovétrikjun-
um. Menn biða átekta að heyra
dómana yfir þeim, þvi af þeim
vilja þeir marka, hversu langt
sovétstjórnin sé reiðubúin að
ganga gegn velmetnum borgur-
um.
Meðal þeirra sem bera munu
vitni i Kaupmannahöfn er list -
gagnrýnandinn, Viktor Fain-
berg, sem i fimm ár var hafður
á geðsjúkraháuinu i Leningrad,
áður en hann flutti úr landi i
fyrra. Með honum verður kona
hans, Marina, fyrsti sálfræðing-
urinn, sem yfirgefið hefur
Sovétrikin og er reiðubúin til að
leysa frá skjóðu reynslu sinnar.
Til viðbótar má nefna Dimitri
Panetre, stærðfræðing, sem er
náinn vinur Alexanders Sol-
zhenitsyns. Eða Anatoli Levit-
in-Krasnov, fræðimanns i trúar-
bragðasögu. Hann afplánaði tiu
ár i fangelsum i Rússlandi fyrir
skrif sin en býr núna i Sviss.
Nokkrir rithöfundar segja
þarna sögu sina, eins og Vladi-
mir Maximov, Viktor Nekras-
sov, Alexander Galich og
Andrei Sinyavsky, sem vestur-
landabúar kannast kannski best
við, vegna háðskrifa hans, sem
laumað var út úr Sovétrikjun-
um, og gefnar út á vesturlönd-
um. Sinyavsky dvaldi sjö ár i
þrælafangabúðum fyrir skrif sin
og skoðanir.
Hugsanlegt er, að hinn 75 ára
gamli prófessor, pólverjinn
Stanislaw Swianiewics, beri
þarna vitni, en hann slapp fyrir
einhverja mildi við örlög 4.300
pólskra liðsforingja, sem teknir
voru til fanga i siðari heims-
styrjöldinni og skotnir I april
1940 I Jatyn-skógunum I Pól-
landi. Prófessorinn var tekinn
úr fangalestinni, áður en komið
var á aftökustaðinn. — Sovét-
menn kenndu þjóðverjum um
aftökurnar en aðrir, þar á með-
al prófessorinn, hafa lýst allri á-
byrgð á hendur rússum.
Það er þó óvist, hvort prófess-
orinn verður búinn að jafna sig
á meiðslum, sem hann hlaut i
London í upphafi þessa mánað-
ar, áður en réttarhöldunum iýk-
ur um helgina. Ráðist var á
Stanislaw úr launsátri og hann
barinn til óbóta, en pólskir út-
lagartelja.aðþaðhafi gagnvart
verið til þess að hindra gamía
manninn i að bera vitni.
Ddmnefndin, sem yfirheyrsl-
unum stjórnar, er skipuð
sautján mönnum. Þar eru kunn-
astir franska leikritaskálið
Eugene Ionesco, rithöfundurinn
Robert Conquestog gyðingurinn
Simon Wiesenthal, sem allra
manna er best kunnugur of-
sóknum á hendur gyðingum i
Sovétrikjunum, en frægastur
fyrir fundvisi sina á striðs-
glæpamönnum nasista, sem
hurfu I felur i striðslok.
Verkefni þessa dómsþings er
að semja ályktanir að loknum
yfirheyrslunum og verða þær
sendar rikisstjórnum ailra
landa heims I von um, aö þær
taki upp umræður á alþjóða-
vettvangi, eins og i Evrópuráð-
inu eða Sameinuðu þjóðunum,
um mannréttindi i Sovétrikjun-
um.