Vísir - 18.10.1975, Side 17
VtSIR. Laugardagur 18. október 1975.
17
OAG | í KVÖLD | í DAG
D KVÖLD | D □AG |
Sjónvarp kl. 21.25:
HUN OLLI
HNEYKSLI I
HOLLYWOO
— Ingrid Bergman og Anthony Quinn í bíómyndinni í kvöld
„Hei, I dag sá ég kvikmynd
þar sem Ingrid Bergman lék
ekki”. Á árinu 1945 var þetta
góOur brandaði i New York.
Myndirnar Saratoga Trunk, The
Bells of St. Mary’s og Spell-
bound gengu stöOugt og ALLIR
sáu þær.
Ingrid Bergman var á þeim
tima ókrýnd drottning Holly-
wood. Vinsældir hennar virtust
aldrei ætla að dvina. En einmitt
þá átti sér staö hið óvæntasta
hneyksli i Hollywood.
Fáar stjörnur hafa vakið jafn
mikla athygli og Bergman. Hún
kom frá Sviþjóð árið 1939. Hún
var ólik öðrum stjörnum þess
tima. Eitt átti hún þó sameigin-
legt með Gretu Garbo. Báðar
fæddust i Stokkhólmi.
Ingrid Bergman fæddist árið
1915. Þegar hún var tveggja ára
missti hún móður sína og föður
sinn þegar hún var 12 ára.
Aðeins stuttu siðar lést svo
frænka hennar sem hún hafði
verið send til. Þá fór hún til
frænda sins og bjó hjá honum.
Hún gekk á leiklistarskóla i
Stokkhólmi, en árið 1934 snéri
hún sér að kvikmyndum. Sá
sem hvatti hana til þess, Dr.
Peter Lindström, átti siðar eftir
að verða eiginmaður hennar.
Fyrsta kvikmynd hennar var
Munkbrogreven, sem gerð var
’34. Stuttu siðar lék hún i Inter-
mezzo. Eintak af henni komst til
New York og þar með hófst fer-
ill hennar I Hollywood.
Við Islendingar höfum séð
margar myndir þar sem Ingrid
Bergman kemur fram. í sjón-
varpinu hafa verið sýndar
nokkrar mynda hennar, svo
sem Casablanca og Anastasia.
Siðast sáum við hana i myndinni
Orient Express I Háskólabíói.
Hneykslið sem minnst var á i
byrjun átti sér stað þegar Ingrid
Bergman giftist Italska leik-
stjóranum, Roberto Rossellini.
Það gat almenningur ekki fyrir-
gefið og þá sérstaklega i Ame-
riku.
Hún náði ekki árangri með
manni sinum I kvikmynda-
listinni. Þau skildu og sjálfs-
trausthennar varhorfið. En þaö
leið ekki á löngu áður en Holly-
wood opnaði faðminn fyrir
henni aftur. Þá lék hún i
Anastasiu og sló i gegn. Hún
fékk önnur Óskarsverðlaunin og
enn hélt hún áfram að leika.
Arið 1969 lék hún i myndinni
Cactus Flower með Walter
Matthau og Goldie Hawn. 1970
lék hún svo i myndinni sem sýnd
verður i sjónvarpinu i kvöld, A
walk in he spring rain. Fyrri
myndin sló i gegn en sú siðari
ekki. Við fáum þó að dæma i
kvöld, klukkan 21.25. —EA
Atriöi úr myndinni A walk in the spring rain, sem viö sjáum i
kvöld. Anthony Quinn og Ingrid Bergman fara meö aðalhlut-
verkin.
Útvarp kl. 19.35:
Skemmtanalíf
unga fólksins
ó dagskró
— í síðasta þœttinum „í sjónmóli"
í kvöld
t sjónmáli er á dagskrá út-
varpsins ikvöld. Þetta er siöasti
þátturinn, enda eru umsjónar-
mennirnir önnum kafnir, báöir
t.d. viö nám. Þaö eru Steingrim-
ur Ari Arason og Skafti Haröar-
son sem sjá um þáttinn.
Þeir ætla að taka fyrir
skemmtanalif unga fólksins i
kvöld. M.a. veröa kynntar
niðurstöður starfshópa sem
störfuðu I vor á vegum Æsku-
lýðsráðs, og fleira verður tekið
fyrir.
Þeir Steingrimur og Skafti
höfðu ekki tekið þáttinn upp
þegar við höfðum samband við
þá, en þeir bjuggust við að taka
tali ungt fólk og spjalla við það
um skemmtanalifið.
Þátturinn hefst kl. 19.35.
IÍTVARP •
Laugardagur
18. október
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Arnadóttir les
söguna „Bessi” eftir Dor-
othy Canfield i' þýðingu Silju
Aðalsteinsdóttur (12). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Óskaiög sjúkl-
inga kl. 10.25: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A slóðum Stephans G.
Þriðji og siðasti þáttur Agn-
ars Guðnasonar með frá-
sögum og viðtölum við Vest-
ur-lslendinga.
