Vísir - 25.11.1975, Page 3
Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
3
BUÐARDALUR:
„ALGJORAR
DYLGJUR
að matvœli héðan hafi
orsakað matareitrun"
Visir hafði samband við dýra-
lækninn á Búðardal og spurði
hann hvað hæft væri i þvi sem
fram kemur i lesendabréfi Visis
frá 18. nóv. sl. Þar birtir Aðal-
steinn Valdimarsson gagnrýni
sina á klóak- og skolpfrárennsli
sem hann segir vera i opnum
skurði. Fénaður ösli i aurnum, og
þegar hann er færður til slátrunar
stafi af honum mikil mengunar-
hætta. Þá sé og almennu hreinlæti
ábótavant i sláturhúsinu, enda
þvi lokað um tima sökum þessa.
Hann lætur og i það skina að
þarna sé að finna skýringuna á
þeim tiðu matareitrunum sem
hann segir svo oft sagt frá.
Dýralæknirinn sagði hér vera
um dylgjur að ræða. Hann hefði
haft á hendi hreinlætiseftirlit og
kjölskoðun, og hann hefði ekki
enn orðið var við neitt slikt. Hann
sagði það og dylgjur að sóðaskap-
ur væri slikur að eitrun valdi.
Hann kvaðst hafa lokað slátur-
húsinu i haust vegna ólokinna
ráðstafana sem nú væri búið að
ráða bót á að mestu. Að visu væri
skolp ekki að öllu leyti komið i
lokuð ræsi, en unnið væri að þvi af
fullum krafti. Um það mætti deila
hvort nægur kraftur væri á fram-
kvæmdum, en langur vegur væri
til þess sem dylgjað væri um i
greininni.
Aðrar framkvæmdir sönnuðu
og að unnið væri að þessu, eins og
t.d. að boraðar hefðu verið holur
og lögð ný vatnslögn. — VS
FISKIÞING MOT-
MÆLIR SAMNINGS-
TILBOÐI TIL
„Neyðist islensk stjórnvöld
hins vegar vegna ofrikis og of-
beldisaðgerða stórþjóða til tak-
markaðra samninga til skamms
tima, ber að leggja áherslu á að
einungis verði heimilaðar
veiðar á þeim fisktegundum,
sem eru i bráðri hættu
Fiskiþing mótmælir
samningstiiboði sem felur i sér
veiðiheimildir eriendra þjóða á
allt að 65.000 lestum, sem að
meginhluta er þorskur.”
BRETA
Þetta segir m.a. i ályktun ný-
-afstaðins Fiskiþings um land-
helgismálið.
Eftir að ályktun þessi hafði
verið samþykkt kom fram
tillaga um að Fiskifélagið
gerðist aðili að samstarfs-
nefndinni um vernd land-
helginnar. En þar sem sam-
starfsnefndin berst alfarið gegn
samningum við útlendinga var
hún felld.
-EKG.
Anton, örn og Paili velja timbur i hriðar-
muggunni.
Strákarnir frá
því í sumar...
Anton sagar lárétt.
i þau fáu skipti sem
sást til sólar í sumar
gægðumst við oft út um
gluggann hjá okkur hérna
í Síðumúla 14/ þar sem
ritstjórn Vísis er. Við
horfðum öfundaraugum
á nokkra hressilega pilta
sem voru að byggja hús
hinum megin við göt-
una.
Við kölluðum það skrifstofu-
fárviðri þegar sólin hitaði upp
hjá okkur og við hefðum miklu
frekar viljað vera berir að ofan
við byggingavinnu. Eins og aðr-
ir sem vinna inni, létum við okk-
ur dreyma um að verða sólbrún
og sæt. Ekki þar fyrir að það
gáfust ekki margir möguleikar
til að verða það i sumar, jafnvel
þótt menn stunduðu útivinnu.
