Vísir - 20.10.1975, Side 10
10
VÍSIR. Mánudagur 20. október 1975.
y
VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR)
RADIAL 145 SR 12 OR 7 Kr. 5.950 -
DIAGONAL
520 12/4 OS 14 4.720.-
'550 12/4 OS 14 5.520.- ■ i l
TÉKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND! H/F
^AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
VERmBOD
Á FULLNEGLDUM SNJODEKKJUM
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H/E
AUÐBREKKU 44 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Garðahreppur: Hjólbarðaverkstæðlð Nýbarði
Akureyri: Skoda verkstaeðið á Akureyri h.f. Óseyri
Egilsstaðir: Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar
VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR) RADIAL
145 SR 12 OR 7
165 SR 14 OR 7
13auwn VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR) DIAGONAL
520 12/4 OS 14
550 12/4 OS 14
590 13/4 OS 14
640 13/4 OS 14
615/155 14/4 OS 14
700 14/8 OS 14
590 15/4 OS 14
600 15/4 OS 14
640/670 15/6 OS 14
670 15/6 OS 14
600 16/6 NB 16 m/slöngu
650 16/6 TP 7 m/slöngu
750 16/6 TP 7 m/slöngu
*
„tslendingurinn hjá Charleroi
— Guðgcir Leifsson — er að
verða stórt nafn hér i knatt-
spyrnunni i Belgiu — svo stórt,
að hann fer jafnvel að skyggja á
hinn Isiendinginn — Ásgeir
Sigurvinsson hjá Standard
Liege — ef svona heldur áfram,
og þó er hann aðeins búinn að
vera hér I nokkra mánuði.”
Þetta sagði kunningi okkar i
Belgíu sem er iþróttafréttamaö-
ur við stórblað I Brussel, er við
höfðum samband við hann i
morgun tii að fá fréttir úr belg-
isku knattspyrnunni um helg-
ina.
Leifsson átti stórleik með
Charleroi á laugardaginn, og
hann hefur átt hvern leikinn
öðrum betri nú að undanförnu”
sagði hann. „Charleroi lék þá
við Ilacing Malines heima og
sigraöi 4:1. Þvi hafði ekki nokk-
ur maður búist við fyrirfram,
þvi að Charleroi hefur aldrei
sigrað þetta lið i öll þau skipti,
sem þau hafa mæst.
tslendingurinn var alveg frá-
bær á miðjunni — gaf góða bolta
á samherja sina og lék andstæð-
ingana stundum svo grátt, að
þeir vissu varla hvert þeir voru
að fara. Hann skoraði eitt mark
i leiknum — mjög laglegt mark
— en þá var staðan 3:0, og hafði
hann átt þátt i a.m.k. einu ef
ckki tveim af þeim mörkum.
Hann liefur skorað mark i sið-
ustu þremur leikjum, og aðdá-
endur liðsins halda varla vatni
af ánægju með hann. Charleroi
er þaö lið, sem mest hefur kom-
Áhorfendur fjölmenna nú á
alla leiki liðsins, og það var
mikið fjör hjá þeim á laugar-
daginn. Velgengnina á Charle-
roi ekki minnst að þakka Islend-
ingnum. Hann hefur Ilka fengið
mjög góða dóma i blöðunum
fyrir leiki sina með liðinu —
enda er ekki annað hægt þvi að
hann hefur staðið sig frábær-
lega.
Hinn islendingurinn hér hjá
okkur — Sigurvinsson — er allt-
af jafn-göður. Hann lék með
Standard Liege gegn Ander-
lecht á laugardaginn og stóð vel
fyrir sinu að vanda. Að visu
skoraði hann ekki mark í þetta
sinn, en leiknum lauk með jafn-
tefli 1:1.
Það er mikill spenningur i
deiidarkeppninni hér, og hafa
flest öll liðin enn möguleika á
sigri nú þegar eilefu umferðum
er lokið, og eru liðin sem is-
lendingarnir leika með bæði i
þeim hópi. Keppnin hefur sjald-
an eða aldrei verið eins jöfn og
þetta, og verður gaman að
fylgjast með henni i vetur ef
svona hcldur áfram.”
Crslitin i 11. umferðinni i
Belgiu urðu annars þessi:
Standard Liege—Anderlecht 1:1
Charleroi—Malines 4:1
Antwerp—Bercham 0:0
Lokeren—Waregem 1:1
Brugeois — Bruges 1:0
Beringen — Beveren 1:0
FC Malines — Lierse 4:1
Molenheek — La Louviere 3:1
Beerschot —Liegeois 3:1
—klp—
Guðgeir Leifsson
ið á óvart hér á undanförnu —
leikið stórgóða knattspyrnu, og
þýtur nú upp eftir töflunni eftir
velgengnina i siðustu leikjum.
Dynamo Kiev fékk skell!
Sovésku meistararnir Dynamo
Kiev, sem mæta Akurnesihgum i
Evrópukeppninni i knattspyrnu á
miðvikudaginn, fengu heldur
betur skellinn I leik við Pakhtakor
I 1. deiidarkeppninni i Sovétrikj-
unum um helgina.
Að sögn blaðsins Sovietsky
Sport, voru leikmenn Dynamo
svo öruggir i upphafi leiksins, að
engu likara var en að þeir teldu
sig vera að gera auglýsingamynd
um hvernig ætti að senda boitann
á milli manna — þar til Pakhta-
kor sá hvað var að gerast — tók
leikinn i sinar hendur og sigraði
5:0.
Blaðið segir einnig, að eins gott
lið og Dynamo Kiev, með alla
sina frábæru leikmenn og vara-
menn, hafi ekki leyfi til að tapa
svona stórt. Það afsakar þó leik-
mennma með þvi, að þeir séu
orðnir þreyttir eftir marga stór-
lei ki að undanförnu — og bætir
siðan við að þetta tap verði lika til
þess að leikmennirnir taki næstu
leiki alvarlega.
Næsti leikur liðsins er við Akur-
nesinga og iná fastlega búast við
að þeir fái að gjalda þess þar
hvað illa gekk i þessum leik hjá
meisturunum.
—klp—
í Nesti
Nú getur þú áhyggjulaust boöiö gestum kalda
drykki heima hjá þér. Engin biö eftir aö vatnið frjósi í
ískápnum.
Hjálslesti færöu tilbúna ísmola, — og þú átt ekki á
hættu aö veróa ís-laus á miðju kvöldi.
Renndu viö í Nesti og fáóu þér ísmola í veizluna!
JHUiU nesti h.f.
Ártúnshöfða — Elliðaár — Fossvogi