Vísir - 18.10.1975, Síða 4
4
VÍSIR. Laugardagur 18. október 1975.
„LITIÐ TIL FUGLA HIMINSINS''
Texti: Matteus 6.25-34
Á haustin ætti að
vera rikjandi sú
velliðan sálarinnar,
sem nefnd er upp-
skerugleði. Efalaust
vilja menn binda þetta
sálarástand fyrst og
fremst við bændur og
búalið — sveitafólkið —
þá, sem stunda jarð-
yrkjuna i viðustu
merkingu. Og vissu-
lega er það svo. Hjá
þeim er uppskerugleð-
in auðfundnust, auð-
veldast að njóta henn-
ar, þvi að þar er hægt
að hafa sjálfan árang-
urinn áþreifanlegan,
uppskeruna fyrir aug-
um og milli handanna.
Þar er þessi tilfinning
bæði heil og sönn, djúp
og rik.
Þaö er næsta eölilegt, aö viö
islendingar njótum uppskeru-
gleöinnar i rikum mæli. 1 öilu
veraldar striöi þessarar fá-
mennu eyþjóöar hafa þaö veriö
hennar veikustu varnarlinur aö
vera vanbúin löngum hörðum
vetri, hafa þá ekki sæmilegar
birgöir til aö mæta þvi sem aö
höndum ber.
Geta nú þessar staðreyndir —
þessi raunveruleiki sögu okkar
og nútiðar — getur hann
samrýmst þessu guöspjalli og
þeirri kenningu og skoðun á
lifinu sem þar er sett fram?
Hefur þaö ekki alltaf verið ógn
og dauöi, hremming og for-
djörfun þessari þjóö, aö
uppskeran hefur reynst of litil,
vetrarforöinn of smár. Ekki get
ég hugsað óhugnanlegri vanda,
en horfa fram vetur, Islenskan
vetur, meö vantandi föng fyrir
menn og málleysingja. Er þaö
ekki brýnasta skylda okkar viö
lifiö aö hafa þessa forsjálni,
eiga dug og framtak og fyrir-
hyggju til að gera allan
nauösynlegan undirbúning
fyrir komandi vetur? Fyrir
þeim sem skortir þessa fyrir-
hyggju, hefur aldrei farið vel.
Geta nú þessar öruggu
staöreyndir, sem viö blasa,
samrýmst þeirri skoöun og
kenningu sem felst I þvi alkunna
guöspjalli, kaflanum úr
Fjallræöunni, sem ég las I
upphafi?
Já vissulega. Hér þarf ekki aö
vera um neitt ósamræmi aö
ræöa — siöur en svo. Þvi fer
ákaflega fjarri, að Jesús sé i
þessum oröum sinum i Fjall-
ræöunni aö haida þvi fram, að
menn eigi ekki að sýna forsjálni
og eðlilega fyrirhyggju I við-
skiptum sinum við náttúruöflin.
Aminning þessa alkunna guð-
spjalls er vfllsfjarri þvi aö vera :
Veriö ekki forsjálir, heldur er
hún þessi:
Veriö ekki áhyggjuíullir. Ug
allt, sem segir i Fjallræöunni i
þessu sambandi, er einmitt til
þess aö undirbyggja þessa dag-
skipan, þessa áriöandi
áminningu um aö varast
áhyggjurnar og foröast aö láta
þær hafa áhrif á líf sitt.
Þetta boöorð á vissulega
erindi til okkar enn i dag, þótt
viö séum svo margfalt betur
undir það búin að mæta vetrin-
um, og ásókn hans heldur en
nokkur önnur kynslóö, sem lifaö
hefur I landinu.
Samt hefur þvi verið haldiö
fram, að þvi er viröist meö
miklum rétti, aö I þessum heimi
lifsþægindanna og allsnægtanna
beri menn þungar byrðar
áhyggju og kvlöa fyrir
framtiöinni, leyndan ótta viö
það sem koma skal. Þetta er
næsta ótrúlegt þegar minnst er
allra þeirra sigra, sem
mannkyniö hefur unniö meö
vaxandi tækni og auknum fram-
förum, og lifsbaráttan viröist
leikuy einn saman boriö viö
striö og þrældóm fyrri tima. Og
sifellt er sótt fram til batnandi
lifskjara.