Annað útsýni
t gær varð okkur aftur litið út
um gluggann og þá sáum við
varla i piltana frá þvi i sumar
fyrir snjókomunni. Otsýnið var
allt annað og leiðinlegra. Skyldu
þeir sem eru svo heppnir að
vinna inni i landi, yfirleitt gera
sér i hugarlund hvað það er að
stunda útivinnu á islenskum
vetri? Stundum þegar við þurf-
um að hlaupa á milli húsa i
miklum kulda, dúðum við okkur
með öllum tiltækum flikum og
skreiðumst svo másandi og
blásandi inn i hlýjuna á áfanga-
stað. Þá er oft rætt við ókunn-
uga, þótt það séu ekki n’ema örfá
orð: „Úff, en sá kuldi”.
Það er ekki óliklegt að á þess-
um spöl sem hlaupinn var hafi
verið farið framhjá fimm, sex
eða jafnvel fleiri mönnum sem
stóðu úti við vinnu sina og töluðu
ekkert um kuldann sin á milli.
Palli, Örn og Anton heita þrir
þeirra sem eru að vinna
hinumegin við götuna og þeir
héldu áfram að saga og negla
meðan þeir svöruðu kjánaleg-
um spurningum.
— Er ekki andstyggilegt að
vinna úti i svona veðri?
— Ojæja, það er svosem ekk-
ert skemmtilegt. En það er nú
ekki kalt. Og maður er orðinn
vanur þessu. Sumarið var nú
ó.kki svo gott að veðrabrigðin
,...og Palli sagar lóðrétt.
(Myndir ÓT)
séu neitt óskapleg. En það er
alltaf betra að vinna i góðu
veðri, hvað sem maður gerir.
Þeir voru hressilegir og ekki
að sjá að þeir vorkenndu sér að
standa þarna snjóugir uppfyrir
haus. Það var og. — Bless strák-
ar. — Blessaður.
Og svo var hlaupið yfir götuna
og i hlýjuna á ritstjórninni. En
sagarhljóðið og hamarshöggin
glumdu ennþá hinumegin við
götuna.
—ÓT
YFIRLYSING
Seðlabanki íslands skrifar vegna
greinar Vilmundar Gylfasonar
BANKAEFTIRLIT
REYKJAVlK, 24. nóv. 1975.
Bankastjórn Landsba-ika fslands,
Reykjavík.
Meti greininni "A föstudegi" í dagblaSinu Vfsi 21. nóvember eru
birt ljósrit úr skýrslum bankaeftirlits SeSlabankans um rekstur og efnahag
viSskiptabanka og sparisjóSa sfSustu tvö árin. Sýna ljósritin hluta aí sundur-
liSuöum eínahag Landsbanka fslandi. pr. 31. desember 1973 og 1974. Sam-
kvaemt ósk bankastjórnar Landsbankans vill bankaeftirlitið staSfesta eftir-
farandi atriSi varSandi gerS þessara skýrslna.
EfnahagsliSurinn "viSskiptareikningur aSalbanki/útibú" hjá Lands-
bankanum er ekki gerSur upp meS sama haetti f skýrslunum 1973 og 1974 og
eru viSkomandi upphaeSir því ekki samanburSarhaefar hjá einstökum útibúum
og aSalbankanum. Mismunurinn liggur f því, aS f fyrri skýr slunni er endur-
tala afurSalána einstakra útibúa f SeSlabankanum færS sem skuld útibúanna
v S SeSlabankann, en seihna áriS er endursalan innifalin f stöSunni viS aSal-
bankann, þannig aS ekki er sýnd skuld viS SeSlabankann f efnahag einstakra
utibua. Kemur þessi mismunur á gerS skýrslnanna raur.ar glöggt fram f
þeim ljosritum, sem birt voru.
f árslok 1974 námu endurseld afurSalán útibúsins á Akureyri
1.040. 954 þús.kr. Sé sú upphæS dregin frá stöSu viSskiptareiknings aSal-
banka/utibúa, sem er 1. 686. 856 þús. kr. samkvæmt fiainangreindri skýrslu,
verSur útkoman 645.902 þús. kr. , og þaS er sú upphæS, samer hæf til saman-
burSar viS þær 338. 144 þús.kr. , sem framkoma f skýralunni f árslok 1973.
