Vísir - 08.11.1975, Page 9
VtSIR. Laugardagur 8. nóvember 1975.
9
hvorri röð, myndar tákn sem
fingurgómur getur vel numið.
Ef táknið væri 1 punkti hærra
eða breiðara gætu litlir puttar
ekki numið allt bókstafstáknið.
Louis Braille heppnaðist með
þessum 6 punktum að mynda
letur, sem hægt er að setja sam-
an á 63 mismunandi vegu, og er
með þvi hægt að tjá alla mann-
lega hugsun, formúlur og fræði.
Braille byggði letur sitt á ein-
faldan og skipulagöan hátt.
Fyrstu 10 bókstafirnir voru
myndaðir af 4 efstu punktunum
i 6 punkta ferhyrningnum.
Næstu 10 stafir eru myndaðir
með þvi að bæta við þriðja
punktinum neðst til vinstri og
hinir bókstafirnir eru myndaðir
16 óra piltur fann upp
fyrsta nothœfa blindra-
letrið fyrir 150 órum
Louis Braille hefur
framur öllum öðrum ver-
ið brautryðjandi fyrir
blinda með blindraletri
sinu/ sem er nú notað um
allan heim. Hann var
franskur/ fæddist í Coup-
vray 4. janúar 1809.
Þriggja ára gamall varð
hann fyrir miklu slysi í
söðlagerð föður síns og
var ekki hægt að bjarga
sjóninni á því auga. En
slysið hafði þær af-
leiðingar fyrir heilbrigða
augað/ að það sýktist og
eftir stuttan tíma missti
hann einnig sjónina á því
og varð alveg blindur.
Foreldrar Brailles voru læs og
skrifandi sem i þá tið var
óvanalegt meðal sveitafólks, og
ing: Hvað á ég að gera til að
geta séð? Hvernig get ég fengið
að lesa það sem sjáandi hafa
skrifað? Um heimssöguna? Um
listir? Um læknisfræði? Um
stjórnmál? Um konur og karla?
Um sjálfan mig? Um leyndar-
dóm fæðingarinnar og kærleik-
ans? I stuttu máli sagt, hvernig
á ég, blindur maður, aö hasla
mér völl í heiminum sem hluti
af honum? Hvernig get ég feng-
ið að lesa og skrifa um atburð-
ina stuttu eftir að þeir gerast, til
þess að ég geti fylgst með og
dragist ekki afturúr?”.
I leit sinni að aðgengilegu letri
fyrir blinda kynntist hann árið
1821 letri Barbiers sem ætlað
var til nota i hernum og sem átti
jafnvel að vera hægt að lesa i
myrkri.
Letur Barbiers er samsett af
12 punktum i 2 röðum og eru 6
punktar i hvorri. Þessa 12
punkta var hægt að setja i kerfi
með hjálp annars eða beggja
neðstu punktanna. Siðan hélt
hann áfram og jók við kerfið,
þannig að með þvi var hægt að
tjá öll leturtákn. Gagnrýnendur
sögðu frá byrjun, að letriö væri
ekki hentugt fyrir stærðfræði.
En Braille var heldur ekki neinn
stærðfræðingur, hann var bara
gáfaður og hugmyndaauðugur
ungur maður, sem með hjálp
fingra sinna leitaðist við að
finna fyrir sjálfan sig og alla
aðra blinda menn hentugt og
nothæft letur sem hægt væri að
lesa án sjónar.
Þegar námsárunum lauk
gerðist hann kennari við skól-
ann sem hann hafði numið við
og hélt jafnframt áfram að
vinna að uppbyggingu letursins.
