Vísir - 25.11.1975, Side 11
VISXR
Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
cTVIenningarmál
mM'
Lögreglumaður 272 heldur áfram lögreglustörfum þótt honum hafi
verið vikið úr starfi.
Ein besta
löggumyndin
í langan tíma
Háskólabíó
Lögreglumaður 372
Bandarlsk, 1974.
Lögreglumaður 373 er ein sú
besta lögreglumynd sem undir-
ritaður hefur séð að undanförnu
og finnst að henni megi líkja við
Hættustörf lögreglunnar sem
sýnd var I Stjörnubiói.
Þessi mynd fjallar um lög-
reglumann sem vikið er lir
starfi um stundarsakir meðan
verið er að rannsaka manndráp
sem hann varð óviljandi valdur
að. Hann hafði drepið Porto
Rico-mann og er þvi álitinn kyn-
þáttahatari. Lögreglumaðurinn
fær sér vinnu sem barþjónn.
Skömmu siðar er félagi hans Ur
lögreglunni og vinur myrtur, og
verður það til þess að hann fer
að rannsaka feril hans. Hann
kemst m.a. að þvi að vinur hans
hafði haft samband við konu
nokkra sem vissi eitthvað um
vopnasendingar til Porto Rico.
Jafnframt kemst hann að þvi að
félagi hans hafði þegið mútur af
stórlaxi i Harlem, þeim sem sjá
átti um vopnasendinguna. Á
meðan rannsókn lögreglu-
mannsins stendur er vinkona
hans myrt og honum sjálfum
misþyrmt allhrottalega. Það
eru aðstandendur vopnasend-
ingarinnar sem fyrir þeim að-
gerðum standa. t lok myndar-
innar, þegar lögreglumaðurinn
liefur komist að þvi hvar á að
lesta vopnin i skip i Porto Rico,
tilkynnir hann lögreglunni um
það, en áskilur sér jafnframt
rétt til að kála höfuðpaurnum,
sem á sök á allri hans ógæfu.
Robert Duvall, sá er leikur
lögreglumanninn er vafalaust
þekktari sem consigliori úr
Guðförðurnum,en honum fer þó
einnig ágætlega að leika rudda-
legan lögreglumann sem er og
verður alltaf lögreglumaður.
En það sem gerir þessa mynd
ágæta :. umfram aðrar álika er
það að komið er inn á fleiri svið
heldur en ofbeldið eitt. Aðeins er
vikið að baráttu minnihlutahóp-
anna i Bandarikjunum og vand-
ræðum þeim sem þeir eiga við
að glima, og einnig er komið inn
á ýmis mál sem má imynda sér
að við sé að etja innan banda-
risku lögreglunnar.
1 myndinni er sýndur elting-
arleikur á bilum, en sh'kt er orð-
ið fastur liður i svona myndum.
Þó er aðeins brugðið út af
vananum i þetta skiptið, þvi sá
sem er eltur ekur strætisvagni
með farþegum i!
Að öllu samanlögðu er vel
þess virði að sjá þessa mynd ef
menn vilja sjá vel gerða og
spennandi lögreglumynd.
—RJ
Vinátta og ást
Tónabió
Ástfangnar konur
Bresk
Leikstjóri Ken Russell.
Það er ekkert vafamál að Ken
Russell er snillingur, þótt hann
stundum ofbjóði skynsemi
manns, fari út fyrir það sem við
mundum kalla mannlegt.
Hann meðhöndlar viðfangs-
efnið öðruvisi heldur en aðrir
menn. Hann er súrrealistiskur
kvikmyndagerðarmaður, og
maður má ekki vænta þess að
sjá eitthvað sem rennur i gegn-
um mann án þess að hugsun
þurfi að koma til. Ken Russell
er maður smáatriðanna. Það
kemur vel fram i þessari mynd,
t.d. þegar hann sýnir ungu hjón-
in i faðmlögum á botni lónsins
og einn segir: Hún drap hann.
Siðan er skotið á Rúpert og
úrsúlu i sömu stellingum en
ekkert sagt. Hins vegar dylst
engum að úrsúla „drepur”
Rúpert með tali sinu. Hún
þröngvar skoðunum sinum upp
á hann. Þetta er aðeins eitt af
þvi sem maður skynjar þegar
horft er á myndina.
Það er ekki til neins að ætla
sér að segja efnisþráð myndar-
innar, þvi hann er enginn sem
slikur. Heidur fjallar hún um lif
manna, fjögurra manna. Þessir
menn eru tvö pör af heldri
manna stétt, og verk Russells er
að sýna fram á úrkynjunina, til-
gangsleysið og tilbúnar þarfir
og langanir fólksins.
Þarna er eiginlega ekki á
ferðinni saga um hinn eilifa þri-
hyrning, heldur fimmhyrning.
Tvær kennslukonur heillast af
heldri mönnum og á þann hátt
sem Russell einum er lagið
fjallarhann um samskipti þess-
ara aðila. Leikur þeirra Reeds
og Bates er á stundum stórkost-
legur og hugmyndir þeirra, sér-
staklega Bates um vináttuna
sem endar með þvi að verða hin
fullkomna ástsem aldrei verður
rofin.