15.00 Miðdegistónlé'tkar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
16.30 Þingsjá. Kári Jónasson
sér um þáttinn.
17.00 Popp á laugardegi.
17.50 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 1 sjónmáli. Skafti Harð-
arson og Steingrlmur Ari
Arason sjá um þáttinn.
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 Að vera ríkur. Árni Þór-
arinsson og Björn Vignir
Sigurpálsson sjá um þátt-
inn.
21.30 Tónleikar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sunnudagur
19. október
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Branden-
borgarkonsert nr. 4 i G-dúr
eftir Bach. Adolf Busch
stjórnar kammersveitinni
sem leikur. b. Flautukons-
ert i G-dúr eftir Gluck.
Camille Wanausek og Pro
Musica hljómsveitin i Vin-
arborg leika, Charles Adler
stjórnar. c. Pianósónata i A-
dúr eftir Haydn. Charles
Rosen leikur. d. Vatnasvita
nr. 1 I F-dúr eftir Handel.
Hátiðarhljómsveitin i Bath
leikur. Yehudi Menuhin
stjómar.
11.00 Messa i Hallgrimskirkju.
Prestur: Séra Karl Sigur-
björnsson. Organleikari:
Páll Halldórsson.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 t fyigd með fullorðnum.
Rósberg G. Snædal rithöf-
undur spjallar við hlustend-
ur.
13.40 Harmonikulög. Franco
Scarica leikur.
14.00 „Stóðu meyjar að megin-
verkum” Samfelld dagskrá
um vinnandi konur I ellefu
hundruð ár, tekin saman af
Dagnýju Kristjánsdóttur,
Kristjáni Jónssyni, Turið
Joensen og Þorvaldi Krist-
inssyni. Flytjendur: Briet
Héðinsdóttir, Guðrún Al-
freðsdóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Steinunn Jó-
h annesdóttir, Hjördis
Bergsdóttir, Kjartan Ragn-
arsson, Magnús Pétursson
og Norma Samúelsdóttir.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátiöinni i Salzburg
s.I. sumar. I Solisti Veneti
leika undir stjórn Claudio
Scimone. Einleikarar á fiðl-
ur: Piero Toso og Juan Car-
los Rybin. Einleikari á
mandólin: Alessandro Pit-
relli. a. Konsert I A-dúr fyrir
fiðlur og strengjasveit eftir
Vivaldi. b. Konsert i G-dúr
fyrir mandólin og strengja-
sveit eftir Giuliano. c. Són-
ata fyrir strengjasveit i D-
dur, „La Tempesta” eftir
Rossini. c. Divertimento i
D-dúr (K334) eftir Mozart.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 AHtaf á sunnudögum.
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Staldrað viðá Vopnafirði
— þriðji þáttur Jónas Jónas-
son litast um og spjallar við
fólk.
18.25 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
19.25 Úr handraðanumSverrir
Kjartansson annast þáttinn
20.00 islenzk tónlist.a. Hljóm-
sveitarsvita eftir Helga
Pálsson. Sinfóniuhljómsveit
Islands leikur, Páll P. Páls-
son stjórnar. b. Einleikssón-
ata fyrir fiðlu eftir Hallgrim
Helgason. Howard Leyton-
Brown leikur.
20.30 Skáld við ritstjórn. Þætt-
ir úr blaðamennsku Einars
Hjörleifssonar, Gests Páls-
sonar og Jóns Ólafssonar i
Winnipeg. — Fimmti og sið-
asti þáttur. Sveinn Skorri
Höskuldsson tók saman.
Lesarar með honum: Óskar
Halldórsson og Þorleifur
Hauksson.
21.30 Kórsöngur. Park-
drengjakórinn og Norski
einsöngvarakórinn syngja
lögeftirdönsk og norsk tón-
skáld. Stjórnendur: Jörgen
Bremholt og Knut Nysted.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiðar Ástvaldsson velur
lögin og kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
—EA
Útvarp kl. 14.00 sunnudag:
VINNANDI KONUR í
ELLEFU HUNDRUÐ ÁR:
• „Stóðu meyjar að meginverk-
um”, heitir dagskrá i útvarpinu
á morgun. í sambandi vií
kvennaársráðstefnuna sem
haldin var á Hótel Loftleiðum i
sumar var flutt dagskrá um
konur.
Þessi dagskrá verður flutt i
útvarpinu, og er um vinnandi
konur i eilefu hundruð ár. Dag-
skráin er tekin saman af Dag-
nýju Kristjánsdóttur, Kristjáni
Jónssyni, Turið Joensen og Þor-
valdi Kristinssyni.
Flytjendur eru Briet Héðins-
dóttir, Guðrún Alfreðsdóttir,
Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Steinunn Jóhannsdóttir, Hjördis
Bergsdóttir, Kjartan Ragnars-
son, Magnús Pétursson og
Norma Samúelsdóttir.
Dagskráin hefst klukkan tvö
og stendur i klukkutima.
—EA