En lúxusinn er aögangs-
haröur og lifsþæginda-
kapphlaupiö tekur á taugarnar.
Læknar og sálfræðingar I mestu
velferöarrikjum veraldar halda
þvi alveg ótvirætt fram aö
aldrei hafi taugaspennan veriö
meiri og þeir gefa upp i opinber-
um skýrslum, að þaö þurfi 10.
hver maöur aö dvelja á tauga-
hæli einhvern hluta ævi sinnar.
Þar getur ekki veriö aö kenna
kviöa út af daglegri afkomu eöa
efa um þaö hvort maður eigi nóg
til næsta máls. Þaö eru allt aör-
ar ástæöur, sem þessu valda
heldur en efnaskortur eða
áhyggjur út af ytri lifskjörum.
Þetta eru einmitt sjúkdómsein-
kenni velferðarþjóöfélagsins.
Þetta er fyrst og fremst i sam-
bandi við óhóf og óreglu, alls-
konar lausung og upplausn,
heimili sundruð, einstaklingar
sárir og beiskur, gripandi til
óyndisúrræöa, hópar og flokkar
hrópandi hástöfum á hærri kröf-
ur og meiri réttindi. Viö, sem
vonuöum og trúöum þvl, aö bætt
lifskjör mundu gera fólkið aö
hógværari og hollari þjóöfélags-
þegnum,” segir einn félags-
fræöingurinn þegar hann ræöir
þessi vandamál.
Hvernig stendur á þessu?
Hversu má þetta verða? E.t.v.
má oröa svarið svo, aö þetta
stafi af þvi, að andlegur, siö-
feröilegur þroski fólksins hafi
ekki haldist i hendur við hinar
ytri framfarir. Hér á vel viö aö
vitna i Pál postula: Ég kann
bæöi aö búa viö litinn kost. Ég
kann lika að hafa allsnægtir. Ég
hef lært þann leyndardóm aö
vera mettur og hungraður. Ég
hef lært að vera ánægður meö
þaö, sem ég á við aö búa.
Þetta var nú hans afstaða til
llfsgæðanna og notkunar þeirra.
Erfiöleikarnir geröu hann ekki
kviðafullan. Velmegunin steig
honum ekki til höfuös. Honum
varö ekki hált á braut mikillar
nægta og margbreytilegra lifs-
gieöa. Hversvegna?
Vegna þess aö hann átti trúar-
lega kjölfestu illfi sinu. Hin efn-
islegu gæöi voru hvorki smá né
litils viröi I augum hans. En
hann leit á þau sem gjafir skap-
arans. Himnafaöirinn var hin
mikla staöreynd i llfi hans, i
hvers þjónustu hann var allt sitt
lif eftir afturhvarfið. Eftir þaö
var hann trúrsinni himnesku
köllun og jarðlifið, meö öllum
þessum gögnum og gæðum aö-
eins brú yfir til vors eilifa fööur-
lands. Við reykvikingar höfum
átt 7 menn, sem minna ekki svo
Htiö á ummæli Páls. Þeir hafa
átt þann leyndardóm aö vera
ánægöir með þaö sem þeir hafa
átt viö aö búa. Um k. Fr. Fr. —
hinn kunna æskulýðsleiðtoga
var sagt — og við, sem þekktum
hann vissum hversu satt og rétt
þaö var:
„Hann haföi engar áhyggj-
ur fyrir likamlegum þörf-
um næsta dags, en varöi
a.m.k. siöustu árin klukku-
stund hvert kvöld til að biöja
fyrir sinum mörgu vinum.”
Þaö er þetta áhyggjuleysi en
ekki forsjár- eða fyrirhyggju-
leysi, sem veriö er aö brýna
fyrir kristnum mönnum meö
guöspjalli Fjallræöunnar: Litiö
til fugla himinsins. Þetta eigum
viö aö læra af þeim. Hver lexia
er þaö ekki, sem viö getum af
þeim lært. Þar sjáum viö
vinnugleöina, iðnina og úrræðin
viö hreiðurgerð og fæöuöflun,
umhyggjuna fyrir ungunum,
þegar þeir eru undirbúnir aö
fljúga háa himinvegu undan
vetrinum, sem yfir vofir meö
frost og fannalög.