—RJ
Fimmhyrningurinn. Gerald og
Guðrún (Oliver Recd og Glenda
Jackson, sem hlaut óskarinn
fyrir leik sinn i myndinni),
Rúpert og Úrsúla (Alan Bates
og Jennie Linden) og Hermione
hin ráðrika sem öllum vill
stjórna og drottna yfir Rúpert,
leikin af Elenor Bron (lék m.a. i
Alfie).
stjörnu-
kíkirinn
1 J
Léleg
0
Sæmileg -I-
Góð + +
Mjöggóð + + +
Frábær + + + +
Gamla bíó ++.+
Hefðarfrúin og umrenning-
urinn
Haskólabío + + +
Lögreglumaður 373
Stjörnubíó +
Emmanuelle
Nýja bíó +
Ævintýri Meistara Jakobs
Bæjarbío + +
Barnsránið
Tónabíó + + +
Astfangnar konur.
KVIKMYNDIR
Umsjón:
Rafn Jónsson og
TEIKNAÐIR HUNDAR
ERU MÖNNUM BETRI
Gamla bló
Hefðarfrúin og umrenningurinn
Bandarlsk, frá Walt Disney.
Það er enginn svikinn sem fer
að sjá teiknimyndirnar frá Walt
Disney, þvi gæðin eru stórkost-
leg. Hvergi hroðvirkni né villa,
allt eins og það á að vera. Dýrin
i þessu tilfelli hundarnir — eru
sérgrein disneyanna, og mann-
fólkið er algjört aukaatriði.
Það er ánægjuleg tilbreyting
að fara að sjá reglulega fallega
mynd þar sem kærleikurinn og
sakleysið eru númer eitt, þó
stundum sé það litið eitt ame-
riskt. En hvað umþað. Það var
greinilegt að yngsta kynslóðin
sem var i meirihluta i bióinu á
sunnudaginn skemmti sér
konunglega, og það gerði
reyndar einnig fullorðna fólkið.
Myndin er þó svo dramatisk á
köflum að tárin komu i augun
hjá yngstu börnunum. En allt er
gott sem endar vel og það gerði
sagan svo sannarlega i þessari
mynd.
Þótt þessi mynd sé góð þá er
hún ekki eins hröð og
kattamyndin sem sýnd var i
fyrra og ekki eins fyndin og
Jungle Book sem sýnd var fyrir
þremur árum og sumir sáu
jafnvel 14 sinnum. En hún
stendur þó fyllilega fyrir sinu.
Aður en aðalmyndin hófs.t var
sýnt úr næstu teiknimynd sem
verður um Hróa hött, og það
virðist sem þar sé von á reglu-
lega góðri teiknimynd, og vona
ég að hún komist á tjaldið i
Gamla biói sem skjótast.
Það gera sér sennilega fáir
grein fyrir þéirri óskapa. vinnu
sem liggur i gerð einnar mynd-
ar sem myndin um hefðarfrúna
og flækinginn er. Fyrir hverja
eina sekúndu eru teiknaðar 24
myndir (ekki 6 myndir einsog
islenskir teiknimynda -
gerðarmenn gera). Siðan þarf
að lita þær allar, og koma þeim
Umrenningurinn kennir hefðarfrúnni að njóta lifsins. Hámark allr-
ar lifsánægju hunda er að striða hænum. En hætta skal leik þá hæst
hann ber, eða þegar hænsnaeigandinn bvriar haglaskothrið.
á filmu, en það eitt tekur geysi-
lega langan tíma. Þótt ekki séu
það heimsfrægir leikarar sem
leika í slikum myndum eru þær
oft á tiðum dýrari heldur en
leiknar myndir með dýrum leik-
urum. Það tók t.d. um 300
manns eitt ár að teikna og
ganga frá myndinni um Jungle
Book.
Hefðarfrúin og umrenningur-
inn er kvikmynd sem hægt er að
mæla með sem fjölskyldumynd.
Látið hana ekki fara fram hjá
ykkur, þvi hún er ósvikin
skemmtun. —RJ
FORMULA
GETRAUNAKERFIN
GEFA 11RÉTTA!
j-3
Formula 0-6-12
12
11 réttir
Formula 0-7-16
16
11 réttir
Formula 1-6-24
24
11 réttir
Formula 0-8-32
32
11 réttir
(Formula 2-5-36
36
11 jéttir
Formula 1-7-48
48
11 réttir
Formula 3-4-48
48
11 réttir
Formula 0-9-64
64
11 rettir
Formula 2-7-128
128
11 réttir
Formula 4-4-144
4 144
11 réttir
i 11. LEIKVIKU GÁFU 11RÉTTIR
89.000.00 KR.
Þeir sem nota kerfi vinna oftar i
getraunum en aórir. Er það ekki
næg ástæóa til aó nota getrauna-
kerfi ? Tryggóu þér eitt strax i dag!
Fullkomnar upplýsingar fylgja.
ADEINS KR 500-
FORMULA
Pósthólf 973 Reykjavík
/