Kennarahæfileikar hans vöktu
almenna athygli og notaði hann
blindraletrið við kennslu með
miklum árangri. Arið 1829 gaf
hann út fyrstu bók sina, þar sem
hann lýsti reynslu sinni.
fékk sonurinn að fara i skóla
með sjáandi börnum. Hann
sýndi fljótt afar góða námshæfi-
leika og 10 ára gamall eða árið
1819 fékk hann skólapláss við
„Institution des Jeunes Eveu-
gles de Paris”. Við skólann voru
notaðir venjulegir bókstafir
sem voru upphækkaðir. Reynd-
ist blindum erfitt að læra að lesa
með þessu letri og Braille gerði
sér fljótt grein fyrir þvi hversu
takmarkandi það var að geta
ekki kynnst bókvitinu. Hann
hefur lýst þessu í dagbók sinni á
eftirfarandi hátt:
Ég er blindur,
ég get ekki séð
,,Ég er blindur. Ég get ekki
séö. Þá vaknar sú erfiða spurn-
sem passaði við flest orð i
franskri tungu.
Louis Braille reiknaði út, að ef
maður fækkaði punktunum nið-
ur i 6, þá var það ekki einungis
nóg til þess að gefa tákn fyrir
alla bókstafina heldur var einn-
ig hægt að tjá með þeim nótur,
efnafræði- og jafnvel stærð-
fræðitákn. Eftir 2 ára tilraunir
tókst honum árið 1825, þá 16 ára
gömlum, að skapa hið fyrsta
nothæfa blindraletur i heimi.
Hann byggði kerfi sitt á eftirfar-
andi hugsun:
Bara gáfaður
og hugmyndaríkur
Ferhyrningur með 6 punkt-
um, með punktana i 2 lóðréttum
röðum, þar sem 3 punktar eru i
Tækifærið kom
Osamlyndi meðal kennara
skólans leiddi til þess að dr.
Pignier, sem hafði stutt Braille
með ráð og dáð, var sagt upp og
i hans stað kom Duaf. Duaf
þoldi ekki velgengni Brailles og
i einni af sjúkralegum Brailles
lét hann brenna allar blindra-
letursbækurnar og setti i stað-
inn fyrir þær gömlu bækurnar
með upphækkuðu latnesku bók-
stöfunum.
Braille lét ekki bugast, heldur
hélt áfram starfinu og beið eftir
tækifæri til að geta kynnt letur
sitt á ný. Þetta tækifæri kom
þegar vigja átti nýbyggðan
blindraskóla sem átti að taka
við af þeim gamla. Við vigsluna
hélt maður sem Guadet hét
ræðu sem hann hafði sjáífur
skrifað á blindraletri. Hann
gerði samanburð á gamla
latinuletrinu og blindraletrinu
með þeim árangri, að jafnvel
Duaf sá sig um hönd og skipti
um skoðun.
Braille hélt áfram störfum
sinum við skólann, en slæmt
heilsufar hans hindraði hann i
að vinna frekar að gerð blindra-
letursins og að öðrum vanda-
málum, sem lágu honum þungt
á hjarta. Hann dó' 6. ianúar
1852 og var jarðsettur i
fæðingarbæ sinumc22 júni 1952
var hann hylltur um heim allan,
þá voru hinar jarðnesku leifar
hans fluttar frá litla sveita-
kirkjugarðinum til Parisar, þar
sem hann hvilir nú i Panthéon
ásamt öðrum stórmennum
frönsku þjóðarinnar.
Nýir
snjóhjólbarðar
Hollenskir
heilsólaðir
snjóhjólbarðar
HJDLBflRDflSALflH
BORGARTÚNI 24 - SÍMI 1492S - PÓSTHÓLF 5169
Þessari spurningu er beint til þin, ungi
íslendingur. Þaö þýöir ekkert fyrir þig að berja
höfðinu viö steininn og segja að þú vitir ekki aö
reykingar séu heilsuspillandi. Athugaðu þinn
gang áöur en þú snertir sígarettur. Stefnir þú
aö þvi að leggjast inn á sjúkrahús meö hjarta-
eöa lungnasjúkdóma, þegar þú ert á bezta aldri
eöa ætlar þú aö deyja úr einhverjum
reykingasjúkdómanna, þegar kunningjarnir,
sem ekki reykja, eru enn i fullu fjöri?
Láttu bitra reynzlu allt of margra islendinga af
reykingum verða þér viti til varnaðar.
.^^^XByrjaðu aldrei aö reykja.
SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR