Vísir - 08.11.1975, Síða 1
<65. árg. — Laugardagur 8. nóvember 1975. — 254. tbl.
HEILDSALARNIR
PÍNA KAUPMENN
Heildsalar eiga i miklum erfiðleikum með að útvega fé til að leysa út
jólavörurnar.
„Við verðum að pina kaupmennina til að greiða fyrr, og samþykkja
styttri vixla”, segir einn úr stétt heildsala i viðtali við Visi.
— Sjá baksiðu
Útvarp og
sjónvarp
um helgina
— sjá bls. 18-19
Jón Jénsson um viðrœður íslenskra
reskra fiskifrœðinga:
Um leið og breskar freigátur birtast:
JLÍTUM STJÓRNMÁLA
SAMBANDIVIÐ BRETA"
segir Guðmundur Kjœrnested skipstjóri
1
1
1
I
I
„Gætisvo farið, að rétt væri að
skora á rikisstjórn tslands að
slita þegar stjórnmálasambandi
við Bretland, um leið og bresk
freigáta birtist innan islenskrar
fiskveiðilandhelgi. Um leið að til-
kynna samstarfsmönnum okkar i
NATO, að okkar land sé lokað
allri umferð þeirra rikja, sem i
bandalaginu eru, svo lengi sem
breski flotinn hafi afskipti af okk-
ar innanrikismálum.”
Þannig komst Guðmundur
Kjærnested, skipherra og forseti
Farmanna- og fiskimannasám-
bands íslands, að orði i setningar-
ræðu á 27. þingi sambandsins.
Hann var mjög harðorður i garð
þeirra þjóða, sem veiða i islenskri
landhelgi.
Hann skoraði á þingfulltrúa, að
taka strax einarða afstöðu gegn
sliku ofriki (þ.e.breskum freigát-
um i islenskri landhelgi). Hann
sagði: „Við skulum gera þessum
vinum okkar ljóst þegar i stað að
við munum ekki þegjandi þola
þeim yfirgang hér við land.
Á þingfundum á fimmtudag var
landhelgismálið til umræðu. Mál-
inu var visað til nefndar, sem
gera mun tillögu að ályktun
þingsins. — Þessu þingi Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins lýkur nú úm helgina.
— AG.
Renndu stoðum S
undir skoðanir !
Hafrannsóknar-1
stofnunnrinnar !
„Viö islensku fiskifræðingarnir
teljum að niðurstöður viðræðn-
anna sein fram fóru milli breskra
og islenskra fiskifræðinga renni
stoðum undir skoðanir okkar um
ástand fiskistofnanna við ís-
land,” sagði Jón Jónsson, for-
stöðumaður Hafrannsóknarstofn-
unarinnar, i samtali við Visi.
„Segja má að bresku fiskifræð-
ingarnir hafi viðurkennt grund-
vallaratriðin i skýrslu Hafrann-
sóknarstofnunarinnar.”
1 skýrslu um fund islensku og
bresku fiskifræðinganna kemur
fram að bretar viðurkenna
meginniðurstöðúrnar i skýrslu is-
lensku starfsbræðra sinna. Báðir
telja smáfiskveiðarnar afar ó-
æskilegar og að sóknaraukning
leiði til frekara smáfiskadráps.
Skoðanamunurinn sem fram
kemur er furðu litill og liggur
helst i þvi að islenskir fiskifræð-
ingar nota niðurstöður seiðarann-
sókna undanfarinna ára til þess
að meta stærð árganganna frá ár-
unum 1972 til 1975 sem þriggja
ára fisks.
Bretar vildu hins vegar nota
meðaltal af fjölda þriggja ára
fisks i veiði undanfarinna ára til
að áætla fjöldann i þeim aldurs-
flokki á næstu árum.
Breskir og islenskir fiskifræð-
ingar eru sammála up^ að friða
beri þriggja ára fisk og yngri til
að stofninn geti gefið af sér var-
anlegan hámarksafla, 450—500
þúsund tonn.
Það sem i milli ber er að bretar
telja ýmsa erfiðleika fylgja
friðuninni hvað snertir stjórnun
veiðanna, en islendingar telja
hana hins vegar mögulega með
aukinni möskvastærð og lokun
uppeldissvæða, þar sem smár
fiskur heldur sig. —EKG
Mistök að ráða
Herbert • r.’L
Eftir að Herbert Guðmundssyni var sagt upp sem söngvara hljóm-
sveitarinnar Pelican, viðurkenna féiagarnir sem eftir eru, að frá upp-
liafi hafi það verið mistök að ráða Herbert sem söngvara hljómsveit-
arinnar.
i viðtali i Tónhorni Vísis segja þeir frá sjónarmiðum sinum.
Sjá bls. 14.
■
■
Tími basara og hlutaveltna
Nú er timi basara og hlutaveltna. Vrnis góðgerðafélög og
hjálparstofnanir hafa þessar aðferðir við öflun fjár til starfsemi
sinnar.
Sjá fréttir á bls. 3.
„Þessi eilífi þvœttingur
um frelsun kvenna..."
Avaxtasalinn heitir mánudags- kúgaðan karlmann. gegn konum, heldur snauðum
mynd Háskólabiós. Hún er gerð Fassbinder hefur sagt: „Þessi gegn rikum, kúguðum gegn
af Fassbinder, einum þekktasta eilifi þvættingur um frelsun kúgurum. Og i heiminum eru ná-
kvikmyndagerðarmanni Þýska- kvenna vekur gremju mina, þvi kvæmlega jafnmargir kúgaðir
lands. t myndinni fjallar hann um lifsbaráttan erekki háð af körlum karlmenn og konur”. Sjá 3. siðu.
SÓTT AÐ SJOPPU í EYJUM
Það á ekki af hinu svokallaða
Friðarhafnarskýli i Vest-
mannaeyjum að ganga. Þar er
sjoppa til húsa sem hefur orðið
talsvert fyrir baröinu á inn-
brotsþjófum.
I fyrrinótt var gerð tilraun til
innbrots þar og brotin rúða, en
ekki virðist hafa verið farið inn.
Fyrir hálfum mánuði siðan
véigruðu menn sér hins vegar
ekki við að fara inn. Ekki er vit-
að hver eöa hverjir voru að
verki i bæði skiptin, en aðkoman
var ljót i fvrra skiptið.
Þvi sem ekki var stolið hafði
verið rótað niður úr hillum. Þvi
næst hafði tómatsósu og sinnepi
og raksápu veriö sprautað vfir
allt saman.
— EA