VirBingarfyllst
SEÐLABANKI I5LANDS
Föstudaginn 21. nóvember
birtist i Visi grein eftir Vilmund
Gylfason. Með greininni eru birt
yfirlit, sem bankaeftirlitið hefur
tekið saman úr efnahagsreikn-
ingum Landsbankans 31.
desember 1973 og 1974. Þessi
yfirliteru ósambærileg að þvi er
snertir stöðu útibúanna gagn-
vart aðalbanka, eins og fram
kemur i bréfi bankaeftirlitsins
til bankans, sem við birtum hér
með. Þetta hefur svo leitt til
þess að greinarhöfundur dregur
rangar ályktanir i grein sinni,
þar sem hann segir að skulda-
aukning Landsbankans á Akur-
eyri hafi verið 1,3 milljarður á
árinu 1974, i stað þess að hún
varð i raun heilum milljarði
minni eða 0,3 milljarður, eins og
bréf bankaeftirlitsins ber með
sér. Eftir að tillit hefur verið
tekið til fjárhæða sem standa á
milli útibúa og aðalbanka
verður raunveruleg skulda-
aukning útibúsins á Akureyri
340 millj. kr. á árinu 1974. Þetta
kemur greinilega fram af töflu,
sem gerð var i Hagdeild bank-
ans 13. nóvember sl. að beiðni
Vilmundar. Hann fékk töfluna
afhenta þann sama dag og sjá-
um við ástæðu til að birta hana
hér. Taflan sýnir skuldir og inn-
eignir útibúanna við aðalbank-
ann hálfsárslega frá árslokum
1973 til ársloka 1974. Hér er að
sjálfsögðu um nettóstærðir að
ræða, þ.e. afurðalán, sem
endurseld hafa verið Seðla-
bankanum eru ekki meðtalin, .
enda eru þau lán alveg sjálfvirk
og geta hvorki útibússtjórar né
bankastjórar ráðið neinu um
veitingu þeirra. Auk þess kemur
fé til þessara lánveitinga beint
frá Seðlabanka en ekki aðal-
banka.
Til enn frekari upplýsingar
má geta þess að heildarútlán á
Akureyri jukust um 66% á árinu
1974 á meðan útlán annarra úti-
búa jukust um 78%.
Af þessu má ljóst vera að um-
mæli Helga Bergs, bankastjóra,
sem höfð eru eftir honum i Visi
10. nóvember sl., eru rétt.
(frá Hagdeild Landsbanka)
jTIBfl LANDSBANKANS
1 milli.kr. 31 .12. '73 30.6. '74 . 31.12.'74
NettóstaÖan viÖ aÖalbankann. ( + = inneign; skuld)
Akranes + 55,2 + 42,9 + 40,5
Akureyri .... ■ - 334,3 - 690,5 - 674,8
EskifjörÖur . 1) - 260,9 — - 158,5 - 206,6
FáskrúÖsfj. . - - 9,2 - 0,4
Grindav./Sandg. + - 61,0 + 87,6 + 67 ,4
Hornafjöröur.. - 35,3 - 79,6 121,8
Húsavík + 57 ,6 + 47,5 + 82,5
Hvolsvöllur . - 4,9 + 1,1 + 11,2
Isafjöröur .. + 44,7 - 52,3 ' - 139,2
NeskaupstaÖur 1) - - 149,8 - 194,1
Selfoss ...*.. + 47,7 - 28,0 ' 14 8,2
ALLS - 369,2 - 988,8 - 1283,5
ATH: 1) UtibúiÖ í NeskaupstaÖ var opnaÖ í maí 1974
og er aukning skuldar þess viö aöalbankann
aÖ mestu fólgin í flutningi viÖskipta frá
útibúinu á EskifirÖi.