Vísir - 20.10.1975, Qupperneq 19
VISIR. Mánudagur 20. október 1975.
19
Eimskip kaupir
tuttugasta skipið
Eimskipafélag Islands
hefur fest kaup á nýju skipi.
Þetta er frystiskip, keypt i
Noregi og heitir Nordkynfrost.
Það er af svipaðri stærð og
Ljósafoss, sem er minnska
skip Eimskipafélagsins.
Nordkynfrost var smiðað i
Noregi árið 1972, og er 240
rúmlestir. 1 þvi eru tvær
frystilestir. Skipið verður af-
hent Eimskipafélaginu i
nóvember-lok eða desember-
byrjun.
Helstu verkefni skipsins
verða strandsiglingar. Það á
að safna saman frystivörum,
sem stóru skip félagsins flytja
til útlanda. Einnig verður
skipið i förum milli Islands og
Evrópuhafna.
Þetta er tuttugasta skipið i
flota Eimskipafélagsins.
Lán en
ekki ölmusa
„Fundur nemenda Vélskól-
ans og Stýrimannaskólans,
haldinn 16.10 ’75, mótmælir
harðlega þeim gerræðislegu
vinnubrögðum stjórnvalda að
standa ekki við gefin fyrirheit
varðandi fjármögnun L.i.N.
þannig að haustián geti farið
fram með eðlilegum hætti.”
í ályktuninni er það og talið
eðlilegt „að endurgreiðslu
fyrirkomulagi sjóðsins verði
breytt þannig, að lánin verði
visitölutryggð og endur-
greiðsla miðist við laun að
loknu námi þannig að ljóst sé
að hér sé um lán að ræða en
ekki ölmusu.”
í lok fundarins var sam-
þykkt að lýsa fullum stuðningi
við útfærslu landhelginnar i
200 milur. Og skorað á rikis-
stjórnina að halda að sér
höndum i samningagerð við
erlendar þjóðir.
EKG
Námskeið í yoga speki
Uógur Norðmaður, Arun Námskeiðin verða i fyrir-
Fossum hefur þriggja vikna lestrarformi, tvisvar i viku, á
námskeið í yoga-heimspeki i mánudögum og fimmtudögum,
húsakynnum Æskulýðsráðs kl. 20. Aðgangur er ókeypis og
næstkomandi mánudag. allir velkomnir. -ÓT.
Hraðbrautarstíll á
Hafnarfjarðarvegi
Þeir sem aka Hafnarfjarðar-
. veg igegnum Kópavog, hafa ef-
laust tekið eftir þvl síðustu
daga, að nýjar, og áður
óþekktar vegamerkingar hér á
landi, eru á veginum.
Langsum meðfram kantstein-
unum hefur verið máluð brotin
lina, ca. hálfan metri frá
kantinum. Vegagerðin hefur
með þetta að gera, og spurðum
við Sigfús örn Sigfússon verk-
fræðing til hvers þessi merking
væri.
,,í framtiðinni er ráðgert að
þessi vegur verði hraðbraut.
Yfirleitt eru ekki kantsteinar á
hraðbrautum. Þess vegna mál-
um við þessa brotnu linu til að
sýna hvar kanturinner i raun og
veru”, sagði Sigfús.
Hann sagði að akbrautin væri
þarna aðeins breiðari en venju-
lega. Linurnar sitt hvoru megin
marka akbraut af venjulegri
breidd.
„Tilgangurinn er sá að koma i
veg fyrir að menn aki á kant-
steinana, þegar hraðinn er
orðinn mikill. Með hvitu linunni
eiga ökumenn auðveldara með
að átta sig á hvar kanturinn
liggur. Nú, menn aka minna út i
kantinum fyrir vikið og minna
sest af óhreinindum i niðurföll-
in, sem þar eru,” sagði Sigfús.
Aðspurður hvort ekki mætti
strax lögleiða hærri hraða en
þarna er (60 km) sagði Sigfús,
að ýmis atriði þyrftu lag-
færingar við, áður en af þvi gæti
orðið. -ÓH.
ENGINNÝFLUG-
STÖÐ NÆSTU ÁRIN
Ekkert vantar nema pening-
ana til að hægt sé að bjóða út
byggingu nýrrar flugstöðvar i
Keflavik. En það er nú atriði
sem varla verður gengið fram-
hjá. Allri undirbúuingsvinnu er
lokið. Franskii^ og svo síðar
danskir, sérfræðingar hafa skil-
að skýrslum sinum.
Þar er gerð itarleg áætlun um
fyrirhugaða flugstöð. Hversu
mikið pláss þarf fyrir ýmsa
starfsemi, svosem farþegaaf-
greiðslu, toll, frihöfn og þar
frameftir götunum. Allt er þetta
miðað við flugumferðaspár.
Janvel þótt peningar fengjust
allt i einu, ,sem er heldur litið
útlitfyrir, liðu þó liklega nokkur
ár áður en hægt yröi að taka
flugstöðina i gagnið.
Arkitektavinna og annað er
alveg eftir, enn er ekkert vitað
um útlit stöðvarinnar, það tekur
varla mina en ár að ganga frá
þvi öllu og þá þarf að bjóða
bygginguna út, sem tekur eina
sex mánuði i viðbót. Og þá loks
yrði hægt að byrja að byggja. —
ÓT
Danskir sól-
frœðinemar
sœkja um
styrk
Nokkrir sálfræðinemar við
Arósaháskóla hafa nýlega
sótt um styrki til ýmissa aðila,
til þess að framkvæma alhliða
sálfræðilega og félags-
fræðilega könnun á öllum 14
ára unglingum á höfuðborgar-
svæðinu.íum 1800 manns)
Rannsóknin yrði hluti af
samnorrænni rannsókn sem
þegar hefur verið framkvæmd
i Noregi og Danmörku.
Þar sem kostnaður við
rannsóknina mun verða tals-
vert á þriðju milljón, hafa sál-
fræðinemarnir sótt um styrki
til: Norræna menningarmála-
sjóðsins, Sáttmálasjóðs, Fjár-
veitingarnefndar Alþingis og
Borgarráðs Rvikur.
1 bréfi sem fylgir
umsókninni til Borgarráðs er
skýrt frá þvi að Æskulýðsráð
hafi mælt með þvi við Borgar
ráð að borgin veiti fjárhags-
legan stuðning til rannsóknar-
innar.
-EKG-
Stúdentar kjósa
til 1. des.
nefndar
Stúdentar við Háskóla Is-
lands munu kjósa til 1. des.
nefndar miðvikudaginn 22.
október.
í gær rann út framboðs-
fresturinn. Vaka félag
lýðræðissinnaðra stúdenta,
leggur til að dagurinn verði að
þessu sinni helgaður
umræðum um spurninguna
„Hverjir stjórna Islandi?”
Verðandi sem er félag vinstri
manna leggur til að
umræðurnar snúist um
Kreppuna.
Viö höfum opnað nýja veitíngabúö
á þriöja hundrað manns í einu notið
í Hótel Esju-Esjuberg. Esjuberg er okkar fjölbreyttu rétta
opið alla daga frá átta á - allt frá ódýrum smáréttum upp
morgnana til tíu á kvöldin. Þar geta í glæsilegar stórsteikur.
Verið velkomin.
Suðurlandsbraut 2
Sími 82200
|c:|s3)(|jj|| |[ alll c=| pjjj Ell