Vísir - 18.10.1975, Page 5
VtSIR. Laugardagur 18. október 1975.
5
ERLEND MYNDSJA
Umsjón: G.P.
Fen gu
Nóbels-
prísinn
i hag-
frœði
Hin konunglega
sænska akademia hef-
ur veitt Nóbelsverð-
launin i hagfræði sinn
hvorum prófessornum,
öðrum i Sovétrikjunum
en hinum i Bandarikj-
unum.
Þeir eru prófessor Leonid
Kantorovich (Sovétrlkjunum)
og prófessor Tjalling C. Koop-
mans (Bandarlkjunum).
Þóttu þeir maklegir Nobels-
verðlaunanna fyrir framlag
þeirra beggja til hagfræðikenn-
ingarinnar um hámarksnýtingu
auðlinda.
Tjalling Koopmans, prófessor, 1
viðræðum við fréttamenn, sem
skýrðu honum frá verðlauna-
veitingunni.
Kantorovich prófessor
Endurfundir
Geimfararnir, sem stýrðu
loftförunum Apollo og Soyuz á
stefnumótið fræga úti i geimn-
um, áttu endurfundi á dögunum
i Bandarikjunum.
Rússarnir, Valery Kubasov
(lengst t.v. á myndinni hér við
hliðina) og Alexei Leonov (við
hiið hans), komu með fjölskyld-
ur sinar I heimsókn til starfs-
bræðra sinna I USA. — Við það
tækifæri hitti allur hópurinn
Ford forseta og færði honum að
gjöf skjöldinn, sem sést hér á
myndinni. Nákvæmlega eins
skjöld höfðu þeir áður gefið Leo-
nid Brezhnev, leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins.
4
Stonehouse
Þessa dagana standa yfir
réttarhöld i máli John Stone-
house og einkaritara hans,
Sheilu Buckley. 1 yfirheyrsium
siðustu daga hefur komið fram,
að Stonehouse hafi lagt þúsund-
ir sterlingspunda inn á banka-
reikninga í Ástraliu undir fölsk-
um nöfnum. Ákæruvaldið held-
ur þvi fram, að peninga þessa
hafi þingmaðurinn dregið undan
hjalparsjóðum, sem hann beitti
sér fyrir að komið yrði á legg til
hjálpar bágstöddum I Biafra. —
Stonehouse vakti á sér athygli,
þegar hann setti á svið drukknun
sina i Flórida, en fannst undir
fölsku nafni I Ástraliu. Haft er
fyrir satt, að þingmaðurinn hafi
ætlað að stinga af þangað með
einkaritara sinum sem átti að
hitta hann þar siðar. — Á með-
fyigjandi myndum sjást þau
vera á leið til réttarsalarins.
KfNVERSKI FIMLEIKAFLOKKURINN
(Tientsin
Acrobatic
Troupe)
I LAUGARDALSHOLL I DAG KL. 15.00 [ Forseti Í.S.Í., hr. Gísli Halldórsson, setur hátíðina
Öll sæti á laugardags-
og sunnudagssýningar
UPPSELD
Næstu sýningar flokksins:
Sunnudaginn 19. október kl. 15.00
Þriðjudaginn 21. október kl. 20.00
Miðvikudaginn 22. október kl. 20.00
Verð aðgöngumiöa:
Ssti kr. 800.-
Stæði kr. 500.-
Miðasata í Laugardalshöll í dag og á morgun frá klukkan 13.00
íþróttabandalag Reykjavíkur