Og — gefiö gaum að liljum
vallarins — Sjáum viö ekki
heilan heim ráðdeildar og
reglusemi þar sem aflaö er
næringu til vaxtar, séö er
fyrir dreifingu fræjanna, svo aö
lfriö haldist við. Og fræiö felst I
moldinni til aö risa upp i nýrri
jurt á næsta vori. Þaö er þetta,
sem viö eigum aö læra af fugl-
um loftsins og vallarsins fögru
liljum.
Ýmsum finnst það máski
næsta hæpin kenning aö
manneskjan geti nokkuö af
þessu lært. Getum viö eignast
bennan frjálsa fögnuö, þennan
fagra unaö þessa náttúrullfs?
Erum viö ekki fædd meö þessari
sifelldu áhyggju út af eigin hag,
þessu kviöna hjarta, þessari
blaktandi von, sem er nöguö af
efa, kalin af ótta? Nei, fjarri fer
þvi. Þetta er einmitt þetta, sem
er hinn hrapallegasti misskiln-
ingur, hin mikla villa vegna
þess að viö erum öll Guös börn,
hans gæslu falin og i skjóli náð-
ar hans og miskunnar.
Yðar himneski faðir veit — —
Þaö er huggunin, frelsunin,
lausnaroröiö mikla, af þvi aö
þaö er gefiö okkur af honum,
sem var mönnum af Guöi send-
ur til aö frelsa heiminn, frelsa
okkur öll og leiöa okkur öll frá
dufti sorgar og dauða I drottins
fööur skaut. — Að taka á móti
gjöf hans, þiggja handleiðslu
hans, hlita leiðsögn hans — það
er að leita fyrst rikis Guös og
réttlætis og þá fæst lika allt aö
auki. Þetta að leita guösrikisins
fyrst, þaö er viös fjarri þvi aö
vanrækja eða litilsviröa nokkuö
af gjöfum eöa gæöum þessa lifs,
sem allar geta oröið til óneitan-
legrar blessunar, ef viö kunnum
meö aö fara.
Ef viö gerum það, þurfum viö
ekki aö vera áhyggjufull eöa
kvlðin fyrir komandi degi, þvi
aö þá höfum viö lært það af fugl-
um loftsins og liljum vallarsins
aö starfa i þögulli lotningu og
hógværö tilbeiöslunnar frammi
fyrir himnafööurnum, þakkandi
honum fyrir allt, treystandi þvi
að hann muni vel fyrir öllu sjá.
Gidéonféiagiö islenska er 30 ára
um þessar mundir.
Þaö er merkilegur félagsskap-
ur I kristnum — bibliulegum —
skilningi, þvi aö hann hefur þann
tilgang einan aö útbreiða Guös
orö meö því aö gefa öllum 12 ára
börnum Nýja-Testamentiö og
meö þvi aö dreifa hinni helgu bók
sem viöast I fyrirtækjum og á þá
staöi, sem sóttir eru af gestum og
gangandi.
Hér I Reykjavlk var Gideonfé-
lagiö stofnað af vestur-Islend-
ingnum Kristni Guönasyni þ. 30.
ágúst 1945 meö 17 meölimum TIu
árum slöar voru stofnaöar deildir
á Akureyri og Akranesi. Mynda
þær nú l-andssamband, ásamt
Reykjavlkurfélaginu, meö 102
meðlimum.
Meðfylgjandi mynd er frá
bernskuárum Gideons.
Talið frá vinstri:
Þorkell G. Sigurbjörnsson.
Einar Th. Magnússon.
Friðrik Vigfússon.
Jóhann Sigurðsson.
Kristinn Guðnason.
Viggo Jessen.
Sr. Fr. Friðriksson.
Helgi Eliasson.
Arni Sigurjónsson.
ólafur ólafsson.
Einar Andersen.
Hermann Þorsteinsson.
Sigurður Guðmundsson.
Jón Zætran (aftar)
Ingólfur Gislason.
Páll Oddsson.
o
GIDEON